Tíminn - 06.12.1988, Blaðsíða 12
Þriðjudagur 6. desember 1988
12 Tíminn
FRETTAYFIRLIT
Moskva - Sovéskar her-
sveitir beittu valdi um helgina
til aö reka burt mannfjölda sem
safnast haföi saman á aöal-
torgi höfuðborgar Azerbaijan, i
Baku. Talsmaður utanríkis-i
ráðuneytisins i Azerbaijan 11
sagði að hersveitunum hefði j
verið beitt eftir að mótmælend-
ur virtu að vettugi óskir um að! |
víkja.
Bern - Stjórnvöld í Svissi
segja að Yasser Arafat leiðtogi I
P.L.O. geti tekið þátt í umræo- j
um Sameinuðu þjóðanna um j
Palestínu, í Genf í næstu viku.
Caracas - Carlos Andres
Perez leiðtogi stjórnarflokksins
í Venezuela sigraði andstæð-
ing sinn, Eduardo Fernandez
leiðtoga flokks kristilegra
demókrata, í forsetakosning- j
unum sem fram fóru þar í landi j
á sunnudag.
Toronto - Alþjóðleg nefnd
sérfræðinga í flugmálum hefur
sent frá sér ályktun þess efnis
að alvarleg mistök starfsliðs
hersins um borð í bandaríska
herskipinu Vincennes hafi leitt
til þess að írönsk farþegavél
var skotin niður yfir Persaflóa
þann 3.júlí síðastliðinn. Álykt-
unin er í miklu ósamræmi við
niðurstöður Varnarmálaráðs
Bandaríkjanna sem voru á þá
leið að írönskum flugumferð-
arstjórum væri um að kenna.
Tokyo - Hirohito Japans-
keisari lifði af eitt versta veik-
indakast sem hann hefurfeng-
ið frá því að hann veiktist
alvarlega fyrir þremur mánuð-
um.
Jerusalem - Hersveitir
ísraela skutu til bana tólf ára
gamla palestínska stúlku, í
flóttamannabúðum á Gaza- i
svæðinu í gær, eftir að stúlkan
hafði, ásamt vinkonum sínum,
kastað steinum að hermönn- i
um. Stúlkan er329. Palestínu-1
maðurinn sem lætur lífið eftir
að uppreisnin gegn ísraelum j
hófst fyrir ári. Ellefu Israels-!
menn hafa látið lífið.
Varsjá - Lech Walesa leið-1
togi hinna ólöglegu verkalýðs-
samtaka Samstöðu, fékk í gær
leyfi stjórnvalda til að fara úr
landi, í fyrsta skipti síðan 1981. j
Walesa hyggst ferðast til Par-11
isar.
Yaounde - Að minnsta kosti
fimmtíu og fimm börn létu lífið
og fjölmargir særðust á flótta
út úr skóla í höfuðborg Mið-Afr-
íkuríkisins Carmeroun, eftir að
skrifborðsstól hafði af einhverj-
um ástæðum verið hent inn
um glugga einnar skólastof-
unnar. Ymist hentu börnin sér
þá út um glugga stofunnar,
sem er á fimmtu hæð hússins,
eða þustu út og tróðust margir
undir á flóttanum.
London - Tveir menn létu
lífið og tveggja annarra er
saknað eftir að bresk botn-
slæða sökk í Norðursjó í gær.
Tíu manna áhöfn var um borð
og tókst að bjarga sex þeirra. ,
llllllllllll ÚTLÖND ' : ■ ;.;:L' ..' ,, : ...... ...... ....... ......
Shamir biður um framlengingu
stjórnarmyndunarumboðs:
Rabin vill I
ríkisstjórn
Yitzhak Shamir forsætisráðherra Israels bað í gær forseta
landsins, Chaim Herzog um framlengingu á stjórnarmyndun-
arumboði, eftir að tími hans til að mynda ríkisstjórn rann út.
Hann sagðist aðeins þurfa nokkra daga í viðbót til að mynda
samsteypustjórn hægri flokka og trúarflokka Gyðinga með
naumum þingmeirihluta, án þátttöku Verkamannaflokks
Shimonar Peres utanríkisráðherra.
Meirihluti fulltrúa þingsins styður
hægri flokk Shamirs, Likud
flokkinn, eða sextíu og fimm af
hundrað og tuttugu þingmönnum og
var Shamir á grundvelli þess nær viss
um að fá framlengingu á stjórnar-
myndunarumboði sínu.
