Tíminn - 16.07.1988, Page 13

Tíminn - 16.07.1988, Page 13
Laugardagur 16. júlí 1988 13 \MÁL SAKAMÁL SAKAMÁL SAKAMÁL SAKAMÁL SAKAMÁL SAKAMÁL SAKAMÁL ,SAKAMÁ HELGIN X sta stefnumót við elskhugann á knæpu. - Við vitum að minnsta kosti að hún var ekki myrt í íbúðinni. Steenhouven kipptist við. - Nú man ég, sagði hann hissa. -í>að fólk, sem kynntist henni á knæpunum, sagði allt, að hún hefði verið bind- indismanneskja og aldrei snert áfengi. Hún drakk gosdrykki heilu kvöldin. - Ekki í þetta sinn. Hún hlýtur að hafa innbyrt töluvert fyrst læknirinn gat fundið leifar áfengis eftir allan þennan tíma. Ertu alveg viss um hitt? - Ég hélt mig vera það, svaraði Steenhouven. - Annars ætla ég að tala við Amelinckx. Hann hlýtur að vita, hvort kona hans drakk áfengi eða ekki. Jean-Paul vissi það. Hann sagði að Yolande hefði aldrei á ævi sinni bragðað áfengi. Þetta fékkst staðfest hjá foreldrum hennar og frænku. Nú var rannsóknin strönduð á einkennilegum staðreyndum, sem stönguðust mjög á. Þrátt fyrir bind- indið, virtist Yolande hafa verið alldrukkin, þegar hún var myrt. Lausn þeirrar gátu lá ekki Ijós fyrir. Hins vegar þótti auðsýnt, að Yo- lande hefði gert sér upp höfuðverk- inn til að þurfa ekki að fara í hina venjulegu sunnudagsheimsókn til foreldra sinna. Um leið og maður hennar var farinn, tók hún að pakka niður föt sín og verðlausa skartgripi. Annaðhvort hafði hún síðan verið sótt heim til sín, eða farið út og hitt elskhuga sinn, verið myrt í bíl hans eða íbúð. Par sem læknirinn gat ekki séð nákvæmlega hvenær líkinu var fleygt í höfnina, gat það hafa beðið þar til hentugleikar leyfðu. Vandamálið við þessa kenningu var það að ekkert benti til neinnar ástæðu fyrir morðinu. Dularfullur sjómaður Graaf velti þessu fyrir sér, en sagði svo: - Verið gæti að elskhuginn væri geðbilaður og hún ekki haft hugmynd um það. Þá gæti hann hafa fengið eitthvert smáatriði svo á heil- ann, að hann myrti hana bara að ástæðulausu. - Þá verðum við að finna ein- hvern, sem sá þau saman, sagði Steenhouven. - Það er varla um aðra að ræða en Jean-Paul og frænkuna. - Þau segj- ast hafa séð þau í almenningsgarðin- um og á kaffihúsum. - Þá hlýtur einhver annar að hafa séð þau líka, sagði Graaf. - Við verðum að finna það fólk. Nú var reynt að finna einhvem, sem séð hafði Jerome Plessy, með eða án Yolöndu Amelinckx, og hafa uppi á honum gegn um sjómannafé- lög og atvinnuleysisskrifstofur. At- vinnuleysi er mikið í Belgíu, einnig meðal sjómanna. Hvomtveggja varð árangurslaust. Þó að talað væri við mörg hundmð manns, kannaðist enginn við Jerome Plessy eða hafði séð mann sem lýsingin átti við. - Hans er hvergi getið, sagði Steenhouven. - Það er skrýtið, því nafnið er fremur óvenjulegt. Ég hef aldrei heyrt nafnið Plessy fyrr, en í borg af þessari stærð ættu þó nokkrir að heita því. - Það er meira en skrýtið, svaraði Graaf. - Það bendir til að við vinnum út frá röngum forsendum. Útilokað er að maður búsettur í borginni sé hvergi á skrá og enginn hafi nokkumtíma séð hann né heyrt hans getið nema Jean-Paul Ame- linckx og Gerda Rousseau. Að ekki sé minnst á að maðurinn á að vera nógu brjálaður til að fremja morð að ástæðulausu, en enginn læknir kann- ast þó við. - Plessy virðist svona maður, sagði Steenhouven. - Nei, hann er það ekki, svaraði Graaf. - Eina skynsamlega skýringin beina á veitingahúsi, áður en hún gerðist bensínafgreiðslumaður, en það var hún núna. Aðaláhugamál hennar var lestur ævintýraskáld- sagna. Hins vegar kom ekki fram með vissu að þau hefðu verið elskendur. Vissulega höfðu tækifærin verið fyrir hendi, en sannanir skorti alveg. - Það er ekki hægt að