Tíminn - 20.12.1988, Síða 20
RIKISSKIP
NÚTÍMA FLUTNINGAR
Hatnarhúsinu v/Tryggvagötu,
® 28822
Átjan man. binding
75%
SAMVINNUBANKINN
ÞRDSTIIR
685060
VANIR MENN
Tíminn
Jón Óttar fagnar rannsókn skattrannsóknastjóra á bókhaldi Stöðvar 2 og segir:
Mörk auglýsinga
kostunar skilgreind
Skattrannsóknastjóri hefur samkvæmt heimildum Tím-
ans hafiö samanburöarrannsókn á bókhaldi Stöðvar 2 og
nokkurra fyrirtækja. Ætlunin er að kanna hvort að
samræmi sé í bókhaldi Stöðvar 2 og fyrirtækjanna um
viðskipti þeirra í milli og hvort Stöð 2 hafi vísvitandi reynt
að komast hjá að greiða söluskatt og framlag til
Menningarsjóðs sjónvarps- og útvarpsstöðva.
Stöðin hefur talsvert stundað
svonefnd vöruskipti - tekið út
vörur eða þjónustu og greitt í
auglýsingatímum eða annarri
þjónustu.
Skattrannsóknastjóri sagði
blaðinu í gær að, - „svokölluð.
vöruskipti eiga ekki að breyta
neinu í sambandi við söluskatt sé
á annað borð um söluskattskylda
þjónustu að ræða. Hvort líta
megi á að dagskrá þar sem kostn-
aðaraðili er nafngreindur, sé aug-
lýsing og þar með söluskattskyld
vil ég ekki tjá mig um.“
Rannsóknin mun einkum bein-
ast að því hvort vöruskiptin hafi
á einhvern hátt orðið til þess að
skattaskil hafi ekki verið sem
skyldi.
Stöð 2 hefur um langt skeið
verið gagnrýnd fyrir að greina lítt
milli dagskrárgerðar og auglýs-
inga þannig að heilu dagskrár-
atriðin séu lítt dulbúnar auglýs-
ingar.
Heyrst hefur að Stöð 2 hafi
þannig boðið bókaforlagi nokkru
að gera sjónvarpsþætti um sama
efni og ákveðinn bókaflokkur
fjallar um og hafi átt að lesa upp
úr texta bókanna um leið og
myndir voru sýndar á skjánum.
Á bókaforlaginu að hafa verið
boðið þetta gegn tveggja milljóna
greiðslu, en eigandi forlagsins
hafnað boðinu.
Með gerð þessa þáttar hefði
mátt líta svo á að bókaforlagið
hefði fengið þennan tiitekna
bókaflokk sinn auglýstan og Stöð
2 ekki þurft að greiða söluskatt af
auglýsingu né gjald til Menning-
arsjóðs sjónvarps- og útvarps-
stöðva sem skylt er að greiða af
auglýsingum.
Samkvæmt heimildum blaðsins
mun rannsóknin beinast að þessu
tvennu. Tíminn bar þetta undir
Jón Óttar Ragnarsson sjónvarps-
stjóra Stöðvar 2 og spurði hann
hvort Stöð 2 hefði markvisst reynt
að komst hjá greiðslu söluskatts
og gjalds til Menningarsjóðs sjón-
varps- og útvarpsstöðva með
slíku móti.
Jón Óttar neitaði því alfarið að
Stöð 2 hefði nokkru sinni boðið
nokkru fyrirtæki neitt af því tagi
sem að ofan er nefnt. Slíkt væri
fáránlegt og kæmi mönnum í koll.
Hann sagði að beinar auglýs-
ingatekjur nægðu ekki til að
standa alfarið undir dagskrárgerð
og því væri kostun, eins og fyrir-
bærið Sponsorship hefur verið
nefnt, orðið æ algengari um allan
heim. Sem dæmi sagði Jón Óttar
að Thatcher væri búin að lýsa því
yfir að BBC sjónvarpsstöðin fái
ekki fé til dagskrárgerðar sinnar
að ákveðnum tíma liðnum en
Jón Óttar Ragnarsson sjónvarps-
stjórí Stöðvar 2.
verði í þess stað sjálf að útvega
sér kostunaraðila.
Jón sagði að skattrannsókna-
stjóri segði að um væri að ræða
rútínurannsókn og sagðist hann
fagna henni. Ýmis vafaatriði
væru varðandi hvernig skilgreina
skuli hvar mörk milli kostunar og
auglýsinga lægju og þessi rann-
sókn ætti að stuðla að slíkri
skilgreiningu.
