Tíminn - 28.02.1989, Blaðsíða 5
Þriðjudagur 28. febrúar 1989
Tíminn 5
Formenn innan ASÍ:
Samþykkt að hafa
víðtækt samflot
Formenn félaga innan ASÍ hafa sarnþykkt að hafa samflot
í komandi kjarasamningum við ríkisstjórn og atvinnurekend-
ur. Einnig er komin fram sameiginleg áhersla á nokkur
Ivkilatriði. Þessi sömu grundvallaratriði eru að ná aftur þeim
kaupmætti sem bestur varð eftir kjarasamninga í fyrra og
tryggja kaupmátt t.d. með rauðum strikum.
Einnigerlögðsameiginlegáhersla Ásmundur Stefánsson, formaður
á nokkur félagsleg atriði, sem varða Alþýðusambands íslands, sagði í
lífeyrismál, veikindarétt og að viðtali við Tímann í gær að það væri
tryggja að hægt verði að flytja með
sér áunnin réttindi þegar skipt er um
vinnu. Auk þess ber einnig á vilja til
að herða á um aðgerðir í atvinnumál-
um, sem lúti bæði að því að tryggja
atvinnu til skamms tíma og að tryggt
verði öflugt atvinnulíf í framtíðinni.
komin fram greinileg sameiginleg
áhersla á þessi atriði. Þetta hafi
komið fram í miðstjórn ASÍ og hjá
flestum félögum innan sambandsins.
„Það er alveg greinilega orðinn til
sameiginlegur grundvöllur í nokkr-
um málum og tel ég líklegt að það
eigi eftir að koma betur fram á
næstunni," sagði Ásmundur.
Samþykktin um samflotið felur í
sér að formenn landssambanda og
svæðissambanda myndi sameigin-
lega viðræðunefnd til að ræða bæði
við ríkisstjórn og atvinnurekendur.
Þessari viðræðunefnd er ætlað að
starfa út frá hugmyndum miðstjórn-
ar samkvæmt þeirri stefnumörkun
sem fram hefur komið og enn er að
mótast. Einnig er nefndinni ætlað að
leita eftir samstarfi við BSRB og
önnur heildarsamtök launafólks
varðandi viðræður við stjórnvöld.
KB
„Byssumaður" j I
í Geirsbúð
Þrennt í gæsluvaröhald:
Umtalsvert
kókaínsmygl
Tvær konur og einn karl hafa verið úrskurðuð í
gæsluvarðhald vegna gruns um að hafa smyglað umtals-
verðu magni af kókaíni inn til landsins frá Bandaríkjunum,
fyrir ekki löngu síðan.
Að svo komnu máli er ekki hægt
að segja til um hversu mikið magn
er að ræða, en þetta mál mun vera
með stærri kókaínsmyglmálum
sem upp hefur komist um hér á
landi.
Á sl. fimmtudag var kona úr-
skurðuð i 10 daga gæsluvarðhald
og á laugardag var önnur kona
úrskurðuð í 10 daga varðhald og
karl í 20 daga gæsluvaröhald í
tengslum við þessa rannsókn. Þau
hafa ekki áður komið við sögu
lögreglunnar vegna slíkra mála.
Að sögn Arnars Jenssonar hjá
fíkniefnadeild Reykjavíkurlög-
reglunnar var málið að hluta til
unnið í samvinnu við rannsóknar-
lögregluna á Akureyri og lögregl-
una á Húsavík, en einn af þeim
sem tengist málinu er búsettur í
Mývatnssveit, en hitt fólkið í
Reykjavík. Enginn reyndist beint
tengdur málinu á Akureyri, en
verið er að afla upplýsinga og
yfirheyra vitni. Amar vildi ekki
segja hvort fleiri væm grunaðir í
málinu.
Kókaínmálið sem upp komst
fyrir skömmu er alveg ótengt þessu
máli. Kókaínið sem þá var reynt að
smygla var um 50 grömm og kom
einnig frá Bandaríkjunum. Það
smyglmál sem nú er til rannsóknar
er ívið stærra. -ABÓ
Gestum veitingastaðarins Geirs-
búð við Vesturgötu brá í brún á
föstudagskvöld þegar maður
nokkur, sem var á staðnum, tók upp
byssu og fór að hlaða hana.
„Það var um miðnætti, sem maður
kemur inn á veitingastaðinn, dregur
upp byssu og fer að hlaða hana,“
sagði einn sjónarvotta í samtali við
Tímann. Sjónarvotturinn sagði að
þegar fólkið tók eftir því hvað mað-
urinn var að gera, hafi það hægt og
rólega komið sér í skjól undir
borðum. Einn gestanna tók hins
vegar undir sig stökk og náði að slá
byssuna úr hendi mannsins og halda
honum þar til lögreglan kom á
staðinn.
