Tíminn - 12.04.1989, Blaðsíða 13
Miðvikudagur 12. apríl 1989
Tíminn 13
UTLÖND
llllllllllll
iiiiiiiiiii
22 farast í flug-
slysi í Frakklandi
Frönsk farþegaflugvél fórst í suð-
austurhluta Frakklands seint á mán-
udagskvöld. Tuttugu og tveir menn
voru um borð og fórust allir. Flugvél-
in sem var af Fokker-27 gerð var í
áætlunarflugi frá París til Valence er
hún rakst á fjallatind þegar flugmað-
urinn undirbjó lendingu.
Lögregla og björgunarmenn
fundu fyrst brak flugvélarinnar dreift
yfir Tourniol skarðið sem er rétt
austur af Valence. Björgunarmenn
náðu síðar að brjótast upp hlíðarnar
að flakinu og komust strax að því að
enginn hafði komist lífs af. Peir
komu með lík farþeganna til byggða
í gærmorgun.
Flugvélin var í eigu flugfélagsins
Uni-Air og flaug tvisvar á dag til á
fyrrgreindri flugleið.
Lögreglan skýrði frá því í gær að
nítján farþegar hefðu verið í vélinni,
þar af þrjú ung börn, og þriggja
manna áhöfn.
Osakir slyssins voru ekki kunnar.
Mikil regnskúr hafði orðið á þessum
slóðum rétt áður en flugturninn í
Valence missti fjarskiptasamband
við vélina.
Frönsk farþegaflugvél rakst á fjailstind á mánudagskvöld. Allir um borð
fórust.
Illræmdur eitur-
lyfjabarón hand-
tekinn í Mexíkó
Illræmdasti eiturlyfjabarón Mexíkó lenti í klónum á
réttvísinni gær og fengu fjölmargir spilltir lögreglumenn og
embættismenn dómskerfisins að fylgja stórlaxinum í fangag-
eymslurnar því hann lét móðan mása eftir að lögreglan tók
hann fastan.
Nafn þessa manns er Miguel Ang-
el Felix Gallardo og var hann ekki
einungis illræmdur innan Mexíkó
þar sem hann hafði fjölda opinberra
starfsmanna á sínum snærum í eitur-
lyfjaviðskiptunum, heldur er nafn
hans þekkt víða í Vesturheimi, bæði
í Bandaríkjunum og í Kólumbíu þar
sem hann tengdist hinufn illræmda
Medellin eiturlyfjahring.
Alvarez del Castillo sérstakur
ríkissaksóknari í eiturlyfjamálum
skýrði frá því að upplýsingar Gall-
ardo hefðu leitt til handtöku sex
háttsettra embættismanna í Sinaloa
fylki í norðurhluta Mexíkó, en þeir
hafa verndað eiturlyfjahring Gallar-
dos um árabil.
Á meðal þeirra handteknu var
„Fat Tony“ Salerno guðfaðir Gen-
ovese Mafíufjölskyldunnar í Banda-
ríkjunum heflir verið fundinn sekur
um fjárkúgun og samsæri. Dómur
mun verða kveðinn yfir honum 26.
júní og á hann yfir höfði sér fimm
ára fangelsi og 10 þúsund dollara
sekt fyrir að hafa reynt að komast
yfir steypuefnafyrirtæki í New York
með kúgunum.
yfirmaður saksóknaraembættisins í
Sinaloa, en hann fékk greitt fyrir að
gefa Gallardo upplýsingar um rann-
sóknir saksóknarans.
Felis Gallardo var handtekinn á
laugardaginn af lögreglu og sérsveit-
um hersins og var það ríkissaksókn-
ari sem skipulagði aðförina.
Felix Gallardo var einn helsti
forkólfurinn í smygli á maríúana og
heróíni til Bandaríkjanna og tengd-
ist einni kókaínsmygli frá Kólumbíu.
Þá er Gallardo einnig talinn vera
viðriðinn morðið á Enrique Camar-
ena sendimanni Eiturlyfjastofnunar
Bandaríkjanna, sem berst gegn eit-
urlyfjasmygli, í Guadalajara árið
1985. Camarena var grimmilega
pyntaður áður en hann lést.
