Tíminn - 12.04.1989, Blaðsíða 15
Miðvikudagur 12. apríl 1989
Tíminn 15
Illlllllllll QAtM/IMMI IMÁI IIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIM ! _
1111111111111111111111111 bAMVIININUMAL |||||||||||||||||1||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||I1|||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||^ I- LuiMVvio i Mnr
Frá aðalfundi Samvinnubankans.
(Tímamyndir Arni Bjarna.)
Samvinnubankinn
með góða af komu
Rekstrarafkoma Samvinnubankans var góð á síðasta ári,
og varð rúmlega 72 miljóna króna hagnaður af rekstrinum.
Er það ein hagstæðasta rekstrarniðurstaða í allri sögu
bankans, sem Ijóst er að stafar að verulegu leyti af miklum
vaxtamun á árinu 1988. Aftur á móti gefur árið 1989 ekki
fyrirheit um sömu afkomumöguleika, þar sem vaxtamunur
hefur nú minnkað. Er raunar talið Ijóst að fyrstu þrjá mánuði
þessa árs hafi bankarnir í heild verið reknir með tapi.
Þetta var meðal þess sem fram
kom í skýrslum þeirra Guðjóns B.
Ólafssonar formanns bankaráðs og
Geirs Magnússonar bankastjóra á
aðalfundi Samvinnubankans á
fimmtudag í síðustu viku. Fundurinn
samþykkti að greiða hluthöfum 10%
arð af innborguðu hlutafé í árslok
1988. Er það hæsta arðgreiðsla sem
bankinn hefur innt af höndum til
þessa, og standa vonir til að þetta
muni örva sölu hlutabréfa í honum.
Hlutafé bankans er nú rúmar 348
miljónir króna, og samþykkti fund-
urinn að auka það um 69,6 miljónir,
eða um 20%, með útgáfu jöfnunar-
hlutabréfa.
Þá er talið ljóst að brýn verkefni
bíði varðandi hagræðingu í rekstri
bankans. Nú er lokið tengingu úti-
búa hans við tölvu Reiknistofu bank-
anna, sem á að geta leitt til verulegr-
ar hagræðingar varðandi starfs-
mannahald og bætta þjónustu við
viðskiptamenn á næstu mánuðum.
Tölvuvæðingin hefur reyndar nú
þegar dregið mikið úr eftirvinnu f
bankanum, og er gert ráð fyrir að
hún hverfi úr sögunni nú í ár. Þó
verður starfsfólki ekki sagt upp
vegna þessa, heldur er stefnt að því
að ráða ekki í störf sem losna og
sömuleiðis að fækka sumarfólki.
Á næstunni mun bankinn opna
afgreiðslu í nýja Sambandshúsinu
við Kirkjusand, og er henni m.a.
ætlað að annast alla bankaþjónustu
fyrir starfsmenn Sambandsins þar á
staðnum. Útibú bankans við Höfð-
abakka mun í þessum mánuði flytj-
ast um set að Bíldshöfða 14 í rúm-
betra húsnæði en það hefur núna.
Innlán og útlán
í árslok voru heildarinnlán Sam-
vinnubankans 5.899 miljónir og
höfðu aukist um 1.104 miljónir eða
23,0% á árinu. Á sama tímahækkaði
lánskjaravísitala um 19,1%, svo að
innlán hækkuðu því að raungildi um
3,3%. Hjá viðskiptabönkunum í
heild varð aukning innlána 23,8%,
og var hlutdeild Samvinnubankans í
innlánum þeirra 8,2% í árslok. Er
það svipað hlutfall og verið hefur
undanfarin ár. Hjá bankanum varð
mun meiri innlánaaukning í útibúun-
um á landsbyggðinni heldur en í
aðalbankanum og útibúum hans í
Reykjavík. Úti á landi varð-áukning-
in 26,7%, en 19,4% í Reykjavík.
