Tíminn - 19.04.1989, Page 12
12 Tíminn
Miðvikudagur 19. apríl 1989
FRÉTTAYFIRLIT
BÚDAPEST - Yitzhak
Shamír forsætisráöherra ísra-
el hélt í stutta óopinbera heim-
sókn til Ungverjalands og
ræddi við ungverska leiötoga.
Rætt var um málefni Miöaust-
urlanda og nýtt stjórnmála-
samband ríkjanna tveggja og
hugsanlega annarra austan-
tjaldsríkja.
BEIRÚT - Hundruð manna
sem hugðust flýja bardagana í
Beirút þegar örlítið lát varð á
skothríðinni þar komust að því
að flóttaleið þeirra var lokuð
eftir að eldflaugaárás lagði
höfnina í Jounieh i rúst. Þaðan
gátu flóttamenn komist í ferjur
og flúið land, en nú er sú
flottaleiðúrsögunni. Himinninn
yfir Beirút var litaður rauður
alla fyrrinótt vegna elda sem
loguðu eftir stórskotaliðsárásir
og skriðdrekabardaga.
JERÚSALEM - Þrír Pal-
estínumenn voru myrtir af eiain
fólki þar sem þeir voru grunaðir
um að hafa starfað með ísrael-
um í baráttunni gegn Palestín-
umönnum á hernumdu svæð-
unum.
WASHINGTON - Fram-
færsluvísitalan hækkaði um
0,5% í Bandaríkjunum í mars
eftir að hafa einungis hækkað
um 0,4% í febrúar. Mest mun-
aði um matvöru og eldsneyti.
Verðbólga hefur ekki veri meiri
í Bandaríkjunum í tvö ár.
MOSKVA - Hermenn yfir-
' gáfu göturnar í Tiblisi i Georg-
íu og útgöngubann það sem
var í gildi á nóttunni var numið
úr gildi. Þingnefnd hefur verið
sett á fót til að rannsaka at-
burðina 9. apríl, þegar her-
menn leystu upp mótmæla-
göngu þióðernissinna með
þeim afleioingum að 19 manns
létust.
MADRÍD - Alsírstjórn hefur
vísað sex skæruliðum Baska
úr landi. Þar á meðal eru þrír
Baskar er áttu í leyniviðræðum
við ríkisstjórn Spánar fyrir
nokkru.
UTLÖND
lllllllllllllllll
Andlát Hu Yaobang vekur upp mótmæli gegn flokksræðinu í Kína:
Hermenn slást við
námsmenn í Peking
Rauðir varðliðar á Tianmcn torgi eða Torgi hins himneska friðar við upphaf menningarbyltingarinnar árið 1966. Þá
var unga fólkið að berjast fyrir algerum kommúnisma, en nú safnast námsmenn á sama torgi og halda til höfuðstöðva
kommúnistaflokksins og krefjast aukins lýðræðis.
Þúsundir kínverskra námsmanna
reyndu að brjóta sér leið inn í
höfuðstöðvar Kommúnistaflokksins
sem eru í hjarta Pekingborgar í gær
en hópar hermanna vörnuðu þeim
inngöngu. Námsmennirnir kröfðust
lýðfrelsis og kröfðust þess að fá að
ræða við Li Peng forsætisráðherra
Kína.
Mótmælaganga námsmannanna
var mjög þétt og sló í brýnu á milli
þeirra og hermannanna við hlið
Zhongnanhai húsaþyrpingarinnar
þar sem kommúnistaflokkurinn hef-
ur höfuðstöðvar sínar. Er talið að
um fimmþúsund áhorfendur hafi
fylgt námsmönnunum sem voru á
milli fimm og tíu þúsund talsins og
barið barninginn augum, en átök og
mótmæli sem þessi hafa aldrei séð
dagsins Ijós í Peking þau fjörutíu ár
sem kommúnistar hafa haft völdin í
Kína.
Mótmælagangan var hápunktur
þess óróa sem ríkt hefur í Kína þá
fjóra daga sem liðnir eru frá fráfalli
Hu Yaobang fyrrum formanns
kommúnistaflokksins. Náms-
mennirnir kröfðust endurreisn æru
formannsins og aukins lýðræðis í
landinu eins og áður hefur verið
greint frá. Þá kröfðust þeir þess að
forréttindi háttsettra kommúnista
yrðu afnumin.
Hermenn gripu stóran minning-
arkrans um Hu af námsmönnunum
og meinuðu þeim inngöngu að höf-
uðstöðvunum. Ekki er vitað hvort
alvarleg meiðsl eða manntjón hafi
orðið í átökunum, en skotvopnum
var ekki beitt.
Námsmennirnir komu frá ýmsum
háskólum í Peking og höfðu sumir
þeirra yfirtekið „Torg hins himneska
friðar" eða Tiananmen torg í dögun.
Mikil sorg virðist ríkja í Kína eftir
fráfall Hu sem þröngvað var til að
S-Afríka
D rul cknuðu
1 i/ið skírn
Prestur drukknaði ásamt skírnar-
barni sínu við skírn í á nokkurri
nærri bænum Khayelitsha í Suður-
Afríku um helgina.
