Tíminn - 03.11.1988, Side 20

Tíminn - 03.11.1988, Side 20
RIKISSKIP NÚTÍMA FLUTNINGAR Hafnarhúsinu v/Tryggvagötu S 28822 Átjan man. 1: Dinding ,5% | SAMVINNUBANKINN | I L A S 7*^ 'A/ ÞRDSTUR 68 50 60 VANIRMENN Tíminn Finnur Ingólfsson flyturfrumvarpertryggirstöðunámsmannagagnvart peninga- valdinu og vill tryggja að: Ráðherra komi ekki aftan að námsmönnum Sjálfstæðismenn hafa átt menntamálaráðherra í undan- förnum þremur ríkisstjórnum. Á því tímabili hefur reikn- aður framfærslukostnaður námsmanna verið skertur um 20%. Þetta hefur leitt til þess að margir námsmenn hafa þurft að hrökklast frá námi og lent í vandræðum vegna fjárhagsvandræða. Á sama tíma og ráðherrar Sjálfstæðis- flokksins skertu með reglugerðum framlög til lánasjóðsins gerðu þeir námsmönnum með háar tekjur kleift að taka lán úr lánasjóðnum. Aukning á Iánum til hátekjumanna nam því sem næst sömu upphæð og skerðingin á fram færslukostnaði þeirra sem þurftu á lánunum að halda. hans. Þetta er gert til að mennta- málaráðherra geti ekki fyrirvara- laust komið aftan að námsmönnum og skert námslánin án nokkurs samráðs við þá eins og gert hafur verið. í ákvæðum tii bráðabirgða- laga sem fylgir frumvarpinu er gert ráð fyrir að nefndin taki þegar til Petta kom fram í máli Finns Ingólfssonar varaþingmanns, en hann situr nú á þingi fyrir Guðm- und G. Þórarinsson þingmann Framsóknarfiokksins í Reykjavík. Hann mælti fyrir frumvarpi í neðri deild um breytingu á lögum um námslán og námsstyrki sem hann flytur ásamt Páli Péturssyni og fleirum. Það gerir ráð fyrir að skipuð skuli nefnd er fjalli um tillögur um breytingar á útreiknuð- um framfærslugrunni námsmanna áður en þær taka gildi. í nefndinni skulu sitja fulltrúi menntamála- ráðuneytis, fulltrúi námsmanna auk hagstofustjóra eða fulltrúa starfa og leggi mat á framfærslu námsmanna eins og hún er við gildistöku laganna samanborið við framfærslu námsmanna eins og hún var í maí 1982 þegar lög um námslán og námsstyrki tóku gildi. Við umræðurnar kom fram mikil gagnrýni á fyrrverandi mennta- málaráðherra Birgi ísleif Gunnars- Finnur Ingólfsson varaþingmaður Framsóknarflokksins í Reykjavík gagnrýndi framkomu menntamálaráðherra Sjálfstæðisflokksins í garð námsmanna á undanförnum árum, á Alþingi í gær. En þeir hafa skert lán til framfærslu námsmanna um 20% að raungildi síðan 1982. son fyrir að hafa gengið á megin markmið Lánasjóðs íslenskra námsmanna með því að hækka tekjuhámark lántakenda og færa þannig peningana frá þeim fátæku til hinna ríku, eins og Finnur orðaði það. Þá gagnrýndi Svavar Gestsson núverandi menntamála- , ráðherra sjálfstæðismenn fyrir hug- myndir þeirra um að taka vexti af námslánum og lýsti stuðningi sín- um við frumvarpið. Það vakti einnig athygli að þegar Finnur hugðist leggja þetta sama frumvarp fram síðastliðinn vetur, lagðist þá- verandi ráðherra menntamála Birgir ísleifur eindegið gegn því að það yrði gert og taldi slíkt persónu- lega móðgun við sig. Verður slíkt að teljast furðuleg afstaða þar sem að með þessu er einungis farið fram á að almennir mannasiðir verði viðhafðir í samskiptum námsmanna og ráðuneytisins, eins og Páll Pétursson benti á. Þeir sem tóku til máls voru sammála um að hér væri á ferðinni tímabært mál og bæri að flýta afgreiðslu þess svo sem unnt væri. -ág Hugsjón undirbýr framleiðslu á fræðslu- myndum um kynlíf: Kynlífsfræðsla í fimm þáttum Fimm fræðslumyndir um kynlíf eru nú í undirbúningi hjá kvik- myndafyrirtækinu Hugsjón. Áætl- að er að myndirnar verði að