Tíminn - 04.01.1989, Síða 13

Tíminn - 04.01.1989, Síða 13
Miðvikudagur 4. janúar 1989 Tíminn 13 ÚTLÖND líííllli:; llllllli! Sovéskt herlið er nú á leið út úr Afganistan en Sovétmenn vilja þó tryggja að ekki taki við fjandsamleg ríkisstjórn í landinu. Því er Vorontsov fyrsti vararutanríkisráðherra Sovétríkjanna nú á leið til fundarhalda með skæruliðaforingj- um. Sovésk sendinefnd á leið til fundar við afganska skæruliðaforingja í Islamabad: Ræðir nýja ríkis- stjórn Afganistans Sovésk sendinefnd er nú á leið til Islamabad í Pakistan til að ræða við foringja afganskra skæruliða um hugsanlegt friðarsamkomulag í Afganistan. Það mun vera fyrsti aðstoðarut- anríkisráðherra Sovétríkjanna Yuli Vorontsov sem leiðir sovésku sendi- nefndina, svo greinilegt er að alvara ríkir hjá Sovétmönnum í viðræðun- um því sendinefndin er í Teheran þar sem rætt var við skæruliðaforing- ja sem hafa bækistöðvar sínar í íran. Nú er ljóst að Sovétmenn ná ekki að flytja allt herlið sitt heim frá Afganistan fyrir 15. febrúar eins og gert var ráð fyrir í samningum, meðal annars vegna aukins sóknar- þunga skæruliða í Afganistan eftir að brottflutningurinn hófst. Sovétmenn leggja áherslu á að ný ríkisstjórn í Afganistan verði mynd- uð á breiðum grundvelli og tryggt sé að hún verði ekki fjandsamleg Sov- étríkjunum, enda liggja landamæri Sovétríkjanna og Afganistans saman. Hefur Vorontsov meðal ann- ars rætt við Zahir Shah fyrrum konung Afganistans um aðild að ríkisstjórn, en honum var steypt af stóli árið 1973. Nokkrum skæruliða- hreyfingum líst þó illa á aðild hans að ríkisstjórn. Gert er ráð fyrir að Vrontsov dvelji tvo til þrjá daga í Islamabad og ræði meðal annars við Benazir Bhutto forsætisráðherra Pakistans og Sahabzada Yaqub Khan utanrík- isráðherra landsins. írakar vara írana viö aö stööva íröksk skip á Persaflóa: Gæti kostað átök á ný á Persaf lóa írakar segja að hætta sé á að íranar komi af stað nýjum átökum í Persaflóastríðinu ef þeir hyggjast stöðva og leita í írökskum farskipum sem leið eiga um flóann. Þetta kom fram í leiðara dagblaðsins Al- Thawra sem er málgagn hins ráðandi Baath flokks í írak. Þessi frétt kemur í kjölfar yfirlýs- ingar Mohammad Hossein Malekz- adegan yfirmanns íranska flotans á sunnudag þar sem hann áskilur írön- um allan rétt til þess að stöðva skip á Persaflóa og leita í þeim, þrátt fyrir vopnahléssamkomulagið frá 20. ágúst. Al-Thawra sagði að hverskyns afskipti írana af skipum tengdum írökum væri alvarlegt brot á vopna- hléssamkomulaginu og myndu lrak- ar mæta því af fullri hörku. Áður en vopnahlé komst á í Persaflóastríðinu stöðvuðu íranar iðulega skip á Persaflóa til að leita þar hugsanlegra hergagnasendinga til íraka. Þá stöðvuðu þeir breskt risaolíuflutningaskip á flóanum 12. desember, líklega fyrir misskilning. Þeir hafa þó látið skip íraka afskipta- laus. Höfrungar björguðu lífi ungs ástr- alsks siglingamanns í gær þegar þeir hröktu hákarla á brott frá skútu hans. Hákarlarnir höfðu ráðist á skútuna og rifið hluta úr síðunni þegar höfrungarnir komu á vettvang. Þegar hákarlarnir gerðu nýja árás á piltinn tóku höfrungarnir til sinna ráða og réðust að hákörlun- um sem sáu sinn kost vænstan að flýja af hólmi. Pilturinn komst síðan Deilur um rétt til siglinga um Shat al-Arab flóanna var einmitt kveikjan að Persaflóastríðinu á sínum tíma. við illan leik að landi á Ballinaströnd í Nýja Suður-Wales eftir nokkurra kílómetra sund. Hann liggur nú á sjúkrahúsi. Þess má geta að höfrungar, þessi fallegu, gáfuðu og yndislegu dýr eru drepin í tugþúsunda tali af banda- rískum túnfiskssjómönnum á vestur- strönd Bandaríkjanna. Kjöt dýr- anna er ekki nýtt af hvalelskandi Bandaríkj amönnum. Höfrungar bjarga áströlskum pilti Auglýsing frá ríkisskattstjóra VÍSITALA JÖFNUNAR- HLUTABRÉFA Samkvæmt ákvæðum 5. og 6. málsl. 1. mgr. 9. gr. laga nr. 75/1981 um tekju- og eignarskatt hefur ríkisskattstjóri reiknað út vísitölu almennrar verðhækkunar í sambandi við útgáfu jöfnunarhlutabréfa á árinu 1989 og er þá miðað við að vísitala 1.janúar1979 sé100. l.janúar!980 vísitala 156 1. janúar 1981 vísitala 247 l.janúarl982 vísitala 351 l.janúar!983vísitala 557 l.janúar!984vísitala 953 l.janúar!985vísitala 1.109 l.janúarl986vfsitala 1.527 l.janúarl987 vísitala 1.761 l.janúarl988 vísitala 2.192 l.janúar!989vísitala 2.629 Við útgáfu jöfnunarhlutabréfa skal annars vegar miða við vísitölu frá 1. janúar 1979 eða frá 1. janúar næsta árs eftir stofnun hlutafélags eða innborgun hlutafjár eftir þann tíma, en hins vegar við vísitölu 1. janúar þess árs sem útgáfa jöfnunarhlutabréfa er ákveðin. Reykjavík 2. janúar 1989 RSK RÍKISSKATTSTJÓRI Jólatrés- skemmtun Verzlunarmannafélag Reykjavíkur heldur jólatrés- skemmtun fyrir börn félagsmanna sunnudaginn 8. janúar kl. 15.00 á Hótel íslandi. Miðaverð fyrir börn kr. 400,- og fyrir fullorðna kr. 100,- Miðar eru seldir á skrifstofu V.R. Húsi verslunarinn- ar, 8. hæð. Upplýsingar í síma 687100. Verzlunarmannafélag Reykjavíkur. t Móðir okkar Theódóra Ó. Frederiksen sem lést 23. desember s.l. verður jarðsungin frá Dómkirkjunni í Reykjavík föstudaginn 6. janúar kl. 13.30. Þeir sem vildu minnast hennar láti öryrkjabandalag Islands njóta þess. F.h. vandamanna Guðrún S. Frederiksen Edward Frederiksen

x

Tíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.