Tíminn - 22.04.1989, Síða 11
Laugardagur 22. apríl 1989
HELGIN
I
21
SAKAMÁL SAKAMÁL SAKAMAL SAKAMÁL SA
rifin af henni og maðurinn hafði
síðan svalað undarlegum hvötum
sínum á henni. Læknirinn taldi ekki
útilokað að konan hefði þegar verið
látin, er hún var dregin niður að
teinunum. Náunginn hefði allt eins
getað verið að svala sér á líki.
Nú var lögreglueftirlit í Craigton
Road aukið til muna en ekki var þó
hægt að tryggja fullkomið öryggi
allra sem þar voru á ferli, því fleiri
hverfi borgarinnar þurftu á fjöl-
mennu lögregluliði að halda lfka.
Prátt fyrir að allt væri gert sem
hægt var, liðu fimm mánuðir áður en
mönnum varð eitthvað ágengt við
rannsóknina. Eina vonin var sú að
náunginn hefði skilið við sinn verri
mann og væri nú góður og gegn
borgari á ný. En alltaf var fyrir hendi
sá möguleiki að hann léti til skarar
skríða á ný og það gerðist.
Meðal þvergatna sem liggja að
Craigton Road er Montraviestræti
og á það þvert gengur steinlagður
stígur sem kallast Montravietröð.
Þar bjó Helen Smith sem lengi hafði
búið í hverfinu og var einn af elstu
íbúum þess, 77 ára. Hún fór í
heimsókn til kunningjafólks sfns,
Donalds og Söndru MacAllen sem
voru 80 og 75 ára. Það var 12. janúar
1988 og Helen ætlaði að versla fyrir
McAllen-hjónin um leið og sjálfa sig
ef þau þyrftu þess með.
Þegar Helen kom að húsi gömlu
hjónanna brá henni í brún að finna
útidyrnar opnar og liggjandi að
stöfum. Hún gekk inn fyrir og litaðist
um en sá þá að öryggiskeðja á
hurðinni hefði hreinlega verið rifin
laus með skrúfum og öllu.
Helen rak upp óp þegar hún sá
hvar Donald MacAllen lá innar í
ganginum. Höfuð hans var molað og
blóðslettur voru upp um veggina og
pollur á gólfinu. Hendur gamla
mannsins voru bundnar saman með
rafmagnsvír.
Þegar Helen steig yfir líkið og
gekk í átt að svefnherberginu, bað
hún þess í hljóði að vinkona hennar
væri heil á húfi. Þó hún þættist við
öllu búin, er hún opnaði, hrökk hún
til baka af þeirri sjón sem við blasti.
Sandra Mac Allen lá nakin á bakinu
í hrúgu af blóðugum rúmfötum ofan
á rúminu. Náttkjóllinn lá á gólfinu,
í blóðugum tætlum. Snjóhvftt hár
gömlu konunnar var atað blóði og
andlitið var ekki lengur andlit.
Áfallið varð Helen svo mikið að
hún megnaði ekki að gefa frá sér
nokkurt hljóð, en skjögraði út fyrir,
þar sem hún féll í ómegin. Þar sá
nágranni til hennar og gerði glæpa-
deild lögreglunnar viðvart andartaki
seinna, er hann var búinn að líta inn
í íbúðina.
Lögreglumenn voru ekki í
minnsta vafa um að hér var á
ferðinni sami náungi og murkaði
lífið úr Alison Baker nokkrum mán-
uðum áður. Nú hafði hann ruðst inn
í íbúð og skeytt ofsa sínum á öldruð-
um, saklausum hjónum. Farið var
með sporhunda í húsið í leit að slóð
morðingjans og færanleg rannsókn-
arstofa var flutt á staðinn svo athuga
Alison Baker, 57 ára ekkja var
barin til dauðs og nauðgað á
járnbrautarteinum.
Robert McFee var trúlofaður gull-
fallegri stúlku sem grunaði ekki
hið minnsta um atferli unnustans.
mætti vísbendingar jafnóðum og þær
bærust.
í þetta sinn reyndist morðinginn
ekki hafa verið jafn varkár og áður.
Með hendurnar ataðar blóði fórnar-
lambanna hafði hann skilið eftir
greinilegt lófafar á hurð.
Lögreglan leitaði til almennings
eftir aðstoð:
-Vitað er að sá grunaði er um það
bil hálfþrítugur karlmaður og hann
sást á hlaupum um hádegið á Mon-
travietröð á leið norður eftir og gæti
hafa sést við kirkjugarðinn og þar
um slóðir. Ástæða er til að ætla að
föt hans séu blóðug og einhver
hlýtur að þekkja manninn.
Hver sem tengsl kunna að vera við
hinn grunaða eru allir sem geta veitt
upplýsingar beðnir að hafa samband
við lögregluna.
