Tíminn - 20.12.1988, Blaðsíða 16

Tíminn - 20.12.1988, Blaðsíða 16
16 Tíminn Þriðjudagur 20. desember 1988 illilllllllllllllllllllllll DAGBÓK llllllllllllllilllllllllllllllllllllllllllllllllllll Sýning Harðar Karlssonar á Kjarvalsstöðum: Fjórar árstíðir II Hörður Karlsson, listmálarí, sem um langt árabil hefur verið búsettur í Was- hington, opnaði nýlega málverkasýningu á Kjarvalsstöðum. Nefnir hann sýninguna Fjórar Árstíðir,II. Hörður er Reykvíkingur, sem fór ung- ur vestur til Bandaríkjanna og Mexíkó til listnáms. Hann var í fjölda ára forstöðu- maður myndsmíðadeiídar Alþjóðagjald- eyrissjóðsins í Washington. Málverk og myndverk Harðar hafa verið sýnd víða um lönd, - þrjár sýningar í Bandaríkjun- um, ein á Spáni og þetta er þriðja einkasýning hans í Reykjavík. Hörður hefur hlotið margar viðurkenn- ingar fyrir myndverk sín og má þar m.a. nefna fyrir Frfmerki Sameinuðu þjóð- anna til heiðurs Alþjóðagjaldeyrissjóðn- um 1961, Frímerki Póst- og símamálast- ofnunar Evrópu (CEPT) 1962 og 50 ára afmæli Flugpóstþjónustu Bandaríkjanna 1968. Málverkasýningin Fjórar Árstíðir, II er opin daglega kl. 14:00-22:00 fram til 24. desember n.k. FÍM-salurinn verður sólugallerí Félag íslenskra myndlistamanna hefur nýjan rekstur í galleríi sínu, FÍM-salnum, Garðastræti 6. Par verður rekið annars vegar sölugallerí, þar sem fólk getur keypt verk því sem næst beint af lista- manninum, en hins vegar verður haldið áfram með sýningarsalinn, þar sem stöðugar sýningar verða. Verk sem boðin verða til sölu í gallerí- inu verða eingöngu eftir viðurkennda myndlistamenn. Félag íslenskra myndlistamanna er elsta og virtasta félag myndlistamanna hér á landi. í desember og janúar verður galleríið eingöngu starfrækt sem sölugallerí og verður skipt um upphengi viku - til hálfsmánaðarlega. Opnunartími verður kl. 12:00-18:00 virka daga, en í desember verður lokað um leið og verslanir loka. Á laugardögum er opið kl. 14:00- 18:00, en í desember verður opið jafn lengi á laugardögum og verslanir hafa opið. Lokað er á sunnudög- um. Jólasýning í Gallerí Grjót í Gallerí Grjót, Skólavörðustíg 4A stendur nú yfir jólasýning, - sem jafn- framt er sölusýning. Á sýningunni eru' verk þeirra 9 listamanna sem að galleríinu standa, þ.e.: Gestur Þorgrímsson, Jónína Guðnadóttir, Magnús Tómasson, Ófeig- ur Björnsson, Páll Guðmundsson frá Húsafelli, Ragnheiður Jónsdóttir, Sigrún Guðjónsdóttir (Rúna), Þorbjörg Hösku- ldsdóttir og Örn Þorsteinsson. Öll verkin á sýningunni eru til sölu. Opið er alla virka daga kl. 12:00-18:00 en næsta laugardag kl. 10:00-22:00. Pennavinur í Englandi 14 ára skólapiltur, sem kom til íslands á síðastliönu ári, langar mikið til að eignast pennavin á íslandi. Hann hefur mikinn áhuga á íþróttum og poppmúsík, og langar til að hafa bréfaviðskipti við stelpur eða stráka