Tíminn - 20.12.1988, Blaðsíða 2
2 Tíminn
Þriðjudagur 20. desember 1988
Starfsnefnd skilar tillögum og áliti um
lausn á fjárhagsvanda Ríkisútvarpsins:
Tekjur minnka -
skuldir aukast
Starfsnefnd sú sem menntamálaráðherra skipaði til að gera
tillögur um eflingu Ríkisútvarpsins og lausnir á fjárhagsvanda
þess skilaði áliti í hendur menntamálaráðherra s.l. miðviku-
dag. Mál þetta hefur verið rætt í ríkisstjórninni og sent
fjárveitinganefnd til fyrirgreiðslu.
Eins og komið hefur fram í frétt-
um er fjárhagsstaða RÚV afskap-
lega slæm, skuldabagginn nemur á
núvirði um 500 milljónum króna.
Stjórnvöld hafa skert tekjustofna
RÚV með niðurfellingu aðflutnings-
gjalda sem áttu að renna til stofnun-
arinnar og vanefndum framkvæmda-
valdsins á hækkun afnotagjalda sam-
kvæmt fjárlögum. Auk þess hafa
auglýsingatekjur minnkað í kjölfar
harðnandi samkeppni.
Starfsnefndin einskorðar þessar
fyrstu tillögur sínar við að leysa
bráðan fjárhagsvanda stofnunarinn-
ar til að gera Ríkisútvarpinu þar
með kleift að standa við nauðsynleg-
ustu skuldbindingar sínar.
Lagt er til að afnotagjald fyrir
útvarp og sjónvarp hækki 1. mars-
n.k. í 1500 krónur á mánuði en í dag
er afnotagjaldið 1170 krónur. Tekju-
auki vegna þessa er um 180 milljónir
á næsta ári.
Elli- og örorkulífeyrisþegar hafa
fengið niðurfellingu afnotagjalds.
Nefndin gerir það að tillögu sinni að
Tryggingastofnun taki yfir þennan
þátt og greiði afnotagjöld þessara
aðila. Hér er um að ræða 5000
notendur og er áætlað að á næsta ári
verði þessar greiðslur um 90 milljón-
ir króna, sem ganga eiga beint til
greiðslu upp í launaskuld RÚV hjá
fjármálaráðuneytinu.
Nefndin er sammála um að Menn-
ingarsjóður útvarpsstöðva hafi dreg-
ið úr fremur en aukið möguleika
RÚV til vandaðrar dagskrárgerðar
þar sem stórum meira fé hafi í hann
runnið en úr honum hefur fengist. Á
árunum 1986 og 1987 tapaði Ríkisút-
varpið 37 milljónum króna á við-
skiptum sínum við sjóðinn og nefnd-
in leggur til að hann verði lagður
niður. Auk þess verði hlutur ríkis-
sjóðs og bæjarfélaga í rekstri Sin-
fóníuhljómsveitar íslands aukinn.
Ennfremur leggur nefndin til að
Svavar Gestsson menntamálaráðherra kynnti tillögur starfsnefndar um
fjárhagsvanda RÚV á blaðamannafundi í gær.
ríkissjóður yfirtaki eftirstöðvar lána
sem stofnað var til á árunum 1979,
’80 og ’81 samtals að upphæð 60
milljónir króna.
Varðandi innviði stofnunarinnar
gerir nefndin það að tillögu sinni að
dregið verði saman í stjórnunargeir-
anum en aukið verði við framleiðslu-
geirann. Einnig eigi að draga úr
aðkeyptri þjónustu og ráðgjöf sem
hefur falið í sér mikinn tilkostnað.
Nefndin ráðgerir að tillögurnar
færi stofnuninni 210 til 220 milljónir
króna til þess að efla starfsemi sína
á næsta ári, umfram það sem var á
árinu 1988 á sambærilegu verði. Að
auki muni þetta skila um 160 milljón-
um í framkvæmdasjóð RÚV.
