Tíminn - 06.12.1988, Page 20

Tíminn - 06.12.1988, Page 20
RÍKISSKIP NÚTÍMA FLUTNINGAR Hafnarhúsinu v/Tryggvagöfu, S 28822 | Atjan man. binding ^ 7,5% ÞRÖSTUR 685060 SAMVINNUBANKINN VANIRMENN 9 rmiiim Ódýrar tannlækningar austan járntjalds heilla íslendinga sem þarfnast mikilla tannviðgeröa: Tl JGII ú 5LE NDI ING iAT 11 L BÚ LGA RS KR/ iTA NNI .ÆKI N A Að minnsta kosti 50 íslendingar hafa fengið gert við tennur sínar í Búlgaríu fyrir ótrúlega lágar upphæðir á þessu ári. Tíminn hefur eftir áreiðanlegum heimildum, að íslenskur maður hafi látið draga úr sér 8 tennur og smíða nýjar úr postulíni, fyrir um 21 þúsund íslenskar krónur. Þessar ferðir til tannlækna austan járntjalds eru ekki skipulagðar sem slíkar en tannskemmdir íslendingar virðast hafa frétt af þessari ódýru lausn og gripið tækifærið fegins hendi. Ef sá maður sem að ofan greinir hefði látið smíða upp í sig átta postulínstennur hér heima, er líklegt að hann hefði þurft að greiða um 200 þúsund krónur fyrir vikið. Annar íslendingur borgaði 3 þúsund fyrir að láta smíða í sig 3 tennur, og svo mætti lengi telja. Börkur Thoroddsen, tann- læknir og formaður Tannlækna- félags fslands, sagðist ekki hafa heyrt sérstaklega getið um ferðir íslendinga til tannlækna í Búlg- aríu. Hann sagðist hins vegar hafa séð tannlækningar í austan- tjaldslöndum, í ferðum sem skandinavískir tannlæknar hafa farið, og að álit þeirra sé sam- dóma hvað lækningarnar varðar. Hann sagði að aðferðir austan- tjaldstannlækna væru allfrum- stæðar miðað við það sem þekkist í Skandinavíu. Þeir nota til dæmis ekki sömu efni og hér eru notuð. Börkur tók sem dæmi eðal- málma, sem íslenskir tannlæknar nota við sínar viðgerðir, en í austantjaldslöndum er mikið not- að stál. „Mér vitanlega standa tann- lækningar í þessum löndum langt að baki íslenskum tannlækning- um“, sagði hann. Ekki hafði Börkur heyrt sér- staklega getið um Búlgaríu í þessu sambandi, og sagðist að- spurður ekkert geta sagt um hvort viðgerðir búlgarskra tannlækna entust verr en íslenskra. Varð- andi kostnaðinn nefndi hann nið- urgreiðslur ríkisins og sagði hugs- anlegt að fólk greiddi bara efnis- kostnaðinn, en ríkið eftirstöðv- arnar. Tíminn hafði einnig samband við Sigfús Haraldsson, tannlækni, og sagðist hann aldrei hafa heyrt minnst á ferðir fslendinga til Búlgaríu í þeim tilgangi að láta gera við tennur sínar. Hann sagði ósennilegt að það borgaði sig ef fólk þyrfti að láta gera við 1-2 tennur, en fyndist það skiljan- legra ef um miklar viðgerðir væri að ræða. Búlgaría er eitt ódýrasta land Evrópu og er þar hægt að fá ýmsar vörur og þjónustu á góðu verði. í framhjáhlaupi má nefna, að hagsýnir íslendingar hafa auk þeirra neysluvara sem ferðamenn jafnan kaupa í nokkrum mæli fengið sér ný gleraugu, en þau má fá þar fyrir lítinn pening. Heimildamaður Tímans sagði, að fólk væri mjög ánægt með þessa þjónustu. „Það kemur brosandi út að eyrum til baka og segir þjónustuna ekki lakari en hér“. Má reikna með að í sumum tilfellanna séu brosin fallegri við heimkomuna en aður en lagt var af stað. Rétt er að taka fram að al- mennt eru góðir læknar starfandi í Búlgaríu og mörg dæmi þess að fólk, sem þangað hefur leitað sér til hressingar og heilsubótar, hef- ur fengið góðan bata meina sinna. Búlgaría er eins og áður segir eitt ódýrasta land í Evrópu og miklar