Tíminn - 21.01.1989, Síða 1

Tíminn - 21.01.1989, Síða 1
Skrifstofustjóri hundadagakóngsins Benedikt Gröndal eldri, skáld og assessor við landsyfirréttinn, var mæðustrá og varð oft leiksoppur grimmrá og neyðarlegra örlaga í fardögum árið 1811 leggur lítil lest frá lágreistum torfkofa við Nes hjá Seltjörn áleiðis inn í Reykjavík. Fremstur er teymdur hestur sem ber bókakoffort, er sótt hafa verið upp á hanabjálkann í sjálfu landlæknishúsinu, en hestar þar fyrir aftan ganga undir ýmsum fátæklegum búsmunum fyrrum íbúa kofans, sem hér er að flytja búferlum. Sjálfur rekur hann lestina á aftasta hestinum, dúðaður inn í voðir og skjólföt sem best hafa fundist, því heilsa hans er ekki upp á marga fiska. Andlitið er grannt og sett örum eftir bóluveiki og augun stara tómlega fram á veginn. Hann er orðinn krepptur af undanfarandi veikindum, og hold svo af honum dregið að það sér varla vott til kálfa á fótunum, sem ýmist er í hiti eða kuldi með lítt þolandi verkjum. Maður þessi lítur ekki um öxl. Hann saknar ekki vistar sinnar í Nesi. Þau þrettán ár sem hann hefur búið þar hefur hann ætíð vonast til að geta komist í burtu, en fátækt og andróður ýmissa manna bannað það. Svo hefur þá reynst sem hann bauð í grun er hann fyrir 20 árum kom til íslands á ný að entri námsvist í Kaupmannahöfn að gæfan mundi sýna sig honum kalda og óblíða og nornin ekki láta af hrekkjum sínum við hann, fyrr en hún springi af spotti, eins og hann hafði komist að orði í vísu um sjálfan sig. Þessi maður er Benedikt Jónsson, og kallar sig Gröndal. Benedikt Jónsson Gröndal var fæddur í Vogum við Mývatn þann 13. nóvember 1760. Faðir hans var Jón djákni og síðar prestur Þórarins- son í Vogum, en móðir Helga Tóm- asdóttir, ættuð úr Hörgárdal. Þau höfðu eignast sjö börn og var Bene- dikt yngstur. Hann ólst upp við þröngan hag hjá foreldrum sínum og var hafður til þess að sitja yfir fé á sumrum. í hjásetunni er honum gjarnt að láta hugann reika frá fénu, sem sjálfsagt hefur verið hið spakasta í grösugum lautum Vogalands, og hverfa á vit sagna frá vökustundum heima fyrir eða bóka sem hann hefur fengið mætur á. Hann er þegar ákveðinn í að verða skáld og yrkir rímur af Hrómundi Greipssyni. Hetjur og ævintýri eru honum hugstæðari en allt búskaparsýsl og það á eftir að verða þonum dýrkeypt um dagana. Stundirnar sem gefast til skáldskap- ariðkana verða líka færri en hann ætlar ungur í hjásetunni. En þegar árin Iíða sækja minningarnar um þessar sælu stundir að honum og sem ungur maður á Hafnarslóð nefn- ir hann sig eftir sveitinni fögru heima, dölunum og lautunum grænu, og kallar sig „Gröndal". Heim að Hólum Skjótt kom á daginn að Benedikt var vel fallin til náms og faðir hans fór snemma að segja honum til á bókina og fékk síðar aðstoðarpresti sínum þann starfa. Þegar hann var kominn nokkuð áleiðis í lærdómnum var hann sendur vestur að Reynistað til frænda síns, Halldórs Vídalíns, og þar naut hann kennslu eldri bróður síns, Halldórs, sem orðinn var stúdent. Á sumrum var hann í Nesstofa. Hér sat Benedikt Jónsson Gröndal uppi á hanabjálka við menntarit sín og beið skaða á heilsu sinni af kulda. kaupavinnu hjá Jóni lækni Péturs- syni í Viðvík og þar orti hann þessa vísu við slátt: „Betur greiða högg ég hlýt, hóli þeim af frosti kól, setur geisla sína hvít sól á miðjan Tindastól. “ Síðar orti hann kvæðið „Læknis- hróður" til Jóns læknis, þegar sá síðarnefndi hafði fengið prentaðan Bjarni Thorsteinsson, amtmaður, reyndist fóstra sínum hinn mesti drengur í raunum hans. bækling sinn um það landlæga kval- ræði, gigtina, á Hólum árið 1782. En haustið 1777 var hann tekinn í Hólaskóla og var þar í fjóra vetur. Var hinn hálærði skólameistari, Hálfdan Einarsson, aðalkennari hans, og virðist hann hafa haft miklar mætur á þessum gáfaða og námfúsa lærisveini sínum. Þá var enda farið mikið að bera á snjallri skáldskapargáfu hans og efalaust hefur hann ort ýmislegt á skólaárun- um, þótt nú sé fátt kunnugt af því. Margir lærisveina skólans urðu síðar þjóðkunnir menn, svo sem þeir Geir Vídalín, sfðar biskup og Sveinn Pálsson, síðar landlæknir. Einkum urðu kynnin við Geir mikils- verð fyrir Benedikt, en með þeim tókst innileg vinátta, sem entist með- an báðir þeir lifðu. Þá var og ætíð hið besta með þeim Sveini. Síðasta veturinn í skólanum, 1780-1781, var Benedikt efstur í efri bekk en annar Jón Oddsson, sem síðar gerðist prestur á Kvíabekk. Er það í minnum haft að á afmælisdegi konungs 1781, þann 29. janúar, var haldin hátíð í skólanum. Héldu þeir biskup, sem þá var Jón Teitsson, og Hálfdan skólameistari ræðu á latínu, en Benedikt og Jón Oddsson sína ræðuna hvor. Ræða Benedikts var á íslensku með Ijóðmælum dróttkvæð- um til konungsins, Friðriks krónprins, Friðriks erfðaprins, stift- amtmanns Thodals og Jóns biskups, en ræða Jóns var á latínu. Var sungið í kór á undan og eftir ræðu- hölduiium, efribekkingar á latínu, en neðri bekkingar á íslensku. Fékk Benedikt 3 ríkisdali í verðlaun fyrir sína ræðu, en Jón Oddsson 4 rfkis- dali og sést af því að meir hefur latínan verið metin en íslenskan. Vorið á eftir útskrifuðust ekki aðrir úr skólanum en Benedikt og Jón Oddsson. Fékk Benedikt ágætt stúdentsvottorð á latínu hjá skóla- meistara, þar sem honum er hælt fyrir „stillingu, siðprýði og lítillæti", einnig fyrir iðni, góðar gáfur, sér- staklega til skáldskapar og málsnilld- ar. Næsta ár og sumarið 1782 var hann í vist á Hólum hjá skólaráðs- manninum og jafnframt ritari skóla- meistara, sem þá gegndi biskups- embætti eftir sviplegt fráfall Jóns Teitssonar haustið 1781. En þá fór hann að Innrahólmi á Akranesi og var í tæp þrjú ár ritari hjá Ólafi Stefánssyni, amtmanni. Þarvar hon- um fengið ríflegt að starfa og það svo að hann gat lítt haldið við og aukið skólalærdóminn, sem á fannst er hann kom til Hafnar. En annars lét hann vel yfir vistinni og kvað amtmann hafa verið sér góðan. Veitti hann honum brottfararleyfi til siglingar og styrkti hann ríkulega með faraefni til ferðarinnar - en ekki er að sjá að hann hafi fengið hjá

x

Tíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.