Tíminn - 19.04.1989, Page 7

Tíminn - 19.04.1989, Page 7
Miðvikudagur 19. apríl 1989 Tíminn 7 Samkomulag um kjör á skuldabréfakaupum lífeyrissjóða af Húsnæðisstofnun: Samið án samkomulags um lánskjaravísitölu Samkomulag um kjör á skuldabréfakaupum lífeyrissjóð- anna af Húsnæðisstofnun ríkisins til loka þessa árs, var undirritað af fulltrúum fjármálaráðuneytisins, félagsmálaráð- uneytisins og Húsnæðisstofnunar ríkisins annars vegar og samtaka Iífeyrissjóða hins vegar í gærdag. Fjármálaráðherra skrifar undir samkomulagið í gær. Ágreiningur reis meðal samnings- aðila um hvaða lánskjaravísitölu ætti að miða við, lánskjaravísitölu þá sem komið var á með reglugerð þann 23. janúar sl. eða vísitöluna sem gilti áður. Pétur Blöndal for- maður Landssambands lífeyrissjóða sagði að það mál hefði verið leyst á þann veg að vísað er í lánskjaravísi- tölu samkvæmt Ólafslögum svoköll- uðum. Gjalddagar bæði á vöxtum og afborgunum eru hafðir eftir rúm 2 ár, eða 1. júlí 1991, en þá er talið að niðurstaða í fyrirhuguðu dómsmáli verði komin. „Pað er ekki þannig að lífeyrissjóðirnir séu að fara í dómsmál, til að geta sagt að þeir hafi sigrað, heldur hitt hvað er rétt í þessum efnum. þ.e. hvor vísitalan er rétt. Pað er bara spurningin hvort stjórnvöld geti breytt lánskjaravísi- tölu á þegar gerðum samningum," sagði Pétur. Ólafur Ragnar Grímsson fjár- málaráðherra sagði við undirritun- ina að um tímamóta samkomulag væri að ræða, sem ætti eflaust eftir að vera lengi við lýði. Samkomulagið felur í sér að kjör á skuldabréfakaupum Iffeyrissjóð- anna á næstu mánuðum er ekki hindrun í vegi frekari vaxtalækkana á lánsfjármarkaðnum á næstunni. í samningnum er gert ráð fyrir að vextir á skuldabréfum með innlendri verðtryggingu fari í 6% strax og í 5% í júlí, þannig að það raunvaxta- markmið sem lýst var yfir er tengt samningsgerðinni. Hluti skulda- bréfakaupanna miðast við gengis- tryggingu og erlenda nafnvexti, sem fela nú í sér um 5% raunvexti. í upphafi ársins var áætlað að skuldabréfakaup lífeyrissjóðanna á árinu öllu gætu numið rúmum 8,5 milljörðum króna. Nú þegar hafa sjóðirnir keypt fyrir um 1,5 milljarð, þannig að skuldabréfakaupin mán- uðina apríl til desember gætu numið um 7 milljörðum króna. Eins og fram hefur komið er hluti skuldabréfakaupanna miðaður við gengistryggingu og erlenda nafn- vexti. Keypt verða skuldabréf miðað við evrópska mynteiningu, ECU. ECU-bréfin verða að lágmarki 15% af skuldabréfakaupum hvers sjóðs af Húsnæðisstofnun á tímabilinu, en sjóðunum er frjálst að kaupa ECU- bréf fyrir allt að40% af heildarkaup- um. Vextir á nýjum ECU-bréfum eiga í hverjum mánuði að vera 0,15 prósentustigum hærri en ávöxtun nýlegrar ECU skuldabréfaútgáfu í Danmörku sem er til 1996 og er skráð í Financial Times. Miða á við þá ávöxtun sem birt er á mánudegi fyrir hver mánaðarmót í þessu sér- staklega skráða ávöxtunargengi í Financial Times. Vextirnir eiga að vera fastir á lánstíma hvers bréfs, sem er 15 ár og nafnvextir skulda- bréfa sem útgefin eru í apríl verða 9,04%. Ef tekið er mið af þeirri verðbólgu sem er í Efnahagsbanda- lagslöndunum, 3,5 til 4% og óbreyttu