niðurgreiðslur þar á allri opin- berri þjónustu. Búlgaríuferðir s.l. sumar kost- uðu um 60 þúsund krónur þær dýrustu, en hægt er að fá þær mun ódýrari. - elk Hóladómkirkja í notkun á ný Frá Erni Þórarinssyni fréttaritara Tímans í Fljótuin. Það var mikið um dýrðir á Hólum í Hjaltadal s.I. sunnudag þegar hin aldna Hóladómkirkja var formlega tekin í notkun að loknum gagngerum endurbótum. séra Sigurður Guðmundsson vígslu- biskup, séra Dalla Þórðardóttir, séra Sigurpáli Óskarsson og séra Hjálmar Jónsson prófastur, þjónuðu fyrir alt- ari. í ræðu sinni gerði biskup að um- talsefni þátt Hólastaðar sem bisk- ups- og menningarseturs á liðnum öldum og nefndi tildrög þcss að Hóladómkirkja var reist, en smíði hennar hófst árið 1757 og lauk árið 1763. Einnig minntist hann á þær umbætur sem síðan hafa verið gerð- ar á kirkjunni. Þá færði biskupinn Hólanefnd sérstakar þakkir fyrir vel unnin störf en nefndin hefur haft yfirumsjón með verkinu frá upphafi. Við athöfnina söng kirkjukór Hóla- og Viðvíkursókna undir stjórn Hauks Guðlaugssonar, orgelleikari var Rögnvaldur Valbergsson. Þess má geta að við guðsþjóoustuna skírði séra Sigurður Guðmundsson þrjú börn. Að guðsþjónustunni lokinni var gerð nánari grein fyrir endurbótum á kirkjunni. Við það tækifæri fluttu ávörp: séra Sigurður Guðmundsson vígslubiskup, Guðmundur Guð- mundsson byggingameistari, Þor- steinn Gunnarsson arkitekt, Halldór Ásgrímsson kirkjumálaráðherra, Þór Magnússon þjóðminjavörður og séra Hjálmar Jónsson. Að athöfn- inni í kirkjunni lokinni var öllum viðstöddum boðið til kaffidrykkju á vegum Hólanefndar. Hóladómkirkja er vissulega hin glæsilegasta í hvívetna enda endur- bæturnar mjög víðtækar. Til dæmis er gólfið sérstakt að því leyti að það er lagt rauðum steini sem sóttur var í fjallið fyrir ofan Hóla, en steinninn var síðan fluttur til Reykjavíkur og unninn þar í flísar sem nú prýða gólf kirkjunnar. En það sem ókunnugum verður að öllum líkindum starsýnt á í fyrstu er hin glæsilega innrétting kirkjunnar sem hefur yfir sér þann virðuleikablæ sem hæfir slíku lista- verki s_pm Hóladómkirkja er og verða mun um ókominn ár. Við athöfnina flutti biskupinn yfir íslandi, herra Pétur Sigurgeirsson, hátíðarræðu en fjórir prestar, þau Biskupinn yfir íslandi, herra Pétur Sigurgeirsson, í predikunarstól Hólakirkju. Tímamynd: ÖÞ Líklegt talið að kveikt hafi verið í saltfiskverkun Hraðfrystihúss Stöðvarfjarðar: Málið til saksóknara „Það eru tvennskonar meiningar á lofti, annars vegar telur rafmagns- eftirlitið að eldsupptök gætu verið af völdum rafmagns, en síðan er Brunamálastofnun með grun um íkveikju," sagði Sigurður Eiríksson sýslumaður í S-Múlasýslu í samtali við Tímann, aðspurður um eldsupp- tök í saltfiskverkun Hraðfrystihúss Stöðvarfjarðar, en húsið skemmdist mjög mikið þegar kviknaði í því 22. október sl. Eiríkur sagði að með hliðsjón af þessum niðurstöðum ætlaði hann að senda málið til saksóknara, sem þá tæki ákvörðun um það hvort frekari rannsóknar sé þörf. Hann sagði að þeir hefðu framkvæmt lögreglurann- sókn sem væri lokið af þeirra hálfu, eins og tilefni hefði gefið til og ekki hefði fallið grunur á neinn um íkveikju. Eiríkur sagðist ekki geta sagt til um það hvar í húsinu elds- upptökin hefðu verið, að svo komnu máli. -ABÓ

x

Tíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.