Tíminn - 04.01.1989, Page 15
Miðvíkudagur 4. janúar 1989
Tíminn 15
MINNING
Emil Ásgeirsson
Fæddur 31. mars 1907
Dáinn 23. desember 1988
Fáir vissu að vorið beið
og vorið kemur að hugga
Hann Emil í Gröf er látinn. Hann
lést á Þorláksmessu -slokknaði út af
á þann hljóðláta og prúðmannlega
hátt sem einkenndi allt hans líf. Og
eftir stöndum við sem þóttum vænt
um hann og spyrjum hversvegna
svona fljótt? Hann átti svo mikið
eftir - hann gaf svo mikið með veru
sinni hérna hjá okkur. - Kannski
finnst einhverjum þetta ofmælt.
Maöur á áttugasta og öðru aldursári
eigi von á kallinu hvenær sem er.
Mikið rétt - en það er ekki santa
hver í hlut á. Það er ekki sama hvort
um er að ræða fársjúkt gamalmenni
eða mann eins og Emil sem átti enn
svo mikinn lífsþrótt, sem lifði lífinu
sjálfum sér og öðrum til ánægju.
Og þá er að reyna að sætta sig við
orðinn hlut og rísla sér við að raða
saman ljúfum og fallegum minning-
arbrotum um genginn vin.
Emil Ásgeirsson var fæddur í
Danmörku 31. mars 1907. Hann var
sonur Mörtu Eiríksdóttur og Ásgeirs
Sigurðssonar. Hann var ekki hjóna-
bandsbarn og fimrn ára gamall kem-
ur hann heim til íslands og dvelst
næstu þrjú ár hjá frændfólki suður á
Vatnsleysuströnd en átta ára gamall
er hann tekinn í fóstur af prestshjón-
unum í Hruna í Hrunamannahreppi
þeim séra Kjartani Helgasyni og frú
Sigríði Jóhannesdóttur. Emil sagði
mér frá þegar hann fluttist austur.
Hann fór með póstvagninum austur
í Flóa og „var einhver beðinn fyrir
mig þangað". Hann sagðist muna
eftir sér volandi sjálfsagt útaf ein-
hverjum einstæðingsskap eins og
hann orðaði það en niður í Flóa sótti
hann ríðandi einn prestssonurinn frá
Hruna. Og þá fór þessi átta ára
gamli snáði í fyrsta sinn á hestbak og
reið alla leið upp að Hruna mig
ntinnir að póstvagninn hafi gengið
að Bitru. Entil sagðist muna að hann
hefði ekki verið beysinn reiðmaður
og ferðin gengið hægt en pilturinn
var honum góður. Þetta er trúlega
6-8 tírna reið. Maður fær dálítinn
sting í hjartað þegar maður hugsar
um þetta ferðalag - ég vona innilega
að enginn sendi börn ein síns liðs í
slíka ferð nú á dögum. Entil ólst
síðan upp í Hruna í glöðum hópi
uppeldissystkina sinna á menningar-
og myndarheimili. Hann stundaði
það barnaskólanám sem þá tíðkaðist
og fór sem ungur maður í Bænda-
skólann á Hvanneyri. Aðra menntun
hlaut hann ekki en það er kannski
ekki málið í hvað ntarga skóla þú
gengur heldur hvernig þú nýtir þann
lærdóm sem þú hefur hlotið og þær
gáfur sem þú hefur fengið í vöggu-
gjöf. Og þetta hvorttveggja nýtti
Emil til hins ýtrasta. Hann var vel
gerður bæði andlega og líkamlega.
Emil í Gröf var ekki bara glæsimenni
á velli - hann var fallegur maður og
hann var góður og gáfaður maður.
Árið 1930 kvæntist hann eftirlif-
andi eiginkonu sinni, Eyrúnu Guð-
jónsdóttur frá Gröf í sömu sveit og
þau hófu búskap í Gröf og hafa búið
þar síðan og búa enn. Þau voru bæði
með skepnur og einnig mikla garð-
yrkju því jarðhiti er nægur í Grafar-
landi. Þeim varð fjögurra barna auð-
ið þau eru: Guðjón garðyrkjubóndi
í Laxárhlíð kvæntur Sigríði Guð-
mundsdóttur þau eiga fjögur börn,
Sigríður Marta lést barn að aldri,
Guðrún gift Guðmundi Pálssyni,
jarðýtustjóra, þau búa í Sunnuhlíð
og stunda einnig garðyrkju og eiga
þrjú börn, og yngst er Áshildur gift
Þorsteini Jónssyni, lögreglumanni
þau búa í Kópavogi og eiga tvo syni.
