Tíminn - 05.08.1988, Síða 10
10 Tíminn Föstudagur 5. ágúst 1988 Föstudagur 5. ágúst 1988 Tíminn 11
IIIIIIIIIIHIIII. Iþróttir llllllllllllllllllll................ ...................................I.........................................Illllllllllllllllll.IHIIIII.IIHII.......IIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIH.III.Illlll llllllllllli .....IIIIIIHIIl.Illlllll..Ilili . ......Illlllllllllll.1111...IIIIIIIHIIIII Iþróttir IIIIIIIII..................III.......1111.......III.......III!..1..........1.......111.......lili'"..III...III.......11111.....................II..........1......1.........III............lllllllll....illl...........................
Mörk íslands í leiknum skoruðu:
Alfreð Gíslason 8, Atli Hilmarsson
5, Guðmundur Guðmundsson 4,
Þorgils Óttar Mathiesen 3, Bjarki
Sigurðsson 2 og Kristján Arason 1.
Spánverjar sigruðu Svía með 23
mörkum gegn 22 í gærkvöld, en í
fyrrakvöld gerðu Sovétmenn og A-
Þjóðverjar jafntefli 15-15. BL
Alfrcð Gíslason átti enn einn stórleikinn í gærkvöld og skoraði 8 mörk.
og staðan var 24-23 A-Þjóðverjum í
vil, komust íslendingar í hraðaupp-
hlaup, en Þorgils Óttar greip ekki
sendingu frá Alfreð Gíslasyni og
A-Þjóðverjar hófu sókn. Þeir héldu
boltanum síðustu 1,24 mín. leiksins
og dómararnir virtust ekki þora að
dæma á þá leiktöf. Sigurinn var því
A-Þjóðverja, 24-23.
„Þetta var hrein styrjöld og barátt-
an gífurleg," sagði Guðjón Guð-
mundsson liðsstjóri íslands í samtali
við Tímann í gær. „Leikurinn var
mjög vel leikinn af báðum liðum og
allt annað að sjá til strákanna en í
leiknum gegn Spánverjum. Við
erum fullir sjálfstrausts, þrátt fyrir
tapið og gerum okkar besta í kvöld,
þegar við mætum Sovétmönnum.
Alfreð Gíslason átti stórleik í
íslenska liðinu í gær, en þeir Guð-
mundur Guðmundsson og Atli
Hilmarsson átti einnig góðan leik.
Þá var Geir Sveinsson mjög sterkur
í vörninni og Bjarki Sigurðsson stóð
sig einnig vel.
„Þetta var miklu betri leikur en
gegn Spáni og margt jákvætt við
leikinn, þrátt fyrir tapið. Það var nú
samt sárt að tapa þessu með einu
marki,“ sagði Brynjar Kvaran lands-
liðsmarkvörður.
Frank Waal var íslendingum mjög
erfiður í leiknum og skoraði alls 7
mörk. A-þýska liðið lék mjög vel og
átti að minnsta kosti skilið að gera
jafntefli.
Eins marks ósigur og annað tapið
á jafn mörgum dögum er staöreynd
sem íslenska landsliðið í handknatt-
leik stendur nú andspænis. í gær
voru það A-Þjóðverjar sem lögðu
íslendinga að velli á Spánarmótinu í
Irun, 24-23.
A-Þjóðverjar náðu strax yfirhönd-
inni í leiknum í gær og komust í 3-0.
ísland skoraði sitt fyrsta mark eftir 8
mínútna leik, en A- Þjóðverjar
höfðu jafnan 1 til 2 mörk yfir allan
fyrri hálfleikinn. í hálfleik var staðan
13-12 A-Þjóðverjum í vil, en fslend-
ingar höfðu misnotað 3 vítaköst í
fyrri hálfleiknum og Peter Hoffman
í marki þeirra átti stórleik. í síðari
hálfleiknum var svipað uppi á ten-
ingnum og þeim fyrri, en íslendingar
komust einu sinni yfir, 19-18. Þegar
tæpar tvær mínútur voru til leiksloka
Handknattleikur:
Metsala í
Póllandi
Pólski iniðvallarleikmaður-
inn, Andrzcj Rudy, sem cr
leikmaður með pólska lands-
liðinu, hefur verið seldur frá
Slask Wrodaw til GKS Katow-
ice fyrir nictfc, cða fyrir and-
virði um 5 milljóna Lsl. króna.
Körfuknattleikur:
Leifur
ekkimeð
Valí
vetur
Leifur Gústafsson körfuknatt-
leiksmaður úr Val mun ekki leika
með Valsmönnum í úrvalsdeildinni í
körfuknattleik í vetur.