á íslandi á aldrinum 12 til 18 ára. Utanáskrift til hans er: Mark Ollard Woodcote Koad, Wallington, Surrey, SM6 OPS, England BILALEIGA meö útibú allt i knngum landiö, gera þér mögulegt aö leigja bíl á einum staö og skila honum á öörum. Reykjavík 91-31615/31815 Akureyri 96-21715/23515 Pöntum bíla erlendis interRent Bílaleiga Akureyrar Ásgrímssafn Safn Ásgríms Jónssonar, Bergstaða- stræti 74 er opið á sunnudögum, þriðju- dögum, fimmtudögum og laugardögum kl. 13:30 - 16:00. Kristján Þórarinsson doktor í skordýrafræði Kristján Þórarinsson hefur lokið dokt- orsprófi í skordýrafræði við Kalífomíu- háskóla í Davis. Sérgrein Kristjáns er almenn og fræðileg stofnvistfræði. Kristján varð stúdent frá Mennta- skólanum í Reykjavík árið 1976 og lauk B.S. prófi í líffræði við Háskóla Islands 1980. Hann fór út til náms strax að loknu B.S. prófi, og lauk meistaraprófi í vist- fræði frá fylkisháskólanum í Pennsylv- aníu árið 1985. i doktorsritgerðinni lýsir Kristján rann- sóknum sínum á víxlverkunum tveggja skordýrastofna, en annar þessara stofna (sníkjufluga) var fluttur inn til Kalifomíu til þess að halda í skefjum stærð hins stofnsins, sem er skjaldlús sem veldur tjóni á garðrunnum og í ávaxtarækt. Kristján stundar nú rannsóknir og kennslu við líffræðideild Fylkisháskólans í Pennsylvaníu. Kristján er sonur Borg- hildar Edwald og Þórarins Jónssonar. Dagur af degi Ný ljóðabók eftir Matthías Johannessen Út er komin ný ljóðabók eftir Matthías Johannesson — þrettánda ljóðabók skáldsins. Fjögur ár eru nú liðin frá hans síðustu ljóðabók, og mun mörgum ljóðaunnandanum finnast það langur tími miðað við það sem algengast er hér nú. En Matthías hefur vissulega ekki setið auðum höndum þennan tíma - sent frá sér smásagnasafn og skáldsögu. Hver ný ljóðabók eftir Matthías Johannessen er bókmenntaviðburður - enginn neitar því víst lengur, og ekki þarf að kvíða því að hin nýja bók, Dagur af degi, valdi vonbrigðum. Matthias er skáld frjálsræðis í stíl og framsetningu, leitar í ýmsar áttir, og orkar því nýr og ferskur með hverri nýrri bók - „.. .góðskáld sem andar öðru og meira endurnærandi lofti", eins Jólakort Félags eldri borgara Fjáröflun til styrktar Félagsheimilis- sjóðs Félags eldri borgara í Reykjavík og nágrenni stendur nú yfir. Fjáröflunar- nefndin hefur látið gera jólakort til að afla sjóðnum fjár. Aðalbjörg Jónsdóttir annaðist gerð myndanna sem á kortunum eru og gaf vinnu sína. Kortin verða til sölu á skrifstofu félags- ins að Nóatúni 17, 2. hæð. Einnig verða kortin til sölu í „Opnu húsi“ í Tónabæ, á mánudögum og laugardögum frá kl. 13:30 og í „Opnu húsi“, Sigtúni 3 á fimmtudög- um og sunnudögum á sama tíma. Kortin verða send til félagsmanna ásamt gíró- seðli. KVENNAATHVARF Húsaskjól er opið allan sólarhringinn og aðstoð fyrir konur sem beittar hafa verið ofbeldi í heimahúsum eða orðið fyrir nauögun. Síminn ,iér .21205 - opinn allan sólar- hringinn. • . ^Neyðarvakt Tannlæknafélags íslands Neyða^vakt Tannlæknafélags íslands verður sem hér segir um jól og áramót: Lauftrdagur 24. des. Id. 11:00-13:00 á TannlJknastofunni Barónsstíg 5, sími: 22969. Sunnud. 