Tíminn - 20.12.1988, Page 6
6 Tíminn
Þriðjudagur 20. desember 1988
BÆKUR
iiiiiiiiii;
lllllllll!
Síóri 1
hái tnífímeksa** d tíi«m
tíáti. bsi «isir Kfíf i tð
<&}l á#rxin&m *t» 'á! þdx
A ÍiiKtd HHttd Jdtftp ÍSfpttrn
vjc
Kvemia
(ræéarimi
IXJNN
Mtriam Stnppanf
Stóri
kvenna-
fræðarinn
Komin er út hjá Iðunni bókin
Stóri kvennafræðarinn eftir
breska lækninn Miriam Stoppard.
Hún hefur fjallað mikið um heilsu
og heilbrigðismál í fjölmiðlum í
sínu heimalandi og skrifað
nokkrar bækur. Meðal bóka
hennar eru Foreldrahandbókin
og Stelpnafræðarinn sem báðar
hafa komið út í íslenskri þýðingu
og vakið mikla athygli.
Stóri kvennafræðarinn er bók
nútimakvenna á ölium aldri, bók
sem veitir svör við ótal
spurningum um ÖU þau svið sem
snerta daglegt líf þeirra og
lífshætti. Hér er rætt um hreysti og
heilbrigði, likamsrækt og
mataræði og umhirðu húðar og
hárs. Greint ér frá flestum þeim
kviUum og sjúkdómum sem hrjáð
geta konur og sagt frá aðferðum
til að forðast þá. Sérstakir kaflar
eru einnig í bókinni um kyneðU og
kynlif og um frjósemi, meðgöngu
og fæðingu.
Áhersla er þó ekki síður lögð á
andlegt heilbrigði kvenna og það
sem þvi getur ógnað, svo sem
streitu, kvíða og margháttaða
örðugleika í sambúð og
samskiptum. Jafnframt eru raktir
áfangar á þroskaferU kvenna frá
æskuárum til eUi, sagt frá óUkum
veúkostum sem þeim standa opnir
og rætt um samskipti kynjanna,
hjónabandog skUnað, starfsframa
og margt fleira.
Ýmsir kaflar bókarinnar hafa
verið staðfærðir nokkuð og hafa
sérfróðar konur á viðkomandi
sviðum lesið þá yfir og lagað að
íslenskum aðstæðum.
Nanna Rögnvaldsdóttir þýddi.
Kristinn
Olsen
— svipmyndir frá
litríkum flugmannsferli
Frjálst framtak hefur sent frá
sér bókina Kristinn Olsen -
svipmyndir frá Utrikum
flugmannsferU eftir Sæmund
Guðvinsson fyrrverandi
blaðafuUtrúa Flugleiða. í bókinni
segir Kristinn Olsen frá mörgum
eftirminnilegum atvikum á
löngum flugmannsferU sínum en
Kristinn er einn af
brautryðjendum flugsins á íslandi
og handhafi flugskírteinis númer
7.
Kristinn segir í bókinni frá þvi
hvemig hann heUlaðist af fluginu
þegar hann var imgUngur, frá
flugnámi sinu i Kanada.og síðan
frá baráttunni sem hófst þegar
komið var heim frá námi.
Aðstaðan var bágborin og oft
flogið við hin erfiðustu sldlyrði.
Kristinn segir frá mörgu
eftirminnilegu er gerist á þessum
árum, m.a. frá sildarleitarfluginu,
frá björgun skíðaflugvélarinnar af
VatnajökU og ævintýraflugi til
Suður-Ameriku, Grænlands og
fleiri staða. Hann segir einnig frá
eftirminnilegum
samferðctmönnum, eins og Múra
flugstjóra, sem bjó til ævintýrin ef
þau urðu ekki á vegi hans á annan
hátt.
Fjölmargar ljósmyndir prýða
bókina sem er 150 blaðsíður.
Bókin er sett, og prentuð í
Prentstofu G. Benediktssonar og
bundin hjá ArnarfelU. Kápu
hannaði Friðrik ErUngsson.
Jón
Engilberts
Komin er út bók um hinn merka
listmálara Jón Engilberts. Jón
fæddist árið 1908 og lést 1972.
Hann hefði því orðið áttræður á
þessu ári.
Það eru Listasafn A.S.Í. og
bókaforlagið Lögberg sem gefa
bókina út.
Jón Engilberts var í forystu
þeirra Ustmálara, sem á fjórða
áratugnum gerðust
brautryðjendur nýrra viðhorfa í
islenskri listasögu. Manneskjan
og nánasta umhverfi hennar varð
helsta viðfangsefni þessarar
kynslóðar, en nýr form- og
Utaskilningur birtist einnig í
verkum þeirra.
Það sem er helsta kennimark
Ustar Jóns Engilberts frá
öndverðu, eráhrifamátturUtarins,
sem birtist með margvislegum
hætti í Ust hans. Á fjórða
áratugnum eru það öðru fremur
Bókaútgáfan Reykholt býður lesendum þrjár nýjar
bækur íýrir þessi jól.
Auk þess endurútgefium við á sérstöku tilboði þá fjórðu.
SU FORVITNILEGASTA
Við gefúm út bók efitir einn umdeildasta guðsmann
íslands, sr. Árelíus Níelsson. Bók hans heitir HORFT
UM ÖXL AF HÁJLOGALANDSHÆÐ og hefúr að geyma
endurminningar hans. í flestra augum er sr. Árelíus
persónugervingur guðfræðinnar sem flestir setja í
samband við sina eigin barnatrú.