raungengi krónunnar, sam- svara þessir vextir um 5% raun- ávöxtun. Verðtrygging á skuldabréfum gefnum út í janúar 1990 miðast við lánskjaravísitölu samkvæmt Ólafs- lögum svokölluðum. Að óbreyttu, þ.e. ef dómstólar úrskurða lífeyris- sjóðunum ekki í vil, felur þetta í sér að núgildandi lánskjaravísitala verð- ur notuð til að verðtryggjabréfin. Pá er einnig gert ráð fyrir því í sam- komulaginu að ef þróun vaxta verði önnur en nú er stefnt að geti komið til leiðréttingar á vöxtum þegar skuldabréf með innlendri verðtrygg- ingu verða gefin út í janúar nk. I því tilviki verður tekið tillit til þróunar vaxta á ríkisskuldabréfum, að því tilskildu að þau seljist fyrir 50% af áætlaðri innlendri lánsfjáröflun ríkissjóðs samkvæmt lánsfjárlögum. Náist 50% markið ekki er bætt við vöxtum á seldum spariskírteinum á Verðbréfaþingi íslands. Pétur Blöndal formaður Lands- sambands lífeyrissjóða sagði að það samkomulag sem gert hefði verið fæli í sér að lífeyrissjóðirnir væru ekki að taka eins mikla áhættu varðandi þá vaxtalækkun sem stjórn- völd stefndu að. „Ef stefna stjórn- valda næst, þá er það gott og lífeyr- issjóðirnir ná þeim vöxtum sem ríkið greiðir á markaðnum, ef ekki þá verða vextirnir lciðréttir 15. janúar á næsta ári,“ sagði Pétur. -ABÓ Frá æfingu á Svartfugli í síðustu viku. Tímamynd: ÖP Ungmennasamband A-Húnvetninga: Svartfugl á Húnavöku Leikfélag Blönduóss frumsýndi í gærkvöldi leikritið Svartfugl eftir Gunnar Gunnarsson. Leikfélagið hefur æft verkið að undanförnu undir leikstjórn Harðar Torfasonar og er þessi uppfærsla einn liður í Húnavöku Ungmennasambands A- Húnvetninga sem hófst á laugardag- inn. Leikritið Svartfugl fjallar um sakamál sem upp kom vestur á Barðaströnd á síðustu öld og hefur verið kallað Sjöundarár mál. Leikritið var fyrst sýnt hér á landi árið 1986 og þá í leikgerð Bríetar Héðinsdóttur og nota Blönduósing- ar sömu leikgerð verksins. Leikarar eru alls 20 þar af 3 börn. Búningar eru hannaðir og saumaðir af heimamönnum. Að sögn Njáls Þórðarsonar formanns Leikfélags Blönduóss er fyrirhugað að sýna verkið a.m.k. þrisvar á meðan Húnavakan stendur yfir og jafnvel eitthvað lengur ef aðsókn verður góð, en ekki er mögulegt að fara með sýninguna milli staða vegna umfangs sviðsbúnaðar. Æfingar á Svartfugli hófust í byrjun mars. Þetta er 54. starfsár Leikfélags Blönduóss, flest árin hefur félagið sett á svið einn sjónleik og ávallt verið með leiksýningu í tengslum við Húnavökuna sem nú er orðin árviss viðburður í menningarlífi Húnvetn- inga. - ÖÞ Fljótum Tónmenntakennslu mjög ábótavant: Tæpur helmingur hlýtur ekki lögboðna fræðslu Tæpur helmingur grunnskólane- menda landsins nýtur ekki lögboð- innar fræðslu í tónmenntum. Þá eru aðeins sjötíu af kennurum í greininni með réttindi til kennslunnar. Málið er í athugun á Alþingi en niðurstaða varðandi úrbætur hefur enn ekki fengist. Samkvæmt lögum um grunnskóla er tónmennt ein þeirra skyldunáms- greina sem kenna skal öllum nem- endum á skólaskyldualdri, einn til tvo tíma á viku. Þó er tónmennt í níunda bekk aðeins kennd sem val- grein. Samkvæmt athugunum nefndar, á vegum menntamálaráðuneytisins, á skólahaldsskýrslum kom í Ijós að mikið vantar upp á að þessum lögum sé framfylgt. 