Tíminn - 06.12.1988, Page 7
Þriðjudagur 6. desember 1988
Tíminn 7
Tölur yfir mjólkurframleiðslu í nóvembermánuði liggja
nú fyrir. Þar kemur fram að framleiðslan var svipuð og í
fyrra eða rúmlega 7.5 milljónir lítra. Þessar nýfengnu
niðurstöður valda því að menn hjá mjólkursamlögunum og
framleiðsluráði landbúnaðarins varpa öndinni léttar, því
undanfarið hafa þeir lýst yfir áhyggjum vegna samdráttar
sem varð í mjólkurframleiðslu fyrstu tvo mánuði verðlags-
ársins, miðað við framleiðsluna á sama tíma í fyrra. Óttast
var að áframhaldandi samdráttur myndi valda því að litlar
birgðir mjólkurvara, sérstaklega af smjöri, yrðu til í
landinu næsta haust, í upphafi nýs verðlagsárs.
Framboð og eftirspurn varðandi
mjólkurvörur er nú í jafnvægi en
margir telja slíka stöðu óæskilega
vegna þess að lítið megi út af
bregða þannig að grípa þurfi til
innflutnings.
Tíminn hafði samband við Gísla
Karlsson hjá Framleiðsluráði land-
búnaðarins, og innti hann eftir því
hvernig birgðastaðan á mjólkur-
vörum væri í landinu. „Þessa tvo
samdráttarmánuði minnkuðu
birgðir ekki, en þær byggðust held-
ur ekki upp. Birgðastaðan er ennþá
þokkaleg í landinu og við erum
hvergi bangnir. Aftur á móti gegnir
öðru máli hvernig birgðastaðan
kemur til með að vera næsta haust,
framhaldið verður að skera úr um
það. Manni líður mikið betur eftir
að hafa fengið í hendurnar tölur
yfir nóvembermánuð, ef samdrátt-
urinn hefði haldið áfram þá hefði
farið að þrengjast um næsta haust.“
Aðspurður sagðist Gísli vera
þokkalega bjartsýnn á að birgða-
staðan yrði í lagi. Hvað smjör-
birgðir varðaði þá færi það allt eftir
því hvort neysla á smjöri ykist enn
í kjölfar vitneskju fólks um holl-
ustu smjörsins.
Óskar Gunnarsson, framkvæmda-
stjóri Osta- og smjörsölunnar sagðist
reikna með að smjörbirgðir yrðu
svipaðar næsta haust og þær voru í ár.
„Þaö fer hinsvegar mjög eftir því
hvemig niðurgreiðslum verður háttað
á þessu tímabili. Smjörsala fer alger-
lega eftir því hvaða verð er á smjörinu
á hverjum tíma. Annars má geta þess
að aukning hefur verið á öllum
vöruflokkum hjá okkur á þessu ári.
Birgðir 1. nóvember námu 18.3 millj-
ónum mjólkurlítra sem er mjög hæfi-
legt miðað við árstíma. Hinsvegar er
það áhyggjuefni að mjólkurffam-
leiðslan er alveg komin í jafnvægi
miðað við neysluna. Við þær aðstæð-
ur má ekkert út af bera þannig að
ekki fari illa. Við erum komin á
mörkin í mjólkurframleiðslunni og
mjólkurmagnið má ekki fara neðar í
landinu. Gert er ráð fyrir að fjölgun
verði meðal þjóðarinnar á næstu
árum og það kallar auðvitað á aukna
mjólkurframleiðslu, annars stefnir
hreinlega í innflutning. Mín skoðun
er sú að í þokkalega góðum árum eigi
umframframleiðslan að vera 3-5%
svo við höfum einhvem öryggisvent-
il.“ ssh
llla sóttir fjár-
öf I unartónlei kar
Aðsókn að fjáröflunartónleikum Samtaka um kvennaat-
hvarf var minni en aðstandendur athvarfsins höfðu gert sér
vonir um. Miðasalan gaf af sér um 206 þúsund krónur, en
miðaverð var eitt þúsund krónur. Rausnarlegar peningagjafir
einstaklinga og stofnana munu því fleyta Kvennaathvarfinu
yfir brýnasta vandann, en áætluð fjárþörf athvarfsins var talin
nema um tveimur milljónum króna, eru þá ekki taldar með
brýnar viðgerðir á húsnæði athvarfsins sem er 60 ára gamalt.
Ingibjörg Jónsdóttir talsímakona
gaf Kvennaathvarfinu eina milljón
króna sem er sparifé sem hún hefur
lagt fyrir í fjölda ára. Gjöfinni
fylgdu óskir um að peningunum yrði
varið í barnastarf athvarfsins. Einnig
gaf kona sem ekki vildi láta nafns
síns getið 250 þúsund krónur. Hjálp-
arstofnun kirkjunnar gaf 500 þúsund
krónur og fór sú upphæð í að borga
reikninga. Þá gaf Rauði Kross Is-
lands peninga til lagfæringa á hús-
næði athvarfsins og í gær bárust
fréttir um að ónefnt trésmíðaverk-
stæði ætlaði að gefa nýja eldhúsinn-
réttingu í hús athvarfsins.
Á skrifstofu Samtaka um kvenna-
athvarf fengust þær upplýsingar að
afstaða Reykjavíkurborgar og
stjórnvalda hefur ekki breyst hvað
varðar fjárstuðning við athvarfið.
