Tíminn - 12.04.1989, Qupperneq 7

Tíminn - 12.04.1989, Qupperneq 7
Miðvikudagur 12. apríl 1989 Tíminn 7 Vatnsbóla leitað á Reynisvatnsheiði fyrir Reykjavík: Heiðin virkjuð til að fyrirbyggja vatnsskort í sumar hefur Vatnsveita Reykjavíkur athuganir á mögu- legri vatnsöflun á Reynisvatnsheidi. Á fundi stjórnar veitustofnana fyrir helgi var samþykkt að verja 32 milljónum, sem ætlaðar höfðu verið til lagna í Miklubraut, til borana á Reynisvatnsheiði. Þeim vatnsbólum er ætlað að taka við hlutverki Bullaugna sem hætt verður að nota innan tveggja til þriggja ára. Bullaugu eru við upptök Grafar- lækjarins í miðjum golfvellinum í Grafarvogi. Þegar þau voru tekin í notkun var gert ráð fyrir að þau myndu nýtast sem skammtímavatns- ból, til tíu eða fimmtán ára. „Það var vitað að hætta yrði vinnslu neyslu- vatns úr þeim þegar byggð færðist til austurs. En á sínum tíma voru þau mjög góð vegna byggðarinnar í Breiðholti og efst í Árbænum," sagði Þöroddur Sigurðsson vatns- veitustjóri í samtali við Tímann. Gert er ráð fyrir að notkun vatns- bólsins verði hætt eftir tvö til þrjú ár. Upphaflega voru tvær dælur við Bullaugu en nú er aðeins önnur þeirra notuð. Hún dælir um sextíu iitrum á sekúndu en í Heiðmörk er dælt um þúsund til ellefu hundruð lítrum á sekúndu, og jafnvel meira. Fyrir fjórum til fimm árum var vatnstaka úr Gvendarbrunnum lögð af. Þeir eru opin vatnsból sem hætt er við mengun sökum foks, írennsli og fleiru. I stað þess hefur verið borað annars staðar í Heiðmörkinni og sama vatn og ella rynni í Gvend- arbrunna tekið neðanjarðar, tvö hundruð metrum ofar. Vatnið er einnig tekið á tveimur stöðum öðr- um neðanjarðar í Heiðmörk, á um þriggja kílómetra svæði. Nokkuð hefur verið rætt um mengun í Bullaugum vegna áburðar á golfvöllinn í Grafarvogi. „Ef borið er saman vatn frá Bullaugum og Heiðmörk kemur í ljós að magn köfnunarefnis er meira í vatni frá fyrrnefnda vatnsbólinu. Það er engu að síður langt fyrir neðan leyfileg hámörk sem sett eru í öllum neyslu- Finnist vatn í „Heiðinni“ getur það orðið til að tryggja áframhaldandi rennsli úr krönum borgarbúa. vatnsstöðlum. Einnighöfum viðorð- ið vör við nokkra hækkun á blý- magni, miðað við það sem er í Heiðmörkinni, vegna skotsvæð- anna. En það er líka langt fyrir neðan leyfileg hámörk allra staðla. Meginástæðan er hve Heiðmerkur- vatnið ersnautt af þessum efnum, að örlítill munur kemur fram við mæl- ingar,“ sagði Þóroddur. Reynisvatnsheiði liggur milli Reynisvatns að norðvestan, Langa- vatns að austan, Úlfarsáar að norðan og Hólmsheiði og Grafarheiði að sunnan og suðvestan. Þar verður borað liðlega tveimur kílómetrum fyrir austan Bullaugu, í sama grunn- vatnsstrauminn. Þær boranir verða það fjarri byggð að gert er ráð fyrir að vatnsbólið geti nýst til nokkuð langs tíma. „Væntanlega munum við fara með lögn til norð-austur- svæða borgarinnar. En vatnsnotkun þar hefur aukist gífurlega á síðari árum. Þetta kemur til með að létta á Heiðmörkinni og kemur ákaflega vel inn í dreifikerfið," sagði Þórodd- ur. Að öllum líkindum munu þó líða ein þrjú ár þar til nýting vatnsbóla á Reynisvatnsheiði hefst. Á þessu ári verða hafnar athuganir. Þegar vitað er hve mikið svæðið getur gefið og hvar vænlegast er að taka vatnið hefst hönnun mannvirkja og virkjun. „Við höfum gert grunnvatnskort af