„Ég hef þegar boðið leiðtogum
Verkamannaflokksins, en þeir höfn-
uðu því að taka þátt í samsteypu-
stjórn. Ég mun því ekki reyna frekar
að fá þá til þátttöku," sagði Shamir.
Bæði Peres og Yitzhak Rabin
varnarmálaráðherra hafa gefið yfir-
lýsingar um að þeir lendi hugsanlega
í stjórnarandstöðu, en Rabin sem
var mjög meðmæltur tveggja flokka
stjórn Verkamannaflokksins og Lik-
ud flokksins, lét þau orð falla að
Verkamannaflokkurinn ætti að
hugsa vel sinn gang. Ákvörðun
flokksins um að hafna tilboði Sham-
irs í síðustu viku voru að hans mati
„söguleg mistök.“
„Nú erum við neyddir til að lenda
í stjórnarandstöðu, mér til mikillar
armæðu," sagði Rabin.
„Við hefðum átt að taka boði
Shamirs um þátttöku í ríkisstjórn til
að mynda eins konar þjóðstjórn
vegna þess að með því mætti leysa
þau vandamál sem nú blasa við og
vandamál sem eiga eftir að koma
upp,“ bætti hann við. IDS
Yitzhak Shamir forsætisráðherra fsraels er viss um að honum takist að mynda
stjórn innan skamms.
Samstaða lítil í hinu hrjáða Bangladesh:
Stjórnarandstaðan
vill ekki viðræður
Leiðtogar stjórnarandstöðunnar í Bangladesh synjuðu í
gær beiðni forseta landsins Hossain Mohammad Ershad um
viðræður varðandi hörmungar þær er áttu sér stað í landinu
í síðustu viku þegar mikið óveður varð þúsundum manna að
bana. Sextán hundruð manns hafa fundist - allir látnir, en
fimmtán þúsunda er enn saknað.
Leiðtogar stjórnarandstöðunnar
voru boðaðir á fund ásamt 170
manna nefnd, til að ræða hörmung-
arnar og viðbrögð við þeim. Stjórn-
arandstöðuleiðtogarnir synjuðu hins
vegar boðinu með þeim orðum að
vissulega hefðu þeir áhyggjur af
hörmungarástandi því er ríkir í land-
inu, en þeir myndu hins vegar ekki
funda með ríkisstjórn sem þeir álitu
ólöglega.
„Pessi nefnd er ekki raunveruleg,
heldur hugvitsamlega búin til í þeim
tilgangi að veita ríkisstjórninni lög-
mæti,“ sagði Sheikh Hasina, leiðtogi
stjórnarandstöðusambandsins, sem
í eru átta flokkar.
Foringjar stjórnarflokksins gagn-
rýndu stjórnarandstöðuna harðlega
fyrir að taka ekki þátt í viðræðum
um viðbrögð við hörmungunum.
Embættismenn í Bangladesh
sögðu í gær að tala þeirra er finnast
látnir hækkaði ört, en herskip leita
nú þeirra fimmtán þúsunda sem
saknað er.
Óveðrið sem gekk yfir eyjarnar í
síðustu viku er eitt það versta sem
gengið hefur yfir undanfarin tuttugu
ár, en allt frá því að Bangladesh
hlaut sjálfstæði árið 1971 hefur þetta
fátækasta ríki heims þurft að þola
flóð, óveður, þurrka og plágur auk
stjórnarbyltinga og ferjustórslysa.
ÍDS
Tengsl á milli sveitatónlistar og áfengisneyslu:
Kráargestir varaðir við
Viðskiptavinir kráa í Bandaríkj-
unum þar sem leikin er sveitatónlist,
drekka hraðar og meira en viðskipta-
vinir annarra kráa, að sögn James
Schaefer mannfræðings við Háskól-
ann í Minnesota í Bandaríkjunum.
Schaefer sagði frá þessum niður-
stöðum sínum á þingi mannfræðinga
í Bandaríkjunum fyrir skömmu, en
undanfarin tíu ár hefur hann ásamt
hópi mannfræðinga rannsakað
drykkjuvenjur gesta á krám í Miss-
oula sem er verslunar- og iðnaðar-
bær í vesturhluta Montana í Banda-
ríkjunum.
„Það leikur enginn vafi á því að
sveitatónlist getur verið forskrift að
erfiðleikum hjá fólki sem ekki hefur
mikla sjálfstjórn. Og ástæðan er
söngtextarnir - sorglegir söngvar um
tapaða ást, erfiða tíma og drykkju,"
sagði Scaefer.
