Tíminn - 22.04.1989, Page 8

Tíminn - 22.04.1989, Page 8
18 HELGIN Laugardagur 22. apríl 1989 í TÍMANS RÁS Atli Magnússon: Margt er nú skrýtið. Allt er breytingum undirorpið og nýmælin dynja yfir svo skjótt að engin leið er að hafa við að með- taka þau. Fyrir vikið verður ýmis- legt sem vísast hefði valdið fjaðra- foki fyrir svo sem tveimur áratug- um að hversdagslegri smáfrétt, sem menn opna aðeins annað augað til þess að meðtaka og gleyma síðan að mestu, nema mann rankar til að hafa heyrt þessu fleygt ef einhver minnist á það seinna. Um daginn fór hér fram borgara- leg ferming. Hún er eitthvað á þá leið að enginn prestur eða kirkju- leg fræði koma þar við sögu, heldur felst undirbúningurinn í ýmsum hagnýtum fræðum, sumpart þjóð- félagsfræðilegum en líka er komið inn á helstu getnaðarvarnir og annað sem vissulega er hagnýtt fyrir ungling að vita á gelgjuskeið- inu. Allt er þetta svo sem mein- laust, en það vefst hálfgert fyrir manni hvers vegna þarf að hengja þetta saman við fermingu? Hér áður var það blátt áfram svo að þeir sem ekki kærðu sig um kirkjur og þar af leiðandi ekki fermingu létu þetta bara hjá líða og fengu að borga kirkjugjaídið til háskólans til eflingar óumdeilanlega jarð- bundnum vísindum. Þetta sýndist vera einföld lausn og liggja beint við. En þá kunna einhverjir að benda á hve hagnýtur sá undirbúningur sé sem borgaralega fermingin býður upp á. En mátti þá ekki auglýsa einhvers konar námskeið þar sem þessi vísdómur var kenndur (að ekki sé nú minnst á að hann er hvort sem er alls staðar að hafa á vegum allra handa fræðslustofnana og annarra stofnana - ef menn nenna að bera sig eftir honum). Á slíku námskeiði hefði rétt eins mátt afhenda bréf með ráðuneytis- stimpli upp á það að unglingurinn væri orðinn maður með mönnum, þótt ekki vildi hann að vísu heita kristinn maður. En þessi skrýtna athöfn, þar sem fólk vill endilega heita fermt, sem mér er ómögulegt að skilja að geti skipt nokkru minnsta máli fyrir það, fær mann til þess að hrista höfuðið. En sennilega er skýringin sú að mörgum er ómögulegt að lifa án þess að vera sífellt á höttunum eftir fjötrum einhverra venja og hefða til þess að slíta af sér. Þar sem nú er löngu svo komið að lengi þarf að svipast um, áður en komið verður auga á slíka fjötra, þá verður kannske skiljanlegra að ein- hver skarpeygur hafi þefað uppi ferminguna, sem öllum hefur þó verið frjálst að láta lönd og leið. Og fullnægi borgaraleg ferming þess háttar frelsisþrá hjá einhverj- um, þá getur vel verið að hún teljist af því góða. Þar hillir að minnsta kosti undir skýringu. Nei, borgaraleg ferming getur áreiðanlega ekki gert neinum illt. Það er áreiðanlegt. En maður styn- ur enn nú aftur: Að fólk skuli nenna að vera að hafa fyrir þessu. Hefði ekki verið nær fyrir unga fólkið að slá sér út og fara á almennilegt ball eða í skíðaferð? GETTU NU Myndin í „Gettu nú“ síðast var frá Keflavíkurhöfn. Þá er spurt hvaða höfuð- ból það sé sem hér má líta. Það er norðlenskt og þaðan hafa komið ýmsir þjóðkunnir menn. I c-1ZH 3> ]« I C 13.11 H -1 u> I w Ii|2. □S QBQQ QS □□□ KROSSGÁTA

x

Tíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.