Tíminn - 19.04.1989, Side 15
Miðvikudagur 19. apríl 1989
Tíminn 15
Yfirlýsing frá Safnaðarfélagi
Fríkirkjunnar í Reykjavík
Pann 15. apríl s.l. var haldinn
aðalsafnaðarfundur Fríkirkjunnar í
Reykjavík, mánuði síðaren lög gera
ráð fyrir og tveim mánuðum eftir að
reikningar voru tilbúnir. Á fundin-
um voru um 850 fundarmenn eða
rúmlega 150 fleiri en á fundinum í
Gamla bíói 12. september síðastlið-
inn.
Stjómarmenn höfðu betur í kosn-
ingum á aðalfundinum í Háskólabíói
og munaði frá 50 til 100 atkvæðum í
helstu atkvæðagreiðslum. Með því
að nota þeirra eigin reikningsaðferð-
ir má því segja að innan við 10%
atkvæðisbærra safnaðarmanna styðji
nýju stjórnarmennina.
Nýr formaður sagði í lok aðal-
fundar að hann hygðist finna frið-
samlegar lausnir á þeim vandamál-
um sem ógnað hafa söfnuðinum
undanfarin ár. Safnaðarfélag Frí-
kirkjunnar og stuðningsmenn sr.
Gunnars Björnssonar vonast til að
nýi formaðurinn standi við þá yfirlýs-
ingu sína, að nú verði unnið að
sáttum, og að í deilunni fáist lausn,
sem allir geta sætt sig við. Við höfum
árangurslaust leitað friðsamlegra og
lýðræðislegra lausna síðan sr. Gunn-
ari var fyrirvaralaust sagt upp störf-
um í sumar.
Viljum við í því sambandi nefna
samþykktir lögmæts safnaðarfundar
í Gamla bíói, þarsemm.a. uppsögn-
in var lýst ógild. Samþykktir þess
fundar hafa ekki verið afturkallaðar
og hljóta því að teljast gildar. Þótt
hluti stjórnar hafi ákveðið að taka
ekki tillit til vantrausts, tók hún tillit
til þess að söfnuðurinn kaus að hafa
ekki prestskosningar, á þeim for-
sendum að hann hefði réttkjörinn
prest.
Við viljum einnig benda á undir-
skriftir nær 1.000 safnaðarmanna til
stuðnings sr. Gunnari, en þeim var
safnað saman á skömmum tíma í
sumar. Friðsamleg lausn á vandan-
um hlýtur að taka tillit til þeirra
eindregnu óska safnaðarmanna sem
fram komu bæði í undirskriftasöfn-
uninniogáfundinum 12. september.
Aðalfundurinn í Háskólabíói
fjallaði ekki formlega um uppsögn-
ina. Hins vegar náðu yfirlýstirstuðn-
ingsmenn sr. Gunnars ekki kosn-
ingu.
Upprunalega snýst deilan innan
safnaðarins ekki um prestana sjálfa,
heldur hversu mikil völd stjórnin á
að hafa án afskipta safnaðarins af
störfum hennar.
Við hvetjum því félagsmenn okk-
ar og stuðningsmenn sr. Gunnars til
að segja sig ekki úr söfnuðinum,
þótt brottrekstrarfólk hafi haft sigur.
Pessu máli er engan veginn lokið og
við viljum gefa nýjum stjórnarmönn-
um tækifæri til þess að efna heit sín
jim friðsamlega lausn.
F.h. Safnaðarfélags
Fríkirkjunnar í Reykjavík,
Þorsteinn Þorsteinsson
Er aðförin að sr. Gunnari
af pólitískum toga?
Sr. Gunnar var sjálfstæðismaður
og varafulltrúi flokksins í bæjar-
stjórn Bolungarvíkur.
Hann gekk til liðs við Albert og
var 8. maður á lista Borgaraflokksins
við síðustu álþingiskosningar.
Fríkirkjan var, að minnsta kosti
fyrr á tíð, mikil kratakirkja.
Þorsteinn Eggertsson (krati) er
sagður hafa byrjað formennsku sína
í Fríkirkjunni á því að teggja til, að
sr. Gunnari yrði sagt upp.
Meðhaldsmenn hans í safnaðar-
stjórn Fríkirkjunnar eru margir
sjálfstæðismenn (ísak, Guðmundur
Hjaltason, Bernburg-fólkið ...).
Á safnaðarfundi í Gamla bíói er
aðstoðar-fundarstjóri Lára V. Júlí-
usdóttir (krati).
Helsti stuðningsmaður sr.
Gunnars, Þorsteinn Þorsteinsson, er
einn forystumanna foreldrafélags
Ölduselsskóla (Sjafnar-mál).
Fundarstjóri í Háskólabíói, á
aðalfundi Fríkirkjunnar 1989, var
Sigurður E. Guðmundsson hjá hús-
næðismálastjórn (krati).
Sr. Cecil Haraldsson er sagður
krati.
Þegar sr. Gunnar bauð sig fram á
vegum Borgaraflokks, hringdi fjöl-
skylda Rannveigar Guðmundsdótt-
ur (krati, aðstoðarráðherra), nánar
tiltekið systir hennar og fjölskylda,
til sr. Gunnars og sagði sig samstund-
is úr Fríkirkjunni.
Stuðningsmaður
sr. Gunnars.