ÞrösturJ. Karlsson er ungur höfúndur sem við höfúm
sérstaka ánægju af að kynna bókaþjóðinni. Hann hefúr
skrifað skáldsöguna SKUGGANN, bók sem okkur finnst
einkennast aJf takmarkaiausu hugmyndaflugi. í henni
koma fyrir allir helstu örlagavaldar mannkyns.
[mi
Við erum upp með okkur af að fá að gefa
út nýjustu bók Indriða G. Þorsteins-
sonar, en hún heitir því þjóðlega nafni
HÚÐIR SVIGNASKARÐS. Þetta er
leikrit sem fjaliar um Snorra Sturluson.
Hinar Hákonarson myndlistarmaður
myndskreytti bókina.
REYKHOLT
MADURINK OG SKALDIS
STEINN STEINARR
V
M AFMÆLIS' *
SIGFUS DAÐASON
SETTI SAMAN
/1» ■ jí
ímA m
Maðurinn og skáldið
STEINN STEINARR
á afmælistilboði
Nú í október hefði höfuðskáld ís-
lenskrar nútímaljóðlistar, Steinn
Stein;irr, orðiö 80 ára ef hann heföi
lifað. Skáldbróðir Steins, Sigfús
Daðason, hefúr skrifaö um hann
bók, sem Rcykholt Jif. hefur nú
dreift sérstaldega í tileftii þessara
tímamóta og boðiö unncnduin
Steins tii kaups á sérstöku afcláttar-
verði. í bókinni er fjöldi mynda og
ýmis áður óbirt verk Steins.
AÐ SIGRA HEIMINN
Að sigra heiminn er eins og að spila á spil
með spekingslegum svip og taka í nefið.
(Og allt með glöðu geði
er gjama sett að veði).
Og þótt þú tapir, það gerir ekkert til,
því það er ncfnilega vitlaust gefið.
Steinn Steinarr
hljómsterkar andstæður sem
hann tíundar, en á hinum fimmta
er lögð áhersla á dulúðugt
seiðmagn litarins, sem hann
dregur fram, þegar hann fjallar
um manneskjuna eða skynjar
náttúruna sem líingu fyrir
tilfinningalega reynslu.
í bókinni eru litprentanir 56
verka eftir Jón Engilberts, auk
fjölmargra teikninga og
Ijósmynda úr lífi hans og starfi.
Listaverkin eru í eigu Listasafns
íslands, Listasafns A.S.Í. og
ýmissa stofnana og einstaklinga.
I þessari bók fjallar Ólafur
Kvaran listfræðingur nm listferil
Jóns og megineinkenni verka
hans, en Baldur Óskarsson skáld,
sem var náinn vinur Jóns um
árabil, ritar minningar um hann -
„fáein brot“.
1 bólrinni er útdráttur á ensku
um Jón Engilberts og verk hans.
Ljósmyndun listaverka annaðist
Kristján Pétur Guðnason. Torfi
Jónsson sá um tilhögun
bókarinnar en prentsmiðjan Oddi
hf. um litgreiningu, prentun og
bókband.
Jón Engilberts er áttunda
bindið í ritröðinni íslensk
myndlist, en áður eru komnar út
eftirtaldar bækur: Ragnar í Smára,
Eiríkur Smith, Jóhann Briem,
Muggur, Jóhannes Geir,
Ásgrímur Jónsson og Tryggvi
Ólafsson.
MATHAN H, ATRIN 0G RICHARO M. fOXX
𻫠og tmmss lí ið m arangws
Að venja
á kopp
á einum degi
eftir Azrin og Foxx
Iðunn hefur gefið út bókina Að
venja á kopp á einum degi —
örugg og markviss leið til
árangurs. Höfundar hennar eru
sálfræðingarnir Nathan H. Azrin
og Richard M. Foxx, sérfræðingar
í námstækni og byggja þeir aðferð
sína á ýmsum kenningum um nám
og uppeldi.
Hér lýsa þeir því vandlega, skref
fyrir skref, hvernig gera má
hreinlætisþjálfun barna að léttum
leik. Aðferð sú sem hér er lýst
skilar oftast árangri samdægurs.
Markviss þjálfun í þrjá til fjóra
tíma leiðir til þess að bömin geta
sjálf farið á koppinn og gera það
af eigin hvötum. Hún byggist þó
ekki á neinum töfrabrögðum,
heldur læra börnin vegna þess að
það er skemmtilegt, einfalt og
spennandi.
Þótt hin nýja aðferð geti sparað
foreldrum ómældan tíma,
áhyggjur og fyrirhöfn er hún fyrst
og fremst þróuð með barnið í
huga. Sé henni beitt verður
þjálfunin að skemmtilegri
lífsreynslu og refsingar og
reiðiköst em algjörlega úr
sögunni. Barnið er miðdepill
athyglinnar og hefur þegar
þjálfun lýkur tekið stórt skref í átt
tú aukins sjálfstæðis.
Aðalbjörg Jónasdóttir þýddi.
Frásögn um
r 12 einstaklinga
I gegnum árin
í gegnum árin er bók um
minnisstæð atvik úr lífi tólf
einstaklinga, sem Ólöf J.
Jónsdóttir hefur skrifað og tekið
saman. Þeir sem eiga efni í
bókinni eru: Albert
Guðmundsson, Brynhildur
Jónsdóttir, Karl Ólafur Bang, Sr.
Solveig Lára Guðmundsdóttir, Óli
Halldórsson og Ólöf J. Jónsdóttir.
Þetta er forvitnileg bók, sem
margir munu hafa ánægju af að
lesa.