45% nemenda á skóla- skyldualdri hlutu á skólaárinu '87 til '88 enga fræðslu í greininni. Af þeim 216 grunnskólum sem á landinu eru, fer kennsla í tónmennt aðeins fram í 141 þeirra. í 75 skólum eða 35% þeirra fá nemendur enga tónlistar- kennslu af neinu tagi. Skólar utan Reykjavíkur standa verst að vígi hvað þetta varðar. Sem dæmi má nefna að á Vestfjörðum vantaði tónmenntakennslu alveg í þrettán skóla, á Vesturlandi sjö, á Norðurlandi vestra níu, en þar voru á árinu engir tónmenntakennarar með réttindi. Á Norðurlandi eystra vantaði kennslu í ellefu skóla, á Suðurlandi á átta stöðum og svo framvegis. Samkvæmt skrá um starfandi grunnskólakennara önnuðust 168 kennarar tónmenntakennslu skóla- veturinn '87 til '88. Af þeim höfðu aðeins sjötíu réttindi til kennslu í þessari grein. Af ellefu kennurum á Vestfjörðum var einn með réttindi til kennslunnar, á Norðurlandi eystra aðeins helmingur kennaranna, á Suðurlandi fjórir af 29 kennurum og svo mætti áfram telja. Miðað við útreikninga á heildar- kennsluþörf í tónmennt fyrir landið allt þyrfti kennsla í greininni að vera sem svarar 105,6 heilum kennara- stöðum, en nam aðeins 58,9 kennarastöðum. „Ástæður þessa eru fyrst og fremst að mikill skortur er á tónmennta- kennurum og það er eins og mönn- um finnist frekar að komast megi af án þessarar kennslu en kennslu í öðrum greinum. Það vantar að vísu einnig kennara í fleiri greinum held- ur en þessari, list- og verkgreinar hafa farið verr út úr þcssu en aðrar námsgreinar," sagði einn nefndar- manna Njáll Sigurðsson námsstjóri í samtali við Tímann. Hann sagði orsök þess að frekar vantaði tónmenntakennara en aðra grunnskólakennara einkum mega rekja til fjölda tónlistarskóla sem starfa í landinu. „Sérmenntaðir kennarar sem sumir hverjir hafa lokið námi til að fara og kenna í grunnskólum hafa í stað þess farið til kennslu í tónlistarskólum," sagði Njáll. Starf tónlistarskóla landsins er víða mjög öflugt og bætir ef til vill að nokkru leyti upp skort á tón- menntakennslu í grunnskólum. Á Alþingi hefur verið lögð fram tillaga til Þingsályktunar sem ætlað er að ráða nokkra bót á núverandi ástandi mála. í henni segir meðal annars: „Alþingi ályktar að fela mennta- málaráðherra að skipa nefnd til að athuga og koma með tillögur um samvinnu og samþættingu tón- menntakennslu í grunnskólum og tónlistarskólum landsins, með það fyrir augum að efla og auka tón- menntakennslu í grunnskólum." Einnig er lagt til að tónlistarnám sem nemendur stunda utan lögboð- ins grunnskólanáms geti f auknum mæli flust inn í húsnæði grunnskól- anna. Auk þess komi til samnýting kennara þannig að tónmennta- fræðsla verði aðgengilegri fyrir nem- endur. Flutningsmenn þingsályktunartil- lögunnar eru Þórhildur Þorleifsdótt- ir, Aðalheiður Bjarnfreðsdóttir, Árni Gunnarsson. Jón Hclgason, Margrét Frímannsdóttir og Salóme Þorkelsdóttir. Málið er í athugun nefndar innan Alþingis ogekki hcfur verið tekin afstaða til þess enn sem kornið er. jkh

x

Tíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.