svæðinu en erum ekki komin með vatnsgæfni einstakra borhola." Heildarkostnaður við fram- kvæmdina liggur ekki fyrir ennþá. En hann kemur til með að fara nokkuð eftir því hvernig til tekst með prófanir, fjölda borhola, dýpt þeirra og fleira. Til að byrja með verður 32 milljónum veitt í verkið en þær voru eins og áður sagði ætlaðar til lagna í Miklubraut. „Þar höfðum við ætlað okkur að Ijúka við átta hundruð millimetra æð sem byrjar rétt vestan við Elliðaár- brýrnar og liggur austur að Grens- ásvegi," sagði Þóroddur. Þessari æð var ætlað að koma í stað gamalla æða í Sogaveginum. Frestunin kem- ur þó ekki að sök því að í sumar verður lokið við vatnslögn meðfram Suðurlandsbraut, vestur að aðalæð í Kringlumýrarbraut. Þessar æðar vinna saman og þar til fyrrnefnda æðin verður lögð annar sú síðar- nefnda hlutverki hennar. jkb Sr. Þórir Stephensen yfirheyröur í sakadómi í máli ríkissaksóknara gegn Halli Magnússyni blaðamanni: —Hryllilegt að vera sagður skinheilagur „Verjandi vill spyrja vitnið hvort í reglum frímúrara séu ákvæði þess efnis að félagar sýni samstöðu hver með öðrum á siðferðislegan eða annan hátt. Vitnið svarar því á þann veg að ekkert sé í reglum frímúrara sem verndi vitnið (Þóri) -innskot bl.manns- ef talið sé að það geri rangt. Þar verði það sjálft að koma fram með eigin verðleikum eða ágöllum." Þetta er bókun sem gerð var í Sakadómi Reykjavíkur í gær en þá var sr. Þórir Stephensen yfirheyrður sem vitni í máli ríkissaksóknara gegn Halli Magnússyni blaðamanni fyrir það sem ríkissaksóknari telur meiðandi ummæli um athafnir sr. Þóris í Viðey og birtust í grein Halls í Tímanum sl. sumar. Sr. Þórir var yfirheyrður sem vitni í málinu og lagði verjandi Halls Magnússonar, Ragnar Aðalsteins- son hæstaréttarlögmaður, fram ný gögn í málinu - umfjöllun frétta- tímaritsins Þjóðlífs um málið, en þar er viðtal við m.a. Þóri sjálfan og Hall Magnússon. Sr. Þórir var spurður út í aðdrag- anda að ráðningu hans sem staðar- haldara og kvaðst hann hafa byrjað störf 1. maí 1988 en tekið formlega við starfinu 18. ágúst. Tímann þarna í milli hefði hann notað til að setja sig inn í hið nýja starf, sýnt ferða- mannahópum eyjuna og skrifað kynningarbækling. Hann sagðist hafa setið fundi Viðeyjarnefndar þegar ákveðið var að hefjast handa við lagfæringar á kirkjugarðinum. Hann hefði ekki haft atkvæðisrétt á þessum fundum enda starfsmaður nefndarinnar. Eftir að ákveðið hafði verið að lagfæra kirkjugarðinn hefði verið birt auglýsing í Lögbirtingablaðinu og síðan verið haldnir fundir með þeim aðilum sem aðstandendur áttu grafna í garðinum og gefið höfðu sig fram eftir að auglýsingin hafði birst. Sr. Þórir sagði að ættingjar Gunnars Gunnarssonar hefðu ekki verið þar á meðal. Dómari fór síðan yfir hin kærðu ummæli Halls Magnússonar sem birtust í grein í Tímanum sl. sumar. Þórir sagðist una því afar illa að vera af Halli kallaður skinheilagur og sagði það hryllilegt fyrir prest að vera kallaður svo, en það þýddi sama og hræsnari. Þá væri það rangt að hann léti flokkapólitík ráða gerð- um sínum í starfi. Hann las síðan prestsvígsluheitið sem hann sagðist hafa játast undir hjá Ásmundi Guðmundssyni biskupi þar sem segir: „Nú brýni ég alvarlega fyrir þér að predika Guðs orð hreint og ómengað eins og það er að finna í hinum spámannlegu og postullegu ritum og samkvæmt vitnisburði vorrar evang- elísku Lúthersku kirkju í játningum hennar, að veita hin heilögu sakra- menti eins og Kristur hefur fyrir mælt með lotningu, að uppfræða með kostgæfni æskulýðinn ogsöfnuð þinn allan í heilögum sannindum kristinnar trúar, leiðbeina, hvetja og styrkja með alúð og alvöru einslega og opinberlega, vaka yfir sálarheill þeirra sem þér er trúað fyrir, styðja Sr.