- Þessi úrskurður um sekt er
mikilvægur vegna þess að þetta er í
fyrsta sinn sem svo háttsettur maður
innan Mafíunnar er fundinn sekur
um glæp í þessu fylki, sagði Jeff
Brosnter sérstakur saksóknari dóms-
málaráðuneytisins í málum Maf-
íunnar, eftir að úrskurðurinn var
ljós.
Assad forseti Sýrlands:
Alþjóðleg
friðarráð-
stefna er
möguleiki
Sýrlendingar hafa fallist á að
risaveldin tvö, Bandaríkin og
Sovétríkin, taki þátt í ráðstefnu
sem á að leita leiða til að koma á
friði í Miðausturlöndum. Þar
með hefur enn einni hindruninni
verið rutt úr vegi fyrir friðarráð-
stefnunni, en Sýrlendingar hafa
hingað til verið mjög á móti
þátttöku stórveldanna tveggja ef
aðrir fastaaðilar Öryggisráðs
Sameinuðu þjóðanna tækju ekki
einnig þátt.
Þá cru það aðeins ísraelar sem
staðfastlega neita að taka þátt í
friðarráðstefnu og fer staða
þeirra að verða nokkuð pínleg,
sérstaklega í ljósi þess að Banda-
ríkjamenn sem stutt hafa ísraela
skilyrðislaust gegnum tíðina
leggja nú mjög hart að þeim að
skipta um skoðun.
Sýrlendingar leika lykilhlut-
verk í valdataflinu í Miðaustur-
löndum og hafa meðal annars 20
þúsund manna herlið í Líbanon
þar sem djöfulgangurinn hefur
verið mestur að undanförnu. Þá
hafa mörg róttækustu skæruliða-
samtök Palestínumanna höfuð-
stöðvar sínar í Sýrlandi og njóta
dyggs stuðnings þeirra.
- Sýrlendingar sætta sig við
alþjóðlega ráðstefnu... með þátt-
töku Sovétríkjanna og Banda-
ríkjanna-eða með þátttöku allra
aðildarríkja Öryggisráðsins,
sagði Assad forseti Sýrlands á
mánudagskvöld, en hann er í
opinberri heimsókn í Tékkó-
slóvakíu.
Assad sagði þó að ráðstefnan
ætti ekki að hafa vald til þess að
fylgja eftir niðurstöðum sínum
skilyrðislaust og að Sýrlendingar
myndu ekki samþykkja neitt er
gangi á rétt araba.
Áfall fyrir Mafíuna í Bandaríkjunum:
TONY SALERNO
FUNDINN SEKUR
UM FJÁRKÚGUN
Borgarnes, nærsveitir
Spilum félagsvist í Grunnskólanum í Borgarnesi föstudaginn 14. apríl
kl. 20.30. Annað kvöld í 3ja kvölda keppni.
Gengið inn um nyrstu dyr nýja skólans.
Mætum vel og stundvíslega.
Framsóknarféiag Borgarness.
Linotype
Fjórar setningartölvur til sölu.
Saman eða í sitthvoru lagi. Hægt er
að senda texta á milii véla, en eru
sjálfstæðar einingar hver um sig.
Tölvurnar eru allar í góðu
ásigkomulagi og geta tekið á móti
texta frá PC tölvum.
• 1 stk. CRTronic300setningartölva
með útskrift.
• 2 stk. CRTronic S 150 setningar-
tölvur með viðauka og útskrift.
• 1 stk. CRTerminal 150 með við-
auka og spjaldi fyrir PC tölvur.
• Ennfremur 1 stk. Linokey 2 inn-
skriftarborð.
• CRTronic prentari.
Nánari upplýsingar á
Tæknideild gefa Þorgeir og
Ari.
Tíminn
Lynghálsi 9 - Sími 686300
Til sölu
Caterpillar D 6 C jarðýta, árg. 77 ekin 6800
vinnustundir.
Upplýsingar í síma 95-1179 eftir kl. 20.00.
t
Eiginmaður minn og faðir okkar
Sigurgeir Guðbrandsson
bóndi á Heydalsá í Strandasýslu
andaðist í Landspítalanum 10. apríl.
Halldóra Guðjónsdóttir
GuðbjörnSigurgeirsson Guðjón HeiðarSigurgeirsson
Guðbrandur ÁsgeirSigurgeirsson Hrólfur Sigurgeirsson