Tíminn - 19.04.1989, Side 20
RÍKISSKIP NÚTÍMA FLUTNINGAR S VERÐBRÍFAVIBSKIFTI
Halnarhúsinu v/Tryggvagötu, SAMVINNUBANKANS
S 28822 SUÐURLANDSBRAUT 18. SlMI: 688568
„LÍFSBJÖRG í
NORÐURHÖFUM“
Útvegsbankinn Seltj.
Gíró-1990
Gegn náttúruvernd
á viliigötum
PÓSTFAX
TÍMANS
687691
Tímimi
MIÐVIKUDAGUR 19. APRÍL 1989
Mannbjörg varð þegar Þverfell ÓF 17, sökk út af Gróttu í gær:
Héngu á hlið bátsins
er þeim var bjargað
Þrem mönnum var bjargað þegar Þverfell ÓF 17,
lagðist á hliðina og sökk skömmu síðar, við Kerlingarsker
skammt út undan Gróttu, upp úr klukkan fjögur síðdegis
í gær. Pálmi RE sem staddur var í nágrenninu kom
skipverjum til bjargar og fór með þá til Reykjavíkur.
Þvcrfell var að veiðum skammt
út af Gróttu og var með netatrossu
á hliðinni. Þegar verið var að snúa
bátnum lagðist hann á hliðina.
Guðmundur Valdimarsson,
skipstjóri á Pálma RE 48, sem
bjargaði áhöfninni á Þverfellinu,
sagði í samtali við Tímann að þeir
hefðu verið staddir um 1/2 mílu
norður af Þverfellinu, þegar það
lagðist á hliðina. Guðmundur
sagði að þcint á Þverfellinu hafi
aðeins tekist að kalla einu sinni í
talstöðina til sín, en honum hafi
ekki tckist að svara þeim. „Við
slepptum því sem við vorum með
og héldum strax til þeirra," sagði
Guðmundur, en með honum er
einn maður á Pálma RE.
Skipverjarnir á Þverfelli héngu
á hlið bátsins, þar sem hann lá á
hliðinni, þegar Pálmi RE kont að
og tók þá um borð, þurrum fótum.
Komið var með áhöfnina á Þvcr-
fellinu til hafnar í Reykjavík um
klukkan fimm.
„Þetta er besti róður sem ég hef
fengið um ævina og á eflaust ekki
eftir að koma með slíkt aflaverð-
mæti að landi,“ sagði Guðmundur
Valdimarsson.
Þegar búið var að bjarga
mönnunum þremur uni borð,
hirtu skipverjar baujur og ýmis-
legt annað lauslegt sem flaut eftir
að báturinn sökk.
Sigurjón Antonsson var skip-
stjóri á Þverfellinu, sem var 8
tonna eikarbátur skráður á Ólafs-
firði, en gerður út frá Reykjavík.
Pálmi RE 48, sem kom áhöfninni á Þverfellinu til bjargar eftir að
báturinn lagðist á hliðina við Kerlingarsker út af Gróttu og sökk
skömmu síðar. Tímamynd Árni Bjarna
Börkur Thoroddsen, formaður Tannlæknafélags íslands, tekur í höndina á Gunnari Braga Kjartanssyni og býður hann velkominn á stofuna,
Tímamynd Pjetur.
„Búlgaríustellið“ til athugunar hjá
formanniTannlæknafélags íslands:
Börkur
kíkir
uppí
Gunnar!
Gunnar Bragi Kjartansson mætti
galvaskur á tannlæknastofu Barkar
Thoroddsen í gærmorgun, til að láta
líta á tannviðgerðir sem fram-
kvæmdar voru í Búlgaríu nú nýver-
ið. Tíminn greindi frá viðamikilli
aðgerð sem Gunnar fór í í Búlgaríu
og kostaði hann ekki nema ríflega
þúsund krónur. Um var að ræða
krónur á tvær framtennur, viðgerð á
brú og fyllingu í þrjá jaxia.
Þegar við greindum frá þessu
ræddúm við við formannTannlækna-
félags íslands, Börk Thoroddsen, og
tók hann strax vel í þá hugmynd að
skoða viðgerðirnar og gera verktil-
boð í samsvarandi aðgerð. Börkur
og Gunnar hittust í gær á stofu
Barkar og hófst sá fyrrnefndi þegar
handa við að kanna viðgerðina.
Börkur áskilur sér rétt til að taka sér
allan þann tíma er hann telur nauð-
synlegan til að meta viðgerðina og
gera verktilboðið.
-ES