Hlutfall innlána úti' á landi var
50,8% í árslok á' móti 49,3% í
byrjun árs. /x
Þá jukust heildarútlán bankans á
Guðjón B. Ólafsson flytur skýrslu
bankaráðs.
árinu úr 3.788 miljónum í 5.279
miljónir eða um 39,3%. Þar af var
erlent endurlánað lánsfé 269 miljón-
ir. Útlán fjármögnuð af innlánsfé,
þ.e. almenn útlán að viðbættum
afurðalánum í íslenskum krónum,
námu 4.716 miljónum í árslok og
höfðu aukist um 1.166 miljónir eða
32,9%. Hjá viðskiptabönkunum í
heild var aukning útlána um 32% og
hlutdeild Samvinnubankans 6,5%.
Líkt og undanfarin ár var stærsti
hluti útlána bankans til einstaklinga
eða 2.199 miljónir. Af lánum til
atvinnuveganna er hlutur samvinnu-
félaga stærstur eða 854 miljónir. Til
landbúnaðar voru lánaðar 529 milj-
ónir í árslok og 449 miljónir til
sjávarútvegs.
Auk þess voru heildarútlán Stofn-
lánadeildar samvinnufélaga við
bankann 941 miljón í árslok, að
meðtöldum verðbótum, og jukust
um 92 miljónir. Hjá Veðdeild bank-
ans voru útlánin 434 miljónir í lok
ársins, sömuleiðis að verðbótum
meðtöldum, og höfðu þau aukist um
165 miljónir.
Verðbréfaviðskipti
Síðasta ár var fyrsta heila starfsár
Verðbréfaviðskipta Samvinnubank-
ans, en reksturinn þar hófst í apríl
1987. Til þessa hefur starfsemin svo
til eingöngu verið á sviði skulda-
bréfaviðskipta, en viðskipti með
hlutabréf eiga enn erfitt uppdráttar.
• Á árinu var staðið að nokkrum
stærri skuldabréfaútboðum, auk
smærri útboða. Voru þrír aðilar
einkum áberandi á því sviði. Lind
hf. var með þrjú útboð, samtals að
nafnverði 195 miljónir, og einnig
voru Veðdeild Samvinnubankans og
Stofnlánadeild samvinnufélaga með
stór útboð á skuldabréfum.
Útgáfa á fréttabréfi hefur verið
fastur liður í starfsemi Verðbréfavið-
skiptanna allt frá upphafi. Á árinu
voru gefin út tólf tölublöð í 4-5.000
eintökum. Hafa fréttabréfin vakið
athygli og viðskiptavinir sýnt þeim
talsverðan áhuga.
Heildarvelta Verðbréfaviðskipta
Samvinnubankans var um 1.100
miljónir á árinu sem leið.
Rekstur og hagur
Á árinu 1988 námu heildartekjur
Samvinnubankans, Veðdeildar og
Stofnlánadeildar 2.228 miljónum
króna. Rekstrarkostnaður var 2.156
miljónir, svo að hagnaður þessara
þriggja rekstrareininga var 72 milj-
ónir. Þar af var hagnaður Stofnlána-
deildar tæpar 13 miljónir og Veð-
deildar 5 miljónir. Hagnaður
bankans, án Stofnlánadeildar og
Veðdeildar, var því rúmar 54 miljón-
ir. Var vaxtamunur bankans óvenju
hagstæður árið 1988, eða 8,1%, en
var 7,5% árið á undan.
Niðurstöður efnahagsreiknings
eru þær að heildareignir Samvinnu-
bankans, Veðdeildar og Stofnlána-
deildar voru um áramót 8.898 milj-
ónir og höfðu aukist um 29,6% á
árinu. Eigið fé allra þriggja rekstrar-
eininganna var í lok ársins orðið 587
miljónir og hafði hækkað um 132
miljónir eða 29%. Þrátt fyrir góða
afkomu lækkaði eiginfjárhlutfall
bankans, eins og það er skilgreint í
lögum um viðskiptabanka, úr 8,6%
í árslok 1987 í 8,0% í lok síðasta árs.