Þó þetta leiddi ekki til þess að
þegar í stað væri vitað hver morðing-
inn var, gáfu sig fram tveir menn í
færanlegu rannsóknarstofunni við
morðstaðinn. Þeir höfðu verið að
bíða eftir strætisvagni um hádegið
cg þá séð ungan, grannvaxinn mann
sem skokkaði allhratt eftir Paisley
Road. Þeir lýstu honum sem meira
en meðalháum og töldu að hann
væri með gleraugu. Hann var í
vinnufötum.
Ólíklegur morðingi
Svo vildi til að þessi lýsing var það
sem þurfti til að leysa málið. Allir
sex glæpirnir sem framdir höfðu
verið í hverfinu á tveimur árum,
höfðu átt sér stað við Craigton Road
sem er innan við 3 km að lengd.
Talið var því að maðurinn byggi
þarna nálægt og einhver gat hæglega
hafa séð hann skjótast blóði drifinn
inn til sín eftir voðaverkin.
Þegar hér var komið sögu hafði
lögreglan ýmsar vísbendingar undir
höndum: Lýsingu, blóðugt lófafar
og þá rökréttu tilgátu að maðurinn
byggi í grenndinni og hlyti að vera
nokkuð sérstæður í háttum.
Nú var tekið að ganga í hús og
spyrja fólk en nær vika leið áður en
nokkuð bitastætt rak á fjörurnar.
Það var þegar lögreglumenn með
spurningalista börðu að dyrum í
íbúð við Paisley Road.
Miðaldra kona sem þar kom til
dyra skýrði frá því að hjá henni
byggi ungur frændi hennar, Robert
McFee að nafni. Hann væri tvítugur
og starfaði í verksmiðju í Glasgow
en kæmi ekki heim fyrr en undir
kvöldið. Aðspurð hvort hann væri
hávaxinn og gengi með gleraugu,
játti konan því fyrra en sagði að
Robert ætti að vísu gleraugu en
gengi ekki með þau nema stöku
sinnum. Hún aftók að hann hefði
nokkurn tíma átt í útistöðum við
lögregluna og virtist hneyksluð á
spurningunni.
-Hvar var hann að kvöldi 12.
mars? spurði lögreglumaðurinn.
-Líklega með unnustu sinni, svar-
aði konan. -Þau eru saman bókstaf-
lega á hverju kvöldi. Hún sótti síðan
mynd af 21 árs vélritunarstúlku,
með falleg, græn augu og þykkt,
rauðbrúnt hár.
Útilokað virtist að Robert McFee
sem átti svo fallega unnustu hefði
minnsta áhuga á öðrum konum,
allra síst í líkingu við Alison Baker
og Söndru MacAllen. Þó allt benti
til að Robert væri rangur maður,
hringdu lögreglumenn samt á stöð-
Játaði alla glæpina
Hálftíma síðar var búið að útvega
heimild til að leita í herbergi
Roberts. Sér til undrunar fundu
lögreglumenn vel falinn kassa í fata-
skápnum og í honum allnokkuð af
kvennærfötum ásamt alls kyns tólum
til afbrigðilegra kynlífsathafna.
Nú þótti séð að lögreglan væri á
réttri slóð og menn voru sendir í
verksmiðjuna þar sem Robert starf-
aði. Þar var hann handtekinn og
ekið á lögreglustöðina.
Ungi maðurinn gerði ekki minnstu
tilraun til að neita sakargiftum. -Ég
hef gert hræðilega hluti, sagði hann.
-Hvað get ég sagt? Ég gerði þetta.
Á stöðinni var lófi hans borinn
saman við blóðuga farið og reyndist
eins. Robert McFee játaði formlega
á sig morðin á gömlu hjónunum og
Alison Baker.
-Ég gekk um Craigton Road og
leitaði að konu, bara einhverri konu.
-Ég sá þessa koma og mér var sama
þó hún væri ekki ung. Ég vissi um
gat á girðingunni og stökk þar út og
réðst á hana. Ég kýldi hana í andlit-
ið, held ég. Svo dró ég hana inn fyrir
og barði hana meira. Þegar hún
missti meðvitund, nauðgaði ég
henni.
Varðandi morðið á hinni 75 ára
Söndru MacAllen sagðist Robert
hafa læðst inn í svefnherbergi hennar
og ráðist á hana. Þá hafi gamli
maðurinn reynt að hjálpa henni en
við ofurefli var að etja og Robert
barði þau bæði til dauðs.
Þegar honum var sýndur hringur-
inn sem fannst á götunni þar sem
ráðist var á rauðhærðu konuna,
viðurkenndi hann að eiga hann og
hafa misst hann í átökunum. Hann
viðurkenndi einnig að vera glugga-
gægir og þvottasnúruþjófur auk þess
að hafa berað sig fyrir unglingsstúlk-
um nokkrum sinnum.
