Tíminn - 21.01.1989, Blaðsíða 12

Tíminn - 21.01.1989, Blaðsíða 12
22 HELGIN Laugardagur 21. janúar 1989 I BETRI SÆTUM LXU LUi í föðurhlutverki Stjörnugjöf= ★★★★ Vice versa Aðalhlutverk: Judge Reinhold, Fred Sa- vage og Swoosie Kurts. Leikstjóri: Brian Gilbert. Þetta er fyrsta flokks grínmynd. Skemmtileg hugmynd er vel útfærð og stórkostlegur leikur gerir þessa mynd að einhverri skemmtilegustu grínmynd sem undirritaður hefur séð. Judge Reinhold (Beverly Hills Cop) leikur aðstoðarforstjóra í stóru fyrirtæki og er gríðarlegt vinnuálag á honum. Hann hefur því lítinn tíma fyrir son sem býr hjá fyrrunt eiginkonu hans. Þó haga örlögin því svo að þeir feðgar skipta um líkama. Sem nærri má geta breytist nú samband þeirra feðga og ellefu ára drengur er skyndilega kominn í líkama full- orðins manns og öfugt. Fred Savage, sem .leikur soninn, er hreint út sagt stórkostlegur í hlutverki sínu. Sama verður að segia um Judge Reinhold. Otrúlegar flækjur eru settar á svið í myndinni. Aðstoðarforstjór- innn í líkama ellefu ára drengs þarf að fara í skólann og verður þar að sitja og standa eins og kennarinn vill. Á sama tíma stendur sonurinn í erfiðum viðskiptasamningum fyr- ir hönd fyrirtækisins. Drengurinn sér strax kosti við þetta ástand, en sama verður ekki sagt um föðurinn, sérstaklega þar sem hann stendur í ströngu á ástarsviðinu og er í þann veg að fara að biðja sér konu. Sonurinn sleppur við vorprófin og tekur pabbi gamli þau öllsömul og fær A í öllu. En um síðir koma upp aðstæður þar sem þeir feðgar ráða ekki við atburðarásina og leita þeir því gamals Lama prests og biðja hann um hjálp til að komast í eigin líkama. Þetta er mynd sem þú vilt ekki missa af. -ES Just when he was ready for mid Ijfe crisis, something unexpected came up. Puberty. „TOPP TUTTUGU“ vikuna 11.01-18.01 1989 1. ( 3) Suspect (J.B. Heildsala 2. (12) BabyBoom (Steinar) 3. ( 1) Þrírmenn og barn (Bergvík) 4. ( 4) Shakedown (Skífan) 5. ( 2) Ramboo3 (J.B. Heildsala) 6. ( 6) ThePrincipal (J.B. Heildsala) 7. ( 5) Surrender (Myndbox) 8. ( 8) Batteriesnotlncluded (Laugarásbíó) 9. ( 7) Bestseller (Skífan) 10. ( 9) The Unthouchables (Háskólabíó) 11. ( 7) Stakeout (Bergvík) 12. (10) Someonetowatchoverme (Skífan) 13. (14) Síðasti keisarinn (Myndbox) 14. (11) Nuts (Steinar) 15. (19) Helloagain (Bergvík) 16. (15) Hotel Colonial (Skífan) 17. (20) Hellhole (Skífan) 18. (17) Caribe (J.B. Heildsala) 19. ( - ) CasualSex (Laugarásbíó) 20. (-) Insect (Myndform) ( -) Táknar að viðkomandi myndband (titill) er nýtt á list- anum. Gardens of stone Garður steinanna Aðalhlutverk: James Caan, Anjelica Huston, James Earl Jones, D.B. Sweeney, Dean Stockwell og Mary Stuart Masters- son. Leikstjóri og höfundur handrits: Francis Coppola. Coppola bregst ekki í þessari mynd frekar en venjulega. Hann fjallar hér um Víetnamstríðið, en nálgast viðfangsefnið á öðruvfsi og Stjörnugjöf: ★★★ 1/2 nýstárlegan hátt. Við fylgjumst með þeim hermönnum er biðu heima og ættingjum dátanna. Það var fólk sem ekki gat gert annað en beðið og vonað. Myndin er vel leikin og sérstak- lega