Tvö systkinanna reistu sér býli „í
túninu heima" og er þetta sérlega
samhent fjölskylda í alla staði. Barna-
börnin hafa þannig notið samvist-
anna við afa og ömmu - þau sém
ekki eru í túninu hafa komið á
sumrin.
Ég sem þessar línur rita hef í raun
frá Gröf
þekkt Emil frá því ég man eftir mér.
Hjónin í Gröf voru nágrannar for-
eldra ntinna, þegar við áttum heinta
að Flúðum í Hrunamannahreppi og
með þeint tókst góð vinátta þó
aldursmunur væri töluverður. Við
fluttum til Reykjavíkur haustið 1937
en 1941 þegar stríðið gcisaði úti í
hinurn stóra heimi var reynt að
koma sem flcstum Reykjavíkur-
börnum í sveit vegna hugsanlegrar
loftárásarhættu. Þá skrifaði mamma
hjónunum í Gröf og bað þau að taka
mig sumarlangt þá ellefu ára gantla.
Svar þeirra var jákvætt og þetta varð
upphafið að sjö sumra dvöl minni í
Gröf. Það má með sanni segja að
þau Grafafhjónin hafi aliö mig upp
sem barn og ungling að hálfu leyti.
Ég kom í sveitina í maíbyrjun og var
til septemberloka og eitt haustið
alveg fram í nóvember. - Ekki get
ég óskað neinu barni né unglingi
betra hlutskiptis en komast undir
handarjaðar jseirra hjóna og þar veit
ég að ég mæli fyrir munn þeirra
fjölmörgu, sem þar dvöldu sem börn
og unglingar. Dvöl mín hjá þeim
hjónum er og verður mér ógleyman-
leg og vinátta mín við þau og börn
þeirra hélt áfram þó sumardvöl lyki
og stendur óhögguð fram á þennan
dag.
Emil í Gröf var mikill og góður
húsbóndi og uppalandi. Hann skip-
aði aldrei heldur baö. Og þegar sagt
var: Ása mín, þú crt nú svo létt á
löppinni skrepptu nú og gerðu þetta
eða hitt - þá hljóp ég ekki - ég flaug.
- Minningarnar streyma fram - Emil
syngjandi á sláttuvélinni. - Emil að
spjalla við vagnhestana, kjassa þá og
þakka þeim velunnið verk - Emil að
kenna mér að leggja á aktygi og
spenna fyrir vagn eða að útbúa
okkur krakkana í sunnudagsreiðtúr-
inn - Emil að fara upp úr þurru með
kafla úr Pétri Gaut eða kvæðið eftir
Björnsterne um hana „Áshildi litlu
frá Úfi, sem erfði ekki silfur né gull"
og síðast cn ekki síst Emil að fara
með heilu blaðsíðurnar úr bókum
Kiljans allt utanbókar - ég held ég
kunni upphafið að Vefaranum mikla
frá Kasrnír síðan á þessum dögum.
Emil var svo víðlesinn og vel
heima í íslenskum bókmenntum að
það var unun að heyra hann ræða
um þær en Laxness dáði hann unt-
fram aðra rithöfunda og það var
áreiðanlega ekki algengt í þá daga
að íslenskur bóndi tæki ástfóstri við
ritverk hans. Emil og Rúna leið-
beindu mér við lestur góðra bóka -
mér var ekki bannað að lesa reyfara
heldur leidd í allan sannleika um
gæði bókanna í bókaskápnum í stof-
unni og líka var mér leiðbeint með
gott og hreint málfar - það má segja
að uppeldi þeirra hélt áfram í anda
foreldra minna.
Emil og Rúna eru svo nátengd í
huga mínum að annað verður ekki
nefnt nema nafn hins fylgi með.
Emil var ákaflega vel ritfær maður,
tilskrif hans um Hrunamannahrepp-
inn í Sunnlenskum byggðum finnst
mér bera af í þeirri bók að öðrum
ólöstuðum. Þá var hann höfundur
afmælisrits sem út kom á hundrað
ára afmæli Búnaðarfélags Hruna-
mannahrepps sem var árið 1984.