Lokaorð álits nefndarinnar eru
eftirfarandi: „Samkeppni hefur ekki
leitt til aukins framboðs á vönduðu
dagskrárefni. Ef Ríkisútvarpið er
ekki fært um að framleiða vandað
efni af fjárhagsástæðum er ekki hægt
að ganga að því vísu að aðrir geri
það.“
Nefndin mun starfa áfram og
vinna að tillögum um frekari eflingu,
hlutverk og sjálfstæði RÚV. Miðað
er við að nefndin skili lokatillögum
seint í janúarmánuði. Þá mun
menntamálaráðherra endurskipu-
leggja nefndina með það fyrir augum
að hún geti fjallað um útvarpslögin
í heild, þannig að tillaga um endur-
skoðun útvarpslaga liggi fyrir svo
snemma að alþingi geti í vetur tekið
afstöðu til tillagnanna sem þá liggja
fyrir. SSH
Tillögur starfsnefndarinnar um RÚV ganga í þá veru að milda innheimtuaðgerðir á vanskilamönnum:
INNHEIMTAN TEKIN ÚR
HÖNDUM LÓGFRÆÐINGA
Vangoldin afnotagjöld til Ríkisút- þar af eru 70 milljónir tilkomnar þvíaðvera20% afáætluðumtekjum
varpsins eru um 200 milljónir króna, vegna dráttarvaxta. Þetta sam^varar stofnunarinnar af afnotagjöldum
#LLu“
Sœbólsbraut í Kópavo^
KRAKKAR!
Hvert fóru
peningarnir?
Rauði Kross íslands
býður öllum þeim
krökkum sem safnað
hafa fé fyrir R.K.Í.
til skemmtifundar
miðvikud. 21. des.
kl. 15.00-17.00
að Hótel Lind,
Rauðarárstíg 18.
Þcssar telpur
Dagskra:
1. Hvert foru penmgamir þmir?^fslands;Sofn Þ__
Kynning á starfi R.K.Í. í Afríku.
2. Veitingar.
3. Bjartmar og Laddi skemmta...
Þátttaka tilkynnist í síma 26722
fyrir kl. 17.00 þriðjud. 20. des.
RAUÐI KROSS ÍSLANDS
næsta árs.
Þrátt fyrir þessar staðreyndir
ákvað starfsnefnd sú er vann að
tillögum til að ráða fram úr fjárhags-
vanda RÚV, að innheimtudeildin
taki í sínar hendur verulegan hluta
þeirra starfa sem nú eru falin lög-
mönnum. En um 8% af kröfum
hvers árs fara til lögfræðings til
innheimtu. Þetta vekur nokkra at-
hygli m.a. vegna þess að innheimtu-
deildin var hvað harðast gagnrýnd í
skýrslu Ríkisendurskoðunar fyrr á
þessu ári, þar sem tekinn var fyrir
rekstur RÚV. Einnig er ljóst að
innheimtudeildin hefur ekki sömu
heimildir varðandi innheimtu og
lögfræðingar og því alls ekki ljóst
hvernig deildinni á að takast inn-
heimta þessara vangoldnu afnota-
gjalda.
Að sögn Harðar Vilhjálmssonar
fjármálastjóra RÚV sem jafnframt
átti sæti í nefndinni felur þessi
ákvörðun í sér að mál eru unnin
lengur í innheimtudeildinni áður en
þeim er vísað til lögmanna. Með
þessu er gerð tilraun til þess að ná
inn afnotagjöldunum án þess að
viðskiptavinurinn þurfi að leggja út
í þann mikla kostnað sem innheimta
lögfræðings leiðir oft tii.
„Það hefur alltaf verið okkar von
að ná betri skilum án aðstoðar
lögfræðinga, en á því hefur vissulega
verið mikill misbrestur. Grundvall-
arhugsunin er að ná árangri þó með
mildari aðgerðum. Einn liður í þessu
er að innheimta einn mánuð í senn
en senda ekki gíróseðla á þriggja
mánaða fresti eins og tíðkast hefur.
Einnig má nefna að það hefur verið
gengið frá töluverðu af þessum van-
skilum á raðgreiðslur hjá greiðslu-
kortafyrirtækjunum. “ SSH
Fimmti hver sjónvarpseigandi er í vanskilum, og leggur starfsnefndin til að
innheimtuaðgerðir verði mildaðar.