Tíminn - 20.12.1988, Blaðsíða 10

Tíminn - 20.12.1988, Blaðsíða 10
10 Tíminn Þriðjudagur 20. desember 1988 Þriðjudagur 20. desember 1988 Tíminn 11 ÍÞRÓTTIR !ll!!ill!ií IlllllllllllllllllUllllllll ÍÞRÓTTIR Illllllllllllllllllllllllllll Knattspyrnan heldur toppsætinu eftir sigur á Liverpool Norwich er enn í efsta sæti 1. deildar ensku knattspyrnunnar eftir sigur á Liverpool á Anfield Road á iaugardag. Norwich hefur náð best- um árangri allra liða á útivelli, en Liverpool hefur ekki náð sér á strik á heimavelli í vetur, 2 sigrar, 2 töp og 4 janfntefli. Það var miðjumaðurinn Andy Townsend sem tryggði Norwich sig- ur með marki á 60. mín. en liðið hafði fyrir leikinn leikið 5 leiki án sigurs. Arsenal komst ekki í toppsætið, þrátt fyrir sigur á Manchester United á heimavelli. Tvö mörk frá þeim Michael Thomas og Paul Merson á fyrstu 16 mín. leiksins dugðu, en Mark Hughes minnkaði rnuninn á 81. mín. Millwall er nú í þriðja sæti deildar- inúar eftir 1-0 sigur á Sheffield Wednesday. Sigurmarkið gerði Teddy Sheringham 3 mín. fyrir leiks- lok. Coventry er nú í 5. sætinu eftir 0-2 ósigur gegn Derby County á heim- avelli. Derby er nú í 4. sæti, eða ofar en liðið hefur verið í ein 15 ár. Coventry má þakka markverði VINNUBÞU Á laugardogum. sínum, Steve Ogrizovic, að tapið varð ekki stærra. Hann varði víta- spyrnu frá Nigel Callaghan í fyrri hálfleik, en í þeim síðari kom hann ekki vörnum við þegar þeir Dean Saunders og Tec McMinn skoruðu fyrir Derby. Ekki bætti úr skák fyrir Coventry í leiknum, að í fyrri hálf- leiknum brugðust flóðljósin á vellin- um og leikmenn sáu ekki handa sinna skil. Stutt hlé varð á leiknum af þessum sökum. Leikur Newcastle og Southamp- ton var sennilega sá tilþrifamesti um helgina. Newcastle komst yfir eftir 8. mín. með marki Kevin Brock. Brock var keyptur til liðsins í síðustu viku, eftir að Jim Smith tók við liðinu. Matthew La Tissier gerði síðan 2 mörk fyrir Southampton og Rodney Wallace 1. Sigurinn var þó ekki í höfn, því írinn Michael O'Ne- ill jafnaði með mörkum á 65. og 89 mín. Trevor Francis tók við fram- kvæmdastjórastöðunni hjá WQPR í vikunni, eftir að Jim Smith fór til Newcastle. Hann mun áfram leika með liðinu, enda hefur hann verjð þeirra aðalmarkahrókur það sem af er. Liðið gerði þó markalaust jafn- tefli gegn Everton á laugardag. Tottenham er á sigurbraut um þessar mundir og er liðið nú komið um miðja deild, eftir að hafa vermt botnsætið fyrir fáum vikum. Mörk frá varnamönnunum Gary Mabbut og Mitchell Thomas sitt í hvorum hálfleik dugðu gegn West Ham á Upton Park. Luton hefur ekki tapað síðustu 6 leikjum sínum og í þeim hefur Roy Wegerley ávallt skorað mark. Svo var einnig gegn Aston Villa, en sjálfsmark Marvin Johnsons færði Villa annað stigið. Á sunnudag vann Wimbledon nokkuð óvæntan sigur á Nottingham Forest, 1-0. Markið garði Lawrie Sanches í lok síðari háifleiks. í 3. deildinni bar það helst til tíðinda að Úlfarnir unnu stóran sigur á Mansfield, 6-2. Steve Bull gerði þrennu í leiknum, sína aðra á 5 dögum, en hann hefur nú gert 11 mörk í síðustu 3 heimaleikjum Úlf- anna, eða 25 mörk alls í deildinni. Vart þarf að taka fram að hann er markahæstur í deildinni. í Skotlandi unnu öll efstu liðin, Glasgow Rangers, Dundee United og Aberdeen sína leiki. Úrslitin í 1. deild: Arsenal-Manchester Utd .. Coventry-Derby........... Liverpool-Norwich........ Luton-Aston Villa ....... Middlesbrough-Charlton___ Millwall-Sheffield Wednesday Newcastle-Southampton Q.P.R.-Everton ........ West Ham-Tottenham ... Nott.Forest-Wimbledon .. Úrslitin í 2. deild: Barnsley-Loicester .. Blackburn-Watford .. Bournemouth-Walsall Bradford-Swindon .. Birmingham-Chelsea Cr. Palace-Leeds ... Man. City-Shrewsbury Ipswich-Oldham .... Portsmouth-Brighton Plymouth-Sunderland West Brom-Stoke ... 2-1 0-2 0-1 1-1 0-0 1-0 3-3 0-0 0-2 0-1 3-0 2-1 2-1 2-2 1- 4 0-0 2- 2 2-1 2-0 1-4 8-0 Staðan í 1. deild: Norwich.......... 17 9 Arsenal.......... 16 9 Millwall......... 16 7 Derby Cnty...... 16 7 Coventry......... 17 7 Liverpool........ 17 6 Southampton .... 17 6 Everton.......... 16 6 6 Nottm. For........17 4 10 Man. Utd......... 17 4 9 Tottenham ....... 17 5 Sheff. Wed ...... 16 5 Middlesbro...... 17 6 Q.P.R............ 17 5 Aston Villa..... 17 4 Luton............ 17 4 Charlton ........ 17 3 Wimblodon....... 16 4 Newcastle........ 17 3 West Ham...........17 3 Staðan í 2. deild: Blackburn.........21 Vest Brom.........21 Chelsea...........21 Man.City..........21 Watford...........21 Portsmouth...... 21 Barnsley ........ 21 Bournem.......... 21 Ipswich.......... 21 Cr.Palace........ 20 Plymouth......... 21 Leicester........ 21 Sunderland........21 Stoke............ 21 Leeds............ 21 Swindon ......... 20 Oxford........... 21 Bradford ........ 21 Hull ............ 21 Oldham........... 21 Shrewsbury ...... 21 Brighton .........21 Walsall...........21 Birmingham........21 12 10 10 10 10 9 8 9 6 6 10 7 7 6 9 6 9 26-18 33 34-18 31 28- 20 27 20-12 26 19- 15 26 21-13 25 29- 25 25 20- 15 24 20-21 22 4 20-16 21 6 28-28 21 5 14-16 21 8 22-29 21 7 17-16 20 5 26-26 20 6 17-18 19 7 17-28 16 8 16-26 16 9 14-23 14 10 14-31 13 6 36-26 39 4 35-19 37 4 40-23 37 4 30-19 37 6 33-22 35 4 34-24 35 6 29-26 33 8 25-24 31 9 29-26 30 5 29-25 29 8 30-33 29 6 26-30 29 5 29-26 28 7 22-32 28 6 24-22 27 5 28-28 27 9 31-32 24 7 22-27 24 9 25-33 24 8 33-34 23 8 18-28 21 13 25-38 18 11 18-28 14 13 16-42 14 Körfuknattleikur: Vinningstölurnar 17. desember 1988 Heildarvinningsupphæö: Kr. 9.957.081,- Fimm tölur réttar kr. 5.868.942,- skiptast á 2 vinningshafa, kr. 2.934.471,- á mann. BÓNUSTALA + fjórar tölur réttar kr. 606.384,- skiptast á 9 vinningshafa, kr. 67.376,- á mann. Fjórar tölur réttar kr. 1.045.867,- skiptast á 193 vinningshafa, kr. 5.419,- á mann. Þrjár tölur réttar kr. 2.435.888,- skiptast á 6.692 vinningshafa, kr. 364,- á mann. Sölustaðirnir eru opnir frá mánudegi til laugardags og loka ekki fyrr en 15 mínútum fyrir útdrátt. ísland vann - íslenska landsliðið sigraði á smáþjóðamótinu á Möltu Leikandi og létt! Upplýsingasími: 685111 íslenska landsliðið í körfuknatt- leik sem tók um helgina þátt í smáþjóðamóti á Möltu, náði þeim elæsiiega árangri að sigra á mótinu. Island mætti Irlandi í úrslitaleik og vann stórsigur 86-69. Á laugardag lék ísland í undanúr- slitum gegn liði Kýpur. Þegar í upphafi leiksins