Tíminn - 06.12.1988, Blaðsíða 13
Þriðjudagur 6. desember 1988
Tíminn 13
Jólafundur
framsóknarkvenna í Reykjavík verður haldinn í Norðurljósasalnum, Þórscafé fimmtudaginn 8. desember og hefst með borðhaldi kl. 19.00.
Húsið opnað kl. 18.30. Dagskrá:
Ávarp
Jólasaga Steinunn Finnbogadóttir
Jólaljóð
Jólasöngur
Undirleikari Kristín Waage.
Allt framsóknarfólk er velkomið, en tilkynna þarf þátttöku til Þórunnar
í síma 24480 fyrir kl. 17.00 á miðvikudag.
Munið eftir jólapökkunum. Stjórn F.F.K.
Framsóknarfélögin í Keflavík
Fundurveröurhaldinn í Framsóknarfélögunum í Keflavík fimmtudag-
inn 8. desember í Framsóknarhúsinu kl.8.30.
Dagskrá:
Aöalfundur fulltrúaráösins.
Aðalfundur húsfélagsins.
Bæjarfulltrúar ræða bæjarmálefni.
Önnur mál.
Framsóknarmaddaman býður upp á kaffi.
Framsóknarfélögin.
Framsóknarvist á Sögu
Framsóknarvist verður haldin á Hótel Sögu sunnudaginn 11.
desember n.k. kl. 14.00.
Veitt verða þrenn verðlaun kvenna og karla.
Stutt ávarp flytur Guðmundur Bjarnason heilbrigðis- og trygginga-
málaráðherra.
Stjórnandi: Jónína Jónsdóttir.
Verð aðgöngumiða kr. 400,- (Veitingar innifaldar)
Framsóknarfélag Reykjavíkur.
Jólahappdrætti
Framsóknarflokksins
Dregið verður 24. desember.
Vinsamlegast greiðið heimsenda miða.
Framsóknarflokkurinn
Framsóknarvist
Hafnfirðingar og nágrannar, munið lokaumferðina fimmtudaginn 8.
desember kl. 8.30 í íþróttahúsinu við Strandgötu.
Glæsileg heildarverðlaun.
Kaffiveitingar. Fjölmennum.
Framsóknarfélögin í Hafnarfirði
Framsóknarfélag
Garðabæjar og Bessastaðahrepps
Opið hús
þriðjudaginn 6. desember kl. 20.30.
Einar G. Þorsteinsson bæjarfulltrúi mætir á fundinn og ræðir
bæjarrriálin.
Kaffiveitingar. Mætum öll.
Stjórnin
Selfoss og nágrenni
Steingrímur Hermannsson forsætisráðherra ræðir
stjórnmálaviðhorfið á Hótel Selfossi fimmtudags-
kvöldið 15. desember kl. 21.00.
Allir velkomnir.
Framsóknarfélag Selfoss
Áhugakonur um pólitík
Jóla-Matarspjallsfundur
Landssamband framsóknarkvenna gengst fyrir þriðja matarsþjalls-
fundinum fimmtudagskvöldið 8. desember kl. 19.00 í veitingahúsinu
Torfunni.
Dagskrá: Þrjár konur úr Landssambandinu kynna ferð til Svíþjóðar,
þar sem formlega var stofnað Samstarf miðflokkskvenna
á Norðurlöndum.
Kynnt verður bókin „Nú er kominn tími til“, handbók kvenna
í pólitískum fræðum. Höfundur kynnir.
Allar áhugakonur um pólitík velkomnar.
Framkvæmdastjórn L.F.K.
Steingrímur
Jón Óskar:
Ljóðastund á
Signubökkum
Bókaútgáfa Menníngarsjóðs
hefur gefið út safn kvæðaþýðinga
úrfrönsku eftir Jón Óskar. Nefnist
það Ljóðastund á Signubökkum
og er framhald af Ljóðaþýðingum
úrfrönskufrá 1963, ensvoaukin
gerð og endurskoðuð að heitið
getur nýtt verk.
Útgefandi kynnir bók og höfund
svofelldum orðum á kápu:
Jón Óskar hóf tímabært og
áhrifaríkt kynningarstarf með
Ljóðaþýðingum úr frönsku 1963.
Ljóðastund á Signubökkum er
framhald þess, en jafnframt nýtt
verk. Þýðingarnar úr fyrri bókinni
eru hér allar, en miklu bætt við og
formáh Jóns Óskars umbreyttur í
ágrip af sögu franskrar
ljóðagerðar á nítjándu og
tuttugustu öld, en þar rekur hann
hvernig nútímaljóðlistin varð til.
Þýðingarnar frá 1963 hefur Jón
Óskar einnig endurskoðað með
samanburði við frumtextann.
Höfundar kvæðanna sem Jón
Óskar þýðir í Ljóðastund á
Signubökkum eru þessir:
Théophile Gautier, Sully
Prudhomme, Charles Baudelaire,
Comte de Lautréamont, Arthur
Rimbaud, GuiUaume ApolUnaire,
Blaise Cendrars, Saint-John
Perse, Paul Eluard, Tristran
Tzara, Robert Desnos og Jacques
Prévert.
Frönsku nútímaljóðin oUu
aldahvörfum í sögu
heimsbókmenntanna, og kynning
Jóns Óskars á þeim hefur orðið
íslenskum brautryðjendum gott
fuUtingi. Ljóðastund á
Signubökkum er nýtt framlag í
því efni.
