Tíminn - 28.02.1989, Blaðsíða 10

Tíminn - 28.02.1989, Blaðsíða 10
10 Tíminn Þriðjudagur 28. febrúar 1989 Þriðjudagur 28. febrúar 1989 Tíminn 11 lllllllllllllllllllllllllll] ÍÞRÓTTIR lllllllllllllllllllllllllllllllllillllllllllllllllllllllllll^ ÍÞRÓTTIR llllllllllllllll ITT lítasjórrvarp er Qárfesting ív-þýskum ga2ðumcg fallegum ITTfitum miiii FRAMKVÆMDASJÓÐUR ÍSLANDS auglýsir til sölu fasteignina Breiðumörk lc, Hveragerði, öðru nafni Hótel Örk Hótelið var byggt árið 1986. Stærð hússins er um 5.200 fermetrar á fjórum hæðum og stærð leigulóðar er » um 17.000 fermetrar. í hótelinu eru 59 tveggja manna herbergi og 5 veitingasalir fyrir allt að 500 gesti. Heilsuræktaraðstaða er í byggingunni og fullkomin útisundlaug. Frekari upplýsingar eru veittar hjá Framkvæmdasjóði íslands, Rauðarárstíg 25, sími 624070, og hjá Hróbjarti Jónatanssyni hdl., Skeifunni 17, Reykjavík, sfmi 688733. SÉRSTAKUR KYNNINGARAFSLÁTTUR FYRIR ÞÁ ER BÓKA FYRIR 1. APRÍL Handknattleikur - ísland varð í fyrsta sæti í B-keppninni í handknattleik eftir sigur á Pólverjum í frábærum úrslitaleik 29-26 ísland er á ný komið í hóp A-þjóða í handknattleik eftir frækna framgöngu í B-keppninni í handknattleik í Frakk- landi. Árangur liðsins í keppninni var vonum framar, það hafa áreiðanlega fáir reiknað með því að gull yrði í farangri liðsins á leiðinni heim, því menn voru frekar svartsýnir á útkomuna. Úrslitaleikurinn sjálfur var hreint stórkostlegur. íslenska liðið sýndi allar sínar bestu hliðar og þrátt fyrir að leikmenn yrðu að fara meiddir af leikvelli gat ekkert stöðvað fram- göngu íslensku víkinganna. Kristján Arason gerði fyrsta mark leiksins og Sigurður Sveinsson bætti öðru við úr vítakasti. Pólverjar minnkuðu muninn en Alfreð Gísla- son bætti þriðja markinu við með þrumuskoti. Pólska liðið náði að svara fyrir sig með einu marki, en næstu tvö mörk voru íslensk. Þar voru þeir á ferðinni Bjarki Sigurðs- son og Þorgils Óttar Mathiesen fyrir- liði. Staðan orðin 5-2 fyrir ísland og þessi góða byrjun var fyrirboði um það sem í vændum var. Bogdan Venta skoraði þriðja mark Pólverja, en Alfreð bætti við því sjötta fyrir ísland. Tvö mörk Pólverja breyttu stöðunni í 6-5, en þá kom mjög góður leikkafli hjá íslenska liðinu sem gerði þá fjögur mörk í röð. Fimm marka forysta íslands 10-5, en áður en hálfleikur- inn var úti höfðu Pólverjar náð að minnka muninn í 2 mörk, 15-13. íslenska liðið hóf síðari hálfleik eins og það hóf þann fyrri og munur- inn var orðinn fjögur mörk, 19-15, fyrr en varði. Stuttu síðar var staðan 21-17, en á næstu mínútum gerðu Pólverjar fimm mörk gegn tveimur og minnkuðu þar með muninn í eitt mark 22-22. Jöfnunarmarkið kom sem betur fer ekki og með mörkum þeirra Bjarka, Sigga Sveins. úr víti og Þorgils Óttars, var munurinn á ný orðinn fjögur mörk 28-24. Mark Þorgils Óttars verður lengi í minnum haft. Sigurður Gunnarsson var mað- urinn á bak við það, en hann gaf frábæra sendingu aftur fyrir bak á Þorgils, sem skoraði af öryggi. Spennan var mikil á lokamínútun- um og