Tíminn - 28.02.1989, Síða 13

Tíminn - 28.02.1989, Síða 13
Þriðjudagur 28. febrúar 1989 Tíminn 13 íllllllllllllllll ÚTLÖND llllllllllllilllllllllllllllllililliilll^ JohnTowervarnarmálaráðherraefni George Bush forseta Bandaríkjanna: Flaskan fær f rí John Tower lofar því að koma ekki nálægt flöskunni ef öldungadeild Bandaríkja- þings staðfestir val George Bush á honum sem varnar- málaráðherra Bandaríkj- anna. Varnarmálanefnd öldungadeildarinnar ákvað að mæla ekki með Tower sem varnarmálaráðherra vegna sögusagna um að hann ætti við áfengisvandamál að stríða og væri helst um of upp á kvenhöndina. -Ég lýsi því yfir að ég hef aldrei verið áfengissjúklingur né er ég háður brennivíni, sagði Tower í sjónvarpsviðtali eftir að varnarmála- nefndin hafnaði honum. -Þrátt fvrir það og til að koma í John Tower ætlar að gefa flöskunni frí verði hann varnarmálaráðherra. Hér er hann með vini sínum George Bush. veg fyrir óþarfa áhyggjur í þessu máli, þá sver ég hér með að ef ég verð útnefndur, þá mun ég ekki á meðan ég gegni embætti varnar- málaráðherra bragða áfengisdropa af neinu tagi, hvorki sterk vín, léttvín né bjór, sagði Tower keikur. Þegar Tower var spurður unt kvennafar sitt sagði hann: -Ég er piparsveinn. Ég á stefnu- mót við konur. Ég hef verið einn á kreiki í þrjú og hálft ár... en kvenna- far er spurning um mat. Hver er þín skilgreining á kvennafari? Öldungadeild Bandaríkjaþings mun greiða atkvæði um hæfni Tow- ers á miðvikudag. í varnarmála- nefndinni greiddu hinir ellefu demó- kratar atkvæði gegn Tower en níu repúblikanar greiddu atkvæði með honum. Bush forseti hefur lagt allt sitt undir til að Tower hljóti staðfest- ingu þingsins sem varnarmálaráð- herra. Ef það á að takast verða að minnsta kosti fimm demókratar að greiða Tower atkvæði sitt. Bush segist þess fullviss að svo verði. Sænsk stjórnvöld styggja: Hyggjastbanna „Utvarp íslam" og gyðinglegar sláturaðferðir Ríkissaksóknarinn í Svíþjóð hefur stefnt íslamskri útvarpsstöð í landinu fyrir rétt og sakað forráða- menn hennar um að kynda undir gyðingahatur. Á sama tíma hyggj- ast Svíar banna slátrun á dýrum eftir trúarlögmálum gyðinga þrátt fyrir hávær mótmæli leiðtoga gyð- inga. Það var ríkissaksóknarinn Hans Stark sem birti langan lista yfir það sem hann kallaði andgyðinglegan áróður í dagskrá „Útvarp Islam" sem sendir út íslamskt efni á Stokk- hólmssvæðinu. Fór hann fram á að útvarpsstöðinni yrði lokað. Eitt atriði sem útvarpsmenn á „Útvarp íslam“ hafa látið frá sér fara og er nefnt í málskjölum er eftirfarandi setning: -Hver er grunnurinn í menningu og trú gyðinga? Jú, brask og prettir. Hvað er guð gyðinga? Jú, peningar. Útvarpsstjórinn Ahmed Rami vísar því á bug að „Útvarp íslam“ sé andgyðinglegt, en sagði: -Við gagnrýnum gyðingdóm og síonisma og afleiðingar hans og við tökum ákveðna afstöðu í Palest- ínumálinu. En hvað slátrun dýra varðar, þá eru leiðtogar gyðinga í Svfþjóð æfir út í stjórnvöld vegna banns við slátrunaraðferðum gyðinga. -Þetta er gróf aðför að trúar- brögðum gyðinga, segir Morton Narrowe talsmaður gyðingasam- félagsins í Svíþjóð. -Við hyggjumst berjast gegn þessu. Við teljum þetta vera glæp- samlega ákvörðun. Svfar bönnuðu gyðinglega slátr- un á nautgripum og sauðfé árið 1937, en leyfðu þær sláturaðferðir á svínum. Segir Narrowe að lög- gjöfin frá því 1937 hafi verið sett vegna áhrifa frá nasistum. ísraelarog Egyptarganga frá sjö ára deilumáli: Egyptar fá Tabaströnd fsaelar og Egyptar undirrituðu á sunnudag samkomulag um Taba, en Taba er 700 metra Iöng strandlengja Rauðahafsins á landamærum ísraels og Egyptalands sem ríkin hafa deilt um í sjö ár. Alþjóðadómstóllinn í Haag úrskurðaði fyrir nokkru að landræman tilheyrði Egyptalandi, en ísraelar sem hafa haldið henni frá því í sjö daga stríðinu vitdu ekki sleppa henni fyrr en nú þrátt fyrir samkomulagið í Camp David árið 1972. Samkvæmt