hluta til leiknar og að hluta tii teikni- myndir og taki um 45 til 60 mínútur í sýningu. Fyrsta myndin sem fjall- ar um öruggara kynlíf er væntan- leg þann 1. mars og er ætlunin að hinar myndirnar fjóra fylgi fast í kjölfarið. Hinar myndirnar fjóra fjalla um Unglinga og kynlíf, Fatlaða og kynlíf, Aldraða og kynlíf, og að gera gott kyniíf betra. Hugsjón hefur fengið helstu kyn- fræðslusérfræðinga hér á iandi, þær Jónu Ingibjörgú Jónsdóttur kyn- fræðing og Sóley Bénder hjúkrun- arfræðing, sem m.a. hefur unnið kynfræðsluefni fyrir landlækni, til aðstoðar við gerð handrits að myndunum. Þá hefur Hugsjón fengið Dr. Mark Schoen til liðs við sig til ráðgjafar, en hann rekur nú eigið dreifingarfyrirtæki sem leigir og selur kynfræðslumyndir. Að sögn Sonju B. Jónsdóttur hjá Hugsjón er ekki ráðið hvort íslendingar komi til með að leika í myndunum. Ætlunin mun vera að nota mikið til teikningar og jafnvel að fá erlendis frá efni í myndirnar, þar sem þá væru erlendir aðilar í hlutverkunum. Hún sagði að nú væru þau að skoða myndir sem Schoen hefði komið með og væri ætlunin að taka mið af því hvernig þeir hefðu leyst þessi mál og miða við það sem vel hefði tekist til, enda væri ekki hægt að bjóða fólki hvað sem væri. Kynlífsfræðslumyndirnar eru ætlaðar til fræðslu í skólum, heil- brigðisstofnunum sem og til al- mennrar fræðslu. Hugsjón hyggst ná samningi við bókaforlag um að dreifa myndinni í gegn um bóka- Kirkjuþing tekur ekki endanlega afstööu til frumvarps um skipan prestakalla: Verði kynnt meðal presta og safnaða Aðalmál kirkjuþings, frumvarp til laga um skipan prestakalla og próf- astsdæma og um starfsmenn þjóð- kirkjunnar kom til annarrar umræðu á kirkjuþingi í gær. Gert er ráð fyrir að frumvarpið verði sent til kynning- ar til safnaða og presta, og að kynningu lokinni mun kirkjuráð taka til athugunar hvort það sér ástæðu til að leggja það að nýju fyrir kirkjuþing. Þá er einnig gert ráð fyrir allt að tíu ára aðlögunartíma. „Þess ber að gæta að ekki er gert ráð fyrir því að fækka prestsembætt- um á landsbyggðinni þegar til heild- arinnar er litið, heldur koma svo kallaðir farprestar í staðinn, sem hefðu þá þjónustu í prófastsdæmun- um,“ sagði sr. Jón Einarsson. Nefndin sem vann að frumvarpinu gerði ráð fyrir að prestaköllum yrði fækkað um sjö og þar af átti að fækka um tvö í Rangárvallarpróf- astsdæmi. Þá var Iagt til að tekið yrði upp eitt prestakall í Þorlákshöfn. Sr. Jón sagði að þeir hefðu neitað því alfarið að fækkað yrði um tvö í einu í Rangárvallaprófastdæmi og átti hann ekki von á að það yrði ofaná. Ýmsum málum var vísað heim í hérað, s.s. var hugmyndinni um skiptingu Reykjavíkurprófastsdæm- is vísað til presta í prófastsdæminu. Mjög skiptar skoðanir munu vera um þetta meðal presta prófasts- dæmisins, hvort eigi yfir höfuð að vera að skipa því og þá hvað þau eigi að heita. Helsta nýmælið er að vígslu- biskuparnir fái aukin störf og sitji á hinum fornu stöðum á Hólum og Skálholti. Þeir yrðu þjónandi prestar á stöðunum, en hefðu jafnframt ákveðin biskupsstörf, yrðu eins kon- ar aðstoðar biskupar. Þá biskupi fyrst og fremst til ráðuneytis og aðstoðar. Menn voru mjögsammála um þetta mál, nema það ef umdæmið verður látið ná yfir allt hið forna umdæmi Skálholts, þ.e. einnig yfir Reykjavík og Reykjanes, sem prest- ar í Reykjavík gerðu athugasemd við. Kirkjuþingi verður slitið í dag og mun ofangreint frumvarp verða tek- ið til atkvæðagreiðslu. -ABÓ 1

x

Tíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.