25. des. kl. 11:00-13:00 - Tannlælftíastofan Tjarnargötu 16, sími: 10086. Mánud. -426. des. kl. 11:00-13:00 - Tannlæknastsofa Sigurgísla Ingimarsson- ar, Garðatorgi 3, Garðabæ. Sími:656588. Laugard. 31. des. og sunnud. 1. jan. kl. 11:00-13:00. Tannlæknastsofa Sigurgísla Ingimarssónar, Garðatorgi 3, Garðabæ. Sími 656588. Minningarkort SJÁLFS- BJARGAR í Reykjavík og nágrenni - fást á eftirtöldum st&ðum: Reykjavfk: Reykjavíkur apótek, Garðsapótek, Vesturbæjarapótek, Kirkjuhúsið við Klapparstíg, Bókabúð Fossvogs, Grímsbær við Bústaðaveg, Bókabúðin Embla, Drafnarfelli 10, Bókabúðin Úlfarsfell, Hagamel 67, Verslunin Kjötborg, Búðargerði 10, Hafnarfjörður: Bókabúð Olivers Steins, Strandgötu 31. Kópavogur: Pósthúsið. Minningarkort fást einnig á skrifstofu Sjálfsbjargar, Hátúni 12. Gíróþjónusta. og breskt skáld og gagnrýnandi kemst að orði í ritdómi um ljóðaúrval eftir Matthías, sem er nýlega komið út á ensku. Og um leið stendur hann traustum fótum ííslenskribókmenntaarfleifð, eins og reyndar flest eða öll íslensk skáld sem lengst hafa komist og gera vissulega enn. Trén safna árhringum fjörusteinar hrúðurkörlum og við þessum gleymdu minningum - ségir Matthías í hinni nýju bók. Dagur af degi ber að einhverju leyti svip af því. En Matthías er þó umfram allt í samtímanum - líka þegar hann yrkir um persónur eða atburði liðinna tíma. Þarf ekki að lesa langt í þessari nýju bók til að sannfærast um það. Dagur af degi er 133 bls. að stærð. Útgefandi er Almenna bókafélagið. ÚTVARP/SJÓNVARP e Rás I FM 92,4/93,5 Þriðjudagur 20. desember 6.45 Veöurfregnir. Bæn, séra Gunnlaugur Garð- arsson flytur. 7.00 Fréttir. 7.03 í morgunsárið. Fróttayfirlit kl. 7.30 og 8.30, fréttir kl. 8.00 og veðurfregnir kl. 8.15. Lesið úr forustugreinum dagblaðanna að loknu fróttayfir- liti kl. 8.30. Tilkynningar laust fyrir kl. 7.30,8.00, 8.30 og 9.00. 9.00 Fréttir. 9.03 Jólaalmanak Útvarpsins 1988. Umsjón: Gunnvör Braga. (Einnig útvarpað um kvöldið kl. 20.00). 9.20 Morgunleikfimi. Umsjón: Halldóra Bjöms- dóttir. 9.30 í pokahorninu. Sigríður Pótursdóttir gefur hlustendum holl ráð varðandi heimilishald. 9.40 Landpósturinn - Frá Vesturlandi. Umsjón: Bergþóra Gísladóttir. 10.00 Fróttir. Tilkynningar. 10.10 Veðurfregnir. 10.30 Ég man þá tíft. Hermann Ragnar Stefáns- son kynnir lög frá liðnum árum. 11.00 Fróttir. Tilkynningar. 11.05 Samhljómur. Hanna G. Sigurðardóttir. 11.55 Dagskrá. 12.00 Fréttayfirlit. Tilkynningar. 12.20 Hádegisfróttir. 12.45 Veðurfregnir. Tilkynningar. 