Tíminn - 05.08.1988, Blaðsíða 19
Föstudagurö. ágúst 1988
Tíminn 19
Góður strákur
Haft er fyrir satt að söngvarinn
Sting hafi nýlega gefið móður
Theresu saxófóninn sinn. Ekki
þó svo hún geti spilað á hann,
heldur á hún að selja hann og
verða sér þannig úti um dágóða
fúlgu til hjálpar heimilislausu
fólki í Englandi.
Þá er einnig haft fyrir satt að
læknar Stings hafi tilkynnt hon-
um að best væri fyrir hann að
halda sér saman, annars eigi
hann á hættu að missa röddina.
Sting kvað taka þetta alvarlega
og þessa dagana gengur hann
um og skrifar á bréfssnepla það
sem hann vildi sagt hafa.
Ekki vitum við hvort hann
hefur skrifað þau boð, að hann
væri raunar orðinn hundleiður á
öllu sem kallaðist rokk. Að
minnsta kosti er haft eftir honum
að slík tónlist sé þrautleiðinleg.
-Þó öll rokktónlist hyrfi á
morgun, mundi ég ekki tárfella,
sagði hann. -Ég kýs miklu frem-
ur að hlusta á ástarhljóð brodd-
galta.
Ekki fylgdi sögunni hvort
Sting hefur nokkuð sagt (eða
skrifað) um þá skoðun rithöf-
undarins Jackie Collins, að hann
eigi tvímælalaust að leika aðal-
hlutverkið í mynd eftir metsölu-
bók hennar um ævi rokkstjörnu.
Þess má geta, að Jackie hefur
raunar látið hafa eftir sér að
karlkyns rokkstjörnur séu dap-
urlegar, hrútleiðinlegar mann-
eskjur, flestar einmana og beri
“nga virðingu fyrir kvenfólki.
Mjaltastúlka og magadansmær!
Barbara segir að
magadans sé mjög góð
hreyfing og í dansinum
slakni á þreyttum vöðv-
um eftir bústörfin.
Á daginn gætir Barbara Schaefer
kúa sinna á búgarði sínum í Georg-
íu í Bandaríkjunum, - en á kvöldin
dansar hún magadans og kemur
fram á skemmtunum við ýmis tæki-
færi. Stundum hefur hún líka verið
fengin til að rísa upp úr þar til
gerðri risa-afmælistertu og sýna
listir sínar á veisluborðinu til að
gleðja afmælisbarnið, - sem þá
vanalega er einhver forstjóri eða
pólitíkus, sem reiknað er með að
hafi gaman af slíku.
Dansað á golfvellinum
„Einu sinni voru það skrifstofu-
menn hjá stóru fyrirtæki, sem
fengu mig til að dansa á golfvellin-
um fyrir forstjórann sinn. Honum
dauðbrá þegar ég stóð upp við 12.
holuna í magadansbúningnum
mínum. En hann varð mjög kátur
og tók loks þátt í dansinum með
mér,“ segir Barbara í viðtali um
reynslu sína sem bóndi og dansari.
Barbara hefur líka sýnt skemm-
tiatriði á barnaskemmtunum og þá
kallar hún sig „Regnbogakonuna"
og er þá í allt öðru gervi en sem
magadansmær. Hún hefur líka
leikið „Frú Santa Claus“ á jóla-
skemmtunum.
Þegar bóndinn
í Barböru varð
yfirsterkari dansmeynni
Barbara á 200 ekru búgarð ná-
lægt Shiloh í Georgíu. Hún stundar
búskapinn af kappi. Reyndar segir
hún að komið hafi fyrir að störf sín
sem bóndi og dansmær hafi rekist
á.
„Eitt sinn, þegar ég ætlaði að
fara að aka til borgarinnar til að
dansa," segir Barbara, „sá ég hvar
ein kýrin mín átti í erfiðleikum við
að bera. Ég gat auðvitað ekki
annað en reynt að hjálpa til. Þá vék
dansmeyjarstarfið fyrir bóndanum
í mér og ég mætti aldrei á skemm-
tunina til að dilla mér í magadans-
inum. En kýrin náði að bera væn-
um kálfi svo það fór allt vel.
Ég tek magadansinn mjög alvar-
lega, - en ekki tek ég búskapinn
síður alvarlega," segir Barbara í
lok frásagnar sinnar.
„Það er stundum erfitt að koma sér á fætur á morgnana eftir skemmtikvöld og
danssýningar fram á nótt, en kýrnar verða að fá sína umhirðu,“ segir Barbara, sem hér
er að kalla kýrnar sínar heim í hús til mjalta.
Það verður líka að
halda girðingunum við,
en hér er Barbara að-
eins að kasta mæðinni