náði ísland 20 stiga forystu, en í hálfleik var staðan 51- 34. í síðari hálfleik var ekkert gefið eftir og 30 stiga sigur vannst, 108-78. Guðmundur Bragason átti góðan leik, skoraði 20 stig. Nagnús Guð- finnsson átti einnig góðan leik með 16 stig. Birgir Mikaelsson gerði 20 stig, Valur Ingimundarson 16, Guð- jón Skúlason 13, Tómas Holton 8 og Jón Kr. Gíslason 7. í hinum undanúrslitaleiknum vann írland nauman sigur á Luxem- borg, 91-87. ísland lék þvf til úrslita gegn írum, sem unnu nauman sigur á okkar mönnum í riðlakeppninni. írar byrjuðu betur komust í 5-14, en ísland jafnaði og komst yfir 19-14. í hálfleik var staðan 44-32 fyrir ísland. íslenska liðið gaf ekkert eftir í síðari hálfleiknum og vann leikinn örugg- lega 86-69. Einn Bandaríkjamður lék með írska liðinu, en hann komst lítt áleiðis gegn sterkri vöm íslands. Liðið náði vel saman og greinilegt var að vikulegar æfingar liðsins í vetur hafa skilað sér. Sérstaklega komu ungu mennimir vel út í þess- arri ferð og liðið hefur vaxið með hverjum leik. Bestir gegn Irum vom Guðmund- ur og Magnús ásamt Jóni Kr. Stigin: Guðmundur 21, Jón Kr. 19, Tómas 13, Magnús 13, Birgir 10, Valur 8, og Guðjón 2. BL Körfuknattleikur: Guðni Guðnason með KR eftir áramótin „Ég kom heim í gær (sunnudag) og það verður gaman að hitta strák- ana á æfingu í kvöld (mánudag),“ sagði Guðni Guðnason körfuknatt- leiksmaðurinn sterki, er Tíminn hafði samband við hann í gærkvöld. Hann var þá nýkominn til landsins frá Bandaríkjunum, þar sem hann stundar nám í viðskiptafræði. „Ég fer aftur út 3. janúar, en kem Valdimar Grimsson átti góðan leik gegn Amicitia á sunnudaginn. Hér skorar hann 1 af 6 mörkum sínum í leiknum, án þess að Jens Mayer komi vömum við. Tímamynd: pjetur. Handknattleikur: Guðni Guðnason er nr. 14 á þessari mynd. ..... . .. Gudjón eini Midlungsleikur nýiiðinn gegn Svium dugði Val áfram Valsmenn slógu svissneska liðið Amicitia út úr Evrópukeppni meistaraliða í handknattleik á sunnudagskvöidið með því að sigra það með 3 mörkum 25-22. Amicitia vann fyrri leikinn með einu marki 16-15 ■ Sviss um síðustu helgi. Valsmenn hófu leikinn af krafti og þegar á fyrstu mín. skoraði Valdimar Grímsson úr hraðaupphlaupi, eftir misheppnað markskot Svisslendinga. Sigurður Sveinsson bætti síðan öðru marki við, áður en Jens Mayer náði að minnka muninn fyrir Amicitia. Valsmenn höfðu áfram frumkvæðið, en Jens Mayer náði að jafna leikinn 4-4. Aftur var jafnt 5-5, en þá tóku Valsmenn við sér og gerðu næstu 5 mörk. Sigurður Sveinsson gerði 3 þeirra þar af 2 úr vítaköstum og Jakob Sigurðsson 1. Svisslend- ingar, eða réttara sagt landsliðsmennirnir, Jens Mayer, Stefan Schaerer og René Barth minnkuðu muninn í 1 mark fyrir hlé, en vörn Valsmanna var þá ákaflega slöpp og lúmsk skot Svisslendinganna láku hvert af öðru í markið. Markvarsla Einars Þorvarðarsonar var nánast engin, ef frá eru talin 2 víti sem hann varði í fyrri hálfleiknum. Páll Guðnason varamarkvörður tók stöðu hans undir lok hálfleiksins og varði nokkur skot, en Páll var hetja Valsmanna í fyrri leik liðanna í Sviss. Júlíus Jónasson og Sigurður Sveinsson skor- uðu 2 fyrstu mörkin í síðari hálfleik fyrir Valsmenn, sem