Hann átti einnig létt með að slá á
léttari strengi - ntörg ár skrifuðust
þeir á faðir minn og hann og kenndi
þar örugglega ýmissa skemmtileg-
heita, þá samdi hann leikþætti og
gamanvísur. Sjálfur var hann góður
leikari og tók á yngri árum mikinn
þátt í leikstarfsemi og annarri félags-
starfsemi í hreppnum. Enn man ég
cftir þegar Hrunamcnn léku Lén-
harð fógeta og ég smástelpa sem átti
heima á Flúðum fékk að fara í
leikhúsið. Þar lék Emil Eystein
Brandsson í Mörk. í mínum huga
var hann ekki Emil í Gröf heldur
glæsimennið Eysteinn í grænum
flauelisfötum með fjaðrahatt. Engin
leiksýning hefur orðið mér eins
minnisstæð.
Emil var formaður Ungmennafé-
lags Hrunamanna um margra ára
skeið og ég man enn bragðið af
sítróninu, sem hann gaf okkur syst-
kinunum, þegar hann kom og var að
taka til í samkomusalnum á Flúðum
eftir skemmtanir. Þannig var Eniil.
Hugsunarsemi við börn og þá sem
minna máttu sín var honum í blóð
borin. Á næsta bæ við Gröf í
Hvammi bjuggu Helgi Kjartansson
frá Hruna, uppeldisbróðir Emils og
Elín Guðjónsdóttir frá Gröf, systir
Rúnu. Eins og gefur að skilja var
mikill og góður samgangur milli
bæjanna og áttum við krakkarnir
þar margar gleöistundir saman. Eitt
sumarið var ákveðið að fara í mikla
skemmtiferð - fara langar leiðir í
berjamó. Tilhlökkunin var mikil en
þegar sá sæli sunnudagur rann upp
sem fara skyldi ferðina var ég lasin
og varð að hírast heima í rúmi.
Vonbrigðunum er ekki hægt að lýsa.
Við Entil vorum ein heima þennan
dag og hann, sem aldrei vann nein
eldhúsverk hitaði handa ntér kakó
og færði mér ásamt nýrri bók að
lesa. Vonbrigðin hurfu eins og dögg
fyrir sólu en ég hejd að hann hafi
ekki þótt ganga neitt afskaplega vel
um eldhúsið.
Á efri árum sínum tók Emil að sér
að mæla út jarðabætur hjá bændum
í Árnes- og Rangárvallasýslu. Á
þessum ferðum sínum rakst hann á
ýmsa gamla búshluti sent ýmist lágu
umhirðulausir eða fólkið vissi ekki
hvað það átti að gera við. Þetta varð
til þess að Ernil fór að safna þessum
gömlu hlutum og nú er í Gröf
merkilegt safn gamalla hluta og
verkfæra, sem er ómetanlegt ekki
einungis fyrir sveitina hans heldur
alla sem vilja halda til haga minning-
um unt liðna tímann. Þá gerði hann
einnig upp gamlar heyvinnuvélar og
önnur landbúnaðartæki og töluvert
þessara hluta mátti sjá á landbúnað-
arsýningunni í Reiðhöllinni 1987.
Og þar var Emil líka sjálfur að sýna
þetta allt því hann safnaði ekki bara
hlutunum heldur vissi allt um notkun
þeirra og kunni oft sögur tengdar
þeint.
Og nú er komið aö leiðarlokum.
Og svo margt er ósagt. En minning-
arnar geymast í hugskotinu - þrædd-
ar upp eins og perlur á bandi -
dýrmætar og fallegar. Minningin um
Emil tengist ekki skuggum hins
dimma vetrar, sem nú ríkir heldur
vorbirtunni - vorinu sem kemur að
hugga eins og segir í ljóðlínum
uppáhaldsskáldsins hans, sem ég hóf
þessar línur með. Ég þakka hverja
þá stund sent ég var samvistum við
þennan góða fóstra minn.
Ég votta vinkonu minni, Rúnu í
Gröf, og vinum mínum börnum
þeirra hjóna og þeirra skylduliði
dýpstu samúð okkar hjónanna og
barna okkar. Megi minningin um
bjarta ævidaga góðs og göfugs manns
létta þeint söknuðinti.
