Tíminn - 05.08.1988, Qupperneq 6
6 Tíminn
Föstudagur 5. ágúst 1988
Umboðsmenn Tímans:
Kaupstaöur: Nafn umboðsmanns Heimill Sími
Hafnarfjörður Ragnar Borgþórsson Hamraborg 26 641195
Garðabær Ragnar Borgþórsson Hamraborg26 641195
Garður Brynja Pétursdóttir Einholti 3 92-27177
Keflavík GuðríöurWaage Austurbraut 1 92-12883
Sandgerði DavíðÁ. Guðmundsson Hjallagötu 1 92-37675
Njarðvik Kristinn Ingimundarson Faxabraut 4 92-13826
Akranes Aðalheiöur Malmqvist Dalbraut 55 93-11261
Borgarnes Inga Björk Halldórsdóttir Kveldúlfsgata26 93-71740
Stykkishólmur Erla Lárusdóttir Silfurgötu 25 93-81410
Grundarfjörður Anna Aðalsteinsdóttir Grundargötu 15 93-86604
Hellissandur Ester Friðþjófsdóttir Háarifi 49 93-66629
fsafjörður Jens Markússon Hnífsdalsvegi 10 94-3541
Bolungarvik Kristrún Benediktsdóttir Hafnargötu 115 94-7366
Flateyri Guðrún Kristjánsdóttir Brimnesvegi2 94-7673
Patreksfjörður Ása Þorkelsdóttir Urðargötu 20 94-1503
Bíldudalur HelgaGlsladóttir Tjarnarbraut 10 94-2122
Þingeyri Karitas Jónsdóttir Brekkugötu 54 94-8131
Hólmavfk ElisabetPálsdóttir Borgarbraut 5 95-3132
Hvammstangi Baldur Jessen Kirkjuvegi 95-1368
Blönduós Snorri Bjarnason Urðarbraut20 95-4581
Skagaströnd Ólafur Bernódusson Bogabraut 27 95-4772
Sauðárkrókur Guðrún Kristófersdóttir Barmahlíð 13 95-5311
Siglufjörður Guðfinna Ingimarsdóttir Hvanneyrarbraut54 96-71555
Akureyri Jóhannes Þengilsson Kambagerði 4 96-22940
Svalbarðseyri Þröstur Kolbeinsson Svalbarðseyri 96-25016
Ólafsfjörður Helga Jónsdóttir Hrannarbyggð 8 96-62308
Reykjahlíð lllugi Már Jónsson Helluhraun 15 96-44137
Raufarhöfn Ófeigurl.Gylfason Sólvöllum 96-51258
Þórshöfn Kristinn Jóhannsson Austurvegi 1 96-81157
Vopnafjörður Júl ius Theódórsson Lónabraut 37 97-31318
Egilsstaðir Páll Pétursson Árskógar 13 97-1350
Seyðisfjörður Anna Dóra Árnadóttir Fjarðarbakka 10 97-21467
Neskaupstaður KristínÁrnadóttir Nesbakka16 97-71626
Reyðarfjörður Marínó Sigurbjörnsson Heiðarvegi12 97-41167
Eskifjörður Björgvin Bjarnason Eskifjörður
Fáskrúðsfjörður ÓlafurN. Eiriksson Hlíðargötu8 97-51239
Stöðvarfjörður SvavaG. Magnúsdóttir Undralandi 97-58839
Djúpivogur ÓskarGuðjón Karlsson Stapa, Djúpavogi 97-88857
Höfn Ingibjörg Ragnarsdóttir Smárabraut 13 97-81255
Selfoss Margrét Þorvaldsdóttir Skólavöllum 14 99-2317
Hveragerði Lilja Haraldsdóttir Heiðarbrún51 99-4389
Þorlákshöfn Þórdís Hannesdóttir Lyngberg 13 99-3813
Eyrarbakki ÞórirErlingsson Túngötu28 99-3198
Stokkseyri Friðrik Einarsson Iragerði6 99-3211
Hvolsvöllur Bára Sólmundardóttir Sólheimar 99-8172
Vík PéturHalldórsson Sunnubraut5 99-7124
Vestmannaeyjar Svanbjörg Gisladóttir Búhamri 9 98-12395
um
a veginn!
Blindhæð framundan. Við vitum ekki hvað
leynist handan við hana. Ökum eins langt
til hægri og kostur er og drögum úr hraða.
Tökum aldrei áhættu! mÉumferðar
Vráð
BLIKKFORM
______Smiðjuveqi 52 - Sími 71234__
Öll almenn blikksmíðavinna, vatnskassavið-
gerðir, bensíntankaviðgerðir, sílsalistar á alla
bíla, (ryðfrítt stál), og einnig nælonhúðaðir í
öllum litum.
Póstsendum um allt land
(Ekið niður með Landvélum).
Garðsláttur
Tökum að okkur að slá garða. Fast verð. Afsláttur
ef siamið er fyrir sumarið.
Upplýsingar í síma 41224.
Komið af hreindýraveiðum. Einungis 330 dýr verða felld í ár.
Hreindýrakvótinn um helmingi minni en síðustu ár:
Aðeins heimilað að
veiða 330 hreindýr
Menntamálaráðherra hefur gefið út reglugerð um fjölda
hreindýra sem heimilt er að fella í Norður-Þingeyjarsýslu,
Múlasýslum og Austur- Skaftafellssýslu. Einungis er um að
ræða 330 dýr, en það er mikil fækkun frá síðustu árum.
