Tíminn - 05.08.1988, Síða 15
Föstudagur 5. ágúst 1988
Tíminn 15
þessu felst. Ef þessi skýring er rétt,
þá er hér eitt dæmið enn um þjóðern-
ishyggjuna, sem á sér djúpar rætur
meðal almennings og er auk þess
viðhaldið með opinberri og hálf-op-
inberri innrætingu í skólum og á
vinnustöðum. Verður nánar vikið
að því hér á eftir.
Japanskt uppeldi
Þótt við íslensku blaðamennirnir
fengjum ekki tækifæri til þess að
fylgjast með heilum starfsdegi í jap-
anskri verksmiðju og færum ekki í
heimsókn í skóla, þá er að finna
ýmsar frásagnir af því hvernig lífið
gengur fyrir sig í verksmiðjum og
skólum og hvaða anda sé haldið uppi
á þeim stöðum og stofnunum sem
menn eru bundnir við ungann úr
ævinni þegar heimilum sleppir.
Má segja að með reglulegu
millibili berist fréttir um allan heim
af því, hversu skólaaginn sé strangur
í Japan. Skömmu áður en við lögð-
um upp í Japansförina gat að líta
frásögn í bandaríska vikuritinu
Newsweek af hörku japanska skóla-
agans, þar sem ósveigjanlegar reglur
um hegðun og klæðaburð setja öðru
fremur svip á skólalífið með tilheyr-
andi refsingum, ef út af ber. Hollusta
við land og þjóð og alger skyldu-
rækni og reglufesta er barið inn í
börn og unglinga með dæmafáu
uppeldis-ofstæki, að því er okkur
finnst. Á efri skólastigum upphefst
síðan æðisgengin samkeppni um
námsárangur til þess að fullnægja
kröfum um inngöngu í æðri skóla og
eygja von um toppstöður hjá ríki
eða stórfyrirtækjum. Oft endar þessi
samkeppni metnaðarfullra unglinga
í harmleik þar sem hápunkturinn er
sjálfsvíg til þess að kvitta fyrir ógæf-
una á námsbrautinni.
pótt vafalaust megi draga talsvert
frá þessum öfgadæmum af skóla-
andanum í Japan, þá mun japanskt
uppeldi eigi að síður vera strangt og
innrætingin markvís á heimilum og í
skólum. f þessu sem mörgu öðru er
að finna mismuninn á þjóðmenning-
arhefðum og félagslegum viðhorfum
Japana og íslendinga sem og annarra
vestrænna þjóða. Það er því síst að
furða, þótt starfsfólk í fyrirtækjum
og stofnunum og hvar sem er á
vinnumarkaði sætti sig við strangan
vinnuaga og sífelldan eftirrekstur og
áminningar varðandi afköst og fram-
leiðslumagn.
Framleiðsluhvöt
og morgunhylling
Árangur agans og innrætingarinn-
ar lætur síst á sér standa í fram-
leiðslustarfseminni. Ekkert vafamál
er að þessi einbeitingaráróður hent-
ar færibandaiðnaðinum í Japan
ágætlega, svo að ég vísi í orð jap-
ansks hagfræðiprófessors, sem ég las
nýlega, þótt hann annars efaðist um
að svo einhæft uppeldi yki andlegan
þroska manna og sköpunargáfu.
Eins og ég hef áður sagt - og vil
reyndar leggja áherslu á - þá kynnt-
ist ég þessum vinnumóral Japana
ekki af eigin reynslu, þ.e.a.s. ég
varð ekki vitni að vinnustaðafund-
um, þar sem haldnar væru uppbyggi-
legar ræður yfir starfsmönnum, né
heldur að ég væri viðstaddur morg-
unleikfimina og morgunsönginn,
sem hver vinnudagur er látinn hefj-
ast á til þess að sameina hugi starfs-
manna og láta „allt lúta að einum
vilja" eins og reyndar var sungið í
Menntaskólanum á Akureyri forð-
um tíð nemendum til leiðbeinigar
um hvert vera skyldi hugarþelið í
garð skólans.
Hins vegar hef ég hérna fyrir
framan mig frásögn dansks háskóla-
stúdents, sem fór til Japans árið 1984
til þess að semja ritgerð, sem átti að
heita: Um framleiðsluskipulag í Jap-
an og hvernig danskur iðnaður getur
hagnýtt sér slíkt skipulag. Stúdentin-
um danska segist svo frá í lauslegri
endursögn:
„Það ermorgunn í verksmiðjunni.
Hundruð verkamanna, sem allir eru
í nákvæmlega eins vinnufötum, voru
rétt að ljúka morgunleikfiminni í
portinu fyrir framan verksmiðjuhús-
ið. Tónlistin þagnar en mannsrödd
bylur í hátölurum. Röddin skipar
starfsmönnum að raða sér upp fyrir
slökunaræfingarnar. Síðan tekur
hver verkamaður að nudda bakið á
Þvert ofan í það sem
margir lesa út úr
„alþjóðahyggju" Jap-
ana og aðlögunar-
hæfni þeirra að nú-
tímatækni og iðnvæð-
ingu, þá verður ekki
annað séð en að Jap-
anar séu íklæddir
þykkri þjóðvarnar-
brynju menningarlega
og efnahagslega, ef
svo má til orða taka
næsta manni fyrir framan sig, og
endar þar líkamleg morgunþjálfun.