Blessuð sé ntinning Emils Ásgeirs-
sonar.
Ásgerður Ingimarsdóttir.
Þegar mér bárust fréttir af andláti
Emils í Gröf setti að ntér djúpa
hryggð. Þó að árin væru orðin 81 átti
hann mikið eftir og margt að gefa
samferðamönnum sínum. Fjöldi af-
mælisdaga segir ekki allt um aldur
manna og þótt þeir væru orðnir svo
margir hjá Emil sáust þess engin
merki. Hann vann enn af fullum
krafti að áhugamálum sínum var
með margt í deiglunni og átti margt
eftir ógert.
Emil Ásgeirsson var fæddur 31.
mars 1907 sonur Mörtu Eiríksdóttur
og Ásgeirs Sigurðssonar konsúls.
Ungur kom hann aö Hruna og ólst
upp hjá séra Kjartani Hclgasyni og
Sigríði Jóhannesdóttur konu hans.
Emil varð búfræðingur frá Bænda-
skólanum á Hvanneyri 1926. Hann
kvæntist eftirlifandi konu sinni Ey-
rúnu Guðjónsdóttur frá Gröf 22.
júní 1930 og hófu þau búskap í Gröf
árið 1932. Eftirlifandi börn þeirra
eru: Guðjón f. 1932, garðyrkjubóndi
í Laxárhlíð. Hann er kvæntur Sigríði
Guðmundsdóttur og eiga þau 4
börn. Guðrún f. 1941 garðyrkju-
bóndi í Sunnuhlíð gift Guðntundi
Pálssyni og eiga þau 3 börn. Yngst
’ er Áshildur, búsett í Kópavogi, gift
Þorsteini Jónssyni og eiga þau tvo
syni. Allt er þetta fólk miklum
mannkostum búið. Dóttirin Sigríður
Marta f. 1936 dó í barnæsku árið
1943.
Emil bjó ásamt konu sinni í Gröf
í Hrunamannahreppi allar götur frá
1932. Búskapurinn var lengst af
blandaður, kýr, kindur og matvæla-
rækt. Emil var einn af brautryðjend-
um í garðyrkju hér á landi og fékkst
jafnt við útirækt og ræktun í gróður-
húsum. Var hann unt áraraðir í
stjórn Sölufélags garðyrkjumanna.
Segja má að hugur Emils hafi að
miklu leyti staðið ofar því brauðstriti
sem bústörfin lögðu honum á
herðar. Frá æskuárum var hann
ákaflega fróðleiksfús og bókelskur,
keypti margar góðar bækur. Bæk-
urnar voru ekki keyptar til að
skreyta hillur, heldur las hann þær
og drakk í sig efni þeirra bundið og
óbundið. Mikið kunni hann af ljóð-
um og lausu máli og fór gjarna mcð
utanbókar við störf sín, börnum
sínum, barnabörnum og samverka-
mönnunt til fróðleiks og skennntun-
ar.
Ernil var ekki aðeins þiggjandi á
sviði ritaðs máls. Þegar ráðist var í
gerð ritsins Sunnlenskar byggðir árið
1980 var leitað til Emils og skrifaði
hann 140 síðna kafla um Hruna-
mannahrepp í fyrstu bókina. Er
þessi bók vart minna notuð og lesin
í Hrunamannahreppi en símaskráin.
í tilefni af 100 ára afmæli Búnaðar-
félags Hrunamanna skrifaði Emil
bók um sögu félagsins sent gefin var
út af félaginu árið 1984. Fórst honunt
starf sagnfræðingsins afar vel úr
hendi og hefur bókin að geynta
stórmerkilegar heimildir unt at-
vinnusögu sveitarinnar.
Á æskudögum Emils var ung-
mennafélagshreyfingin í uppgangi
og tók Emil virkan þátt í starfsemi
Ungmennafélags Hrunamanna.
Einn liður í starfsemi ungmennafé-
lagsins var leiklist. Leiksýningar
smáar og stórar voru færðar upp af
ýmsum tilefnum. Á sviöi leiklistar-
innar bar bókmenntaáhugi Emils
ávöxt. Jafnframt því að vera einn
besti leikari sveitarinnar á sinni tíð
féll það í hans skaut að leikstýra
flestum þeint leikritum og leikþátt-
um sem færð voru upp. Lagði hann
fram krafta sína til þessarar starf-
semi af brennandi áhuga í áratugi.