Að sögn lögreglunnar var maður-
inn með plastbyssu, sem hægt er að
hlaða með plastskotum, þó svo að
ekki sé hægt að skjóta úr henni. Úr
fjarska er eins og um alvöru byssu sé
að ræða. Að sögn lögreglu er þó-
nokkuð um slíkar leikfangabyssur
hér á landi, sem líta alveg eins út og
alvöru skammbyssur.
Maðurinn var færður til yfir-
heyrslu hjá lögreglunni, en fátt var
um svör vegna athæfisins. Hann má
eiga von á að þurfa að mæta fyrir
dómi. -ABÓ
ÁTVR að Stuðlahálsi:
Verður húsnæðið
nefnt „Heiðrún"?
Samkvæmt heimildum Tímans
hafa forsvarsmenn Áfengis- og tó-
baksverslunarinnar mikinn hug á
að nefna hið nýja húsnæði verslun-
arinnar á Stuðlahálsi „Heiðrúnu".
{ þessu húsnæði verða skrifstofur
fyrirtækisins og sérverslun þar sem
lögð verður áhersla á sölu bjórs og
léttra vína. { húsinu við hliðina eru
nú þegar vörugeymsla og verk-
smiðja.
Ástæða þess að menn eru svo
hrifnir af Heiðrúnar-nafninu er sú,
að í goðafræðinni var Heiðrún
geitin sem mjólkaði mjöðinn fyrir
einherjana í Valhöll, úr spenum
hennar rann semsagt mjöðurinn.
Nafnið þykir því mjög viðeigandi.
Menn hafa þó ekki verið lengi að
snúa út úr nafninu og vilja frekar
kalla húsnæðið „Heiðríki“.
Enn hefur ekki verið tekin
endanleg ákvörðun um þetta þvt
heitiö Heiðrún er til á firmaskrá,
þar sem heildverslun í Reykjavík
ber þetta nafn. Forsvarsmenn
ÁTVR hafa leitað til eigenda heild-
verslunarinnar um að fá að nota
þetta nafn en þcir hafa enn ekki
gefið svar. Hvort þessi hugmynd
kemst til framkvæmda er þvf enn
óráðið. SSH
F.v. læknarnir Þorvarður Veigar Guðmundsson, Árni Björnsson, Helgi Kristbjörnsson og Ástráður B. Hreiðarsson
á fundi með blaðamönnum í gær. Tímamynd: pjetur
Læknaráö Landspítalans meö áhyggjur af áhrifum niöurskuröar:
Þjónustan, gæðin
og afköst minnka
Á Landspítalanum hafa nú þegar verið gerðar ráðstafanir
til að ná fram 1,5% af þeim 4% niðurskurði á launalið
ríkisstofnana sem var boðaður í fjárlögum. Lokanir deilda
samsvara því að á almennu hjúkrunarsviði verða 6% af
heildarfjölda rúmanna lokuð allt árið, eða á bilinu 60 til 70
rúm.
Hvað lokanir á geðhjúkrunarsviðt
varðar þá verða 7,5% rúmanna lok-
uð miðað við þann niðurskurð sem
nú þegar hefur farið fram. Viss hluti
þessara lokana er vegna sumarleyfa
en mestur hluti þeirra er vegna
skertra fjárveitinga, samkvæmt því
sem kemur fram hjá læknaráði
Landspítalans. Þess má geta að tvö-
þúsund manns eru nú á biðlista til að
komast að á handlækninga- og bækl-
unardeildum Landspítalans.
„Við teljum það skyldu okkar að
láta fólk vita á hverju það á von...“
sagði Árni Björnsson formaður
læknaráðs um tilefni fundar sem
ráðið hélt með blaðamönnum í gær.
Á fundinum voru kynnt áhrif þess
niðurskurðar sem boðaður hefur
verið á launalið ríkisins, samtals
4%. Sem fyrr segir hefur nú þegar
einungis verið náð fram 1,5% sparn-
aði hjá Landspítalanum, enn er eftir
að finna 2,5% til að skera niður til
Víöa snjóaöi samfellt frá föstudegi til sunnudags:
124 sm jaf nfallinn snjór á Hornbjargi
Mikið snjóaði á norðan- og austanverðu landinu um helgina og
tepptust flestir vegir, allt frá Borgarnesi og austur á firði, af þeim
sökum. Mesti jafnfallni snjór sem mældist í gærmorgun var á
Hornbjargsvita 124 sm en víða á Norðurlandi og Vestfjörðum hafa
jafnfallin snjóalög mælst um 70 sm samkvæmt upplýsingum sem
fengust hjá Veðurstofunni.
