Tíminn - 12.04.1989, Blaðsíða 14

Tíminn - 12.04.1989, Blaðsíða 14
14 Tíminn Miðvikudagur 12. apríl 1989 Jón Kristvin Margeirsson, fil. lic.: 188 bíaðsíðna ritgerð skoðuð í fyrri hluta greinarinnar var fjallað um þekkingu okkar á afkomu einokunarverslunarinnar fram til 1772 og framlag Gísla Gunnarssonar. í seinni hluta greinarinnar verður fjallað um afkomu einokunarverslunarinnar 1775- 1786 og sett fram gagnrýni á aðferðir Gísla, þ.á m. „mjöl- og skreiðaraðferðina“. Tap og gróði í (slandsversluninni 1775-1786 Árin 1773-1774 er Gísli einn um hituna, en þegar kemur að Kon- ungsversluninni síðari, 1774-1787, gegnir öðru máli. Hér var staða rannsóknanna þannig, að Jón J. Aðils hafði í riti sínu, Einokunar- verslun Dana á íslandi 1602-1787, lagt fram tölur um afkomuna 1774- 1784. Nú eru auðvitað ýmis dæmi um það, að Jón J. Aðils hafi rangt fyrir sér í einokunarsögu sinni, en ef Gísli Gunnarsson telur eitthvað athugavert við tölur hans, á hann auðvitað að sýna fram á það, að svo sé og skýra það, hvaða villur Jón hafi gert. En þetta gerir GG ekki. Hann setur upp sínar eigin tölur án þess að skeyta um það, sem stendur í bók Jóns J. Aðils. (Tölur Jóns eru bls. 656-657 í Einokunarverzlun Dana á íslandi og bls. 606 í Historisk Tidsskrift, 1896, en þar birti Jón ritgerð sína: Den danske regering og den is- landske monopolhandel.) Samkvæmt tölum Jóns er af- koma íslandsverslunarinnar mjög góð 1775-1781 en eftir það er mikið og vaxandi tap á versluninni. í nefndum ritverkum Jóns og enn- fremur í yfirliti Porkels Jóhannes- sonar í Sögu íslendinga, 7. bindi, kemur fram, að orsakir tapsins séu móðuharðindin, vaxandi tilkostn- aður í versluninni á íslandi og verðfall á mörkuðum vegna styrj- aldarloka úti í heimi. Gísli fjallar um þetta í 9. kafla í ritgerð sinni (The trade boom and the trade collapses 1774-1787) og þótt hann sé með eigin tölur um afkomu þessara ára, breytir það ekki þeirri heildarmynd af afkom- unni, sem áður var til. Orsakir tapsins, sem fyrr voru nefndar, koma einnig fyrir hjá Gísla. Pað er þannig gamalkunn mynd, sem Gísli bregður upp, þótt tölurnar séu ekki hinar sömu og í einokun- arsögu Jóns J. Aðils. En hvernig eru þá tölurnar fengnar? Tölurnar eru í báðum tilfellum, bæði hjá GG og Jóni, sóttar í bókhaldsgögn Konungs- verslunarinnar síðari, nánar tiltek- ið í höfuðbækur og journala. Jón hefur stuðst við yfirlit, sem Sunck- enberg bókhaldari hjá Konungs- versluninni gerði árið 1786 um afkomu verslunarinnar fyrir ísland, en verslunarrekstur Kon- ungsverslunarinnar síðari náði yfir fleiri svæði en ísland eitt. Ætla má, að það hafi verið auðveldara fyrir bókhaldara hjá þessari verslun að átta sig á því hvaða liði bar að telja undir íslandsverslun fyrirtækisins en Gísla. Sá mismunur er á upp- gjöri þeirra, að vandalaust er að sjá, hvernig tölur Sunckenberg eru teknar upp úr höfuðbókunum og journölunum. Hann tilgreinir lið- ina hvern fyrir sig í uppgjöri sínu. Þessu er nokkuð á annan veg farið hjá GG. í vissum tilvikum bera reikningsliðir hans heiti, sem eru ekki nógu skýr til að séð verði nákvæmlega, hvað þau merki. Og Gísli gerir sér ekki það ómak að greina nákvæmlega frá því, við hvað hann styðjist, er hann setur upp tölur við slíka reikningsliði. Hvað merkir t.d. „specified trade costs“? Og hvernig fær GG þá útkomu, að þetta séu 17.778 ríkis- dalir og 2 skildingar fyrir árið 1774-1775 (reikningsár byrjar 1. Síðari grein sept.)