Tíminn - 04.01.1989, Blaðsíða 6
6 Tíminn
Miðvikudagur 4. janúar 1989
zzTr á u
[jglw m «¥ 'ísisa; |fl
Kaupstaðurinn Höfn í Hornafirði, þar sem nú búa um 1500 manns.
Höfn í Hornafirði
Ofðin kaupstaður
Þann 1. janúar s.l. hlaut Höfn í Hornafiröi kaupstaðarrétt-
indi. Staöurinn hefur verið miðstöð verslunar í Austur-Skafta-
fellssýslu frá því að byggð hófst þar árið 1897, íbúar eru nú
rúmlega 1500 talsins.
Af þessu tilefni hafði Tíminn sam-
band við Sturlaug Þorsteinsson sem
er forseti bæjarstjórnar á Höfn.
Sturlaugur sagði að íbúafjöldi hefði
farið stöðugt vaxandi á síðustu árum
og áratugum. Sem dæmi mætti nefna
að á síðustu þremur áratugum hafi
orðið hlutfallslega meiri íbúaaukn-
ing á Höfn en á Reykjavíkursvæð-
inu. Sturlaugur sagði jafnframt að á
allra síðustu árum hefði íbúafjöldinn
nokkuð staðið í stað.
Sturlaugur sagði að atvinnu-
ástandið á Höfn væri gott og næg
atvinna. „Við erum þannig í sveit
sett, eins og einhver orðaði það, að
það er vertíð allan ársins hring. Það
er hin hefðbundna vetrarvertíð.
humar yfir sumartímann og síldin á
haustin. Þetta veldur því að hér er
tiltölulega gott jafnvægi í atvinnu-
rnálurn."
Sturlaugur var spurður að því
hvort einhver sérstök verkefni væru
fyrirhuguð á vegum bæjarfélagsins í
tilefni að kaupstaðaráfanganum.
„Framkvæmdaáætlun þessa árs ligg-
ur ekki fyrir en það má geta þess að
nú þegar við höfum lýst yfir þessari
bæjarnafnbót, þá ákváðum við að
veita 1.5 milljón króna til skógrækt-
arátaks. Þar af fer ein milljón til
Skógræktarfélags Austur-Skafta-
fellssýslu. Það hefur ríkt einhugur
um það að leggja fé í fegrun bæjarins
og má þar nefna gangstéttagerð og
Reykvíkingar
kvefsæknir
Samkvæmt skýrslum fimm lækna
og læknavaktarinnar s.f. virðist
byrjun jólaundirbúningsins hafa
lagst frekar illa í Reykvíkinga. í
nóvember 1988 leituðu samtals 681
til læknis vegna kvefs og annarra
veirusýkinga í efri loftvegum og 31
vegna lungnabólgu. Sex fengu háls-
bólgu og tveir einkirningasött.
Streitan virðist einnig hafa lagst á
meltingarfærin því 90 leituðu
lækninga við iðrakvefi. Þá stakk
inflúcnsa sér sömuleiðis niður en
hana fengu níu, að ógleymdri
hlaupabólunni sem lagði aðra níu í
rúmið og hettusótt tvo. jkb
lagningu bundins slitlags. Að auki
má nefna eitt stórverkefni sem við
erum mikið að velta fyrir okkur, en
það er að reisa nýjan vatnsmiðlunar-
tank.“
Aðspurður sagði Sturlaugur að
kaupstaðarréttindin breyttu ekki
miklu fyrir Höfn. Frekar mætti líta
á þau sem eðlilegan áfanga í byggða-
þróuninni sem markaði ákveðin
tímamót. Sturlaugur sagði jafn-
framt: „Þessi réttindi hafa litlar
praktískar afleiðingar í för með sér
og það er kannski rétt að geta þess
að samstarf okkar við nágrannasveit-
arfélögin mun ekki breytast, en það
hefur verið með eindæmum gott í
gegnum tíðina." SSH
Enn viröist allt óbreytt meö stöðu Arnarflugs:
Arnarflug í biðstöðu
Svo sem kunnugt er af fréttum
hefur ríkisstjómin að undanförnu
haft málefni Arnarflugs til um-
fjöllunar.
Að sögn Kristins Sigtryggssonar
forstjóra félagsins er verið að vinna
í málinu frá öllum hliðum, allar
leiðir koma enn til greina.
- Hver er afstaða hluthafa Arn-
arflugs til þeirrar hugmyndar að
Flugleiðir annaðhvort yfirtaki
reksturinn eða að öðrum kosti
komi inn í hann að einhverju leyti?
„Ég tel að skoðanir séu mjög
ákveðnar á því hér. Það er talið hið
versta mál að láta rekstur
fyrirtækisins enda á þann veg að
allir flutningar til og frá landinu
lendi á einni hendi. Þá erum við
ekkert endilega að tala eingöngu
um flutninga flugleiðis heldur ekki
síður sjó“.
- Áttu þar við eignarhlut Eim-
skipafélagsins í Flugleiðum?
„Já“.
- Sjáið þið einhverjar aðrar
leiðir út úr þessum ógöngum Arn-
arflugs en þær fjórar sem þegar
hafa verið nefndar?
„Að okkar mati er aðeins ein
þeirra leiða skynsamleg og það er
sameiginlegt átak hluthafanna og
ríkissjóðs til að rétta stöðuna við“.
- Hversu miklu hlutafé cru hlut-
hafar reiðubúnir að bæta í sjóði
félagsins?
„Það eru einhverjir tugir millj-
óna, en reyndar er enn verið að
vinna í þeim málum og skýrist
brátt hve háar fjárhæðir er um að
ræða. -áma.
Lögreglan framfylgdi helgidagalöggjöfinni meö höröu á nýársnótt:
Lokað á pylsusala
Ekki var liðinn nema hálftími af nýju ári þegar lögreglan í
miðborg Reykjavíkur þurfti að beita hörðu við lokun tveggja
pylsuvagna í Lækjargötu og á Lækjartorgi. Bannað er að
stunda sölu sem þessa án sérstaks leyfis á nýársdag, jóladag
og páskadag, samkvæmt helgidagalöggjöfinni.
Að sögn varðstjórans á Miðborg-
arstöð, Björns Sigurðssonar, voru
pylsusalarnir ekki fúsir til að hætta
sölunni og því þurfti að beita hörðu
við lokun vagna þeirra. Var annar
pylsusalinn færður á lögreglustöðina
þar sem lesið var yfir honum úr
helgidagalöggjöfinni, en sleppt að
því loknu. Mun hann hafa verið
tregari til samvinnu og var vagnhler-
unum lokað meðan hann gerði
árangurslausa tilraun til að smyrja á
síðustu pylsuna.
Talsverður fjöldi ungmenna heim-
sótti miðbæinn strax á þriðja tíma
hins nýja árs og var annríki hjá
miðborgarlögreglu fram yfir vakta-
skiptin á sjöunda tímanum. Að sögn
lögreglumanna er viðvera gangandi
fólks stöðugri og meiri í miðbænum
meðan matsala pylsumannanna er
opin. Því er það orðin vinnuregla
lögreglunnar að sjá til þess að pylsu-
vögnum sé lokað stundvíslega þegar
leyfistímanum lýkur. Á venjulegri
helgi er fylgst með því að pylsuvögn-
um sé lokað stundvíslega klukkan
fjögur á morgnana, enda veitir ekki
af þeim tíma sem eftir er til að rýma
miðbæinn vegna hreinsunarmanna
borgarinnar. KB