Því næst er sunginn Morgunsöngur
starfsmanna, sem er eitthvað á þessa
leið:
Nú rís vor þjóð
úr rústum liðins tíma
nú roðar sólin
nýjan frægðardag.
Með færni og dug
vér leggjum oss í líma
að láta blómgast
fósturjarðar hag.
Én fremst er alls
að fyrirtækið dafni,
að framleiðslunnar
sífellt aukist magn.
Vér sækjum fram
til sigra í þess nafni,
þess sæmd og lof
er heiður vor og gagn.
Siðareglur
Að loknum morgunsöng les rödd-
in upp Siðareglur verksmiðjunnar,
sem allt starfið er reist á, og mann-
fjöldinn endurtekur þessi boðorð:
1. Oss ber að leggja af mörkum
vorn eigin skerf til þjóðarbúsins.
2. Oss ber að rækja réttlæti.
3. Oss ber að virða samstarf og
samlyndi.
4. Ossberánaflátsaðtakaframför-
um.
5. Oss ber að sýna hógværð og
lítillæti.
6. Oss ber að auðsýna þakklæti.
Þá er komið að því að halda
hópfundi í hverri sérdeild, þar sem í
hverjum hópi eru 10-20 manns. Þar
er venjan að einn úr hópnum tekur
að sér að flytja uppbyggilega tölu og
skiptast menn á um þetta frá degi til
dags. Ræðuefnið er sjálfvalið, en
verður þó að vera í hinum rétta anda
siðareglnanna.
Klukkan kortér gengin í níu hefst
vinnan. í vinnusal er allt í röð og
reglu, næstum því sótthreinsað, og
glansbjart af rafljósum. Allir eru
einkennisklæddir, jafnt verka-
mennirnir við færibandið sem skrif-
stofuliðið. Menn vinna óhemju hratt
og skipulega án þess að hinni
minnstu hreyfingu sé ofaukið. Allir
eru að, enginn hímir eða hangsar.
Hreyfingarnar minna mann á svolitla
róbóta. Hins vegar er ekki gott að
vita hvað starfsmönnum sjálfum
finnst um þetta verklag."
Löglega afsakaðar
Danski stúdentinn heldur síðan
áfram að fjalla um verksmiðjulífið
og vinnufyrirkomulagið. Hann held-
ur því fram að í huga hvers starfs-
manns verði verksmiðjan og vinnu-
félagarnir allt í öllu, en fjölskyldan
látin sitja á hakanum. Til þess að
treysta enn betur samheldni starfs-
félaga í verksmiðjunni er hvatt til
þess að þeir fari sem oftast saman út
að borða á kvöldin eða létti sér upp
á annan hátt. Þá er leyfilegt að slaka
á og láta eitt og annað fjúka, sem
annars er stranglega bannað að
minnast á innan verksmiðjuveggja.
Reyndar vorum við íslensku blaða-
mennirnir fræddir dálítið um þessi
kvöldfyllerí samstarfsmanna í verk-
smiðjum og skrifstofum. Fylgdi það
sögunni, að ekki væri tekið hart á
því þótt undirtylla abbaðist upp á
skrifstofustjórann undir slíkum
kringumstæðum, enda rynni fljot-
lega af undirtyllunni og þá yrði hún
eins og hún ætti að sér að vera,
hógvær og lítillát, ekkert nema virð-
ingin og þakklætið. Sú saga var látin
ganga í þessu sambandi, að undir-
tyllur ættu það til að gera sér upp
ölæði til þess að vera löglega afsak-
aðar, ef þær réðust að yfirmanni
sínum með dólgshætti!
Túlkun heimamanna
Nú má vel verá að vestrænir
félagsfræðingar og rithöfundar of-
geri heilmikið í lýsingum sínum af
vinnuaganum og innrætingunni í
Japan að því leyti að þeir sjá þessi
fyrirbæri með sínum augum og
leggja á þau sitt eigið siðamat.
Japanskur fræðimaður er hinsvegar
vís með að túlka vinnumóralinn í
landinu út frá allt öðrum sjónarmið-
um. Hann segir okkur að þjóðleg
einingarhugsjón, hollusta við al-
mannahag, virðing fyrir samfélagi,
þakklæti fyrir að eiga sér fastan
vinnustað og annað sem bindur fólk
saman, - allt þetta sé jákvætt í
hugum almennings og rótgróið í
japanskri menningu. Það sem okkur
finnst vera innræting og ofuragi er
þá í sannleika þjóðlegt uppeldi, sem
mönnum er ljúft að virða frá vöggu
til grafar.