Á Árskógssandi við Eyjafjörð
hafði snjór hlaðist upp undir húsþak
á sumum húsanna og í sumum
tilfella voru loftnet bílanna einu
sjáanlegu ummerki ökutækjanna í
snjónum, að sögn Konráðs Sigurðs-
sonar á Árskógssandi. Hann sagði
að ekki hefði kyngt eins miklum snjó
niður á svo skömmum tíma, síðan
1978 til 1979.
Veðurhorfur eru þær að draga fer
úr snjókomu í nótt og fyrramálið,
fyrst vestan til á landinu og má búast
við að úrkomulaust verði á Vest-
fjörðum um miðjan dag í dag og á
morgun má búast við að úrkoma
verði gengin yfir aðra landshluta.
Samkvæmt upplýsingum sem
fengust hjá vegaeftirlitinu, þá er
færðin í kringum Reykjavík þokka-
leg. Þegar komið er vestur fyrir
Borgarnes er ófært vestur á Mýrar
og um sunnanvert Snæfellsnesið.
Rúta sem lagði af stað frá Vegamót-
um til Borgarness um klukkan þrjú
í gær hafði aðeins komist um þrjá
kílómetra á tveim tímum. Norðan-
vert Snæfellsnesið var mokað í gær,
frá Hellissandi inn að Heydalsvegi.
Að öðru leyti eru allir vegir á nesinu
ófærir auk þess sem ófært er vestur
í Dali um Heydal.
Norðurárdalurinn er ófær og
sömuleiðis um Strandir og vestur til
ísafjarðar. Allir vegir á Vestfjörðum
eru ófærir að öðru leyti en því að rutt
var milli ísafjarðar og Bolungarvík-
ur í gær. Þá er ófært til Siglufjarðar
frá Skagafirði og ófært er um Öxna-
dalsheiði. í gær var reynt að moka
Víkurskarð og út á Dalvík en síðdeg-
is í gær hafði það ekki tekist, þar sem
vegurinn lokaðist jafnóðum, vegna
skafrennings. Frá Húsavík að Þórs-
höfn er ágætis færð, en á Vopnafirði
var vonsku veður í gær og ekki reynt
að ryðja. Austur á Héraði var síð-
degis stórhríð og flestir ef ekki allir
vegir lokaðir, að sögn vegaeftirlits-
manna.
Á Suðurlandi er færðin ágæt að
Mýrdalssandi undanskildum og
Hellisheiðin er enn lokuð. Þar er
jafnfallinn snjór á veginum orðinn
um 70 til 80 sm. - ABÓ
viðbótar og er nú unnið að því.
Almennur fundur í læknaráði
Landspítalans og Rannsóknastofu
Háskólans hefur lýst alvarlegum
áhyggjum af því hvaða áhrif sparn-
aðaraðgerðir ríkisstjórnarinnar
koma til með að hafa á heilbrigðis-
þjónustu í landinu. Ráðstafanirnar
hljóti að leiða til þess að draga verði
úr þjónustu, annað hvort með því að
leggja niður ákveðna þætti eða
minnka afköst og gæði.
í gréinargerð sem læknaráðið hef-
ur sent frá sér segir m.a. að sam-
kvæmt útreikningum frá Þjóðhags-
stofnun þá eru útgjöld til heilbrigðis-
mála hér á landi 6,7% af vergum
þjóðartekjum sem er lægra hlutfall
en hjá flestum nágrannaþjóðum
okkar. Þá segir ennfremur að þó
hugsanlega megi spara í einstökum
þáttum þjónustunnar og verja fjár-
magni öðruvísi, þá sé augljóst að
heildar niðurskurður hljóti að leiða
til verri þjónustu. Ráðstafanir af
þessu tagi merki ekki bara stöðnun,
heldur afturför í þjónustu við sjúka
og aldraða á Islandi og sé ósannað
að slíkt leiði til sparnaðar þegar til
lengri tíma sé litið.
Læknaráðið er einnig óánægt með.
að í sparnaðarráðstöfunum ríkis-
stjórnarinnar er ekki tekið tillit til
þess hvers konar þjónustu ríkisstofn-
anirnar veita. Landspítalinn hefur
verið rekinn innan ramma fjárlag-
anna á undanförnum árum og iðu-
lega þurft að skera niður til að ná því
takmarki. Læknaráðið lýsir yfir
óánægju með að þær ríkisstofnanir
sem hafa starfað innan fjárveitinga á
undanförnum árum þurfa að skera
jafnmikið niður og þær stofnanir
sem hafa farið fram úr fjárveiting-
um, og finnst ráðinu það slæm og
ranglát stjórnunaraðferð. SSH