lengst af leiddu með 3 mörkum. Góður kafli um rúmlega miðbik hálfleiksins gaf Val 5 marka forskot, 22-17, en Amicitia náði að minnka muninn í 1 mark 22-21. Einar Þorvarðarson kom í markið aftur undir lokin og varði þá strax vítakast, sitt 3. í leiknum. Páll Guðnason hafði ekki náð að fylgja stórleik sínum í Sviss eftir, þrátt fyrir góða byrjun á sunnudag. Einar Þorvarðarson gaf tóninn með því að verja vítið og á spennandi lokamínútum náðu Valsmenn að skora 3 mörk gegn 1 marki Amicitia, þar af síðasta mark leiksins á síðustu sekúndunni. Úrslitin urðu því 3 marka sigur Vals, 25-22 og liðið er komið í 8 liða úrslit Evrópukeppninn ar. Litlu mátti þó muna að Amicitia næði að minnka muninn ( 1 mark f lokin, en heppnin var með Valsmönnum að þessu sinni. Valsliðið var Iangt frá sínu besta í þessum Ieik. Vörnin var slök og markvarslan sömuleið- is eins og oft vill verða. Þó má ekki gleyma því að Einar Þorvarðarson varði 3 vítaköst í ieiknum og munar um minna. Sóknarleikur Valsmanna var of einhæfur og allt of mikið mæddi á Sigurði Sveinssyni. Valsliðið hikstaði því þegar hann var tekinn úr umferð. Júlíus Jónasson var ákaflega daufur í þessum leik og munar um minna. Homamennimir Valdimar og Jakob stóðu aftur á móti vel fyrir sínu. Jón Kristjánsson var ógnandi, en hefði mátt skjóta meira. Sigurður Sveinsson var mjög góður, skoraði falleg mörk og átti glæsilegar línusend- ingar. Svissneska liðið leikur mjög skynsamlegan handknattleik, en ekki að sama skapi skemmti- legan. Þeir gefa sér góðan tíma til þess að skora og sú leikaðferð gekk upp á móti Val. Eins og áður segir eru það þremenningarnir René Barth, Jens Meyer og Stefan Schaerer sem eru burðarásar liðsins, en liðið leikur líkan handknattleik og svissneska landsliðið sem vann íslendinga á Flugleiðamótinu í sumar. Hefðu Valsmenn náð toppleik á sunnu- dag, hefði þetta svissneska lið aldrei átt möguleika. Valsmenn em nú komnir í 8 liða úrslit Evrópukeppninnar, en fullvíst má telja að þeir verði að sýna betri leiki þar, ef þeir ætla sér að komast lengra. Dómarar í gær voru þeir sömu og dæmdu leik FH og rúmenska liðsins Baya Mare, Svíarnir Kjell Eliasson og Krister Brodin. Dómgæsla þeirra í leiknum á sunnudag var hrein andstaða við störf þeirra í FH-leiknum, þeir dæmdu öll vafaatriði Amicitia í vil. Þeir sem aftur á móti sáu leik FH og Baya Mare á föstudag, vita nú hvað heimadómarar eru. Mörkin Valur: Sigurður Sveinsson 11/5, Valdimar Grímsson 6/2, Jakob Sigurðsson 4, Júlíus Jónasson 2, Geir Sveiníson 1 og Jón Kristjánsson 1. Amicitia: Jens Mayer7, Stefan haerer 5, René Barth 5, Mark Baer 3/1, .oger Keller 1 og Stefano Belmelli 1. BL síðan aftur heim alkominn í kringum 20. janúar. Námið hefði tekið mig 3 ár úti, en ég get klárað það á 2 árum hérna heima,“ sagði Guðni. „Þessi skóli sem ég var í heitir University of Wisconsin og er í Oshkosh. Ég var 11.-12. maður í skólaliðinu og fékk því lítið að spila. Það hefur líka sitt að segja varðandi það að ég kem heim.