Tíminn - 03.11.1988, Síða 2

Tíminn - 03.11.1988, Síða 2
 2 Tíminn C , r r %. y I „Ánægjuleg tilbreyting aö heimsækja fulltrúa launþega á heimavöll.“ Steingrímur og Ólafur Ragnar hjá BSRB: Vitlausar Ijárfestingar ástæður fjárhagsvandans „Við erum ekki að sætta þá BSRB menn við neitt, við ætlum bara að tala við þá“, sagði Ólafur Ragnar Grímsson fjármálaráðherra þegar hann kom til fundar við forystu Bandalags starfsmanna ríkis og bæja snemma í gærmorgun. Ólafur sagði að það væri ánægju- leg tilbreyting að ráðherrar kæmu til samtaka launafólks á þennan hátt í stað þess að boða þá á sinn fund eins og yfirleitt tíðkast. Þeir Steingrímur Hermannsson forsætisráðherra og Ólafur Ragnar gengu á fund Ögmundar Jónassonar í gærmorgun í húsi BSRB og búist var við að á fundinum yrði fjallað um fjárlagafrumvarpið og þann sam- drátt sem þar er fyrirhugaður í ríkisrekstri. Ögmundur Jónasson sagði frétta- mönnum að þing BSRB hefði falið formanni og varaformanni banda- lagsins að koma á framfæri við ríkisstjórnina eindregnum mótmæl- um þess gegn afnámi samningsréttar og hvernig gengið liefur verið á gerða samninga. Á þetta hefði fyrst og fremst verið lögð áhersla í sam- ræðunum við ráðherrana í gærmorg- un. Viðræðurnar stóðu stutt og ráð- herrarnir skýrðu fyrirætlanir ríkis- stjórnarinnar og þá stefnu sem verið er að móta og kom fram í fjárlaga- frumvarpinu. Ögmundur Jónasson og nokkrir úr forystu bandalagsins ræddu síðan við fréttamenn og sagði hann að BSRB menn hefðu bent ráðherrun- um á hversu alvarlegt það hlyti að teljast þegar um íslensk innanrík- ismál hefði á þinginu vérið rætt undir liðnum „mannréttindamál", en um afnám samningsréttar hefði verið fjallað undir þeim lið og sam- þykkt fordæming á því. Ögmundur sagði að í öllu kreppu- talinu og tali um samdrátt frá fyrra ári væri staðreyndin sú að síðasta ár væri það besta í íslandssögunni frá upphafi vega og þá væri spurningin, hvað hefði orðið um allt þetta fjár- magn sem streymt hefur inn í landið. Kjarni samþykkta þings BSRB væri vegna rangrar fjárfestinga- stefnu en sönnun hennar væri sú staðreynd að a.m.k. ein Kringla væri á floti í Reykjavík, þ.e.a.s. verslun- ar- og atvinnuhúsnæði sem væri ónotað og vitnaði um óskynsamlega meðferð þess fjár sem inn í landið hefur streymt. TIL SÖLU Jeep Cherokee árg. 1986, 6 cyl., sjálfskiptur með selec-tarc, sentrallæsingar, cruise-control, veltistýri, dráttar- kúlu. EGILL VILHJÁLMSSON HF Smiðjuvegi 4, Kópavogi, simar 77200 - 77202 BLIKKFORM ______Smiðiuveqi 52 - Sími 71234__ Öll almenn blikksmíðavinna, vatnskassavið- gerðir, bensíntankaviðgerðir, sílsalistar á alla bíla, (ryðfrítt stál), og einnig nælQnhúðaðir í öllum litum. Póstsendum um allt land (Ekið niður með Landvélum). Þarna lægi vandi þjóðarinnar og taka þyrfti á honum. Ögmundur var spurður um þann hluta fjárlagafrumvarpsins sem snýr að niðurskurði í ríkisgeiranum og fækkun opinberra starfsmanna og sagði hann að forysta BSRB hefði ekki skoðað frumvarpið. Þó væri hún samþykk þeim vilja sem fram kemur í frumvarpinu um að leita skuli leiða til launajöfnunar, meðal annars með því að taka tillit til fjölskylduaðstæðna við álagningu skatta. Varðandi samdrátt í ríkisrekstri sagði Ögmundur að þensla hefði verið minni hjá ríkinu en annarsstað- ar í þjóðfélaginu á síðustu misserum. Vegna þess hlyti að vera eðlilegra að athuga hvar þenslan hefur verið mest og hvort að sú þensla hafi skilað sér til þjóðfélagsins. Að mati BSRB hefði hún ekki gert það. Hann sagði það nöturlega stað- reynd að arðvænlegasta atvinnu- grein á íslandi nú væri að lána út peninga. Fjárfestingageirinn hefði enda blómstrað. Þessi staðreynd yrði vonandi ofarlega í huga stjórnvalda og löggjafarvalds þegar tekið verður á efnahagsvanda þjóðarinnar og sparnaðarhnífunum brugðið. -sá Steingrímur Hermannsson forsætisráðherra kemur á fund forystu BSRB í morgunsárið í gær Timamynd: Gunnar. 