13.05 í dagsins önn. Umsjón: Steinunn Harðar- dóttir. 13.35 Miftdegissagan: „Konan í dalnum og dæt- umar sjö“. Ævisaga Moniku á Merkigili skráð af Guðmundi G. Hagalín. Sigríður Hagalín les (17). 14.00 Fróttir. Tilkynningar. 14.05 Djassþáttur. - Jón Múli Ámason. (Endurtek- inn þáttur frá miðvikudagskvöldi). 15.00 Fróttir. 15.03 Gestastofan. Stefán Bragason ræðir við áhugatónlistarfólk á Héraði. (Frá Egilsstöðum) (Endurtekinn þáttur frá laugardagskvöldi). 15.45 Þingfróttir. 16.00 Fróttir. 16.03 Dagbókin. Dagskrá. 16.15 Veðurfregnir. 16.20 Barnaútvarpift. Bjúgnakrækir hittir alla krakkana sem eru búnir að bíða eftir honum í Þjóðminjasafninu ásamt starfsmönnum Bama- útvarpsins sem einnig heimsækja böm sem dvelja á spítala um jólin. 17.00 Fróttlr. 17.03 Tónlist á sí&degi - Tsjaíkovskí og Katsjat- úrfan. a. Sinfónía nr. 2 í c-moll op. 17 eftir Pjotr Tsjaíkovskí. Fílharmoníuhljómsveit Berlínar leikur; Herbert von Karajan stjórnar. b. Útdráttur úr ballettinum „Spartakusi" eftir Aram Katsjat- úrían. Konunglega fílharmoníusveitin leikur; Yuri Temirkanov stjórnar. 18.00 Fréttir. 18.03 Á vettvangi. Umsjón: Bjarni Sigtryggsson, Guðrún Eyjólfsdóttir og Páll Heiðar Jónsson. Tónlist. Tilkynningar. 18.45 Veðurfregnir. 19.00 Kvöldfréttir. 19.30Tilkynningar. 19.33 Kviksjá - Lesift úr nýjum bókum. Umsjón: Friðrik Rafnsson og Halldóra Friðjónsdóttir. 20.00 Litli barnatíminn. (Endurtekinn frá morgni). 20.15 Kirkjutónlist. Páll ísólfsson leikur á orgel Dómkirkjunnar í Reykjavík verk eftir Georg Friedrich Hándel, Johann Sebastian Bach, Jan Pieterszoon Sweelinck, Girolamo Frescobaldi og Johann Jakob Froberger og einnig eigið verk, Chaconnu. 21.00 Kveftja aft austan. Úrval svæðisútvarpsins á Austurlandi í liðinni viku. Umsjón: Haraldur Bjarnason. (Frá Egilsstöðum) 21.30 Útvarpssagan: „Heiður ættarinnaru eftir Jón Björnsson. Herdís Þorvaldsdóttir les (13). 22.00 Fróttir. Dagskrá morgundagsins. Orð kvöldsins. 22.15 Veðurfregnir. 22.30 Lelkrit: „Þykki frakkinn minn“ eftir Albert Wendt. Þýðandi og leikstjóri: María Kristjáns- dóttir. Leikendur: Sigurður Karlsson, Hanna María Karlsdóttir, Guðrún Gísladóttir, Kristbjörg Kjeld, Þorleifur Amarsson og Oddný Arnarsdótt- ir. (Endurtekið frá laugardegi). 23.10 Rondó fyrír strengjakvartett eftir Anton Webern. La Salle kvartettinn leikur. 23.20 Ljóftatónleikar - „Schubert“ Balkanland- anna. Fyrri hluti. Dagskrá um rúmenska tón- skáldið Nicolai Bretan (1887-1968). Leiknar upptökur frá tónleikum í Maryland í Bandaríkj- unum þar sem baritónsöngvarinn Ludovic Kon- ya og píanóleikarinn Martin Berkovsky flytja lög eftir Bretan. Umsjón: Daníel Þorsteinsson. (Síð- ari hlutinn er á dagskrá nk. fimmtudag kl. 23.20). 