Veiðitíminn hófst 1. ágúst og
stendur fram til 15. september. Þó
getur ráðuneytið leyft veiðar á öðr-
um árstíma, ef sérstakar ástæður
mæla með, að höfðu samráði við
hreindýraeftirlitsmenn.
Skipting þeirra 330 dýra sem veidd
verða er scm hér segir:
Fjallahreppur...........2 dýr
Skeggjastaðahreppur . . 2 dýr
Vopnafjarðarhreppur . . 7 dýr
Fljótsdalshreppur . . . 35 dýr
Jökuldalshreppur .... 35 dýr
Fellahreppur ........14 dýr
Tunguhreppur ..........14 dýr
Hlíðarhreppur ..........5 dýr
Hjaltastaðahreppur . . 15 dýr
Borgarfjarðarhreppur . 20 dýr
Seyðisfjarðarhreppur . . 2 dýr
Seyðisfjörður ..........2 dýr
Skriðdalshreppur .... 18 dýr
Vallahrcppur ..........20 dýr
Egilsstaðabær...........8 dýr
Eiðahreppur............11 dýr
Mjóafjarðarhreppur ... 6 dýr
Norðfjarðarhreppur . . 20 dýr
Eskifjörður ...........25 dýr
Reyðarfjarðarhreppur . 6 dýr
Búðahreppur ............2 dýr
Fáskrúðsfjarðarhreppur . 2 dýr
Stöðvarhreppur .........2 dýr
Breiðdalshreppur .......7 dýr
Beruneshreppur..........7 dýr
Búlandshreppur..........6 dýr
Geithellnahreppur .... 11 dýr
Bæjarhreppur............5 dýr
Nesjahreppur............5 dýr
Hafnarhreppur...........2 dýr
Mýrahreppur........... 12 dýr
Borgarhafnarhreppur ... 2 dýr
í reglugerð þeirri er greinir frá
hreindýrakvótanum er einnig kveðið
á um önnur atriði er lúta beint að
veiðinni. Sjötta greinin segir t.a.m.:
„Þeir einir mega annast fækkun
hreindýra, sem til þess hafa næga
skotfimi og kunnáttu í meðferð skot-
vopna að dómi hlutaðeigandi lög-
reglustjóra. Gætt skal þess að þeir
fullnægi ákvæðum laga til að eiga og
nota skotvopn. Aðalhreindýraeftir-
litsmaður ákveður hvaða tegund og
stærð skotvopns (riffils) skuli nota.
Eigi er þó leyfilegt að nota minni
stærð riffils en cal. 243.“
Þessa grein reglugerðarinnar hafa
margir skotveiðimenn gagnrýnt í sam-
tali við Tímann. Telja þeir að minni
kaliber geti verið allt eins örugg, sé
skyttan góð er miðar byssunni.
Fleiri atriði eru tiltekin í reglugerð-
inni. Hreindýraeftirlitsmenn skulu
gæta þess vandlega að hreindýr séu
ekki veidd á þeim slóðum, þar sem
þau eru að nenta ný lönd og talið er
æskilegt að þau hagvenjist, heldur þar
sem ætlunin er að bægja þeim frá.
Þá er vakin athygli á því að sam-
kvæmt lögum um meðferð, skoðun
og mat á sláturafurðum er óheimilt að
hafa hreindýrakjöt til sölu, nema það
hafi verið skoðað og metið af dýra-
lækni.
Margir velta fyrir sér spurningunni
livað verði um krónur þær er fást fyrir
hreindýrakjötið. Um er að ræða tal-
sverðar upphæðir og verður kílóverð
á hreindýrakjöti mjög hátt í haust,
þar eð óvenjulítið er veitt af dýrum á
þessari vertíð.
Samkvæmt fjórðu grein reglu-
gerðarinnar rennur andvirði felldra
hreindýra inn á reikning hlutaðeig-
andi sveitarsjóðs og hver hreppsnefnd
eða bæjarsjóður, skiptir fénu innan
síns svæðis. Bcr hreppsnefnd eða
bæjarsjóði að láta þá bændur, er fyrir
mestum átroðningi verða á beitar-
löndum sínum, njóta arðs af veiðun-
um. Aðrar tekjur af veiðunum renna
í sveitarsjóð til að standa straum af
launagreiðslum til aðstoðarmanna
hreindýraeftirlitsmanna. Sérstaklega
er tekið fram í reglugerðinni að
heimilt sé að greiða aðstoðarmönnum
með hreindýraafurðum.
Veiðileyfasala er óheimil. -ES
1050 kennarar
endurmenntast
Eins og á undanförnum árum
eru haldin endurmenntunarnám-
skeið fyrir starfandi kennara í
sumar, námskeið voru haldin í júní
og verða haldin fleiri námskeið í
ágúst, svo að kennarar geti aukið
þekkingu sína.
Alls bárust 1050 umsóknir um
námskeið, en ekki var unnt að
verða við óskum allra kennara, en
þó komust flestir á þau námskeið
sem óskað var eftir.
Frestur til að skrá sig á þessi
endurmenntunarnámskeið rann út
15.apríl, og núna stendur yfir
námskeið í skólastjórnun og
grunnþjálfun í tölvufræði, og síðan
hefjast fjölmörg námskeið 8.ágúst,
15.ágúst og 22.ágúst.
Nánari upplýsingar um nám-
skeiðin veita Rósa Björk Þorbjarn-
ardóttir, endurmenntunarstjóri og
Ragnhildur Bjarnadóttir, aðstoð-
armaður endurmenntunarstjóra.
-gs