Tíminn - 19.04.1989, Síða 13

Tíminn - 19.04.1989, Síða 13
Miðvikudagur 19. apríl 1989 Tíminn 13 SAMBAND UNGRA FRAMSÓKNARMANNA SUF-SIÐAN Umsjónarmenn Guðmundur Steingrímsson og Steingerður Gunnarsdóttir. VETTVANGUR FYRIR UMRÆÐU Eitt af megin hlutverkum ungliðahreyfinga stjómmála- flokkanna er að hvetja fólk tíl þátttöku í stjómmálum, mynda sér skoðanir og berjast fyrir þeim. Með þetta að markmiði reyna þessar hreyf- ingar, að vísu í mjög misjöfn- um mæli að draga fram þau mál sem þarfnast umræðu og breytinga, skýra þau og vinna þeim farveg. Þetta er gert með fundahöldum, blaðaút- gáfu og námskeiðahaldi, raun- ar með öllum þeim tækjum sem tUtæk em með sæmUega góðu móti. Samband ungra framsóknarmanna hefur staðið fyrir blaðaútgáfu með ýmsum hætti gegnum tíðina. Um þessar mundir gefur SUF út sérstakt fréttabréf til félagsmanna sinna. Þá hefur SUF sent frá sér þjóðmálaritið SÝN með vissu millibili. Tímaritaút- gáfa er ákaflega dýrt fyrirtæki nú á tímum og baráttan um auglýsingar sem standa undir útgáfunni hörð. Stjórnmálaflokkarnir eru fjárvana fyrirtæki og því ekki á vísan að róa um stuðning við slíka útgáfu. Til að skapa sér vettvang fyrir umræðu um baráttumál sín hefur SUF átt innhlaup hjá málgagni flokks- ins Tímanum og fengið sérstaka síðu undir sín málefni sk. SUF-síðu. Nú hyggst SUF taka þetta upp að nýju. Ætlun okkar er að hér gefist mönnum tækifæri til að birta skoðanir sínar um samfélagsmál, stöðuna í stjómmálun- um hverju sinni. Greint verður frá starfi SUF, birtar ályktanir frá fundum, stjórnmálamenn og flokkar skammaðir ef þeir eiga það skilið, birt viðtöl við áhugamenn um stjórnmál, sem sagt reynt að halda uppi umræðu um stjórnmál. Umsjónarmenn síðunnar eru þau Steingerður Gunnarsdóttir og Guð- mundur Steingrímsson (91-41809). Áhugamönnum um síðuna, þeim sem vilja birta greinar eða fréttir er bent á að hafa samband við þau. Þá geta menn einnig sent efni beint til Tímans, merkt SUF-síðan. Það er von okkar að áhugafólk um stjórnmál og samfélagsmál notfæri sér þennan kjöma vettvang til um- ræðu og leggi baráttu SUF lið við að skapa hér mannvinsamlegra samfé- lag. Gissur Pétursson, formaður Sambands ungra framsóknarmanna Hluti fundarmanna á miðstjórnarfundi SUF í Viðey. Húsbréfakerfi ekki til bóta Höfnum brölti varn- arliðsins Ungir framsóknarmenn em á móti frekari umsvifum vamarliðsins á ís- landi og hafna því tilboði mann- virkjasjóðs NATÓ um lagningu varaflugvallar hérlendis sem uppfylli skilyrði herflugvallar. Sá flugvöllur sem NATÓ hefur í hyggju að gera er hernaðarmann- virki og verður alltaf að skoðast sem slíkur. Rökin fyrir lagningu hans eru því hernaðarlegs eðlis. Það er einsýnt að lenging flug- brautanna á Egilsstöðum og Sauðár- króki í 2700 metra muni fullnægja öllum öryggiskröfum sem varaflug- völlur fyrir almennt flug krefst. ATVINNULEYSI BLASIR VIÐ SKÓLAFÓLKI Miðstjóm Sambands ungra framsóknarmanna iýsir áhyggjum sínum yfir því uggvænlega atvinnu- leysi sem ríkt hefur að undanförnu. Sérstakar áhyggjur ber að hafa af því að skólafólk fái ekki vinnu næsta sumar og ef fram heldur sem horfir munu stórir hópar fólks ganga atvinnulausir er skólum lýk- ur í vor. Opinber fyrirtæki, jafnt sem einkafyrirtæki, halda mjög að sér höndum í ráðningu afleysinga- fólks í sumar. Dæmin sanna að í kjölfar atvinnuleysis meðal ungs fólks fylgja oft veruleg samfélags- leg vandamál. Það kemur einnig iðulega niður á fjölskyldum þeirra, þar sem sumaratvinnutekjur geta gert gæfumuninn í afkomu heimil- anna. í ljósi þessa hvetur SUF þau sveitarfélög sem eiga þess nokkurn kost, að veita fjármagni í sérverk- efni er tryggi skólafólki atvinnu í sumar. Slíkt er siðferðisleg skylda allra þeirra yfirvalda sem láta sig nokkru varða velferð þeirrar kyn- slóðar sem þau bera í raun ábyrgð á að ala upp. Stjórnarfrumvarp um húsbréfakerfi er nú í meðferð á Alþingi. Miðstjórnarfundur SUF hvetur Alþingi og þá sérstaklega þingflokk framsóknarmanna að hafna fram- komnu frumvarpi og telur fundurinn ekki nokkra þörf né ástæðu til að reynslukeyra slíkt kerfí. SUF álítur að standa skuli fast og óhikað við núverandi útlánakerfi en þó verði gerðar nauðsynlegar breyt- ingar sem tryggi