Robert McFee kom fyrir rétt 11.
maí 1988 og eftir þriggja daga vitna-
leiðslur tók það kviðdóm 75 mínútur
að komast að þeirri niðurstöðu að
hann væri sekur af öllum ákærum.
Sálfræðingur bar að í viðtölum hefði
ákærði beðið um hámarksrefsingu.
Bað um hengingu
-Hann sagði mér að ef fólk væri
enn hengt fyrir glæpi, vildi hann láta
hengja sig fyrir það hræðilega sem
hann hefði gert við fólk, sagði sál-
fræðingurinn. Hann kvaðst sann-
færður um að Robert hefði verið
undir áhrifum sterkra, afbriðilegra
tilfinninga þegar hann rændi þvottin-
um og gægðist inn á fáklætt
kvenfólk, þegar hann háttaði sig og
loks þegar hann nauðgaði, barði og
myrti.
Þegar dómarinn heyrði úrskurð
kviðdóms, dæmdi hann Robert í
lífstíðarfangelsi án möguleika á náð-
un í 15 ár. -Þú ert sérstaklega
ógeðslegt illmenni, sagði hann. -Þér
ætti aldrei að leyfast að lifa eðlilegu
lífi framar.
Unnusta Roberts sagði í viðtali
eftir réttarhöldin að það færi hrollur
um hana þegar hún hugsaði til þess
hvað gæti hafa komið fyrir sig, hefði
hún gert eitthvað sem Robert kynni
að mislíka.
-Hann var hinn fullkomni sóma-
maður gagnvart mér, sagði hún.
-Við kysstumst og keluðum í sófan-
um heima og nú rennur mér kalt
vatn milli skinns og hörunds af að
hugsa um það. Það veit guð að hefði
mig grunað að hann væri sá sem
Iögreglan leitaði, hefði ég sagt til
hans á stundinni. Ég hefði getað
svarið að ég vissi allt sem hægt væri
að vita um Robbie.
m
Steingrímur J.
Sigfússon
ráðherra
Guðnl Ágústsson,
alþingismaður
Borgfirðingar - nærsveitamenn
Framsóknarfélag Borgarness efnir til almenns fundar um:
Framtíðarsýn í landbúnaðar- og samgöngumalum.
Fundurinn verður haldinn í Hótel Borgarnesi þriðjudaginn 25. apríl kl.
20.30.
Frummælendur verða: Steingrímur J. Sigfússon, landbúnaðar- og
samgönguráðherra, og Guðni Ágústsson, alþingismaður.
Dagskrá: 1. Ræður framsögumanna.
2. Fyrirspurnir og almennar umræður.
Allir velkomnir.
Framsóknarfélagið í Borgarnesi.
Valgerður
Sverrlsdóttir
Hörpukonur Hafnarfirði, Garðabæ
og Bessastaðahreppi
Aðalfundur Hörpu
verður haldinn miðvikudaginn 26. apríl kl. 20.30 að Hverfisgötu 25
Hafnarfirði.
Dagskrá: 1. Venjuleg aðalfundarstörf.
2. Valgerður Sverrisdóttir, alþingismaður segir frá störfum
á Alþingi og í Norðurlandaráði.
3. Önnur mál.
Kaffiveitingar.
Gestir velkomnir.
Stjórnin.
Skagfirðingar -
Sauðárkróksbúar
Stefán
Komið í morgunkaffi með Stefáni Guðmundssyni, alþingismanni,
laugardaginn 22. apríl kl. 10 til 12 í Framsóknarhúsinu, Sauðárkróki.
Aðalfundur „Framnes hf.“
verður haldinn laugardaginn 29. apríl 1989 í húsi félagsins Hamra-
borg 5 og hefst kl. 10.00 f.h.
Dagskrá samkvæmt 16. gr. félagslaga.
Lögð verður fyrir fundinn tillaga um útgáfu jöfnunarhlutabréfa.
Hluthafar, eða löglegir umboðsmenn þeirra mæti vel og stundvíslega.
Stjórnin.
Aðalfundur Félags framsóknar-
kvenna í Reykjavík
verður haldinn þriðjudaginn 2. maí kl. 20.30 að Rauðarárstíg 18,
Hótel Lind.
Dagskrá: 1. Venjuleg aðalfundarstörf.
2. Önnur mál. Stjórnin.
SUF á Akureyri
Helgi Pétursson
SUF og kjördæmissambandið efna til fjölmiðlanámskeiðs á Akureyri
helgina 22.-23. apríl nk., ef næg þátttaka næst.
Leiðbeinandi: Helgi Pétursson.
Efni: A. Áhrif fjölmiðla.
B. Þjálfun í sjónvarpsframkomu.
Þátttaka tilkynnist Braga Bergmann í síma 96-24222, Sigfúsi
Karlssyni í síma 96-26600 og Skrifstofu Framsóknarflokksins í
Reykjavík, sími 91-24480.
SUF