Tíminn - 03.11.1988, Blaðsíða 6
6 Tíminn
£>íiP.c,t.<.'■*£< > scl-'
Fimmtudagur 3. november 1988
Endurskipulagning í mannahaldi hjá
markaðssviðí Flugleiða:
Mannabreytingar
hja Flugleiðum
Tíininn hcfur eítir bladafulitrúa
Flugleiða, Einari Sigurðssyni að
nú sé unnið uð endurskipulagningu
á sölu-, markaðs-, og þjónustu-
starfi í samræmi við breyttar
áherslur í stefnu fyrirttekisins.
Eins og fram hefur komið koma
nýjar Boeing 737-400 tlugvclar
inná Evröpuleiðir fyrirtækisins,
sem verður fyrsta skrefiö í endur-
nýjun alls flugflotans. Eftir eitt og
hálft ár er gert ráð fyrir að Flugleið-
ir eigi yngsta millilandaflugflota í
Evrópu. Oað gerir félaginu kleylt
að mæta betur samkcppni erlcndra
flugfélaga á flugleiðutn til og frá
íslandi sem gert er ráð fyrir að fari
vaxandi á næstu árum.
Hluti af fyrrgreindum manna-
breytingum eru eftirfarandi:
Andri Hrólfsson verður for-
stöðumaður innanlandsflugs, l'ór-
arinn Stefánsson verður stöðvar-
stjöri innaniandsflugs, Anna Birna
1 lalldórsdóttir verður deildarstjóri
markaðsáætlanagcrðar og Gunnar
Olsen verður stöðvarstjóri í Kcfla-
vík. f Söludeild verða þessar breyt-
ingar helstar: Guðrún Jóhanns-
dóttir veröur deildarstjóri
Farskrár, Jóhann D. Jónsson vcrð-
ur sölustjóri á íslandi, Jón Óskars-
son verður sölustjóri innaniands-
llugs og Pétur Esrason verður sölu-
stjóri í Mið-Evrópu, lil Bretlands,
og yfir Norður-Atlantshaf. Sveinn
Sæmundsson verður sölustjóri á
Norðurlandaleiðum og tengiliður
viö auglýsingastofur.
í Pjónustudeild verður Sigríður
Skagfjörð deildarstjóri og Ragn-
hildur Gunnarsdóttir verður nýr
fulltrúi. -áma
Sambandið
Sjávar-
afurðadeild
Framleiðsludeild okkar óskar eftir að ráða fimm
starfsmenn. Um er að ræða ný störf svæðisfulltrúa
og verða þrír staðsettir utan höfuðborgarsvæðis-
ins.
Starfið felur í sér meðal annars:
★ Uppbyggingu og viðhald gæðakerfa í frystihús-
um.
★ Eftirlit með hreinlæti, búnaði og framleiðsluhátt-
um.
★ Framleiðslustýringu og ýmsa leiðbeinenda- og
fræðslustarfsemi.
Við leitum eftir starfsmönnum með góða menntun
og víðtæka reynslu á sviði fiskiðnaðar.
Nauðsynlegt er að væntanlegir starfsmenn geti
unnið sjálfstætt.
Umsóknarfrestur er til 15. nóvember 1988 og er
óskað eftir að viðkomandi geti hafið störf í janúar
1989. Umsóknir skulu sendar til:
Samband ísl. samvinnufélaga
Sjávarafurðadeild
c/o Jóhann Þorsteinsson
Sölvhólsgötu 4
101 Reykjavík
sem veitir allar frekari upplýsingar.
PÓST- OG
SÍMAMÁLASTOFNUN
óskar að ráða
BRÉFBERA
hjá Pósti og síma, Kópavogi.
Upplýsingar hjá stöðvarstjóra í síma 91-41225.
Alúðarþakkir færi ég öllum þeim sem glöddu mig
með heimsóknum, blómum, gjöfum og heillaskeyt-
um á 80 ára afmæli mínu þann 17. október síðast
liðinn.
Anný Guðjónsdóttir
Konur fleiri en karlar í Háskólanum, aöeins fjóröungur háskóla-
nema utan af landi:
Enn fjölgar ný-
nemumviðH.Í.
Nýnemum við Háskóla íslands
heldur áfram að fjölga milli ára, og
samkvæmt tölum frá Hagstofunni er
ekki að vænta stórra breytinga á
fjölda nýnema næstu sex til sjö árin.
Rúmlega helmingur nemenda við
Háskólann eru konur en fyrir tutt-
ugu árum voru konur ekki nema
fjórðungur nemenda skólans.
Þessar upplýsingar birtast í nýút-
komnum Stúdentafréttum sem Stúd-
entaráð gefur út. Á sama stað kemur
einnig fram að karlmenn eru enn í
yfirgnæfandi meirihluta í greinum
tengdum raunvísindum og verk-
fræði. Kvenfólk er aftur á móti
meira áberandi í greinum eins og
hjúkrun, sjúkraþjálfun, tungumál-
um og öllum greinum í félagsvísinda-
deild nema stjórnmálafræði. Aðeins
einn nemandi af hverjum tíu í verk-
fræðideild er kona og í raunvísinda-
deild eru konur aðeins þriðjungur
nemenda. Kvenfólkið virðist vera
að sækja á í lagadeild og eru nú fleiri
en karlarnir í fyrsta skipti í sögu
deildarinnar.