Leifur er á leiðinni í tæknifræði-
nám til Danmerkur. qganui hann að
Hafnabolti:
Boston Red Sox
jafna 57 ára met
Bandaríska hafnaboltaliðið Bost-
on Red Sox jafnaði í fyrrakvöld 57
ára gamalt met í American deildinni,
sem Philadelphia Athletics settu
1931.
American deildinni og National
deildinni á New York Giants, 26
sigrar í röð, sett 1916.
Boston Red Sox byrjaði keppnis-
tímabilið þó ekki vel, en eftir að Joe
Morgan tók við sem framk'væmda-
stjóri liðsins 14. júlí sl. hefur liðið
sigrað í 19 leikjum af 20 og unnið
upp 9 leikja forskot Detroit Tigers í
austurriðli American deidarinnar.
Úrslit í hafnaboltanum frá því í
fyrrakvöld:
Leifur Gústafsson í baráttu við KR-
ingana Guðna Guðnason og Matthí-
as Einarsson.
öllum líkindum nema næstu fjögur
ár. Leifur lék mjög vel með Vals-
mönnum í fyrra og mun hann skilja
eftir sig skarð í Valsliðinu. Þeim
hefur þó bæst liðstyrkur þar sem
Hreinn Þorkelsson úr ÍBK og Matt-
hías Matthíasson frá Bandaríkjun-
um hafa gengið til liðs við Valsmenn.
Þorvaldur Geirsson sem lítið gat
leikið með Val í fyrra vegna meiðsla
mun líklega verða með á fullu á
baráttunni.í v.etur, .., . . BL
Metið felst í því að sigra í 22
heimaleikjum í röð. Á miðvikudag-
inn sigraði Boston Texas Rangers
5-4,.eftir að hafa verið undir í byrjun
leiksins. Metið í bandaríska hafna-
boltanum, það er að segja bæði í
American deildin:
Baltimore Orioles - Cleveland Indians...............8-3
Seattle Mariners - California Angels................8-7
Boston Red Sox - Texas Rangers......................5-4
Minnisota Twins - Toronto Blue Jays ................8-3
Kansan City Royals - Detriot Tigers.................2-1
Milwaukee Brewers - New York Yankees ...............6-5
11-Oakland A‘s - Chicago White Sox .................4-3
National deildin:
Houston Astros - San Francisco Giants...............3-2
Chicago Cubs - New York Mets........................3-1
Montreal Expos - Pittsburgh Pirates.................6-4
St. Louis Cardinals - Philadelphia PhiIIies ........4-2
Atlanta Braves - San Diego Padres...................4-2
Cincinnati Reds - Los Angeles Dodgers...............7-4
Rugcr Ciemens hefur lcikið mjög vel fyrír Boston Red Sox
uppá síðkastið.
Knattspyrna:
Jafnt í Keflavík
Frá Margréti Sandcrs fréttamanni Timans á Suðnmesj-
um.
Jafntefli varð í leik ÍBK og KA, 1-1, í
rigningu og roki í Keflavík í gærkvöldi.
KA-mcnn leiddu í hálfleik 0-1.
Jafnræði var með liðunum í fyrri hálf-
leik. Á 27. mín. skoraði Anthony Karl
Gregory fyrir KA og þannig var staðan í
hálfleik. Keflvíkingar komu frískir til leiks
■ síðarí hálfleik og áttu góð færí, þar á
meðal átti Ragnar Margeirsson stangar-
skot, en KA menn vörðust vel. Það var þó
ekki fyrr en á 88. mín. sem Keflavík
jafnaði, Daníel Einarsson skaut föstu skoti
úr aukaspyrnu, boltinn hrökk i varnar-
mann og þaðan í markið og jafntefli var
staðreynd. Anthony Karl var frískur i
framlínu KA og Daníel Einarsson var
bestur Keflvíkinga. Einnig var Ragnar
Margeirsson góður í síðari hálfleik.
Fra Juhannesi lijarnasyni í Akureyri:
Þórsarar inættu mjög ákveðnir til leiks
á móti Leiftri í gærkvöld og sigruðu 2-1,
eftir markalausan fyrrí hálfleik.