10/3 1989 - Að loknum lestri úr fréttafrásögn Tímans 4. mars um viðræður Ólafs
Ragnars Grímssonar og starfsfólks Borgarspítalans:
„Þá varð Kain niðurlútur“
Þannig hljóðar frásögn Móses-
bókar af viðbrögðum Kains þegar
Drottinn lét í ljósi vanþóknun sína
á atferli Kains.
Ólafur Ragnar Grímsson, fjár-
málaráðherra leitar leiða til að
lækka kostnað við heilsugæslu og
þjónustu lækna við stóru sjúkra-
húsin í Reykjavík og ef till vill
víðar. Þeim ábendingum hafa
læknar tekið illa og sýnt fram á, að
það gæti einungis leitt til minni og
lakari heilbrigðisþjónustu. Loka
þyrfti heilum deildum og biðtími
sjúklinga eftir læknishjálp mundi
stórlega lengjast og væri hann þó
nógu langur fyrir.
Ölafur benti þá á, að stórum
hluta þess sparnaðar, sem um er
rætt, mætti hugsanlega mæta með
því að draga úr þeim fjallháu og
sérstöku starfsfríðindum, sem
læknar sjúkrahúsanna hefðu tryggt
sér í kjarasamningum sínum. Með
því gætu þeir gert sitt til að stytta
þann biðtíma, sem hinir sjúku
yrðu að búa við og veitt sjúkum
lífsnauðsynlega læknishjálp.
Við þessa ábendingu ráðherrans
sló þögn á læknana og aðra við-
komandi, sem talað var til. - Og
þeir urðu niðurlútir - líkt og Kain
forðum.
Sú þögn þeirra er skiljanleg. -
En þeir sem eru sjúkir á biðlista
bíða eftir svari þeirra.
- Almenningur gerir sér ekki
grein fyrir hver fríðindi hér er um
að ræða, né hvað háum upphæðum
þau nema í krónum talið.
Blaðið Dagur á Akureyri upp-
lýsti það (þann 10/3), að læknar
(sjúkrahúslæknar?) eigi rétt á
þriggja mánaða orlofi á fullum
launum ásamt uppihaldi og ferða-
kostnaði. En ekki var þar sagt
hvort þetta orlof er greitt í pening-
um ef það er ekki tekið. En líklegt
er að svo sé.
Frá öðrum heimildum berast
upplýsingar um, að bílastyrkur
sömu manna sé svo hár að aka
megi fyrir þá upphæð fram og aftur
til tunglsins - nokkrar ferðir. Sú
upphæð greiðist án tillits til hvort
bílnum er ekið eða hann er ekki
hreyfður.
Eflaust er ekki allt upp talið með
þessu. Og kannski er þetta aðeins
brot af þeim starfsfríðindum, sem
þessi þýðingarmikla starfsstétt hef-
ur tryggt sér ofan á það sem kölluð
eru laun, í samningum þar sem
valkosturinn er annað hvort pen-
ingarnir eða líf hinna sjúku.
Það væri þarft verk að þeir
kjarasamningar og aðrir álíka við
aðra starfshópa væru gerðir öllum
almenningi kunnugir. - Það gæti ef
til vill skapað visst aðhald gegn
óhóflegum kröfum.
Guðmundur P. Valgeirsson.
PÓSTFAX TÍMANS
Sunnlendingar!
Guömundur Bjarnason
Ómar Ragnarsson
Vorfagnaður framsóknarfélaganna í Áme ssýslu verður
19. apríl n.k. í Hótel Selfoss.
Heiðursgestir verða Guðmundur Bjarnason,
heilbrigðisráðherra og frú.
Litli Sam skemmtir með söng og Ómar Ragnarsson
kitlar hláturtaugamar.
Hljómsveitin Upplyfting leikur fyrir dansi langt fram
á sumar.
Húsið opnað kl. 20.00.
Borðhald hefst kl. 21.00 stundvíslega.
Nánari upplýsingar og miðapantanir í símum:
31139 Guðfinna
33763 Halla
21170 Sigrún
21048 Gísli
34636 Sturla
Suðurnesjamenn
VORHÁTÍÐ
Vorhátíð Framsóknarfélaganna í Keflavík verður haldin í
Glaumbergi (K.K. sal) föstudaginn 21. apríl og hefst kl.
19.30. Verð kr. 1.500,-
Steingrímur Jóhannes
Dagskrá: Ávarp, Steingrímur Hermannsson, forsætisráð-
herra. Jóhannes Kristjánsson flytur gamanmál.
Einsöngur, Guðmundur Sigurðsson við undirleik Gróu
Hreinsdóttur.
Góður matur - Happdrætti o.fl.
Sérstakir gestir verða Steingrímur Hermannsson og
Edda Guðmundsdóttir, Jóhann Einvarðsson og Guðný
Gunnarsdóttir, Níels Árni Lund og Kristjana Benedikt-
dóttir.
Fjölmennið og takið með ykkur gesti.
Nánari upplýsingar og miðapantanir í símum: 13764
Drífa - 13484 Skúli - 15410 Gunnar.
Hörpukonur Hafnarfirði, Garðabæ og
Bessastaðahreppi:
Aðalfundur Hörpu
verður haldinn miðvikudaginn 26. apríl kl. 20.30 að Hverfisgötu 25,
Hafnarfirði.
Stjórnin.
Aðalfundur Félags framsóknar-
kvenna í Reykjavík
verður haldinn þriðjudaginn 2. maí kl. 20.30 að Rauðarárstíg 18,
Hótel Lind.
Dagskrá: 1. Venjuleg aðalfundarstörf.
2. önnur mál. Stjórnin.