Ljóðastund á Signubökkum er
sjöunda bók frumsaminna og
þýddra kvæða eftir Jón Óskar.
Kápu gerði Margrét E. Laxness.
Bókin er 227 bls. að stærð, unnin
í Prentsmiðju Hafnarfjarðar.
FJÓRÐUNGSSJÚKRAHÚSIÐ
Á AKUREYRI
Hjúkrunarfræðingar
- sjúkraliðar
Við á F.S.A. leitum að starfsfólki, sem ertilbúið til
að takast á við nýtt verkefni á Lyflækningadeild
F.S.A.
Hvað bjóðum við?
- sveigjanlegan vinnutíma
- skipulagða fræðslu
- skipulagða aðlögðun
- áhugavert og uppbyggjandi starf.
Hvert er verkefnið?
Ætlunin er að skipta Lyflækningadeildinni, sem er
sú eina sinnar tegundar á sjúkrahúsinu, í 2 minni
einingar. Á annarri verða m.a. sjúklingar með
hjarta-, æða- og lungnasjúkdóma, en aðallega
sjúklingar með meltingarfærasjúkdóma á hinni.
Um er að ræða tilraunaverkefni.
Hvaða starfsfólk vantar okkur?
Deildarstjóra, sem hefur áhuga á stjórnun og
skipulagningu.
Hjúkrunarfræðing í K1 stöðu.
Hjúkrunarfræðinga og sjúkraliða, sem hafa áhuga
á lyflækningahjúkrun.
Þeir sem hafa áhuga, geta fengið nánari upplýsing-
ar hjá hjúkrunarframkvæmdastjóra, Sonju Sveins-
dóttur í síma 96-22100.
Fjórðungssjúkrahúsið á Akureyri.
Jólaalmanak SUF 1988
Eftirtalin vinningsnúmer hafa komið upp:
1. des. 1. nr. 1851
2. nr. 4829
2. des. 3. nr. 7315
4. nr. 1899
3. des. 5. nr. 6122
6. nr. 1500
4. des. 7. nr. 2993
8. nr. 8376
5. des. 9. nr. 1780
10. nr. 3258
6. des. 11. nr. 1984
12. nr. 8352
Velunnarar! Látið ekki happ úr hendi sleppa. Gerið skil og
leggið baráttunni lið.
Allar frekari upplýsingar eru veittar í síma 91-24480 eða
91-21379 og á skrifstofu Framsóknarflokksins, Nóatúni 21,
Reykjavík.
SUF
!!"' ........ -................................ .........
Sáð í sandinn
Bókaútgáfa Menningarsjóðs
hefur gefið út smásagnasafnið
Sáð í sandinn eftir Agnar
Þórðarson í tilefni af
sjötugsafmæli hans í fyrra. Flytur
það níu sögur, og hafa þrjár þeirra
ekki birst áður.
Útgefandi kynnir höfund og bók
þannig á kápu:
Agnar Þórðarson er kunnastur
af leikritum og skáldsögum, en
einnig sérstæður
smásagnahöfundur. Sáð í
sandinn er fyrsta bók hans þeirrar
gerðar og flytur níu sögur ritaðar
á löngu áraskeiði. Bera þær
glöggan svip af leikritum
höfundar, segja annars vegar frá
yfirlætislausu hversdagsfólki og
hins vegar grátbroslegum
broddborgurum. Agnar rekur
atburðaþræði af hófsemi og alúð,
en varpar gjarnan einkennilegri
birtu á frásagnarsvið og
sögupersónur. Stundum beitir
hann skopi og ádeilu, einkum
þegar hann túlkar smæð þeirra
sem hreykja sér og þykjast yfir
aðra hafnir, en eru tæpir ef á
reynir.
Sögurnar bera eftirtaldar
fyrirsagnir: Sáð í veikleika, Bréfið
sem kom of seint, Litla-Blá,,
Hjúkrunarkonan góða, Þjófurinn,
Kata - Mirs. Baden-Smith, Mikið
voðalega á fólkið bágt,
Gróðrarskúr, Aðmírállinn. Sumar
þeirra hafa unnið til verðlauna og
verið þýddar á erlend mál.
Sáð í sandinn eru íslenskar
nútímasögur sem höfða til
íhugulla lesenda.
Sáð í sandinn er 118 bls. að
stærð. Kápu gerði Margrét E.
Laxness. Bókin er unnin i
Prentsmiðju Hafnarfjarðar.
40 bókatilboð
hjá Veröld
Jólablað bókaklúbbsins
Veraldar er komið út og er stærra
en nokkru sinni fyrr. í því er að
finna 40 bókatilboð, plötutilboð,
jólagetraun fyrir böm og ýmislegt
fleira.
20-30% afsláttur
. Bókavalinu er þannig háttað, að
allir geti fundið eitthvað við sitt
hæfi. Á boðstólum eru til dæmis
tveir barnabókapakkar,
teiknimyndasögupakki, bækurnar
um Elías, Þrjár ástarsögur eftir
þekkta höfunda og ljóð fimm
íslenskra öndvegishöfunda.
Jafnframt er að finna bækur
fyrir áhugamenn um skák,
laxveiði, nútímalist og
náttúrufræði, bækur um
stjömumerki, skip, ketti,
kokkteila og margt fleira. öll
tilboðin em með 20-30% afslætti.