samkomulagi ísraela og Egypta munu Egyptar fá yfirráð yfir strandlengjunni. Égyptar munu hins vegar greiða eigendum hótela þeirra sem Israelar hafa byggt upp á ströndinni undanfarin ár rúmar 37 milljón dollara fyrir mannvirkin, en eigendur munu fá að reka hótelin næstu tuttugu árin. Þá munu Egyptar greiða ísraelum um það bil milljarð dollara fyrir ströndina. fsraelskir ferðamenn munu ekki þurfa vegabréfsáritun til að komast til Taba heldur þurfa þeir einungis að sýna vegabréf sín. Þá mun ísra- elskur gjaldmiðill verða gjaldgengur til jafns við egypskan. Sprengja springur í bókasafni breska ræðismannsins í Karachi: Söngvar Satanskosta mannslíf Sprengja sprakk í bókasafni bresku ræðismannsskrifstofunnar í Karachi á sunnudag og lést pakist- anskur vörður í sprengingunni. Talið er líklegt að strangtrúaðir múslímar hafi komið sprengjunni fyrir til að mótmæla bók breska rithöfundarins Salman Rushdie, „Söngvar Satans“. Lögreglan í Karachi hefur aukið mjög öryggisgæslu við skrifstofur ræðismanna Bretlands og Banda- ríkjanna vegna þessa máls. Pakistanar hafa bannað þessa merku bók sem múslímar margir hverjir telja grófa móðgun við Islam og Múhameð spámann. Sex manns létu lífið í mótmælum gegn bókinni í Islamabad höfuð- borg Pakistans fyrir hálfum mán- uði. Borgnesingar - Nærsveitir Spilum félagsvist í samkomuhúsinu í Borgarnesi föstudaginn 3. mars kl. 20.30. Allir velkomnir, mætum vel og stundvíslega. Framsóknarfélag Borgarness. Reykjanes Skrifstofa Kjördæmissambandsins að Hamraborg 5, Kópavogi er opin á mánudögum og miðvikudögum kl. 17 til 19. Sími 43222. K.F.R. Framsókn í sveitarstjórnarmálum Landssamband framsóknarkvenna boðar til funda með sveitarstjórn- arkonum og öðrum áhugakonum um sveitarstjórnarmál í öllum kjördæmum landsins, helgarnar 3.-5. og 17.-19. mars n.k. Fundarstaðir nánar tilkynntir síðar. Framkvæmda- og landsstjórn LFK. l-i Vll'4 I - i ri nnr Jón Helgason Guðni Ágústsson Unnur Stefansdottir alþingism. alþlngismaður varaþingmaður Rangæingar Árlegir stjórnmálafundir og viðtalstímar þingmanna Framsóknar- flokksins verða haldnir á eftirtöldum stöðum: 1. Heimalandi, Vestur-Eyjafjallahreppi, mánudaginn 27. febr. kl. 21. 2. Gunnarshólma, Austur-Landeyjahreppi, þriðjud. 28. febr. kl. 21. 3. Hlíðarenda, Hvolsvelli, fimmtud. 2. mars kl. 21. Vestu r-Skaftf ei I i ngar 1. Leikskálum, Vík, föstudaginn.3. mars kl. 21. 2. Kirkjuhvoli, Kirkjubæjarklaustri, laugardaginn 4. mars kl. 14. Magnús Drífa Keflavík - Fjárhagsáætlun Framsóknarfélögin í Keflavík boða til fundar þriðjudaginn 28. febrúar n.k. kl. 20.45, að Austurgötu 26. Dagskrá: 1. Fjárhagsáætlun Keflavíkurbæjar. Fr.ummælendur: Magnús Haraldsson og Drífa Sigfús- dóttir, bæjarfulltrúar. 2. Önnur mál. Allir velkomnir - Kaffiveitingar. Framsóknarfélögin í Keflavík. Vesturland - Formannafundur Fundur formanna framsóknarfélaganna á Vesturlandi verður haldinn í Hótel Borgarnesi laugardaginn 11. mars n.k. kl. 13.00. Guðmundur Ragnheíður Sigurður Guðmundur Bjarnason heilbrigðisráðherra, Ragnheiður Sveinbjörns- dóttir og Sigurður Geirdal koma á fundinn. Sjá nánar í fundarboði til félaganna. Kjördæmissambandið. Austur-Skaftfellingar: Aðalfundur Aðalfundur Framsóknarfélagsins verður haldinn í húsi Skinneyjar hf., föstudaginn 3. mars kl. 20.00. Fundarefni: 1. Venjuleg aðalfundarstörf. 2. Húsnæöismál. 3. Önnur mál. Stjórn Framsóknarfélagsins. Kópavogur Skrifstofan í Hamraborg 5 er opin þriðjudaga og miðvikudaga kl. 9-13. Sími 41590. Heitt á könnunni. Opið hús alla miðvikudaga kl.17-19. Félagsmenn eru hvattir til að líta inn og taka með sér gesti. Eflum flokksstarfið. Framsóknarfélögin í Kópavogi. Fjölmiðlanámskeið SUF Fyrsta fjölmiðlanámskeið SUF og kjördæmissambandanna hefst laugardaginn 11. mars kl. 10 í Nóatúni 21, Reykjavík. Framkvæmdastjórn SUF

x

Tíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.