? Ef trade cost er ensk þýðing á því, sem í bókhaldinu er nefnt „handelsomkostninger", þá munar miklu á upphæðinni hjá Suncken- berg og Gísla, því að sá fyrrnefndi telur „handelsomkostninger“ vera 7850 ríkisdali fyrir íslandsverslun Konungsverslunarinnar þetta fyrsta ár. Eru þá fleiri liðir en „handelsomkostninger“ með í „trade cost“ hjá Gísla? Ef svo er, hvaða liðir eru það og hvernig fær Gísli út töluna 17.1778 ríkisdali í því samhengi? Margar spurningar af líku tagi vakna, er maður skoðar uppgjör Gísla á Konungsverslun- inni síðari, en hér er ekki hægt að fara nánar út í þetta sökum pláss- leysis. 3. kafli í Gíslakveri 3. kafli í bók GG heitir „Price development of imports and exports: The monopoly trade’s profitability". í þessari fyrirsögn kemur það fram, hvað Gísli ætlar sér að rannsaka í 3. kafla. Pað er verðþróun útfluttrar og innfluttrar vöru og arðsemi einokunarverslun- arinnar. Sem sagt: Hver var þróun í verði á út- og innfluttum vörum 1602-1787 og hvernig virkaði þetta á arðsemi einokunarverslunarinn- ar. Hér er þess að gæta, að á íslandi var fast verð frá 1619 á öllum helstu vörum, sem kaup- menn keyptu og seldu á verslunar- stöðunum og giltu um þetta hinar svonefndu kaupsetningar (hand- elstakster), sem voru gefnar út sem konungsúrskurðir. Það er því ekki verð á íslenskum verslunarstöðum, sem er til rannsóknar í 3. kafla, heldur verðið í útlöndum (Dan- mörk meðtalin). Þegar þessi kafli er skoðaður, er rétt að byrja með því að skipta tímabili einokunarverslunarinnar í tvennt. Annars vegar höfum við tímabilið 1602-1732 og hins vegar tímabilið 1733-1786. Mikill munur er á þessum tveim tímabilum, þeg- ar gera skal rannsóknir á einokun- arversluninni. Hvað seinna tíma- bilinu viðvíkur erum við vel sett að því leyti, að meginið af mikilvæg- ustu gögnunum hefur varðveist úr bókhaldi verslunarfélaganna á þessum tíma. Pessi bókhaldsgögn veita okkur þekkingu á afkomu verslunarinnar og gera það kleift að kanna marga þætti í rekstri verslunarfyrirtækjanna 1733-1786. Allt öðru máli gegnir um verslun- ina 1602-1732. Nær öll bókhalds- gögn verslunarhafanna á þessu tímabili hafa glatast. Við þekkjum því ekki afkomu verslunarinnar á þessum tíma, a.m.k. er staðan þannig í dag. Ljóst er, að rétta aðferðin við að kanna arðsemi fslandsverslunar- innar 1733-86 er sú að fara yfir varðveitt bókhaldsgögn verslunar- innar frá þessu tímabili og nota þau sem heimildir. Fyrir þetta tímabil hefur GG reynt að reikna út eins konar vísitölu innkaupa (erlendis) og sölu (einnig erlendis) fyrir vörur í fslandsversluninni og sett þetta upp sem línurit (bls. 43). Hér hefur Gísli stuðst við skrár yfir gangverð á vörum í Danmörku, „Prices and Wages in Denmark", eftir Astrid Friis og Kristoff Glamann, en í þessum skrám eru ýmsar vörur, sem gengu í íslands- versluninni. Þessar skrár ná þó ekki yfir allar vörutegundir í fs- landsversluninni og hefur Gísli þá farið í verslunargögnin. Hann kveðst aðeins hafa notað nokkrar vörutegundir og látið eina vöruteg- und gilda fyrir aðrar vörur á sama sviði. Járn er þannig fulltrúi fyrir margar vörur („group of commod- ities“). En hvernig á lesandinn að taka afstöðu til þess, hvort GG hefur reiknað rétt? Allan útreikn- inginn vantar og meira að segja endanlegar tölur. Einhver staður á línuritinu er hið eina, sem GG býður lesandanum upp á. Með slíkum vinnubrögðum gerir Gísli sigtortryggilegan. Hanngeturekki ætlast til þess, að menn fallist á niðurstöður, sem ekki er hægt að kanna, hvernig eru fengnar. En burtséð frá þessu, verður slík tilraun ekki fyllilega raunhæf, nema hún sé gerð með þeim hætti, að miðað sé við raunverð vörunn- ar, þ.e. það verð, sem verslunarfé- lagið (verslunarhafi) fær í raun og veru greitt (útflutt vara) eða þarf að greiða (innflutt vara til íslands). Slík verð geta farið langt frá gang- verði, eins og það er skráð í „Prices and Wages“. Ennfremur verður auðvitað að taka allar vörutegundir með en ekki bara fáeinar, eins og GG hefur gert og hnitmiða vægi hverrar vörutegundar við hlut hennar í heildarafsetningu (eða heildarinnkaupum). En jafnvel þótt allt þetta væri fengið og allir útreikningar yrðu birtir, er ekki þar með sagt, að við værum komin með viðskiptakjaralínurit, sem segði okkur, hvenær verslunin hefði verið arðvænleg og hvenær ekki. Ýmsir aðrir þættir höfðu áhrif á afkomuna og samsetning þeirra þátta er ekki alltaf hin sama. Sú samsetning var breytileg eftir aðstæðum og tímabilum. Hér má t.d. nefna verslunarleiguna. Öll einkafyrirtæki, sem höfðu verslun- ina með höndum, greiddu leigu af versluninni og hún gat verið afar breytileg. Pá má nefna styrjaldir, en þær gátu orkað ýmist til tjóns fyrir verslunina eða þá haft jákvæð áhrif á hana. Margt fleira kemur hér til greina, svo sem vanhöld á skipum og förmum og misjafnlega erfið greiðslustaða viðskiptavina á íslandi, sem ekki er ástæða til að fara nánar út í hér. Lítum nú á fyrra tímabilið, ' 1602-1732. Hér höfum við bókhald verslunarfyrirtækjanna ekki varð- veitt og það mætti hugsa sér, að uppsetning á línuriti um viðskipta- kjör íslandsverslunarinnar á þessu tímabili gæti gefið gagnlegar vís- bendingar um afkomuna, ef hægt væri á annað borð að setja slíkt línurit upp. En því er nú bara til að svara, að Gísli Gunnarsson birtir ekki línurit í 3. kafla, sem sýnir viðskiptakjör íslandsverslunarinn- ar 1602-1732. í þessum kafla er þó margt línurita og í einu þeirra, á bls. 37, má segja, að hann geri einhverja tilraun til að nálgast viðfangsefnið ofurlítið. Á þessari blaðsíðu sýnir hann okkur línurit yfír þorskverð mælt í korni fyrir England 1400-1700, Holland 1520-1800, Wúrzburg í Þýskalandi 1600-1790, Nýju Kastilíu 1651- 1800 og Kaupmannahöfn 1721- 1800. Hér vantar auðvitað Kaup- mannahöfn 1602-1720 og Ham- borg 1632-1732, ef þetta línurit á að segja okkur eitthvað um við- skiptakjör íslandsverslunarinnar á nefndu tímabili. Par að auki vantar allar aðrar vörur en skreið og rúg í þessa tilraun Gísla Gunnarssonar og það er auðvitað ekki nóg að taka einungis tvær vörutegundir með, þótt önnur þeirra, skreiðin, sé vissulega þýðingarmesta varan í fslandsversluninni. Mikið í þessum kafla virðist mér vera útúrdúrar og uppfyllingarefni. Sem uppfyllingarefni má t.d. nefna þann hluta kaflans, sem merktur er 3,6. Þessi hluti heitir „Foreign fishermen. Illicit trade and the profitable exchange ratio tobacco/ stockings". Þetta er auðvitað óvið- komandi umræddu viðfangsefni (rannsóknarefni) kaflans og reynd- ar var það Jón J. Aðils (og fleiri) sem rannsakaði þetta (ólögleg verslun og hagstæð vöruskipti, tób- ak/prjónles) á undan Gísla Gunn- arssyni. Gísli hefði átt að gera grein fyrir þessu, fyrst hann er að setja umfjöllun um þetta inn í 3. kafla. Annað dæmi um uppfyllingar- efni er úr þeim hluta kaflans, sem merktur er með 3,3. og er nefndur „The money prices and the quality of the rye imports to Iceland“. Gæði á innfluttum rúgi skipta auð- vitað engu fyrir margnefnda rannsókn, en fyrst GG er að skrifa um þetta, á hann auðvitað að geta um rannsóknir Jóns J. Aðils á gæðum innfluttrar vöru, þ.