Þórsarar skoruðu fyrsta markiö á 54.
mín. Valdimar Pálsson skoraði þá með
þrumuskoti af 20 m færi. Aðeins 2 mín.
síðar skoruðu Leiftursmenn útsölumark,
en þar var að verki Steinar Ingimundarson,
eftir vamarmistök. Halldór Áskelsson
skoraði síðan sigurmarkið þremur mín.
síðar. Sigur Þórs var mjög sanngjarn og
Halldór Áskclsson var besti maður vallar-
ins. Hjá Leiftri var Þorvaldur markvörður
bestur.
Á Húsavík sigruðu KR-ingar Völsunga,
3-1, eftir að KR var 1-0 yfir í hálfleik.
Mörkin fyrir KR skoruðu Bjöm Rafnsson,
Pétur Pétursson og Rúnar Kristinsson.
Jónas Hallgrímsson minnkaði muninn fyrir
Völsung undir lokin úr enn einni víta-
spymu sinni. BL
íþróttamenn
vilja vera
hátt uppi
Flestir af bestu frjálsíþróttamönnum heims
verða meðal keppenda á miklu frjálsíþrótta-
móti, sem haldið verður á nýjum keppnisvelli
á Ítalíu 14. ágúst nk.
Ástæða þess hve frjálsíþróttamennirnir
sækja í að keppa á mótinu á Ítalíu er sú, að
hinn nýi völlur er í yfir 2000 m hæð yfir
sjávarmáli. Völlurinn er í skíðabænum Sestrí-
ere á Norður-Ítalíu skammt frá frönsku landa-
mærunum. Sem kunnugt er þá er hægt að ná
betri árangrí í mikilli hæð, sökum þess að þar
er loftið þynnra og loftmótstaða þar af leiðandi
minni.
Meðal keppenda á mótinu í Sestriere verða
Ben Johnson og Carl Lewis, en þeir munu þó
ekki keppa á móti hvor öðrum. Johnson mun
keppa í 100 m hlaupi og etja þar kappi við
annan Bandaríkjamann, Joe Deloach á meðan
Carl Lewis keppir í 200 m hlaupi. Fleiri frægir
kappar mæta, svo sem 400 m hlaupararnir
Danny Everett og Steve Lewis frá Bandaríkj-
unum. Þá mæta a-þýsku stúlkurnar Silke
MöUer og Arlies Göhr.
Ben Johnson segist nú vera búinn að ná sér
að fullu eftir meiðsUn sem hann hlaut fyrir 3
mánuðum síðan og segist hlaupa hraðar en
nokkru sinni fyrr. Hann keppir í fyrsta sinn
eftir meiðslin, nú um helgina á Kanadíska
úrtökumótinu fyrir Ólympíuleikana. BL
Ólafur Þórðarson hefur í frammi góða tilburði til að stöðva Magna Pétursson Valsmann.
Knattspyrna:
Tímamynd Pjetur.
Valsmenn komnir
í annað sætið
Valsmenn sigruðu Skagamenn í
baráttunni um annað sætið í 1.
deildinni í knattspyrnu á Valsvellin-
um að Hlíðarenda í gærkvöld, 3-1.
Leikurinn í gærkvöld var leikinn í
miklu roki og grenjandi rigningu á
Valsvellinum. Þessar aðstæður settu
að sjálfsögðu svip sinn á leikinn, sem
annars var þó nokkuð fjörugur.
Valsmenn léku undan vindinum í
fyrri hálfleik og átti þeir þó nokkur
marktækifæri. Þeir skoruðu þó að-
eins einu sinni, það var á 30. mín.
sem Sævari Jónssyni tókst að koma
Knattspyrna:
Finnar sigruðu
á vítaspyrnu
Íslenska drengjalandsliðið í knatt-
spymu tapaði 1-2 fyrír því finnska,
er liðin mættust á Norðurlandamót-
inu í Vasteras í Svíþjóð í fyrrakvöld.
Enn voru tvíburarnir af Skaganum
á ferðinni og það var Arnar Gunn-
laugsson sem skoraði mark íslands í
leiknum eftir sendingu frá bróður
sínum Bjarka. Það var jöfnunar-
mark íslands, en Finnar höfðu kom-
ist yfir strax í upphafi leiksins.
Sigurmark Finna kom þegar stutt
var til leiksloka og var það skorað úr
vítaspyrnu. Sigur Finna var verð-
skuldaður í leiknum og íslensku
strákarnir náðu ekki að fylgja eftir
sigrinum á Norðurlandameisturum
Svía. f kvöld leika strákarnir okkar
gegn Englendingum, en þeir unnu
Finna 4-1, í mótinu. Danir hafa nú
forystu á mótinu með 5 stig, fslend-
ingar hafa 2 stig. BL
knettinum í mark Skagamanna, 1-0
og þannig var staðan í hálfleik.