24.00 Fréttir. Næturútvarp á samtengdum rásum til morguns. á FM 91,1 01.10 Vökulögin. Tónlist af ýmsu tagi í næturút- varpi. Fréttir kl. 2.00 og 4.00 og sagðar fréttir af veðri, færð og flugsamgöngum kl. 5.00 og 6.00. Veðurfregnir frá Veðurstofu kl. 4.30. 7.03 Morgunútvarpift. Dægurmálaútvarp með fréttayfirliti kl. 7.30 og 8.30 og fréttum kl. 8.00. Leifur Hauksson og Olöf Rún Skúladóttir hefja daginn með hlustendum, spyrja tíðinda víða um land, tala við fólk í fréttum og fjalla um málefni líðandi stundar. Veðurfregnir kl. 8.15 og leiðarar dagblaðanna kl. 8.30. 9.03 Viftbit. - Þröstur Emilsson. (Frá Akureyri) 10.05 Morgunsyrpa. Evu Ásrúnar Albertsdóttur og Óskars Páls Sveinssonar. 12.00 Fréttayfirlit. Auglýsingar. 12.20 Hádegisfréttir. 12.45 í Undralandi með Lísu Páls. Sigurður Þór Salvarsson tekur við athugasemdum og ábend- ingum hlustenda laust fyrir kl. 13.00 í hlustenda- þjónustu Dægurmálaútvarpsins. 14.00 Á milli mála. - Eva Ásrún Albertsdóttir og Óskar Páll Sveinsson. 16.03 Dagskrá. Stefán Jón Hafstein, Guðrún Gunnarsdóttir og Ævar Kjartansson bregða upp mynd af mannlífi til sjávar og sveita og því sem hæst ber heima og erlendis. Kaffispjall upp úr kl. 16.00, „orð í eyra“ kl. 16.45 og dagsyfirlit kl. 18.30. Andrea Jónsdóttir segir frá nýjum plötum á fimmta tímanum og Ingvi örn Kristinsson flytur hagfræðipistil á sjötta tímanum. 19.00 Kvöldfréttir. 19.33 Útvarp unga fólksins. Við hljóðnemann er Vernharður Linnet. 20.30 Tekift á rás - Ísland-Svíþjóð. Lýst leik Islendinga og Svía í handknattleik í Laugardals- höll. 22.07 Bláar nótur. Pétur Gr.étarsson kynnir djass og blús. 01.10 Vökulögin. Tónlist af ýmsu tagi í næturút- varpi til morguns. Að loknum fréttum kl. 2.00 verður endurtekinn frá föstudegi þátturinn „Ljúf- lingslög“ í umsjá Svanhildar Jakobsdóttur. Að loknum fréttum kl. 4.00 flutt brot úr dægurmála- útvarpi þriðjudagsins. Fréttir kl. 2.00 og 4.00 og sagðar fróttir af veðri, færð og flugsamgöngum kl. 5.00 og 6.00. Veðurfregnir frá Veðurstofu kl. 1.00 og 4.30. Fréttir kl. 2.00, 4.00, 7.00, 7.30, 8.00, 8.30, 9.00, 10.00, 11.00, 12.00, 12.20, 14.00, 15.00, 16.00, 17.00,18.00,19.00, 22.00 og 24.00. SVÆÐISÚTVARP Á RÁS 2 8.07- 8.30 Svæftisútvarp Norfturlands. 18.03-19.00 Svæftisútvarp Nor&urlands. SJÓNVARPIÐ Þriðjudagur 20. desember 17.50 Jólin nálgast í Kærabæ. 17.55 Rasmus fer á flakk (Rasmus paa Luffen). Þriftjl þáttur. Sænsk barnamynd í fjórum þátt- um byggð á sögu eftir Astrid Lindgren. Rasm- . us er niu ára drengur sem býr á heimili fyrir munaðarlaus börn og á sér þá ósk heitasta að eignast sína eigin foreldra. Hann strýkur frá heimilinu og ákveður að láta drauminn rætast. Þýðandi Jóhanna Jóhannsdóttir. 18.20 Berta (9). Breskurteiknimyndaflokkur í þrett- án þáttum. Leikraddir Sigrún Waage og Þór Tulinius. Þýðandi Sveinbjörg Sveinbjömsdóttir. 