á m. rúgs. Almennt um aðferðir í doktorsritgerð sinni er Gísli Gunnarsson oftast að fást við við- fangsefni, sem aðrir hafa rannsak- að á undan honum, en það má heita fastur liður í aðferð hans, að hann sleppir því að gera grein fyrir fyrri rannsóknum. Þetta er auðvit- að röng aðferð hjá Gísla. Hann á að hefja rannsókn sína með því að gera grein fyrir undangengnum rannsóknum og setja síðan upp rannsóknarspurningu í framhaldi af slíkri greinargerð. Annað atriði í aðferð Gísla er það, að hann er stundum ósammála því, sem fyrri rannsóknarmenn hafa haldið fram, en hleypur frá því verkefni að sýna fram á það, að þeir hafi á röngu að standa. Þetta er röng aðferð hjá Gísla. Hann á að sýna fram á það með rannsókn, að fyrri rannsókn- armaður hafi haft rangt fyrir sér, ef hann telur svo vera og í framhaldi af því á hann svo að finna rétt svar við þeirri rannsóknarspurningu, sem hann telur, að fyrri rannsókú- armaður hafi svarað rangt. Mikið er um það í bók Gísla, að einungis sé nefnd niðurstaðan af rannsókn og lesandanum þannig gert ókleift að mynda sér skoðun á því, hvort hún (niðurstaðan) sé rétt. Dæmi hafa verið nefnd um þetta í þessari grein. Slíkt er auð- vitað með öllu ótækt. Gísli verður að sætta sig við það, að lesandinn vilji sjá hvernig niðurstöður hans eru fengnar, og hafni þeim, nema hann leggi fram allar forsendumar og gangi þannig frá verki sínu, að hægt sé að prófa rannsóknina í öllum liðum hennar. Og þá er líka nauðsynlegt að gera tilvitnanir bet- ur úr garði. Það er ekki nóg að vitna í skjalaskrá, svo dæmi sé tekið. Nafn á heimild og blaðsíðu- tal þarf að fylgja. í töflu, sem inniheldur t.d. 10-20 tölur, þarf tilvísanir, sem gera það auðvelt að prófa hverja einustu tölu. Misheppnuð aðferð Rannsóknarefni Gísla Gunnars- sonar samkvæmt áðurnefndu við- tali við hann í Þjóðviljanum „Á leið til sósíalisma með eflingu ein- okunarauðvalds" var uppgjör á gróða einokunarverslunarinnar. Við þetta uppgjör hugðist hann nota sérstaka aðferð, sem við Gísli tókum til umræðu í nokkrum grein- um í Morgunblaðinu 1975-76 eins og þegar hefur komið fram í þessari grein. Ég leyfði mér að nefna þessa aðferð mjöl- og skreiðaraðferðina sökum þess hlutverks sem þessar vörur gegndu, en GG ætlaði að reikna gróðann út með því að miða við þessar vörur. Mjöl- og skreiðaraðferðin felst í könnun á verði á mjöli og skreið og breytingum á því og ályktunum út frá því, hver afkoman hafi verið. Gísli treysti ekki á bókhald Hör- mangarafélagsins né annarra versl- unarfélaga og leit því svo á, að nær væri að kanna afkomuna með mjöl- og skreiðaraðferðinni. 1 skoðana- skiptum okkar Gísla 1975-76 bað ég hann að sýna þessa aðferð og hvernig henni væri beitt. Ég tók dæmi um afkomu samkvæmt reikn- ingum verslunarfélaganna og: spurði hann hver afkoman væri samkvæmt mjöl- og skreiðarað- ferðinni. Það varð fátt um svör af hálfu Gísla. Hann taldi, að það þyrfti einhverja áratugi til að unnt væri að beita aðferðinni. Nú hefur Gísli svarað með bók- inni. En honum hefur ekki tekist að beita mjöl- og skreiðaraðferð- inni þannig, að það bæri árangur. Gísla hefur þannig mistekist að sýna fram á gildi þessarar aðferðar. Þess vegna er ritgerð hans mis- heppnuð sem rannsókn. Framsetningar- sagnfræði eða vísinda- leg rannsókn Mest af því, sem ritað er um sagnfræði á Islandi, er framsetning- arsagnfræði og ef bók Gísla Gunn- arssonar væri dæmd sem slík, kæmu önnur atriði til álita en þau, sem hér hafa verið dregin fram. En Gísli Gunnarsson hefur sjálfur kveðið upp úr með það, hvernig ritgerð hans skuli dæmd. Hann hefur lagt hana fram sem doktors- ritgerð og þar með gert tilkall til þess, að hún sé dæmd sem vísinda- leg rannsókn.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.