63 ÞÚS. TONN VEIDD Þrír loðnubátar tilkynntu um samtals 4080 tonn í nótt, en það voru Hólmaborgin með 1430 tonn á Eski- fjörð, Sigurður með 1400 tonn til Vestmannaeyja og Víkingur með 1250 tonn til Akraness. Síðdegis á þriðjudag tilkynntu sömuleiðis þrír bátar um afla. Það voru Hilmir 11 með 570 tonn, Skarðs- vík með 640 tonn og Bergur með 470 tonn. Þessir þrír bátar lönduðu allir á Siglufirði. Eftir miðnætti í gær hafði verið tilkynnt um samtals 62.920 tonna afla það sem af er vertíðar. Sem kunnugt er hefur loðnukvót- inn verið aukinn í rúmar 600 þúsund lestir. í sumar var úthlutað 398 þúsund lestum af loðnu til íslenskra loðnubáta. Sú úthlutun miðaðist við 500 þúsund lesta heildarkvóta, sem ákveðinn hafði verið til bráðabirgða til loka október. Nýlokið er endur- mælingu á loðnustofninum og er lagt til að heildarkvótinn verði aukinn um 360 þúsund lestir og af því magni koma 306 þúsund lestir í hlut Islend- inga. Heildarkvótinn er því heldur minni á þessari vertíð en í fyrra. -ABÓ Punktar úr fjárlögum Auknu fé veitt til kvikmynda í nýju fjárlögunum er kvikmynd- um gert hærra undir höfði en í fjárlögum fyrra árs. Fjárveiting til Kvikmyndasafns Islands nemur 5.8 milljónum sem er um 56% hækkun frá gildandi fjárlögum. Hækkun umfram það sem verðlagsforsendur gefa tilefni til er vegna 2 milljón króna fram- lags til varðveislu eldri mynd. Gert er ráð fyrir að fjárveiting ríkisins til Kvikmyndasjóðs verði 71 milljón króna sem er nokkur hækkun að raungildi milli ára. Lánasjóöur ís- lenskra námsmanna: Ráðstöfunarfé LÍN hækkar um 5%-6% að raungildi Ráðstöfunarfé LÍN nemur um 2.5 milljörðum króna og er það hækkun um 17% frá fjárlögum 1988. Þar af er fjárveiting rúmlega 1.6 milljarður en lántaka 915 millj- ónir. í nýju fjárlögunum kemur fram að við afgreiðslu fjárlaga fyrir 1988 var hlutdeild fjárveitingar í ráð- stöfunarfé sjóðsins aukin verulega eða úr 54% í rúm 69%. Ástæða þeirrar ráðstöfunar var einkum sú að sjóðurinn fær með engu móti staðið undir greiðslubyrði af háum skuldum. Greiðslur sjóðsins 1989 af áhvílandi skuldum eru rúmum 476 milljónum umfram innheimtu af veittum lánum. Áætlanir um lánveitingar sjóðs- ins á árinu 1989 gera ráð fyrir um 1% fækkun lánþega frá fyrra ári. Happdrætti Háskólans: Mikilvægur tekjustofn Tekjur Háskólahappdrættisins á næsta ári eru áætlaðar tæpur einn og hálfur milljarður króna, er þá gengið út frá að verð á hverjum happdrættismiða hækki úr 300 krónum í 400 krónur og að sala á Happaþrennunni verði 10 milljónir miða í stað 5 milljóna eins og gert var ráð fyrir í fjárlögum 1988. Rekstrarhagnaður ársins 1989 er áætlaður 311.500.000 og verður honum ráðstafað þannig að 62.300.000 renna í byggingasjóð rannsókna í þágu atvinnuveganna og 249.200.000 til byggingarfram- kvæmda við Háskóla íslands og stofnanir hans. Háskóli íslands: Fimm ný stöðugildi, aukin rekstrargjöld I fjárlögunum fær Háskóli ís- lands heimild fyrir fimm nýjum stöðugildum. Um er að ræða stöðu rússneskukennara við heimspeki- deild, prófessorsstöðu við hag- fræðiskor viðskipta- og hagfræði- deildar, lektorsstöðu í þjóðfræðum við félagsvísindadeild, lektors- stöðu við námsbraut í sjúkraþjálf- un, einnig stöðu við upplýsinga- þjónustu Háskólans, en starfsemi upplýsingaþjónustu Rannsókna- ráðs hefur verið flutt undir merki Háskólans. Við þessar breytingar eru stöður við Háskólann orðnar 347. Önnur rekstrargjöld og laun hækka alls um 16%. Hækkun þessi stafar af því að nemendum hefur farið fjölgandi undanfarin ár og boðið er upp á fjölbreyttara nám. Þetta krefst aukinna útgjalds auk þess sem stærra húsnæði kallar á hærri rekstrargjöld. Framkvæmdir, viðhald og tækja- kaup Háskólans eru fjármögnuð með Happdrætti HÍ og gert er ráð fyrir að tæpar 223 milljónir renni til þessara fyrrnefndu liða. ssh

x

Tíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.