Var þetta tímabil mikið blómaskeið
í sögu leiklistar í Hrunamanna-
hreppi.
Emil var síðar kallaöur aftur til
þessara starfa árið 1965 þegar hann
setti upp lciksýningu byggða á Ás-
Franihald á næstu síðu
Guðmundur Jónsson
Ökrum við Nesveg
Hinn 25. des. s.l. lést á Landspítal-
anum Guðmundur Jónsson eftir
stutta sjúkrahúslegu, á85. aldursári.
Jarðarför hefur farið fram í kyrrþey
að ósk hins látna.
Guðmundur er fæddur 6. mars
1904 á Háreksstöðum í Borgarfirði.
Foreldrar hans voru Jón Eyjólfsson
og Ragnhildur Þórðardóttir. Þau
hjónin, Jón og Ragnhildur, eignuð-
ust þrettán börn sem eru nú öll látin.
Guðmundur ólst upp í foreldrahús-
um fram að fermingu en þá réð hann
sig í vinnu að Síðumúla í Borgarfirði
hjá Andrési Eyjólfssyni og Ingi-
björgu Guðmundsdóttur. Vann
hann þar við landbúnaðarstörf og
var því lítið um menntun hjá Guð-
mundi þar sem menntun var aðeins
að fá í farskólum.
Árið 1928 urðu þáttaskil í lífi
Guðmundar þar sem hann kynntist
eftirlifandi konu sinni, Önriu G.
Bjarnadóttur, sem var þá kaupa-
kona í Síðumúla. Foreldrar hennar
voru Bjarni Sigurðsson og Valgerður
Jónsdóttir, ættuð frá Skagafirði.
Guðmundur og Anna voru gefin
saman 29. des. 1929.
Fyrstu hjúskaparár sín bjuggu þau
í Reykjavík og vann Guðmundur í
fyrstu hjá „Kol og salt" en flutti sig
síðan yfir til Pósts og sfma þar sem
hann vann við símalagnir. Vorið
1940, í byrjun stríðsins, fluttu þau
að Fjalli í Sæmundarhlíð, Skaga-
firði, og hófu búskap í sambýli við
Halldór Benediktsson. Þarsemjörð-
in var ekki næg fyrir tvær fjölskyldur
tóku þau jörðina Botnastaði í Svart-
árdal á leigu af Klemensi Guð-
mundssyni frá Bólstaðarhlíð. Dvald-
ist Klemens hjá þeim lengst af.
Seinustu árin er þau voru með
búskap voru þau einnig húsverðir í
samkomuhúsinu Húnaveri.
Árið 1960 brugðu þau búi og
. fluttust aftur til Reykjavíkur þar
sem þau fest kaup á íbúð, Ökrum
v/Nesveg. Hóf Guðmundursitt fyrra
starf hjá Símanum og vann hann þar
á meðan heilsan leyfði, eða til ársins
1980, 76 ára að aldri.
Guðmundur og Anna eignuðust
fjóra syni og eru þrír þeirra á lífi.
Elsti sonurinn, Öskar, sem var
prentari að iðn f. 1930, lést af
slysförum 1956. Bjarni Valgeir, bif-
vélavirki, f. 1934, Gunnlaugur, múr-
ari, f. 1942, og Jón Eyjólfur, húsa-
miður búsettur í Ástralíu, hafa allir
kvænst og eru barnabörnin 12 og
barnabarnabörnin 9.
Með Guðmundi er genginn góður
maður. Hann var jarðbundinn og í
sínum frítíma undi hann sér best við
lestur góðra bóka. Fyrir okkur, sem
fengum að kynnast honuni, verður
hann ímynd þrautseigju, heiðarleika
ogsamviskusemi. Hann varhlédræg-
ur maður en góður vinur vina sinna.
Ég kveð hér Guðmund tengdaföð-
ur minn með djúpum trega en í
þeirri vissu að hann eigi vísa góða
heimkomu hinumegin tjaldsins
mikla.
Far þú í friði,
friður Guðs þig blessi,
hafðu þökk fyrir allt og allt.
V.B.
María Sveinsdóttir