Tíminn - 21.01.1989, Qupperneq 6

Tíminn - 21.01.1989, Qupperneq 6
16 HELGIN Laugardagur 21. janúar 1989 Konungur á valdi ástríðna sinna Barbara Villiers stjórnaði Eng- andi með kyntöfra sína að vopni Hún setti ráðherra af og seldi embætti gæðingum sínum. EIR TÍMAR komu á stjórn- arferli Karls konungs annars, Breta- konungs, er fólk tók að spyrja hver stjórnaði Englandi - hinn viðmóts- þýði en siðspillti konungur eða ást- kona hans, Barbara Villiers. Vald hennar yfir honum var takmarka- laust, ágirnd hennar óseðjandi og skaplyndið strítt. Öll landsstjórnin bar fingraför hinnar fögru Barböru, sem á flestum sviðum lét til sín taka. Clarendon lávarður, hinn merki kanslari konungs, sem henni tókst að bola frá völdum, fékk sig ekki til þess að taka sér nafn hennar í munn. Hann kallaði hana alltaf „þessi frú þarna“ ' - og dagbókaritarinn John Evelyn, sem hneykslaðist á siðferði hennar, kallaði hana „böl þjóðar vorrar“. Græðgi hennar varð aldrei fullnægt. Þegar Karl konungur hafði gefið henni allt sem í hans valdi stóð, lét hún greipar sópa um opinbera sjóði, svo hún gæti keypt sér fleiri hesta og eðalsteina. Hún hafði slík tök á yfirmanni fjárhirslunnar að hann fékk henni í hendur þúsundir punda, sem ætluð voru til hirðhalds- ins. Brátt varð það Ijóst að eina leiðin til þess að ná frama við hirðina var að koma sér í mjúkinn hjá hjákonunni - og gjalda henni vel fyrir. Konungurinn gerði hvað sem var í því skyni að reita hana ekki til reiði. Fádæma kyntöfrar Ekki er vitað hvar þau konungur hittust fyrst. En líklegt er að það hafi verið nokkru fyrir heimkomu hans úr útlegð á Spáni árið 1660, en þangað höfðu þau maður hennar farið að bjóða honum aðstoð við að endurheimta konungdóminn. Þá stóð Barbara á hátindi fegurðar sinnar, há og frábærlega fögur á vöxt með kolsvart hár og leiftrandi, dökkblá augu. Hún varð ástkona konungsins og hann sá ekki sólina fyrir henni. Talið var að þau tök sem hún hafði á honum ættu rætur að rekja til kunnáttu hennar í hvílu- brögðum, en Karl konungur annar var mikill nautnamaður. Þann eftirminnilega dag þegar Karl sneri heim úr útlegðinni (sem hann hafði verið í allt frá aftöku föður síns, Karls 1. 1646 ) við feiknaleg fagnaðarlæti Lundúnabúa- og dró sig í hlé um hríð til þess að njóta þess sem samtíma sagn- fræðingar kölluðu „ljúfa makræðis nýrrar upphefðar“, þá var það Bar- bara Villiers sem beið hans í kon- ungssænginni. Ætt hennar, Villiers ættin, hafði fætt af sér margar áhrifamestu hjá- konur Englandssögunnar, allt frá dögum innrásar Normanna. Þessar konur höfðu yljað bólið hjá mörgum konungi. Barbara fæddist árið 1641 í sókninni St. Margaret í West- minster. Faðir hennar, William Vil- liers, hafði barist með konungssinn- um í orrustunni við Edgehill, þegar dóttirin var aðeins þriggja ára, og dáið af sárum sínum. Móðir hennar hafði þá gifst frænda hans, fremur snauðum aðalsmanni, og ólst Bar- bara upp á sveitasetri hans án mikilla lífsþæginda. Mislukkað hjónaband En eftir að Barbara hafði 16 ára gömul flust til Lundúna, kom í Ijós hvað í henni bjó og hún komst í tygi við einn alræmdasta kvennabósa borgarinnar, hinn 23 ára gamla Chesterfield lávarð, sem átti að hafa sagt að hann skyldi sofa hjá hvað konu sem væri, ef hún ekki væri ijót eða gömul. Hann hafði yfirhöndina í kynnum þeirra Barböru og hún var iðulega viti sínu fjær af afbrýðisemi. Þessi reynsla varð til þess að hún hét að síðar skyldi hún sjálf hafa undir- tökin. Átján ára gömul giftist hún Roger Palmer, syni auðugs og virðulegs aðalsmanns í sveit. Palmer var gæf- lyndur maður og bókhneigður og virtist lítt hæfa Barböru. En hann var ástfanginn af henni og vildi kvænast og fjölskylda hennar var ráðahagnum meðmælt. Brúðkaupið var haldið 14. apríl 1659 og um leið og það var afstaðið fór Palmer með hana upp í sveit. Þar vonaðist hann til að geta Italdið henni frá freistingunum, en það fór á annan veg. Næstum ær af leiðind- um skrifaði hún hvert bréfið á fætur öðru til Chesterfields og laumaðist burt á fund hans þegar hún gat. Pessu lauk með því að jarlinn drap mann í einvígi og flúði til megin- landsins. Þar kvæntist hann annarri konu, Barböru til mikillar reiði. En ef Palmer datt í hug að áhyggj- ur hans væru á enda með brottför Chesterfields, þá vissi hann sannar- lega ekki hvað í vændum var. Eftir að kona hans eitt sinn hafði kynnst konunginum þá hætti hann að vera til hvað hana snerti - nema hvað hann lék hlutverk föður barns hennar. í fyrstu er að sjá sem hann hafi enga hugmynd haft um hvað á ferðum var. En er honum skyndilega