handtaka þau á grundvelli þessa, sagði Graaf daufur í dálkinn. - Þá yrðum við að sleppa þeim strax aftur. Raunar var Graaf farinn að efast stórlega um að kenning hans væri rétt. Ekkert benti ótvírætt til að Jean-Paul og Gerda hefðu nokkurn tíma átt ástarfund og þó að svo hefði verið, gæti það varla hafa verið hin mikla ást, sem réttlætti morð. Veiki hlekkurinn - Einhver myrti hana, sagði Steenhouven þrjóskur. - Kannske þessi Plessy sé til, en heiti bara ekki Plessy. - Bíddu nú hægur, næstum hróp- aði Graaf. - Hvernig gátu Jean-Paul og Gerda vitað hvað hann hét? Við finnum hvergi mann með þessu nafni, en þau vissu bæði, hvað hann hét. Steenhouven yppti öxlum. - Kannske Yolande hafi einfaldlega sagt manni sínunt nafn elskhugans og hann síðan Gerdu. - Komdu með skýrslurnar um framburð þeirra, sagði Graaf. - Ef ég man rétt, töluðu þau bæði um hann sem „leynilegan" elskhuga Yo- löndu. Auk þess er næsta víst, að hún átti alls engan elskhuga. Það hefur ekkert komið fram, sem benti til þess. Svo var ekki og hitt var líka rétt, að Jean-Paul og Gerda höfðu einmitt talað um „leynilegan" elskhuga Yo- löndu. - Hvað gerum við nú? vildi Steen- houven vita. - Handtökum Gerdu, svaraði Graaf að bragði. - Ekki Jean-Paul? - Gerda er veiki hlekkurinn, svar- aði Graaf. - Hún er viðriðin málið, en myrti ekki frænku sína. Það sem meira er, hún er ekki í neinu ástar- sambandi við Jean-Paul. Ef hún teiur sjálfa sig í hættu, segir hún til hans eins og skot. Graaf reyndist góður mannþekkj- ari. Þegar Gerda var handtekin og ákærð fyrir aðild að morði, lýsti hún sig þegar í stað reiðubúna til sam- starfs við lögregluna, gegn vægari dómi. Þar sem Graaf hafði ekki vænst neins meira, féllst hann á þetta og gaf Gerdu vel í skyn, að elskhugi hennar, Jean-Paul Amelinckx, hefði myrt konu sína hennar vegna. Tímdi ekki að skilja Gerda leysti frá skjóðunni. Hún hafði lengi vitað að Jean-Paul vildi losna við Yolöndu, en fundist skilnaður allt of kostnaðarsamur. Hins vegar hefði hún ekki vitað að hann ætlaði að myrða hana, fyrr en hann sagði henni yfir kaffinu hjá tengdaforeldrunum, að hann hefði gert það fyrr um daginn, með meitli. Þá hefði hún farið með honum heim og hjálpað honum að brenna skjöl Yolöndu, láta niðurföt hennar og skartgripi sem Jean-Paul ætlaði að fleygja í sjóinn. Hún hafði ekki séð líkið, en talið að það væri í geymslunni. Þegar Jean-Paul var handtekinn, hlustaði hann á framburð Gerdu af bandi og bætti játningu sinni við. Hann sagði morðið einungis hafa verið hugmynd Gerdu, því hún hefði hótað honum að ef hann myrti ekki konu sína, skyldi hún segja henni allt um samband þeirra. Það var komið fram í mars 1985, þegar Jean-Paul var leiddur fyrir rétt og eftir viku réttarhöld var hann sekur fundinn og dæmdur í lífstíðar- fangelsi. Gerda var einnig fundin sek og dæmd í tveggja ára skilorðs- bundið fangelsi. Jean-Paul áfrýjaði dómnum og þó að áfengismagnið í blóði Yolöndu, þegar hún var myrt, benti til að enn væri atburðarásin ekki fullskýrð, var dómurinn mildaður niður í 30 ár f maí 1986. lausnin á þessu er sú að Plessy sé alls ekki til. Steenhouven hugsaði um þetta nokkra stund, en sagði svo: - Þá er ekki um aðra að ræða en eiginmann- inn og frænkuna. Morðsamsæri? Graaf kinkaði kolli. - Einmitt. Ef Yolande átti engan elskhuga, eins og foreldrar hennar halda fram, hefur eiginmaðurinn einn haft ein- hverja ástæðu til að losa sig við hana. - Én hann hefði þá þurft að gera það með vitund Gerdu Rousseau, sagði Steenhouven. - Hún kom með honum heim og sagðist ltka hafa séð elskhugann. - Einmitt, svaraði Graaf. -Gerda Rousseau er ekki bara samsærismað- ur, hún