komast þau James Caan og Anjelica Huston vel frá hlutverk- um sínum. James Caan leikur liðs- foringja sem hefur barist víða og á sér þá ósk heitasta að þjálfa her- menn fyrir stríðsátök í Víetnam. Hann er færður í Heiðursvarðliðið, sem hefur m.a. með jarðarfarir stríðshetja og gæslu á forsetanum að gera. Nálægð stríðsins og hið mikla mannfall sem varð í Víetnam hefur djúp áhrif á liðsforingjann, 1968 TWASAOANGEROUSTIME TO BE YOUNG. ANIMPOSSIBLETIME TOBEAHERO. þrátt fyrir að skrápurinn hafi harðnað gegnum árin. Unnusta liðforingjans er töfr- andi fallegur blaðamaður Was- hington Post. Hún er á annarri skoðun en liðsforinginn og berst hatrammri baráttu gegn stríðs- brölti Bandaríkjamanna í Víet- nam. Hér er á ferðinni sérstök mynd, sem allir þeir hafa gott af að sjá, sem reglulega leigja sér stríðs- myndir á vídeóleigum. Við kynn- umst nefnilega hinni hliðinni á stríðsbröltinu. Sorginni, þjáning- unum og nagandi óttanum um ástvini. Mynd sem ég gefóhikað þrjárog hálfa stjörnu og enn hefur Coppola sannað sig sem mikilvirkan leik- stjóra og handritahöfund. -ES BÆKUR 1111 veiðin ’88 Höfundar Gunnar Bender og Guðmundur Guðjónsson Ein af jólabókunum var „Stangaveiðin 1988“ sem þeir fé- lagar og veiðimenn Gunnar Bend- er og Guðmundur Guðjónsson skrifuðu. Þar getur að líta saman- tekt frá síðastliðnu sumri yfir helstu atburði í veiðiskapnum. Báðir skrifa höfundar um veiðimál fyrir blöð og eru því vel heima í öllu því er snertir veiðiskap, og draga upp skýra mynd af veiði og atburðum er hafa átt sér stað í kringum sportið. Þeir félagar Gunnar og Guð- mundur hafa báðir skrifað veiði- bækur og geta því ekki talist ný- græðingar á þessu sviði. Hinsvegar bera vinnubrögð þeirra vott um þröngsýni og greinilegt að þeir komast ekki út fyrir túnfótinn. Svo virðist á þessari bók að einungis tveir fjölmiðlar geri stangaveiði skil og er sífellt vitnað í DV og Morgunblað. Undirritaður veit hinsvegar betur og ættu þeir félagar að hafa það í huga síðar. Höfundar gefa fyrirheit um frek- ari útgáfu á þessu sviði og gefa í skyn að um nokkurs konar árbók geti orðið að ræða. Framtakið er vissulega gott og verður að segjast eins og er að afskaplega þægilegt er að geta á einum stað gengið að öllum helstu upplýsingum varðandi veiðisumarið 1988. Bókin er hin læsilegasta þar sem hæfilegu magni af veiðisögum er blandað saman við upplýsingarnar. Aðalsmerki bókarinnar er fjöldi mynda, bæði svarthvítra og í lit, sem höfundar og fjölmargir aðrir hafa tekið. Ekki er hægt að segja skilið við bókina Stangaveiðin 1988 án þess að minnast sérstaklega á umfjöllun um tilbúnar veiðiár. Þykir undirrit- uðum sem þar sé á ferðinni ómak- leg umfjöllun og hefðu þeir félagar betur vitnað í umfjöllun Tímans í því sambandi. Ef á heildina er litið er hér á ferðinni heilsteypt samantekt frá síðastliðnu veiðisumri og telja má víst að veiðimenn muni árlega líta á útkomu bókar þessarar sem rús- ínuna í pylsuendanum að loknu veiðisumri. -Eggert Skúlason Höfundar með bókina Stangaveiðin 1988

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.