Þórir Stephensen keinur út úr salarkynnum Sakadóms ásamt Ragnari Aðalstcinssyni (t.v.) verjanda Halls Magnússonar. Tímamynd: Árni Bjarna lítilmagna og hjálpa bágstöddum. Ég áminni þig um að rannsaka ritningarnar og íhuga lærdóma trúar vorrar í bæn og auðmýkt og vera sannleikanum trúr í kærleika. Minnstu þess jafnan að þér ber að vera öðrum til fyrirmyndar og styrkt- ar í sannri trú og grandvöru líferni Guði til lofs og dýrðar." Þá staðfesti sr. Þórir að hann hefði fyrir síðustu Alþingiskosningar komið fram í sjónvarpsauglýsingu fyrir Sjálfstæðisflokkinn. Rétturinn lét þá bóka eftirfarandi: „Vitnið segir að það sé alvarleg ásökun að það láti pólitískar skoðan- ir og ráðríki ætíð koma á undan kristilegum náungakærleika." Dómari spurði sr. Þóri hvers hann krefðist í miskabætur og sagði hann að upphæð bóta væri sér aukaatriði. Dómari spurði hann þá hvort hann félli frá því að krefjast þeirra. Því neitaði Þórir og þá benti dómari honum á að hann ýrði að leggja fram ákveðna kröfu í þessu efni og ætlaði Þórir að ráðgast um það við lögmann sinn. Sr. Þórir upplýsti að ekki væri til skriflegur ráðningarsamningur eða erindisbréf sem lýsti starfi staðar- haldara í Viðey, en kvaðst hafa fengið munnleg fyrirmæli um hvert starfssviðið væri. Hann kvaðst ekki vera ráðinn sem prestur í Viðey og sagði að Viðey tilheyrði Dómkirkjuprestakalli. Hann sagði það rétt, sem eftir honum var haft í frétt á baksíðu DV þann 8. ágúst 1988 og þar sem einnig kemur fram að dráttarvél hafi verið notuð til að lagfæra kirkjugarðinn. Þá sagði Þórir að sér hefði verið kunnugt um að kirkjugarðurinn hefði verið notaður allt fram á síðustu ár. Ragnar Aðalsteinsson spurði Þóri hvort út frá kirkjulegu sjónarmiði mætti telja viðbrögð ættingja Gunn- ars Gunnarssonar á einhvern hátt óeðlileg þegar þeir sáu jarðraskið í garðinum og í leiði skáldsins. Rétt- urinn bókaði eftir Þóri: „Vitnið telur mjög eðlilegt að ættingjum manna bregði þegar þeir komi að kirkjugörðum í flagi.“ Allnokkrar umræður urðu milli sr. Þórisog Ragnars Aðalsteinssonar þegar kom að því að ræða um ummæli Halls um veru Þóris í félags- skap frímúrara. Ragnar spurði hvort frímúrarareglan væri leyniregla og hvort rétt væri að ekki fengjust upplýsingar um starf hennar og reglur. Þórir svaraði því almennum orð- um að ekki væri allt gert opinbert. Reglan væri hins vegar mannræktar- samtök á trúarlegum grunni en engin mafía eða klíkufélag. Ragnar spurði hvort félögum í reglunni væri skylt að sýna samstöðu og styrkja hverjir aðra. Hann vitnaði síðan í bókina Bræðrabönd þar sem fram kemur að sr. Þórir og ríkissak- sóknari eru stúkufélagar. Að vitnaleiðslu lokinni var málinu frestað að ósk verjanda Halls til föstudagsins 21. apríl n.k. Sr. Þórir óskaði eftir því að málinu yrði flýtt sem unnt væri þar sem það hvíldi þungt á sér og væri honum hvimleitt. -sá

x

Tíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.