Tíminn - 20.12.1988, Síða 3
Þriðjudagur 20. desember 1988
Útgerðarfélag Skagfirðinga
og Fiskiðja Sauðárkróks hafa
komist að samkomulagi:
Skipt um
áramótin
Útgerðarfélag Skagfirðinga og
Fiskiðja Sauðárkróks hafa formlega
gengið frá skiptunum á Drangey,
hálffrystiskipi Útgerðarfélags Skag-
firðinga og togurum Hraðfrystihúss
Keflavíkur, Aðalvík og Bergvík.
Skipaskiptin fara fram um áramót.
Sem kunnugt er samþykkti stjórn
Hraðfrystihúss Keflavíkur skipa-
skiptin fyrir sitt leyti á miðvikudag sl.
Marteinn Friðriksson stjórnarfor-
maður Útgerðarfélags Skagfirðinga
sagði í samtali við Tímann að Drang-
eynni hefði verið breytt í hálffrysti-
skip með það í huga að nota bann-
daga til rækjuveiða, en þegar til átti
að taka og búið var að breyta skipinu
var reglum í sambandi við veiðarnar
breytt. „Við hefðum þurft að láta
breyta því í alfrystiskip, en drógum
við okkur, þar sem það hefði þýtt of
mikinn samdrátt á vinnu í landi,“
sagði Marteinn. Hann sagði að því
hefði verið brugðið á það ráð að
selja skipið og fá í staðinn tvo
togara. Með tilkomu þessara tveggja
togara kemur vinna í landi til með
að eflast verulega, þrátt fyrir að
einhver samdráttur sé sýnilegur í
heimildum. - ABÓ
2,9% hækkun
vísitölunnar
Vísitala byggingarkostnaðar hefur
hækkað um 0,7% síðustu þrjá mán-
uði, sem samsvarar 2,9% árshækk-
un. Á síðastliðnum tólf mánuðum
hefur vísitala byggingarkostnaðar
hækkað um 16,2%.
Samkvæmt útreikningum Hag-
stofunnar reyndist vísitala bygging-
arkostnaðar, eftir verðlagi um miðj-
an desember vera 125,4 stig, eða
0,4% hærri en í nóvember.
Frá nóvember til desember hækk-
aði verð á þakjárni um 6% og verð
á kambstáli um 9%. Þessar hækkanir
höfðu í för með sér um 0,2%
hækkun vísitölunnar. Þá olli um 5%
verðhækkun á málningarefni 0,1%
hækkun og verðhækkun ýmissa ann-
arra vöruliða olli einnig um 0,1%
hækkun á vísitölu byggingarkostn-
aðar. - ABÓ
íslenskar getraunir:
Tveir með
12 rétta
Loks kom að því að getraunapott-
urinn gengi út. Um helgina var
potturinn fjórfaldur og 1. vinningur
fór í 8.109.136 kr. en það er stærsti
vinningur í íslenskum getraunum
frá upphafi.
Tvær raðir komu fram með 12
réttum. Önnur var keypt á Lang-
holtsvegi í Reykjavík fyrir 1000 kr.
en notað var tölvuval. Vinnandi vill
ekki láta nafns síns getið. Hin röðin
var keypt í Borgarnesi, fyrir aðeins
60 kr. en eigandi hennar hefur enn
ekki gefið sig fram. Þeir heppnu fá í
sinn hlut 4.054.568 kr. hvor.
44 raðir komu fram með 11
réttum, en fyrir hverja röð fá hand-
hafar raðanna 36.833 kr. BL
Tíminn 3
IÐUNNARBÓK E R GÓÐ BÓK
GARÐAR SVERRISSON
BfR ÍSLENDIMvllR
m ISLEHill HÉR?
Sagan af kaupmannssyninum úr Reykjavík sem fullur
bjartsýni heldur út í heim til að afla sér menntunar en
er svikinn í hendur Gestapo og sendur í útrýmingar-
búðir nasista í t*ýskalandi. Býr íslendingur hér? er
óvenju áhrifamikil frásögn af þeim umskiptum sem
verða í lífi ungs Reykvíkings, Leifs Muller, sem elst
upp í vernduðu umhverfi heima á Stýrimannastíg 15
en lendir síðan í einhverri mestu þolraun sem íslend-
ingur hefur lifað. Eftir fjörutíu ára þögn segir hann
áhrifamikla sögu sína af hreinskilni og einlægni, sátt-
ur við sjálfan sig og án þess að draga nokkuð undan.
Brugðið er upp ógleymanlegum myndum af Englend-
ingunum í hegningardeildinni, ívani litla og Óskari
Vilhjálmssyni, gamla manninum sem gat ekki gengið
í takt og ungu drengjunum sem féllu í valinn, einir og
yfirgefnir — sviptir trú á miskunn Guðs og manna.
Garðar Sverrisson hefur ritað þessa áhrifainiklu ör-
lagasögu og skapað eftirminnilega og inagnaða frá-
sögn sem á engan sinn líka meðal íslenskra ævisagna
og snertir djúpt alla sem hana lesa — snertir þá og
minnir á ábyrgðina sem fylgir því að vera maður.
IÐUNN
Brœðraborgarslíg 16 ■ sími 28555
ISLf V5A4 AUCL YSISCASTOFA V HF