leikmenn beggja liða gerðu sig seka um klaufaskap í öllum látunum. Pólverjar náðu að skora ■ ■ Holland ORLOFSÞORPIÐ LOOHORST - KÆRKOMIN NÝJUNG! Orlofsparadísin í Loohorst hefur svo sannarlega hlotiö góðar undirtektir. Hér er um að ræða kærkomna nýjung fyrir þá er vilja dvelja í fyrsta flokks orlofsþorpi þar sem allur aðbúnaður er til fyrirmyndar og nóg um að vera fyrir alla fjölskylduna. Glæsilegt yfirbyggt sundlaugarsvæði með margs konar þjónustu, inni- og útisundiaugum og vatnsrennibrautum. Alls 500 falleg og vel búin hús sem henta sérlega vel stórum fjölskyldum. Af nógu er að taka í íþróttum; keilubrautir, golf, tennis, badminton og veggjatennis ásamt fjölda spilasala og annarra leiktækja. Sérstakt hús fyrir yngstu börnin þar sem er leikið og föndrað undir umsjón þjálfaðs starfsfólks. Og síðast en ekki síst góðir veitingastaðir og skemmtistaðir. Islenskur fararstjóri. BÓNUSTILBOÐ SÖGU Allir er dvelja í Loohorst í apríl, maí og júní fá FRÍAN bílaleigubíl fyrstu vikuna ef tveir fullorðnir eða fleiri eru saman. FERÐASKRIFSTOFAN SUÐURGÖTU 7 SÍMI624040 tvívegis, en Alfreð Gíslason gerði 29. og síðasta mark íslands og gull- tryggði sigur okkar manna í leikn- um, 29-26. Allir leikmenn íslenska liðsins eiga hrós skilið fyrir frábæran úrslita- leik. Leikurinn var mikil skemmtun fyrir áhorfendur, sem vel flestir voru á bandi íslendinga. Bercy-höllin, sem leikið var í og tekur um 15 þúsund áhorfendur, var nær full af fólki, en áætlað er að liðlega 10 þúsund manns hafi verið á leiknum. Islenski hópurinn sem í voru um 400 manns lét vel í sér heyra og fékk enn fleiri á sitt band. Ekki var sigurinn þó áfallalaus. Einar Þorvarðarson meiddist á hné í fyrri hálfleik og útlit er fyrir að liðbönd hafi rifnað. Einar þarf því að öllum lfkindum að fara í aðgerð og óvíst er hvort hann geti leikið meira með Val á þessu keppnistíma- bili. Guðmundur Hrafnkelsson lék út leikinn og varði á köflum ágæt- lega. Guðmundur Guðmundsson meiddist einnig og varð að fara af leikvelli, en Jakob Sigurðsson kom í hans stað og lék mjög vel, eins og hann gerði reyndar í allri keppninni. Alfreð Gíslason lék mjög vel í leiknum og var að mótinu loknu valinn besti leikmaður keppninnar. Kristján Arason hefur sjaldan leikið betur én í þessum leik og Sigurður Gunnarsson var einnig mjög góður. Þorgils Óttar var mjög öruggur á línunni og Sigurður Sveinsson af- greiddi vítaköstin af stakri snilld. Hornamennirnir Bjarki og Jakob léku einnig mjög vel. Mörk íslenska liðsins gerðu: Al- freð Gíslason 7, Kristján Arason 6, Þorgils Óttar Mathiesen 5, Sigurður Sveinsson 4/4, Bjarki Sigurðsson 4, Sigurður Gunnarsson 2 og Jakob Sigurðsson 1. - BL Éásfeíaafaá Kristján Arason átti stórleik í úrslitaleiknum gegn Pólverjum. Hér er eitt glæsimarkið í leiknum í uppsiglingu. V-Þýskaland féll í C-hóp V-Þýskaland er nú eftir B-keppn- ina í Frakklandi komið í hóp C-þjóða í handknattleik. Ótrúlegt en satt. Liðið sem flestir bjuggust við að yrði í fremstu röð í B-keppninni er komið í C-keppnina, þar sem „þróunar- lönd“ á handknattleikssviðinu leiða saman hesta sína. Þar sem Danir unnu V-þjóðverja í úrslitaleiknum um 7. sætið, 30-24, er röð efstu þjóða í B-keppninni þessi: 1. ísland 2. Pólland 3. Rúmenía 4. Spánn 5. Frakkland 6. Sviss 7. Danmörk 8. V-Þýskaland BL VANNSTU NUNA? TIL HAMINGJU! Þetta eru tölurnar sem upp komu 25. febrúar. Heildarvinningsupphæð var kr. 4.828.641,- 1. vinningur var kr. 2.223.253,- Einn var með fimm tölur réttar. Bónusvinningur (fjórar tölur + bónustala) var kr. 386.036,- skiptist á 4 vinningshafa og fær hver.þeirra kr. 96.509,- Fjórar tölur réttar, kr. 665.856,-, skiptast á 136 vinningshafa, kr. 4.896,- á mann. Þrjár tölur réttar kr. 1.553.496,- skiptast á 3.963 vinningshafa, kr. 392,- á mann. Sölustaðirnir eru opnir frá mánudegi til laugardags og loka ekki fyrr en 15 mínútum fyrir útdrátt. BÓNUSTALA Árangur! Að lokinni B-heimsmeistarakeppninni í handknattleik í Frakklandi, þar sem íslenska liðið náði þeim glæsilega árangri að vinna gullverðlaunin, er ekki úr vegi að h'ta um öxi. Margt var rætt og ritað eftir slæmt gengi íslenska landsliðsins á Ólympíuleikanum í Seoul. Undirritáður tók þátt í þeirri umrxðu og benti á að of miklar kröfur hefðu verið gerðar til liðsins og leikmenn hefðu verið gerðir að hálfguðum í auglýsingaskyni fyrir leikana. Fallið í Seoui var hátt, þvi hátt var stefnt. Fyrir B-keppnina í Frakklandi nú var nokkuð annað hljóð og öllu raunhæfara, í forráðamönnum HSf. Stefnan var sett á að ísland næði að endurheimta sæti sitt í A-kcppninni, þ.e.a.s. að liðið næði einu af 6 efstu sætunum í B-keppninni. Takmarkinu var náð og gott betur. ísiand varð í 1. sæti ■ keppninni og landsliðið vann sinn fyrsta sigur á stórmóti. Þessi árangur cr sérlega ánægjulegur þegar haft er í huga að menn voru almennt frekar svartsýnir fyrir keppnina. Árangurinn í B-keppninni er einhver sá glæsilegasti sem ísienskt flokka- íþróttalið hefur náð. Það má ekki setja of mikia pressu á menn með of miklum kröfum. Það er gleðilegt að sjá að menn hafa lært af mistökunum í Seoul. Breytingar voru gerðar á undirbúningi og leik liðsins, brcytingar til batnaðar og það er merki um að góður þjálfari hafi haldið um stjórnvölinn. fslcnska landsliðið stcndur nú á tímamótum. Margir leikmenn hafa lýst því yfir að þeir séu að velta fyrir sér að hætta að leika með iandsiiðinu og er það miður. Þó er engin ástæða til þess að örvænta. Það sýndi sig í B-kcppninni í Frakklandi að breiddin í liðinu er mikil og maður kemur í manns stað. Þá er Ijóst að Bogdan landsliðsþjálfari hefur stjómað landsliðinu í síðasta sinn. Hann skilur við liðið í toppnum, en undanfarin ár hefur hann byggt liðið upp og komið þvi þangað sem það er nú. Sex ár er nokkuð langur timj fyrir lið að hafa sama þjálfara, en á þessum tímamótum nú er færi á að breyta til. Forráðamenn HSf vita þó að betri og traustari mann fá þcir vart til starfans cn einmitt Bogdan Kovvalczyk. Til hamingju strákar og Bogdan. Björn Leósson íþróttafréttamaður

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.