Skagamenn mættu mjög ákveðnir
til leiks í síðari hálfleik og réðu þá
nokkuð gangi leiksins framan af.
Það voru þó Valsmenn sem gerðu út
um leikinn með tveimur mörkum
Sigurjóns Kristjánssonar á stuttum
tíma. Fyrra markið kom eftir að
Sigurjón óð upp hægri kantinn og
skaut föstu skoti að marki Skaga-
manna. Ólafur Gottskálksson mark-
vörður varði, en missti knöttinn frá
sér í bleytunni. Sigurjón fylgdi vel á
eftir og renndi tuðrunni í netið, 2-0.
Stuttu síðar var Sigurjón á ferðinni
á vinstri kantinum, þar lék hann á
tvo Skagamenn og skaut síðan föstu
skoti að markinu. Ólafur virtist hafa
knöttinn, en í stað þess fór hann í
hann og í netið, 3-0 og Skagamenn
heldur niðurlútir. Þeir gáfust þó
ekki upp frekar en endranær og
skoruðu stuttu síðar eina mark sitt í
leiknum. Þar var að verki landsliðs-
maður þeirra, Ólafur Þórðarson eftir
að Guðmundur Baldursson mark-
vörður Vals hafði varið skot frá
Karli Þórðarsyni.
Með þessum sigri komast Vals-
menn í annað sætið í deildinni með
23 stig, en Skagamenn sitja eftir í
þriðja sætinu með 21 stig. Framarar
eru sem fyrr með góða forystu, 8 stig
og einn leik til góða.
Liðin seni hófu leikinn voru þann-
ig skipuð:
Valur: Guðmundur Baldursson,
Þorgrímur Þráinsson, Sigurjón
Kristjánsson, Magni Bl. Pétursson,
Atli Eðvaldsson, Sævar Jónsson,
Guðni Bergsson, Guðmundur Bald-
ursson, Valur Valsson, Ingvar
Guðmundsson og Jón Grétar
Jónsson. ÍA: Ólafur Gottskálksson,
Heimir Guðmundsson, Örn Gunn-
arsson, Guðbjörn Tryggvason, Ólaf-
ur Þórðarson, Karl Þórðarson, Har-
aldur Ingólfsson, Sigurður B.
Jónsson, Mark Duffield, Gunnar
Jónsson og Aðalsteinn Víglundsson.
BL
Með lýsi í nesti
íslenska drengjalandsliðið í knatt-
spymu sem þessa dagana tekur þátt
í Norðurlandamóti í Svíþjóð, hafði
með sér heldur óvenjulegt nesti ■
ferðina.
Þeir tóku mildar birgðir af lýsi
með sér, en Lýsi hf. styrkti drengja-
landsliðið til fararínnar, auk þess að
senda þá með ríflegar birgðir af lýsi
með sér. Eflaust hefur lýsið átt sinn
þátt í sigrí íslcnsku strákanna gegn
Svíum, sem era núverandi handhaf-
ar Norðurlandameistaratitilsins í
knattspyrnu.
Þetta ætti að verða öðrum ungum
íþróttamönnum til eftirbreytni. Rétt
fæðuval skiptir jafn miklu máli og
góð þjálfun...................BL
Víkingur og Fram
leika í kvöld
t kvöld cr einn leikur í 1. dcild-
inni í knattspyrau. Framarar sækja
Víkinga heim á Víkingsvöllinn við
Stjörnugróf. Lcikurinn hefst kl 20.
I 2. deUdinni leika KS og FH á
Siglufirði og Víðir og Tindastóll
leika í Garðinum. í 1. deild kvenna
cru tvcir leikir, Stjarnan og Fram
leika á Stjörnuvelli og Valur og í A
leika á Valsvelli. Í 2. deiid kvenna
mætast Þór og UBK á Akureyri og
FH og Afturelding leika á Kapla-
krikavelli. t 3. deild karla cr einn
leikur, Einhcrji og UMFS Dalvík
leika á Vopnafirði. Þá verða þrír
leikir í 4. deild, Haukar og Skotfél-
ag Reykjavíkur mætast á Hvaleyr-
arholtsveUi, Léttir og Ármann eig-
ast við á gervigrasinu í Laugardal
°8 Valur Rcyðarfirði og Leiknir
Fáskrúðsfirði etja kappi á Reyðar-
firði. Þá verða undanúrslitaleikir í
bikarkcppni 2. flokks karla leiknir
í kvöld. BL
Annar ósigurinn í
röð á Spánarmótinu