Tíminn - 05.08.1988, Blaðsíða 3

Tíminn - 05.08.1988, Blaðsíða 3
Föstudagur 5. ágúst 1988 Tíminn 3 Danskir karlar tvöfalt og þrefalt stressaöri en íslenskir: Er stutti vinnutíminn og bjórinn stressandi? AUar starfsstéttir karla á hinum Norðurlöndunum eru margfalt stressaðri en íslenskir karlar sem vinna í sömu starfsgreinum - og munu í flestum tilfellum skila 10-30 stundum lengri vinnutíma á viku. Einna verst eru danskir karlar haldnir að þessu leyti. Alþekkt er (frá öðrum löndum) að atvinnulausir eru allra manna stressaðastir. Því vaknar sú spurning hvort íslenskir karlar kunni kannski að geta þakkað sínum langa vinnutíma þau 3 ár sem þeir lifa að meðaltali lengur en danskir karlar - sem setjast gjarnan að bjórsumbli um það leyti dags sem íslenskir frændur þeirra byrja í eftir- vinnunni. Eins og nýlega kom fram í könnun Landlæknisembættisins eru þeir ís- lendingar sem púla lengst og mest hvað minnst þjáðir af stressi. Þótt fjöldi stressaðra íslendinga hafi tvö- faldast síðustu tvo áratugina benti landlæknir á að skýringanna væri annarsstaðar að leita en í löngum vinnutíma. Alkunna er (í öðrum löndum) að atvinnulausir eru allra manna stressaðastir. Háskólamenntun tekur á taugarnar Þótt hlutfall karla í Danmörku, Finnlandi og Svíþjóð, sem þykja störf sín andlega erfið, sé miklu hærra en meðal íslenskra karla, þá kemur fram greinileg fylgni að einu leyti: Eins og sjá má á meðfylgjandi súluriti, sem byggt er á upplýsingum frá landlæknisembættinu, þá eru það háskólamenntuðu karlarmr sem eru lang stressaðastir í öllum þessum löndum. Danirnir eru þar þjakaðastir allra. Nær 8 af hverjum 10 dönskum háskólamönnum telja starf sitt reyna á taugarnar. í Finnlandi og Svíþjóð kvarta um 6 af hverjum 10 háskóla- mönnuni um það sama en aðeins innan við 3 af hverjum 10 á fslandi. Verslunar- og skrifstofustörf virðast sömuleiðis þenja taugar danskra um þrefalt meira en íslenskra starfs- bræðra þeirra. Þeir „hávaxtaokuðu“ öðrum hressari Þegar kemur að sjálfstæðum at- vinnurekstri eru það hins vegar Finn- ar sem hæst barma sér undan and- legu erfiði. Langt yfir helmingur finnskra atvinnurekenda er í hópi þeirra stressuðu, en aðeins rúmlega fjórðungur „hávaxtaokaðra" starfsbræðra þeirra hér á landi, sem þó nálgast íslenska háskólamenn í taugastrekkingi. f Svíþjóð eru at- vinnurekendur aftur á móti sá hópur sem ber sig lang best ef iðnaðar- og verkakarlar eru undanskildir. Stritvinnukarlarnir afslappaðastir f öllum þessum löndum eru ein- mitt iðnaðarmenn og verkakarlar öllum öðrum afslappaðri. En einnig í þessum stéttum eru stressaðir þó hlutfallslega nær tvöfalt fleiri í Dan- mörku og Finnlandi heldur en hér á Fróni - hvar afslappaðir verkakarlar skila fæstir undir 60 vinnustundum á viku, langt fram á áttræðisaldurinn, og keppa að lokum við lúsiðna Japana um það hvorir teljist elstu karlar í heimi. „Ligeglad“ en... Á hinn bóginn sýnist athyglivert að Danir - sem okkur er svo tamt að telja eindæma léttlynda og „ligegl- ad“ - skuli sýna hvað versta niður- stöðu í stresskönnun, eins og ráða má af framangreindum upplýsing- um. Og að þeir skuli lifa 2-3 árum skemur að meðaltali en frændur þcirra á fslandi, Færeyjum og Skandinavíu. -HEI Íþróttahátíð að Sólheimum Sunnudaginn 7. ágúst verður hald- in íþróttahátíð fyrir þroskahefta, fatlaða og aðstandendur þeirra að Sólheimum í Grímsnesi. Tilgangur- inn er að fá sem flesta til að koma út, hreyfa sig svolítið og skemmta sér á eftir. Dagskráin hefst með Sólheima- göngu kl. 12.00. Þátttakendur geta valið um þrjár vegalengdir, 5 km, 10 km og Sólheimahring, 24 km. Verð- laun verða veitt fyrir hverja vega- lengd. Þátttakendur komi eigi síðar en kl. 11.30 til skráningar. Að loknu þessu létta heilsubótar- labbi (já, eða rúlli) verður öllum boðið í risaútigrillveislu með tilheyr- andi meðlæti. Því næst gefst tækifæri til að skreppa á hestbak, prófa minigolf, kíkja á allskonar furðuverur, skreppa í sund, í heita pottinn eða gufu og margt annað verður að gerast. Allt endar þetta með stórdansleik í íþróttahúsinu okkar, þar sem við fáum góða gesti. Sætaferðir verða frá B.S.Í. kl. 9.00 fyrir þá sem ætla að vera með í göngunni og fyrir aðra gesti kl. 11.30. Ferðir verða til baka að loknum dansleik um kl. 18.45. Þátttaka og aðgangur ókeypis. Allir velkomnir. Nánari upplýsingar í síma 98-64430. Háskólagráða ■ Svíþjóð virðist vafasamt keppikefli ef miðað er við þá niðurstöðu að nær 80% þeirra eru þjakaðir af andlegu erfiði eftir að þeir koma út á vinnumarkaðinn. Stöplaritið sýnir það hlutfall karla, skipt niður í fimm starfshópa, sem finnst starf þeirra andlega erfitt. Könnunin nær til íslenskra karla á aldrinum 30-61 árs, en karla á aldrinum 20-64 ára í Danmörku, Finnlandi og Svíþjóð. í nær öllum starfshópum er hlutfall taugatrckktra íslendinga um tvisvar til þrisvar sinnum lægra en meðal hinna þjóðanna. Þessi samanburður við Norðurlönd virðist renna enn frekari stoðum undir þá niðurstöðu landlæknis að ástæðan fyrir streitu sé annarsstaðar að leita en í löngum vinnutíma. HOLLAND HEYBINDIVÉLAR NEW HOLLAND heybindivélarnar hafa verið mest seldu vélarnar hér á iandi í 20 ár. Ný sending var að koma til landsins og er verðið óbreytt. Tegund - 935 kr. 398.000.- - 940 kr. 467.000.- - 945 kr. 507.000.- 5% staðgreiðsluafsláttur eða greiðslukjör við allra hæfi. UMBOÐSMENN OKKAR - YKKAR MENN UM LAND ALLT Vélabær hf., Andakílshr. S. 93-51252 Ólafur Guðmundsson Hrossholti Eyjahr. Hnapp. S. 93-56622 Dalverk hf. Búðardal. S. 93-41191 Guðbjartur Björgwjnsson Kvennahóli, Fellsstrandarhr. Dal. S. 93- 41475 Vélsm. Húnv. Blönduósi. S. 95-4198 J.R.J. Varmahlíð. S. 95-6119 Bílav. Pardus, Hofsósi. S. 95-6380 Bílav. Dalvíkur, Dalvík. S. 96-61122 Dragi, Akureyri. S. 96-22466 Vélsm. Hornafjarðar hf. S. 97-81540. Ágúst Ólafsson Stóra-Moshvoli, Hvolsvelii. S. 98-78313 Vélav. Sigurðar, Flúðum. S. 98-66759 Vélav. Guðm. og Lofts, Iðu. S. 98-68840 Lágmúla 5 Reykjavík Sími 681555

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.