er líka ástæðan. Jean-Paul stóð í ástarsambandi við hana og kona hans vildi ekki veita honum skilnað. - Það verður erfitt að sanna þetta, sagði Steenhouven efins. - Kenning- in getur verið rétt, en hvaða sannanir höfum við? Hvergi í íbúðinni finnst vottur af sönnun þess að þar hafi verið framið morð og ekkert á líkinu bendir á eiginmanninn. Það er ekki einu sinni hægt að vísa þessum ímyndaða elskhuga á bug, fyrst þau segja að hann sé til. Hvernig er hægt að afsanna að maður sé til? - Það mætti byrja á að sanna að Jean-Paul og Gerda hafi verið elsk- endur, sagði Graaf. - Láttu athuga hvað þau hafa verið að gera eins langt aftur og hægt er. Ef þau hafa ekki verið öllum öðrum varkárari, ætti eitthvað að finnast, að minnsta kosti ástæða til morðsins. Nú tóku margir lögreglumenn að kafa í einkalíf Jeans-Paul og Gerdu Yolande Amelinckx bragðaði aldrei áfengi, en þó var áfengi í líki hennar, þegar það fannst eftir mánuð í höfninni í Antwerpen. Rousseau, auk þess sem athugaður var ferill hinnar myrtu. Fjöllynt fólk Fljótlega kom í ljós að Jean-Paul var í meira lagi reikull í ráðinu tilfinningalega og hafði átt ótal ævintýri fram hjá konu sinni, næst- um síðan þau giftu sig. - Hann fór meira að segja að heiman eftir árs hjúskap og flutti inn hjá konu að nafni Marta Brinckhoff, sagði Steenhouven. - Raunar var hún varla nema krakki, 17 ára þá. Jean-Paul vildi kvænast henni, en þegar hann tilkynnti konu sinni það, fór hún fram á meðlag og húsnæðis- styrk frá honum, sem honum fannst of mikið, svo hann hætti við og flutti heim aftur. - Hagsýnn, sagði Graaf. - Sé þetta rétt, skil ég ekki að honum hafi dottið í hug að skipta á konu sinni og frænku hennar. - Gerda Rousseau er stórfalleg, sagði Steenhouven. - Að vísu dálítið þybbin. Marta er hnöttótt núna, en ég veit ekki hvemig hún leit út fyrir 10 árum. Ég gæti... - Nei, svaraði Graaf. - Hún kem- ur málinu ekkert við lengur. Hvað um Gerdu? - Reyndar mundi ég ekki fremja morð fyrir hana, sagði Steenhouven. - Hún hefur víða komið við. Hún flutti inn til karlmanns, þegar hún var 18 ára og þau voru bæði með öðru fólki, eins og þeim sýndist. Hann fór í herinn og kemur ekki heim nema öðru hvoru, en þau hittast þá og eru líka með öðrum. Ég get ekki ímyndað mér að samband hennar og Jeans-Paul risti djúpt. Elskendur eða ekki? - Rétt er það, sagði Graaf. - En varla hefur hún þó myrt frænku sína. Hún hefur bara verið samsærismað- ur. - Af hverju? spurði Steenhouven. - Hún hafði ekkert á móti Yolöndu, ég hef athugað það. Þeim kom vel saman. Gerda er ekki af þeirri tegund sem er leynilega ástfangin af manni frænku sinnar. Guð veit að ekki væri hann góður fengur fjár- hagslega. Sjómaðurinn er skárri þannig og þau búa enn saman, þó að hann sjáist sjaldan. Graaf andvarpaði. - Ég veit ekki, viðurkenndi hann. - Mér finnst allt fólk í þessu máli meira og minna undarlegt. Ástæðurnareru ekki eðli- legar. Hafi Jean-Paul myrt konu sína, hlýtur Gerda að hafa vitað það, vegna þess að falskur framburð- ur þeirra er nákvæmlega eins. Það bendir til að þau hafi soðið söguna saman, áður en hann kom til lögregl- unnar að tilkynna hvarfið. Nú var haldið áfram að rannsaka málið og athuga enn betur hvað Jean-Paul og Gerda Rousseau höfðu haft fyrir stafni undanfarin ár og hvert smáatriði skoðað. Þau reyndust bæði hafa starfað sitt af hverju. Hann hafði verið sendibílstjóri, vörubílstjóri og unnið við bílaviðgerðir, áður en hann fór á eyrina. Aðaláhugamál hans voru rafmagnsjámbrautarlestir. Gerda hafði starfað í þvottahúsi, verið á kassa í stórverslun og gengið um

x

Tíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.