Að meðtaka þessa skýringu hefur
þann augljósa kost að forða mönn-
um frá því að verða hleypidómum
að bráð. En þessi skýring getur ekki
orðið til þess að auðvelda útlendingi,
segjum íslendingi eða Dana, að
leggja á ráðin um það „hvað danskur
eða íslenskur iðnaður getur lært af
Japönum". Siðareglur japanskra
fyrirtækja munu seint öðlast
hljómgrunn í okkar samfélögum.
Hætt er auk þess við að margur
freistaðist til að skrópa, ef reynt væri
að stilla saman hugina með morgun-
söng og nuddkúrum.
Er hægt að læra
af Japönum?
Það er útbreiddur misskilningur
og oft skaðlegur að kynnis- og náms-
ferðir séu farnar til að læra eitthvað
gagnlegt til þess að flytja með sér
heim. Hið rétta er að slíkar ferðir
eru allt eins farnar til þess að átta sig
á hvað maður á ekki að taka upp
eftir öðrum. Því fjarlægari sem þjóð-
ir eru og því frábrugðnari sem þær
eru að menningu og lífsviðhorfum
því fráleitara mun það reynast að
hægt sé að „læra“ af þeim.
Eg geri mér ekki háar hugmyndir
um að íslendingar geti lært mikið sér
til gagns hvað varðar framleiðslu-
skipulag og vinnutilhögun af Japön-
um. Hins vegar gætu íslendingar
lært af Japönum að rækja þjóðmenn-
ingu sína og virða í verki skynsamleg
efnahagsmarkmið, m.a. að eyða
ekki meiru en aflað er, treysta
gjaldmiðilinn, varast skuldasöfnun
og verðlauna gjaldreyrisöflun og
gjaldeyrissparnað. Slíkum mark-
miðum geta íslendingar náð án þess
að taka upp heraga á vinnustað að
japönskum sið.
f næstu grein verður fjallað um
verslunarviðskipti fslendinga og Jap-
ana.
Sumarferð í Lakagíga
Steingrímur JónJónsson
Hermannsson jarðfræðingur
Ferðalangar eru minntir á að hafa með sér nesti. Fararstjórar og
leiðsögumenn verða í hverri rútu. Verð kr. 2.000 fyrir fullorðna og kr.
1.000 fyrir börn.
Tekið á móti pöntunum í síma 24480 og miðar seldir á skrifstofu
framsóknarfélaganna milli kl. 8.00 og 16.00.
Framsóknarfélögin í Reykjavík.
Sumarferð framsóknarfélaganna í Reykjavík inn í Lakagíga verður
farin laugardaginn 13. ágúst.
Ferðaáætlun: Lagt af stað frá umferðarmiðstöðinni, Reykjavík kl. 8
f.h. Stoppað á austurleið á Hellu og Hvolsvelli. Áætlaður komutími á
Kirkjubæjarklaustri kl. 13.00. Þar mun utanríkisráðherra, Steingrímur
Hermannsson, ávarpa ferðalanga. Á Kirkjubæjarklaustri mun verða
sagt frá sögu Skaftáreldanna. Inn í Lakagíga er áætlað að verða
komið kl. 16.00. Þar mun Jón Jónsson jarðfræðingur segja frá
jarðfræðilegri sögu Skaftáreldanna. Á leiðinni til Reykjavíkur er
áætlað að stoppa í Vík í Mýrdal. Áætlaður komutími til Reykjavíkur
er kl. 22.00.
Ungir framsóknarmenn!
Þing Sambands ungra framsóknarmanna, og
fimmtíu ára afmælisþing sambandsins verður haldið á Laugarvatni
helgina 2.-4. september 1988.
Ungir framsóknarmenn eru hvattir til að fjölmenna. Upplýsingar eru
veittar á skrifstofu Framsóknarflokksins af Agli og Þórunni í síma
91-24480. Nánar auglýst síðar. S.U.F.
Fjölskylduferð
Hin árlega fjölskylduferð framsóknarfélaganna í Árnessýslu verður
farin 13. ágúst. Lagt af stað frá Selfossi kl. 9, stoppað í Skeiðarrétt
kl. 9.45, Skálholt skoðað og síðan mun deginum eytt á Þingvöllum.
Þórhallur Heimisson segir sögu staðarins. Síðan verður gengið í
Skógarkot undir leiðsögn Péturs Jóhannssonar. Keyrt um Grafning
með viðkomu á Nesjavöllum á heimleiðinni.
Nánar auglýst síðar.
Nefndin.
Heyvinnuvélar
Heyvinnuvélartil sölu. Deutz 401 dráttarvél árg. '68. New Holland 370
bindivél, KR baggatína og heyvagn, heykvísl, knosari á Fellu
sláttuvél, Deutz - Fahr snúningsvél og rakstrarvél.
Upplýsingar í síma 98-34178.
TÖLVUNOTENDUR
Við í Prentsmiðjunni Eddu______
hönnum, setjum og prentum_______
allar gerðír eyðublaða fyrir tölvuvinnslu.
PRENTSMIÐJAN
Smiðjuvegi 3, 200 Kópavogur. Sími 45000