Fyrir sjötíu árum sóttu 0,01%
þjóðarinnar nám við Háskólann, nú
eru nemendur 4300 eða um 2%
þjóðarinnar og þá eru ótaldir þeir
sem stunda háskólanám erlendis.
Athygli vekur að miðað við lögheim-
ili háskólastúdenta þá er aðeins
fjórðungur utan af landi.
Deildir Háskólans eru nú níu
talsins og er heimspekideild stærst
með 873 nemendur. Viðskiptadeild-
in ásamt lagadeildinni hefurstækkað
um helming á síðastliðnum tíu árum.
Á síðustu tveimur árum hefur ný-
nemum í þessum tveimur deildum
fækkað en aftur á móti hefur fjölgun
orðið í heimspekideild og félagsvís-
indadeild. ssh
Dagsferðir til Dublin njóta mikilla vinsælda og landinn notfærir sér óspart
w að ná forskoti á bjórinn:
Ahöfn við að gefast
upp vegna fyllerís
„Ég veit að þetta var slæmt flug
heim, sem eflaust má að nokkru
rekja til þess að fölkið hafði verið
á þeysingi allan daginn,“ sagöi
I lalldór Sigurðsson forstöðumaður
þjónustusviðs Arnarflugs um flug
frá Dublin á írlandi á föstudaginn
fyrir um viku. Pá var þ'rsta eins
dags ferðin farin frá fslandi til
Dublin á veguni Samyinnuferða -
Landsýn með Arnarflugi og virðist
landinn heldur betur hafa notfært
sér daginn og rasað út, ef marka
má orð eins farþegans.
Lýsingar farþegans voru á þá
leið að þetta hefði eiginlega allt
byrjað í ílughöíninni í Dublin,
þegar halda átti heitn. Pá varð
scinkun á vélinni og fólkið hélt
áfrant að bæta á sig áfengi þrátt
fyrir að hafa vcriö vel við skál eftir
daginn. Pegar út í tlugvélina kom
hafi fólkið verið orðið mjög drukk-
ið og ekki hirt um almennar reglur
í vclinni, s.s. um reykingar og fólk
verið á sffelldu iði um gang flugvél-
arinnar. Pá hafi líka tttargir kastað
upp. Áhöfnin var að sögn farþeg-
ans, að gefast upp, enda ekki lent
t neinu líku þessu cf undan er skilið
pílagrímaflug.
„Petta var slænit flug. Það ntá
kannski búast við því þegar fólk er
búið að vera í svona dagsferð og
ætlar að glcypa allan Jieintinn i
einu hendingskasti, þá lætur nú
kannski eitthvað undan. Hins vcg-
ar held ég nú að flugfreyjumar hafi
nú passað það aö ekki væri reykt,
alla vega inni á klósettunum,"
sagði Haildór. Hann sagði að mjög
lítið áfengi hafi verið selt í fluginu
til baka. „Nú veit ég ekki hvernig
fölkið kont unt borð. en þetta gæti
hafa verið eitthvað óheppilega
samansettur hópur. En það var
enginn, svo ég viti til mcð einhvern
hasar eða læti. Ég held að þetta
hafi verið frekar þannig, að þegar
taugarnar eru búnar að vera
stemmdar og sfðan slökun í rest-
ina, þá lætur citthvað undan eftir
daginn og sennilcga maginn
fyrstur," sagði Halldór.
Vélinni seinkaði unt 45 mtnútur,
en Halldór sagðist ekki vita af
hverju sú seinkun stafaði. Hvort
það hafi verið af því að erfiðlega
gekk að koma farþegunt um borð,
sagðist hann ekki vera kunnugur.
Hann sagði að það lægi í auguni
uppi að í svona dagsferðum rneð
120 manna hóp væru einhverjir
óþekkir. „Petta gerðist í sólar-
landaferðum fyrir ekki mörgum
árum sfðan og gcrist enn þann dag
í dag,“ sagði Halldór.
Aðspurður sagði Halldór að
jaetta hefði ekki verið tekið öðru
vísi fyrir hjá þeim nema þannig að
í ferðinni scm farin varsl. föstudag,
þá var brugðist öðru vísi við.
„Brýndum það fyrir fólki strax um
morguninn að samkvæmt loft-
ferðareglum mundum við ekki taka
drukkið fólk um borð. Og ef fólk
væri illa á sig komið þá ætti það
ekki von á því að fá mikla þjónustu
frá okkur í fluginu sjálfu,“ sagði
Ffalldór.
„Ég hcld að þetta hafi verið
meira þannig að fólkið hafi bara
ekki þolað daginn, verið búið að
drekka rnikinn bjór og orðiö lasið
þegar það settist niður. Það er ekki
auðvelt fyrir aðra farþega og ekki
síst áhöfnina sem þarf að standa f
málunum og hafa marga veika.
Það er ekki geðslegt fyrir flugvél-
ina,“ sagði Halldór. ,.Við báðum
fararstjórann í stðari feröinni að
brýna það fyrir fólki aö fara var-
lega. Enda var sú ferð alveg til
sóma.“ -ABÓ