betri nýtingu fjár- magns til þeirra sem þess þurfa helst með. Ungir framsóknarmenn telja að með setningu gildandi laga um húsnæðismál frá árinu 1986 hafi verið tekið eitt stærsta skref í hús- næðismálum þjóðarinnar. Nýlega framkomnar upplýsingar um veitingar lána og umsóknir til Húsnæðisstofnunar sýna að hús- næðislánakerfið er að nálgast jafn- vægi. Þetta þýðir í reynd að biðlisti og biðtími eftir húsnæðislánum fer að styttast. Sífellt fleiri og fleiri íbúðir á fasteignamarkaði eru með nýjum og háum húsnæðislánum og ráðstöfunarfé lífeyrissjóðanna fer stöðugt vaxandi. Mjög varhugavert er að gera ráð fyrir því að í skuldabréfaskiptakerfi húsbréfa gangi að ríkissjóður sé skyldugur til að veita tryggingar jafn opið og hömlulaust og gert er í húsbréfafrumvarpi. Slíkt mun leiða til þenslu á íbúða og fjármagnsmark- aði og einnig verða verðbólguhvetj- andi, því mikil útgáfa ríkisskulda- bréfa hefur lík áhrif og peninga- prentun. SUF vill sérstaklega benda á að í núverandi reglum um útlán hefur ungt fólk forgang bæði hvað varðar afgreiðslu lána og upphæðir til út- lána við kaup á fyrstu íbúð. í húsbréfakerfi er ekki gert ráð fyrir forgangi ungs fólks, heldur staðhæft að allir eiga að geta fengið öll þau lán sem þeir þurfa þegar þeir þurfa. Þetta gengur ekki upp um leið og þak verður sett á tryggingar ríkis- sjóðs, sem er óhjákvæmilegt. Hús- bréfakerfið mun því skerða forgang og rétt ungs fólks til húsnæðislána. Árni hefði átt að vera með Ámi Gunnarsson hinn fjalltrausti framvörður Grænfriðunga hér á landi og þingmaður krata hefði átt að fá að fara með í hina opinberu heimsókn Halldórs Ásgrímssonar sjávarútvegsráðherra til Vestur- Þýskalands. Ámi hefur verið manna ötulastur við að gagnrýna Halldór fyrír einharða afstöðu hans í hvalveiðimálinu og opinberlega beðið íslensk stjómvöld að lúffa fýrir „þrýstingi“ Grænfríðunga. Það hefði ef til vill runnið upp fyrir honum hversu mikil fjölmiðlamessa áróður Grænfriðunga er og hversu viðskiptalönd okkar, t.d. Vestur- Þýskaland, era háð afurðum okkar. Móttökuhátíðin í Bremerhaven til heiðurs Halldóri er skipulögð af fólki sem er með báða fætuma á jörðinni. Ámi og skoðanabræður hans hér á landi hefðu gott af því að kynnast svoleiðis fólki. Segja má að árangurinn af för sjávarútvegsráðherra undirstriki endanlega að stefna hans hefur verið rétt og sýnir að oft er gott að reyna að halda sjó í málum sem þessum. Þegar þessu máli lýkur á sjávarútvegsráðherrann og enginn annar að njóta góðs af því. Þetta mál hefur verið þess eðlis að ýmsir stjórnmálamenn hafa vappað í kríngum það eins og kettir í kringum heitan graut, tvístígandi um það hvaða aftöðu þeir eiga að taka en em fyrst og fremst tilbúnir til að taka þá afstöðu sem fellur í kramið. Afstöðu sem hugsanlega getur tryggt þeim atkvæði í næstu kosningum. Fyrir ungt áhugafólk í stjómmálum er það ekki beint til eftirbreytni að sjá að menn sem ganga um með fímm mínútna gleraugu á nefínu geti komist í áhrifastöður. Helgi Pétursson tekur viðtal við Kristján Kristjánsson á fjölmiðlanámskeiði SUF og kjördæmissambandanna. Gissur Pétursson sér um myndatöku og Kristinn Halldórsson undirbýr sig. Skemmtilegt fjölmiðlanámskeio Helgina 18.-19. mars stóð SUF fyrir fjölmiðlanámskeiði í Reykjavík í samvinnu við fulltrúaráðið. Nám- skeiðið var vel sótt og tókst mjög vel. Helgi Pétursson fréttamaður var leiðbeinandi á námskeiðinu. Fyrri daginn var farið í ýmsar kenn- ingar um áhrif fjölmiðla, hvernig undirbúa á sig undir fréttaviðtöl, hvernig best er að útbúa efni fyrir fjölmiðla og fleira í þeim dúr. Seinni daginn voru þátttakendur þjálfaðir í lestri og viðtölum fyrir framan sjón- varpsvélar. Ákveðið var að bæta einu kvöldi við námskeiðið og var Maríanna Friðjónsdóttir upptökustjóri á Stöð Tvö þá gestur hópsins en hún hefur mjög víðtæka reynslu af sjónvarps- störfum. Sköpuðust skemmtilegar umræður í framhaldi af frásögn hennar. Til stendur að halda svipað nám- skeið á Akureyri nú á vordægrum og hugsanlega líka á Egilsstöðum og ísafirði ef næg þátttaka fæst. <i nrcj . rrfiáa.'rrii:? ikí6!í»'I -'eút iTéofi *?o. znh nriT i'ýyv :un?.

x

Tíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.