hlotnaðist titillinn jarl af Castle- maine, nokkru eftir að fyrsta barn þeirra Barböru fæddist, varð hann að horfast í augu við sannleikann. Samúð almennings með Roger Palmer var einlæg. Hann hafði þjón- að Stúörtunum með prýði og öllum fannst hann fórnarlamb mikils órétt- lætis. Þótt hann lifði fram á elliár, þá tók hann aldrei sæti sitt í lávarða- deildinni né notaði hann titilinn nema örstöku sinnum. Karl velur sér drottningu Enginn vafi cr á að hjákona kon- ungsins var sú kona sem mestum Ijónra stafaði af við hirðina og er kom fram á árið 1662 voru völd hennar yfir konungi að aukast dag- lega. Hann borðaði með henni nær hvert kvöld, sást vart á almanna færi nema 1 fylgd með henni og lét mjög stjórnast af skoðunum hennar. Nær- vera hennar við hirðina olli spennu og óróleika. Hún var svo yfirlætisfull og frek að ýmsir æðstu aðalsmann- anna lögðu fæð á hana. Einkum gerði Clarendon kanslari sér vel Ijós áhrif hennar og reyndi að minnka þau eins og hann gat. Þá mátti minna sjá en alla þá skartgripi og demanta sem Barbara skartaði. En þegar öllu þessu fór sem hæst fram var henni komið niður á jörðina með uggvænlegum fréttum: Kon- ungur sagði henni að nú yrði hann að kvænast og gerði henni ljóst að þar með nrundi staða hennar breyt- ast all nokkuð. „Þetta mál mun heldur betur færa nefið á frú Castle- maine úr skorðum," skrifar Samuel Pepys í hinum frægu dagbókum sínum. (Pepys var þó mikill aðdá- andi hennar og segir sums staðar í dagbókum sínum, sem skrifaðar voru á leyniletri, frá lostafullum draumum sínum um hana.) Karl hélt nú til Portsmouth til móts við skip það sem flutti honum Katrínu af Bragansa í Portúgal, tilvonandi drottningu hans. Hann var dýrðlega búinn í pell og purpura og varð hálf undrandi er hann sá hve kauðalegt drottningarefnið var, svo og þjónustumeyjar hennar. Stúlkan var lágvaxin, hversdagleg og svört yfirlitum, ekkert lík þeim konum sem hann laðaðist að. En þetta var pólitískt brúðkaup og Karl var ekki verri maður en svo að hann gat vel metið þá kosti sem hún bjó yfir. Hann komst að því að hún var ljúflynd og guðhrædd og að það var gaman að tala við hana. Barbara treystir stöðu sína á ný Meðan konungshjónin héldu til Barbara Villiers. Með valdi kyntöfra sinna mátti segja að hún stjórnaði Englandi árum saman. Hampton Court með mikilli viðhöfn iðaði Barbara í skinninu. Hún var nú komin átta mánuði á leið og brátt fæddi hún dreng. Maður hennar hafði nýlega gerst kaþólskur og lét hann kaþólskan prest skíra barnið. Hann lék aðeins það hlutverk sem til var ætlast af honum. En þegar kona hans varð þessa áskynja, trylltist hún af bræði. Hún pakkaði niður föggum sínum og fór til bróður síns í Richmond og hét að koma aldrei undir þak Castlemains lávarðar framar. Með þessu sló hún tvær flugur í einu höggi - losnaði við mann sinn og fluttist nær konungi. Nokkra hríð eftir komu Katrínar lét Barbara sem minnst á sér kræla. En þá tók Karl upp á nokkru sem fyllti hirðina skelfingu. Honum rann til rifja að sjá þá ófríðu sveit þjón- ustumeyja sem Katrín hafði flutt með sér frá Portúgal. Þótti honum rétt að bæta í hóp þeirra nokkrum enskum fegurðarmeyjum í von um að drottning yrði fyrir áhrifum af smekkvísi þeirra og kurteisi. Bar- bara bað hann nú innilega um að mega verða ein þessara kvenna og yrði það opinber vottfesting tryggðar hennar gagnvart drottningu. Þegar Katrín sá nafn Barböru Castlemaine efst á listanum yfir væntanlegarþjónustumeyjar, þáleið yfir hana af skelfingu. Hún neitaði að láta þessa alræmdu konu koma fyrir sín augu, hvað þá meira. Móðir hennar hafði mælt svo fyrir að hún mætti ekki láta líðast að hún yrði nefnd á nafn í návist hennar. Kon- ungur lét undan og muldraði afsak- anir, en Barbara tók þá að ganga svo hart á hann að hann ákvað að reyna enn einu sinni. f þetta skipti leiddi hann Barböru inn til drottningarinn- ar, án þess að vara hana við, og bað að mega kynna hana fyrir henni. Þegar Katrín stóð nú augliti til auglitis við sjálfa óvættina, þá leið samstundis yfir hana og blóðið flæddi úr nösunum á henni. Hirð- fólkið þaut út og suður, skelfingu lostið. Clarendon, sem fram til þessa hafði stutt drottningu, var nú látinn setja henni úrslitakosti: Annað hvort skyldi hún sætta sig við lafði Castle- maine, eða þá að konungur teldi sér heimilt að eiga svo margar hjákonur sem hann vildi. Drottningin lét undan, þótt henni væri hér stórlega misboðið, en hún var farin að leggja ást á Karl, mann sinn. Og satt að segja olli þetta tímamótum í sam-

x

Tíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.