Tíminn - 06.12.1988, Page 3

Tíminn - 06.12.1988, Page 3
' Þn'ðjúdágijr 6. 'de'serrib'é'r 1988 f \f 'V ! ' < ' k 1 ' • 2 ........... <.. .Tíminn 3 Þrjú frumvörp til tekjuöflunar lögð fram á Alþingi í gær: EIGA AD SKILA UM 3,2 MILUÓRÐUM í KASSANN Þrjú frumvörp til tekjuöflunar voru Iögð fram á Alþingi í gær. Þetta voru frumvarp um breytingu á lögum um skattskyldu innlánsstofnana, frumvarp sem tók til skatts á erlendar lántökur og frumvarp til laga um breytingu á vörugjaldi. Þessi þrjú frumvörp, ásamt frumvarpi um breyt- ingar á tekju- og eignaskatti og frumvarpi um skatt á happdrætti eiga að skila ríkissjóði tekjuafgangi upp á 1,2 milljarða króna. Frumvarpi um breytingu á lögum um ráðstafanir í ríkisfjármálum og lánsfjármálum, þ.e. um gjald af erlendum lánum, leigusamningum og fl. er ætlað að færa ríkissjóði um 200 milljónir í tekjur á næsta ári. í frumvarpinu er lagt til að lánssamn- ingar vegna kaupa á atvinnuflugvél- um og kaupskipum verði undan- þegnir gjaldskyldu svo og að heimilt verði að undanþiggja gjaldtöku á lán sem tekin eru vegna sérstakra að- gerða stjórnvalda í þágu útflutnings- greina. í frumvarpi um breytingu á lögum um skattskyldu innlánsstofnana kemur fram að viðskiptabankar, sparisjóðir og fjárfestingalánasjóðir skulu skyldir til að greiða tekjuskatt af öllum tekjum sínum, hvar sem þeirra er aflað og eignaskatt af öllum eignum sínum. Tekjur ríkissjóðs vegna þessarar skattskyldu eru áætl- aðar 200 til 300 milljónir króna. Með breytingu á vörugjaldi er ætlunin að afla ríkissjóði um 2,8 milljarða í tekjur, þar af er áætlað að rúmlega helmingur komi af greiddri vörugjaldsálagningu. Þar vegur þyngst sælgæti og gos, húsgögn og innréttingar. Gert er ráð fyrir að vörugjald á sælgæti, öli og gos- drykkjum hækki úr 14% í 25%, og sagði Ólafur Ragnar Grímsson fjármálaráðherra að með þessu væri ætlunin að draga úr sykuráti, og er þetta gert í stað þess að leggja á sérstakan sykurskatt, eins og gert er í nágrannalöndum okkar til að minnka sykurneyslu. í öðru lagi er gert ráð fyrir að hækka vörugjald á aðrar þær vörur sem voru með 14% vörugjald í 20%. Þetta eru hrein- lætistæki, steypustyrktarjárn, ein- angrunarefni, sjónvörp, hljómflutn- ingstæki, ísskápar, útvörp, mynd- bandstæki, raflagnaefni, ilmvötn og snyrtivörur auk annarra hluta. Þá er með þessu frumvarpi lagt til að innleitt verði 10% vörugjald á ým- iskonar byggingarvörur, s.s. timbur, sement, og vörur eins oginnréttingar Við kynningu á tekjuöflunarfrumvörpunum þremur, f.v. Maríanna Jónasdóttir, Ólafur Ragnar Grímsson Qármálaráðherra, Guðrún Ásta Sigurðardóttir og Lárus Ögmundsson. Tfmamynd Gunnar og húsgögn, bæði innlenda og er- lenda framleiðslu. Með þessu má að nokkru draga úr fjárfestingu og þenslu. Ákveðið hefur verið að viðræður stjórnarinnar við stjórnarandstöð- una sem hófust um helgina haldi áfram og komu fyrstu fulltrúar stjórnarandstöðunnar til viðræðna við þá Ólaf Ragnar Grímsson, Hall- dór Ásgrímsson og Jón Baldvin Hannibalsson í gærkvöld. Á þessum fundum verða ekki aðeins rædd þrjú ofangreind frumvörp heldur er einnig ætlunin að ræða efnisatriði breytinga frumvarps um tekju og eignaskatt, sem nú er í vinnslu í fjármálaráðuneytinu. - ABÓ Vöruskiptajöfnuður fyrstu átta mánuði ársins: Óhagstæður um 644 milljónir Fyrstu átta mánuði ársins var vöruskiptajöfnuður við útlönd óhagstæður um 644 milljónir króna, en á sama tíma í fyrra var hann hagstæður um 2.543 milljónir á sama