Kvennaathvarfið sótti um 2,8 millj-
ónir til Reykjavíkurborgar en fékk
1.3 milljónir, síðan fékkst aukafjár-
veiting upp á 500 þúsund. Þess ber
að geta í framhaldi af þessu að um
70% þeirra kvenna sem leita til
athvarfsins eru úr Reykjavík.
Að lokum skal þeim bent á sem
vilja styrkja starf Samtaka um
Kvennaathvarf að gírónúmer sam-
takanna er 44442-1. SSH
Skipuiagsstofnun kannarbyggingamál í Reykjavík:
Athugað um brot
á byggingareglum
„Skipulagsstofnun ríkisins hefur verið falið að kanna
hvort farið hafi verið að lögum og reglugerðum við
byggingar í Reykjavík,“ sagði Berglind Asgeirsdóttir
ráðuneytisstjóri félagsmálaráðuneytisins.
Stefán Thors skipulagsstjóri ríkisins staðfesti að embætt-
ið væri að skoða viss mál fyrir ráðuneytið eins og hann
orðaði það í gær og fengi ráðuneytið skriflega umsögn á
morgun.
Hér er um að ræða byggingar
bæði á vegum borgarinnar og
einkaaðila en í frétt íTímanum s.l.
fimmtudag var greint frá því að við
skipulag Kringlunnar hafði verið
gert ráð fyrir því að í Kringlunni
nr. 4 yrði kvikmyndahús en það
breyttist á byggingartímanum í
verslunarhús og var opnað sem
slíkt í síðustu viku.
Þessi mikla breyting kom hins
vegar ekki fyrir byggingarnefnd
borgarinnar fyrr en 24. nóvember
sl.
Á borgarstjórnarfundi sl.
fimmtudag urðu umræður um fleiri
slík mál sem upp hafa komið í
seinni tíð og tengjast bensínstöð
Olíss í Grafarvogi og húsinu á
horni Vesturgötu og Garðastrætis
sem hýsa á íbúðir fyrir aldraða.
Borgarfulltrúar minnihluta-
flokkanna í borgarstjórn hófu um-
ræðuna og gagnrýndu að ekki hefði
verið farið að lögum og reglum við
byggingu og breytingar á þessum
mannvirkjum.
Borgarstjóri, Davíð Oddsson
taldi að minnihlutafulltrúarnir
vildu drekkja málum í reglugerða-
fargani og skriffinnsku og vísaði
gagnrýni þeirra á bug. -sá
Frá fyrsta fundi nýrrar miðstjórnar ASf. Timamynd:Gunnar.
Ný miðstjórn ASÍ fundaði í fyrsta sinn í gær:
Lára V. Júlíusdóttir
f ramkvæmdastjóri ASÍ
Nýkjörin miðstjórn ASÍ kom sam-
an á föstudag í fyrsta sinn til formlegs
fundar.
Að sögn Ásmundar Stefánssonar
forseta ASÍ var á fundinum formlega
gengið frá ráðningu Láru V. Júlíus-
dóttur í embætti framkvæmdastjóra
ASÍ en því hefur forseti gegnt áður
samhliða forsetadómi.
Kristín Mántylé hefur látið af
störfum sem skrifstofustjóri samtak-
anna og sagði Ásmundur að fljótlega
yrði ráðið í stöðu hennar.
Jafnframt því að nýr skrifstofu-
stjóri verður ráðinn verða starfssvið
framkvæmdastjóra og skrifstofu-
stjóra skilgreind. Ásmundur sagði
að ekki hefði verið ákveðið á fundi
miðstjórnar í gær hver yrði ráðinn
skrifstofustjóri, nokkrir hefðu verið
nefndir til starfsins, en ekki væri
tímabært að nefna nein nöfn að svo
stöddu. -sá
Jólasýning í
Þjóðminjasafni
í dag kl. 17:00 verður opnuð
sýning í Þjóðminjasafninu á ýmsum
munum og minjum sem tengjast
jólasiðum. Á sýningunni eru gömul
heimatilbúin jólatré, jólakort, jóla-
skraut, jólasveinar af ýmsum
gerðum, Grýla, Leppalúði og margt
fleira.
Öllum vinum Þjóðminjasafnsins
er boðið að vera við opnun sýningar-
innar en þá verður kveikt á jólatré
safnsins, og heilagur Nikulás mun
segja frá lífshlaupi sínu ásamt ýms-
um útlitsbreytingum, sem hann hef-
ur mátt þola í hálft annað árþúsund.
Islensku jólasveinarnir fá líka sinn
sess í safninu en mánudaginn 12.
desember kemur fyrsti íslenski jóla-
sveinninn í heimsókn, þrettán dög-
um fyrir jól eins og vera ber. Síðan
kemur einn á hverjum degi fram að
jólum en á hverjum morgni kl. 11:00
munu börn taka á móti jólasveinun-
um í Þjóðminjasafninu. SSH
Kveikt á
Oslóartrénu
Sunnudaginn 11. desember
n.k., verður kveikt á jólatrénu
við Austurvöll. Að venju er tréð
gjöf frá Oslóarbúum til Reykvík-
inga, en í rúmlega 30 ár hafa
Oslóarbúar sýnt borgarbúum vin-
arbrag með þessum hætti.
Lúðrasveit Reykjavíkur mun
leika lög á Austurvelli og að því
loknu, eða kl. 16.00 hefst athöfn-
in.
Sendiherra Noregs á íslandi,
Per Aasen, mun afhenda jólatréð
Davíð Oddssyni, en hann tekur
við því fyrir hönd Reykvíkinga.