Söfnuðurinn horfði skelfingu lost-
inn á þegar hin 26 ára Nelolitha
Mapatsela missti stjórn á sér þegar
baptistapresturinn Payi dýfði henni
á kaf í ánna í samræmi við skírnar-
hefð baptista.
Nelolitha dró prestinn með sér í
djúpið. Prestinum skaut upp aftur
en Nelolitha barst með straumnum
niður með ánni. Payi stakk sér því
til sunds á eftir sóknarbarni sínu og
komu hvorugt lífs úr þeirri svaðilför.
segja af sér árið 1987 af harðlínu-
mönnum í kommúnistaflokknum
sem sökuðu hann um að ýta undir
smáborgarahátt og frjálslyndi í
Kína.
Indland:
Hraðlest út
af sporinu
Hraðlest fór út af sporinu á
Indlandi í gær og létust að
minnsta kosti þrjátíu og fimm
manns og rúmlega hundrað
slösuðust. Margir hinna slösuðu
sem fluttir voru á sjúkrahús voru
lífshættulega slasaðir.
Talsmaður járnbrautanna
sagði að tólf vagnar hraðlestar frá
Karnataka lestarfyrirtækinu
hefðu farið út af sporinu nærri
borginni Jhansi í Uttar Pradesh
ríki. Sagðist hann telja að tala
látinna muni hækka.
Madhav Rao Scindia ráðherra
lestasamgangna hélt strax á stað-
inn til að fylgjast með og stjórna
störfum björgunarsveita.
Fjársvik Marcoshjónanna:
Khashoggi
handtekinn
Hinn þekkti saudiarabíski auð-
kýfingur og vopnasali, Adnan
Khashoggi var handtekinn í Sviss í
gær, en Khasogghi er sakaður um
að vera milligöngumaður í fjár-
málasvindli Ferdinands Marcosar
fyrrum forseta Filipseyja. Er talið
að þeir hafi svikið 268 milljónir
dollara úr ríkissjóði Filipseyja og
komið þeim fyrir á einkareikning-
um Marcosar í Sviss.
Ferdinand og kona hans Imer-
alda búa nú í útlegð á Hawai. Nú
standa yfir réttarhöld yfir þeim í
Bandaríkjunum þar sem banda-
ríkjastjórn hefur kært þau fyrir að
stela 103 milljónum dollara úr
ríkissjóði Filipseyja og 165 milljón
dollara út úr bandarískum
bönkum.
Khasoggi var handtekinn eftir
að bandarískur dómstóll hafði úr-
skurðað að hann hafi aðstoðað
Marcoshjónin við að koma aurun-
um undan.
Hann er ákærður sérstaklega
fyrir samsæri með Marcosi til að
koma í veg fyrir að dómstóll kanni
fjárreiður og eigur Marcosar vegna
fjársvikamálsins.
Walesa og Jaruzelski hittust að máli í fyrsta sinn í rúm sjö ár:
Pólska þjóðin sameinist
Lech Walesa leiðtogi Samstöðu
og Wojciech Jaruzelski forseti Pól-
lands hittust að máli í Varsjá í gær
og ræddu næstu skrefin i umbótaátt
í landinu eftir að Samstaða hafði
fengið löggildingu sem verkalýðs-
samtök. Lögðu báðir áherslu á það
að sameina pólsku þjóðina í barátt-
unni við að bæta hið bága efnahagslíf
landsins.
Þeir kumpánar hittust að máli í
Sejm sem er þing þeirra Pólverja og
var fundur þeirra fyrst og fremst
táknrænn fyrir þann árangur sem
náðst hefur í viðræðum kommún-
istastjórnarinnar og stjórnarand-
stöðunnar í Póllandi. Árangurþeirra
viðræðna varð sá að nú liggur fyrir
róttæk umbótaáætlun í stjórnmála-
lífi Póllands.
Það var Jaruzelski hershöfðinginn
sem var í fararbroddi þegar herlög
voru sett í Póllandi í desembermán-
uði 1981. Hafa þeir félagarnir ekki
rætt saman síðan í nóvembermánuði
það ár, en í kjölfar herlaganna var
starfsemi Samstöðu bönnuð og
margir félagar samtakanna, þar á
meðal Lech Walesa hnepptir í fang-
elsi.
Þeir félagar voru ekki einir á báti
í Sejm. Walesa var í forsvari fyrir
hóp stjórnarandstæðinga og Sam-
stöðufólks, en með Jaruzelski komu
meðlimir stjórnarnefndar kommún-
istaflokksins og ríkisstjórnarinnar.
Þessir tveir hópar munu halda áfram
að ræða málin og undirbúa frjálsar
kosningar sent fram fara í Póllandi í
júní. Þá verður kosið í almennum
kosningum til 35% þingsæta í Sejm
sem virka mun eins og neðri mál-
stofa, en kommúnistaflokkurinn
skipar í 65% þingsæta.
Hins vegar verður stofnuð sérstök
Öldungadeild eða efri málstofa.
Öldungadeildarþingmenn verða allir
kjörnir í frjálsum kosningum.
Walesa hefur gefið út þá yfirlýs-
ingu að hann muni sækjast eftir kjöri
sem forseti Póllands í næstu kosning-
um, en samkvæmt umbótaáætlun-
inni verður kjörtímabil forseta sex
ár.