Þá yrði jafnframt skilgreint
hvernig taka skal á þessum mál-
um í skattakerfinu. Jón Óttar
sagði að um leið og það lægi fyrir
yrðu þeir Stöðvarmenn rólegri
því þeir vildu fá úr þessum atrið-
um skorið.
Jón Óttar sagði jafnframt að
það væri í hæsta máta ósann-
gjarnt að sjónvarpsstöðvar þyrftu
að borga söluskatt af auglýsing-
um sem blöðin slyppu við. Hann
sagði að vegna söluskatts og
menningarsjóðsgjalds hefði Stöð
2 til ráðstöfunar, af því fé sem
hún tæki inn fyrir auglysingar,
um 50-60% meðan blöðin hefðu
sitt að fullu til ráðstöfunar.
Jón Óttar neitaði því að Stöð 2
hefði meðvitað leitast við að
komast hjá greiðslu söluskatts af
auglýsingum og greiðslu menn-
ingarsjóðsgjalds með því að gera
beinlínis auglýsingaþætti undir
yfirskini dagskrárgerðar. - sá
Svisslendingar sátu eftir með sárt ennið á sunnudagskvöld, er Valsmenn
höfðu slegið þá út úr Evrópukeppninni. Hér er það besti maður Amicitia í
leiknum, Jens Meyer, sem er heldur niðurlútur eftir ósigurinn.
Timamynd Pjetur.
Handknattleikur - Evrópukeppni:
FH og Valur í
átta liða úrslit
Valsmenn og FH-ingar komust
áfram í Evrópukeppninni í hand-
knattleik um helgina, þrátt fyrir að
hafa tapað fyrri leikjum sínum ytra.
Valsmenn sigruðu svissnesku
meistarana Amicitia 25-22 i Laugar-
dalshöllinni á sunnudagskvöld, en
FH-ingar unnu stórsigur á rúmensku
Evrópumeisturunum Baya Mare í
firðinum á föstudag, 32-19.
Sjá íþróttir á bls. 10 og 11.
Tveggja manna áhöfn
bjargaö úr fjörunni:
Sóley IS
strandaði
Sóley ÍS 651 strandaði sunnan í
Gelti í Súgandafirði snemma í gær-
morgun. Tveggja manna áhöfn sak-
aði ekki.
Varðskip sem var í nágrenninu
bjargaði mönnunum um borð, þar
sem þeir voru á gangi í fjörunni um
1 km frá strandstað og flutti þá til
Súgandafjarðar.
Varðskipið dró bátinn síðan á flot
áflóðinuumkl. lósíðdegis. -ABÓ
Albert fer
til Parísar
Síðastliðinn laugardag tilkynnti
Albert Guðmundsson að hann
myndi þiggja sendiherrastöðuna,
sem Jón Baldvin utanríkisráðherra
bauð honum, í París. Líklega mun
Albert hverfa til Parísar á fyrri hluta
næsta árs.
Jón Baldvin er fjórði utanríkisráð-
herrann sem býður Albert þessa
stöðu en Albert hefur gefið sér
góðan tíma að hugsa málið enda
talið ákvörðunina afar erfiða eins og
kom fram í helgarviðtali við Tímann
fyrr í þessum mánuði.
Eins og kunnugt er var Albert á
árum áður atvinnumaður í knatt-
spyrnu í Frakklandi og á þar marga
vini í áhrifastöðum og í fyrrnefndu
viðtali sagði hann að slík tengsl
myndu koma íslandi til góða ef hann
tæki við stöðunni. Auk þess að vera
sendiherra íslands í Frakklandi mun
hann sinna tengslum íslands við
Portúgal, Spán, Grænhöfðaeyjar,
UNESCO og OECD.
Albert virðist ekki vera þeirrar
skoðunar að brottför hans muni hafa
afgerandi áhrif á stöðu Borgara-
flokksins. Menn hafa fyrst og fremst
verið að velta því fyrir sér hvort það
að bjóða Albert stöðuna hafi ekki
verið pólitískt bragð til að auka
möguleikana á að fá Borgaraflokk-
inn í ríkisstjórn. Albert hefur á
undanförnum dögum lýst því yfir að
hann telji að slík umskipti muni ekki
verða og segist jafnframt vera bjart-
sýnn á framtíð flokksins.
Júlíus Sólnes varaformaður Borg-
araflokksins mun taka við formanns-
stöðunni í flokknum þegar Albert
fer og mun sitja sem slíkur fram að
næsta landsfundi. Eftir er að ákveða
hver tekur við sem varaformaður og
formaður þingflokksins en Albert
hefur lýst áhuga sínum á að ráða
einhverju þar um. SSH