“ „Mér líst mjög vel á að byrja að leika með KR-liðinu á ný, þeim hefur gengið vel í vetur og mér líst vel á framhaldið. Ég hef þó ekki séð hin liðin, en í úrslitakeppninni þá hljótum við að setja stefnuna á íslandsmeistaratitilinn," sagði Guðni Guðnason. „Guðni mun styrkja liðið gífur- lega, hann er einn af 2-3 bestu leikmönnum á landinu, reyndar seg- ir Laszlo Nemeth þjálfari KR-liðsins og landsliðsins að hann sé bestur á landinu. Með tilkomu Guðna mun breiddin í liðinu aukast til muna, hún var þokkaleg fyrir, en mun nú verða enn betri," sagði Ómar Schev- ing formaður körfuknattleiksdeildar KR í samtali við Tímann í gær. „Við tökum hvern leik fyrir sig fram að úrslitakeppninni og Guðni mun missa af nokkrum leikjum í janúar. Ég vil ekkert segja um möguleika okkar í úrslitakeppninni, en það virðast allir vera hræddir við Guðna. Hann þarf að aðlagast leik- kerfunum, en það ætti ekki að taka hann langan tíma því hann æfði á fullu með liðinu í haust, áður en hann fór út. KR-liðið verður ekki árennilegt í úrslitakeppninni, eftir að Guðni er kominn inní leikkerfin það er öruggt,“ sagði Ómar Scheving. KR-liðið verður mjög sterkt eftir að Guðni byrjar að leika með því. Hann verður löglegur um leið og stjórn KKÍ hefur samþykkt félaga- skipti hans í KR. í úrslitakeppninni má telja víst að KR-ingar verði harðir í horn að taka, enda munar um minna en Guðna, sem hefur verið jafnbesti leikmaður liðsins undanfarin ár. BL Bogdan Kowalzcyk landsliðsþjálf- ari í handknattleik hefur valið 18 manna landsliðshóp, fyrir landieik- ina gegn Svíum í kvöld og annað kvöld. Beðið hefur verið eftir vali liðsins með nokkurri eftirvæntingu, því nú er í fyrsta sinn valið í Iandslið, eftir ófarirnar á Ólympíuleikunum í Se- oul. Hópurinn er skipaður eftirtöld- um leikmönnum: Markverðir: Einar Þorvarðarson...........Val Brynjar Kvaran.......Stjörnunni Guðmundur Hrafnkelsson . . UBK Hrafn Margeirsson............ ÍR Aðrir leikmenn: Júlíus Jónasson...............Val Valdimar Grímsson............Val Jakob Sigurðsson ............Val Geir Sveinsson...............Val Sigurður Sveinsson ..........Val Alfreð Gíslason...............KR Páll Óiafsson ................KR Konráð Olavson................KR Héðinn Gilsson................FH Þorgils Óttar Mathiesen .... FH Guðjón Ámason.................FH Bjarki Sigurðsson ......Víkingi Guðm. Guðmundsson . . Vikingi Kristján Arason ............Teka Einn nýliði er í hópnum, Guðjón Árnason FH. Athygli vekur að tveir leikmenn sem voru í Ólympíuliðinu eru ekki valdir nú, þeir Sigurður Gunnarsson ÍBV og Karl Þráinsson Víkingi. Þá vekur einnig athygli að sömu markverðir eru valdir nú og áður, en menn sem leikið hafa mjög vel í vetur eins og Bergsveinn Bergsveins- son FH og Leifur Dagfinnsson KR eru ekki í hópnum. Þeirra tími kemur eflaust síðar. Þá eru þeir Gunnar Beinteinsson FH og Jón Krisjánsson Val ekki í liðinu, en þeir hafa komið mjög upp að undan- förnu. Jón er reyndar eini leikmað- urinn úr byrjunarliði Vals, sem ekki er í landsliðshópnum. Leikimir gegn Svíum verða í Laugardalshöllinni í kvöld og annað kvöld og hefjast kl.20.30. BL KENWOOD Ný og endurbætt KENWOOD CHEF nsBbmí Aukabúnaður m.a.: Grænmetískvörn — Hakkavél Grænmetisrifjárn — Ávaxtapressa Verð kr. 17.680 16.800.- staðgr. 0HEKLAHF Laugavegi 170-172 Simi 695500

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.