Eigi að síður er það vel yfir því 5%
lágmarki sem kveðið er á um í
lögunum.
I ársbyrjun störfuðu 228 manns
við bankastörf hjá Samvinnubank-
anum í 210 stöðugildum. í lok ársins
voru starfsmennirnir orðnir 244 og
stöðugildin 224.
Kosningar
Bankaráð Samvinnubankans var
endurkjörið á aðalfundinum, en í
því sitja Guðjón B. Ólafsson, for-
maður, Vilhjálmur Jónsson, vara-
formaður, og Ásgeir Jóhannesson.
Varamenn eru Hallgrímur Sigurðs-
son, Hjalti Pálsson og Ingólfur
Ólafsson. Endurskoðendur bankans
voru einnig endurkosnir, en þeir eru
Geir Geirsson lögg. endursk. og
Óskar Jónatansson. Bankastjóri er
Geir Magnússon og aðstoðarbanka-
stjóri Pétur Erlendsson. -esig
Sunnlendingar!
Guðmundur Bjamason
Ómar Ragnarsson
VorfagnaðurframsóknarfélagannaíAmessýsluverður
19. apríl n.k. í Hótel Selfoss.
Heiðursgestir verða Guðmundur Bjarnason,
heilbrigðisráðherra og frú.
Litli Sam skemmtir með söng og Ómar Ragnarsson
kitlar hláturtaugamar.
Hljómsveitin Upplyfting leikur fyrir dansi langt fram
á sumar.
Húsið opnað kl. 20.00.
Borðhald hefst kl. 21.00 stundvíslega.
Nánari upplýsingar og miðapantanir í símum:
31139 Guðfinna
33763 Halla
21170 Sigrún
21048 Gísli
34636 Sturla
SUF á Akureyri
0“
Helgi Pétursson
SUF og kjördæmissambandið efna til fjölmiðlanámskeiðs á Akureyri
helgina 22.-23. apríl nk., ef næg þátttaka næst.
Leiðbeinandi: Helgi Pétursson.
Efni: A. Áhrif fjölmiðla.
B.Þjálfun í sjónvarpsframkomu.
Þátttaka tilkynnist Braga Bergmann í síma 96-24222, Sigfúsi
Karlssyni í síma 96-26600 og Skrifstofu Framsóknarflokksins í
Reykjavík, sími 91-24480.
SUF
Arnesingar - Skaftfeliingar
Jón Helgason,
alþingismaður
Guðni Agústsson,
alþingismaður
Unnur Stefansdóttir,
varaþingmaður
Árlegir stjórnmálafundir og viðtalstímar þingmanna Framsóknar-
flokksins verða haldnir:
2. í Barnaskólanum á Laugarvatni miðvikudaginn 12. apríl kl. 21:00.
3. í Kirkjuhvoli, Kirkjubæjarklaustri, laugardaginn 15. apríl kl. 21.00.
Allir velkomnir.
Fundarboðendur.
Suðurnesjamenn
athugið
Steingrímur Jóhannes
Vorhátíð Framsóknarfélaganna í Keflavík verður haldin í Glaumbergi
föstudaginn 21. apríl og hefst kl. 19.30.
Dagskrá: 1. Ávarp, Steingrímur Hermannsson forsætisráðherra.
2. Jóhannes Kristjánsson flytur gamanmál.
3. Einsöngur.
4. Góður matur - Happdrætti.
5. Jóhann Guðmundsson leikur fyrir dansi.
Nánar auglýst síðar.
Framsóknarfélögin í Keflavík.
Reykjanes
Skrifstofa Kjördæmissambandsins að Hamraborg 5, Kópavogi er
opin á mánudögum og miðvikudögum kl. 17 til 19. Sími 43222.
K.F.R.