gengi. Munurinn milli ára hljóðar því upp á tæpa 3,2 millj- arða króna. Fyrstu átta mánuði ársins voru fluttar út vörur fyrir 37.839 milljón- ir króna, en á þessu tímabili var verðmæti vöruútflutningsins 3% minna á föstu gengi en á sama tíma t fyrra. Sjávarafurðir voru um 75% alís útflutningsins og voru um 6% minni að verðmæti en á sama tíma í fyrra. Útflutningur á áli var 11% meiri og útflutningur kísiljáms 38% meiri á föstu gengi en á sama tíma í fyrra. Útflutningsverðmæti annarrar vöru, fyrir utan flugvélar og skip, var svipað fyrstu átta mánuði þessa árs og á sama tíma í fyrra, reiknað á föstu gengi. Verðmæti vöruinnflutnings fyrstu átta mánuði ársins var 6% meira en á sama tíma í fyrra. Innflutningur til álverksmiðjunnar var svipaður og í fyrra, en verð- mæti olíuinnflutnings sem kemur á skýrslur fyrstu átta mánuði ársins var 15% minna en á sama tímabili á síðasta ári. Innflutningur skipa var hinsvegar miklum mun meiri en í fyrra. Innflutningur til stóriðju ogolíu- innflutningur ásamt innflutningi skipa og flugvéla er jafnan brcyti- legur frá einu tímabili til annars. Séu þessir liðir frátaidir reynist annar innflutningur, sem er 86% af heildinni. hafa orðið um 4% meiri en í fyrra, reiknað á föstu gengi. En með notkun fasts gengis er miðað við meðalgengi á viðskipta- vog; á þann mæiikvarða er verð erlends gjaldeyris talið vera 10,7% hærra i janúar- ágúst 1988 en á sama tíma í fyrra. SSH Rannveig Guðmundsdóttir, formaður Húsnæðisstjórnar, __ telur að málefni Byggung séu ekki í réttum farvegi: Byggung synjað um f rekari lán Rannveig Guðmundsdóttir, stjórnarformaður Húsnæðisstjórnar, sagði í viðtalf við Tímann í gær að ekki væri um það að ræða að Húsnæðisstjórn veitti framkvæmdalán til byggingasamvinnufélagsins Byggung. Þetta var ákveðið á fundi í síðustu viku og byggir á þeim rökum að framkvæmdalán sé ekki lengur veitt nema til byggingarverktaka sem eru að byggja fyrir fólk sem á von á láni frá Húsnæðisstjórn eftir réttri röð. Sagði Rannveig að slík lán hafi áður verið veitt til Byggung. Sagði hún að Húsnæðisstjórn gæti ekki veitt Byggung frekari fyrirgreiðslu en þegar hefur verið gert, auk þess sem málefni Byggung væru ekki í réttum farvegi. Eins og Tíminn greindi frá í heimtuaðgerðir eru hafnar fyrir síðustu viku sótti framkvæmdastjórn nokkru gegn vanskilamönnum þess- Byggung um framkvæmdalán að upphæð um 40 milljónir króna. Var umsóknin byggð á því að Byggung á um 50 milljónir króna ógreiddar frá félögum í fyrri áföngum, en þar af tilheyra um 46 milljónir hóp manna úr fimmta byggingaráfanga. Inn- um og hafa fjölmargar stefnur þegar verið birtar. Markmið framkvæmdastjórnar Byggung með umsókninni var að koma um 27 fjölskyldum inn í íbúðir sínar fyrir jólahátíðina, að sögn framkvæmdastjórans, Jóns Bald- vinssonar. í síðustu viku var þessum fjölskyldum tjáð að ekki gæti orðið af þessum áformum, vegna af- greiðslu Húsnæðisstjórnar. Þegar vandi þessara tilteknu fjöl- skyldna var borinn undir Rannveigu Guðmundsdóttur, formann Hús- næðisstjörnar, sagði hún að Hús- næðisstjórn gæti ekki leyst þann vanda sem þetta fólk stæði frammi fyrir. Sagði hún jafnframt að málefni Byggung eins og það væri sett fram þessa mánuðina væri ekki í réttum farvegi og vildi hún helst ekki ræða samskipti Húsnæðisstjórnar og Byggung frekar á opinberum vett- vangi. KB Tvö tímabil. m m Ármúla3-108 Reykja vík - Sími91-680988

x

Tíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.