Lög og textar Hank Williams,
Jimmy Rogers, Jerry Lee Lewis,
Johnny Cash, Merle Haggard, Wayl-
on Jennings og Willie Nelsons eru
sérstaklega sterkir áhrifavaldar að
aukinni drykkju, að sögn Scaefers.
Til samanburðar gat Scaefer þess
að rokkmúsik hefur ekki þessi áhrif
á fólk, heldur verður drykkjan hrað-
ari eftir því sem tónlistin verður
hægari.
„Ötulustu drykkjumennirnir
kjósa angurværa, einmanalega og
sjálfsvorkunnsama sveitatónlist. Um
leið og músíkin verður hægari á
börunum má sjá hvernig gestirnir
Flugvélar hlaðnar mat og lyfjum
héldu til Súdan f gær, í þeim tilgangi
að aðstoða íbúa í hinum stríðshrjáða
suðurhluta landsins, þar sem mikil
hungursneyð hefur geisað að undan-
förnu, að sögn starfsmanna Rauða
krossins í Khartoum, höfuðborg
Súdan.
Að sögn vestrænna diplómata
hyggst utanríkisráðherra Súdan,
Hussein Abu Saleh, halda til Addis
Ababa til að semja við skæruliða frá
suðurhluta landsins um að binda
breyta magni og hraða áfengisneyslu
sinnar,“ sagði Schaefer.
Schaefer sem er formaður sér-
stakrar nefndar í Minnesotaháskóla,
sem berst gegn áfengis- og vímuefna-
neyslu sagði að lokum að fólk yrði
að læra að drekka skynsamlegar og
brýna yrði fyrir mönnum að varast
bæri krár þar sem leikin væri sveita-
tónlist. IDS
endi á borgarastríðið sem geysað
hefur undanfarin fimm ár.
Vélar Alþjóðlegu Rauða kross
deildarinnar í Khartoum héldu til
Suður-Súdan í gær, en hundruð
manna hafa látist af hungri undan-
farnar vikur á þessum slóðum. Um
það bil þrjár milljónir manna hafa
jafnframt flúið til annarra hluta
landsins og til Eþíópíu í kjölfar
hungursneyðarinnar og fjölmargir
látist á flóttanum. IDS
Hungursneyð í Súdan:
MILUÓNIR FLÝJA
Chun Doo Hwan fyrruin Ieiðtogi
Suður-Kóreu biður þjóðina fyrir-
gefningar á misgjörðum sínum.
Stokkar upp
Roh Tae-woo forseti Suður-
Kóreu gerði í gær veigamiklar
breytingar á ríkisstjórn landsins,
í tilraun sinni til að hrista af
stjórn sinni hina einræðisfullu
arfleifð Chun Doo Hwans fyrir-
rennara síns f forsetaembættinu.
Forsætisráðherra landsins Lee
Hyun-jae var vikið úr embætti
auk nítján annarra fulltrúa af
þeim tuttugu og tveimur sem sæti
áttu í ríkisstjórn landsins. Sex
þeirra sem reknir voru áttu sæti í
ríkisstjórn Chun Doo Hwans.
í stað Lee Hyun-jaes er nú
sestur í forsætisráðherrastólinn
Kang Youn-houn, fyrrum herfor-
ingi sem neyðst hafði til að segja
af sér herforingjatigninni er hann
reyndist andvígur fyrstu byltingu
hersins.
Allir ráðherrar sem gengdu em-
bættum er varða efnahagsmál
voru látnir fara, auk utanríkisráð-
herrans og varnarmálaráðherr-
ans.
Roh Tae-woo var kjörinn fors-
eti Suður-Kóreu í desember á
síðasta ári og hefur gert strangar
tilraunir til að slíta tengslin við þá
ógnarstjórn er ríkti í landinu í
átta ára valdatíð Chun Doo
Hwans.
I kjölfar opinberrar afsökunar-
beiðni Chuns á spillingu þeirri og
ofsóknum er áttu sér stað í stjórn-
artíð hans, kom Roh Tae-woo
fram í sjónvarpi þar sem hann
óskaði eftir því að endir yrði
bundinn á frekari óskir um að
Chun yrði refsað harðlega og
lofaði jafnframt stjórnmálalegum
umbótum.
Leiðtogar stjórnarandstöðunn-
ar höfnuðu beiðni forsetans með
þeim orðum að Chun, sem dvelur
nú í iðrunarfullri einangrun í
afskekktu Búddhaklaustri, yrði
að svara til saka fyrir ofbeldisverk
sín og Roh Tae-woo yrði að
hreinsa sig af leifum Chun tíma-
bilsins. IDS