18.35 Á morgun sofum vift út (9). (I morgon er det sovemorgon) Sænskur teiknimyndaflokkur í tíu þáttum. Sögumaður Kristján Eldjám. Þýð- andi Þorsteinn Helgason. (Nordvision-Sænska sjónvarpið) 18.50 Táknmálsfréttir 18.55 Poppkorn - Endursýndur þáttur frá 14. des. Umsjón Stefán Hilmarsson. 19.20 Ekkert sem heitir. Endursýndur þáttur frá 16. des. 19.50 Jólin nálgast í Kærabæ. 2U.UU hrettir og veour. 20.35 Matarlist. Umsjón Sigmar B. Hauksson. 20.50 Á því herrans ári 1979. Atburðir ársins rifjaðir upp og skoðaðir í nýju Ijósi. Umsjón Edda Andrésdóttir og Árni Gunnarsson. 22.00 Hannay. (Hannay). Morftbréfin. Breskur sakamálamyndaflokkur. Þýðandi Óskar Ingi- marsson. 23.00 Seinni fréttir. 23.10 Handknattleikur. Ísland-Svíþjóft. Sýndar svipmyndir úr landsleiknum frá því fyrr um kvöldið. 23.40 Dagskrárlok. srm Þriðjudagur 20. desember 15.30 Hinsta óskin. Garbo Talks. Kona, sem haldin er banvænum sjúkdómi, biður son sinn að uppfylla sína hinstu ósk, að fá að hitta átrúnaðargoð sitt, Gretu Garbo. Aðalhlutverk: Anne Bancroft, Ron Silver og Carrie Fisher. Leikstjóri: Sidney Lumet. Framleiðandi: Elliott Kastner. Þýðandi: Sigríður Magnúsdóttir. MGM 1984. Sýningartími 100 mín. 17.45 Jólasveinasaga. The Story of Santa Claus. Teiknimynd. Tuttugasti hluti. Leikraddir: Róbert Arnfinnsson, Júlíus Brjánsson og Saga Jóns- dóttir. 18.10 Drekar og dýflissur. Dungeons and Dragons. Teiknimynd. Þýðandi: Ágústa Axels- dóttir. 18.35 Ljósfælnir hluthafar. Run from the Morning. Framhaldsmynd í 6 hlutum. 4. hluti. Harry Blake finnur fjendur sína nálgast með æ meiri hraða. Hann þiggur með þökkum hjálp sem honum býðst, en hún ristir ekki djúpt. Hann lærir að ofbeldi er svarað með ofbeldi þegar barist er upp á líf og dauða. Aðalhlutverk: Michael Aitkens, Ray Barrett, Bud Tingwell og Bill Kerr. Leikstjóri: Carl Schultz. Framleiðandi: Eric Tyler. Þýðandi: Omólfur Árnason.______________ 19.1919.19. Fréttir og fréttaumfjöllun, íþróttir og veður ásamt fréttatengdum innslögum.__________ 20.45 íþróttir á þriftjudegi. Blandaður íþróttaþátt- ur með efni úr ýmsum áttum. Umsjón Heimir Karlsson. 21.50 Hong Kong. Noble House. Framhaldsmynd í fjórum hlutum. 3. hluti. Voldugir aðilar hafa í hyggju að ná yfirráðum yfir gamalgrónu við- skiptafyrirtæki og ættarveldi í Hong Kong. Aðalhlutverk: Pierce Brosnan, Deborah Raffin, Ben Masters og Julia Nickson. Leikstjóri: Gary Nelson. Framleiðandi og höfundur: James Clavell. De Laurentiis Entertainment Group. 23.30 Furftusögur. Amazing Stories. Þrjár sögur í einni mynd; spenna, grín og hryllingur. Allirættu að geta fundið eitthvað við sitt hæfi. Aðalhlut- verk: Kevin Costner, Kiefer Sutheriand, Tom Harrison, Christopher Lloyd o.fl. Leikstjórar: Steven Spielberg, William Dear og Bob Ze- meckis. Þýðandi: Hersteinn Pálsson. Universal 1987. Sýningartími 105 miri. 01.10 Dagskrárlok.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.