Tíminn - 09.05.1989, Page 2
2 Tíminn
Þriðjudagur 9. maí 1989
Sala hreins alkóhóls 25% meiri á fyrsta ársfjórðungi 1989 en 1988:
Alkóhólneysla jókst
um 50% með bjórnum
Sala ÁTVR, mæld í hreinu alkóhóli, varð rúmlega
fjórðungi meiri á fyrstu þrem mánuðum þessa árs heldur en
á sama tímabili í fyrra. Sé áætlað að sala í janúar og febrúar
hafi verið álíka mikil bæði árin hefur marssalan aukist um
78% milli ára. Þó svo að fjórðungur alls þess bjórs sem seldur
var í mars hefði enn verið á lager (ódrukkinn) í veitingahúsum
og heimilum í lok mánaðarins, og sala „léttöls“ (pilsners) hafí
eitthvað minnkað með komu bjórsins, benda tölurnar eigi að
síður til þess að þjóðin hafí innbyrt í kringum 50% meira
hreint alkóhól nú í marsmánuði en í sama mánuði 1988.
Heildarsala ÁTYR mæld í hreinu
alkóhóli, sem var 182.960 lítrar á
fyrsta fjórðungi s.l. árs hækkaði upp
í 229.410 lítra á sama tímabili í ár,
eða rúmlega 25%. Rúmlega fjórð-
ungur allrar alkóhólsölunnar þessa
þrjá mánuði (um 61.080 lítrar alkó-
hóls) var í þeim tæplega 1,2 milljón-
um lítra af bjór sem ÁTVR seldi í
marsmánuði einum.
Sölutölur ÁTVR bregða og ljósi á
þá auknu þörf fyrir lagerrými sem
varð með komu bjórsins, því í
lítrum talið varð bjórsalan í mars
einum (1.170 þús. lítrar) nær tvöfalt
meiri heldur en þriggja mánaða sala
alls annars áfengis (614 þús. lítrar).
Samkvæmt tölum ÁTVR hefur
áfengissalan mæld í hreinu alkóhóli
verið sem hér segir á fyrstu ársfjórð-
ungum s.l. fjögur ár í lítrum talið:
1986 166.489 lítrar
1987 171.091 lítrar
1988 182.958 lítrar
1989 229.413 lítrar
Þarafbjór ( 61.081)lítrar
Annað áfengi (168.332) lítrar
Af þessum tölum má sjá að sala
annars áfengis en bjórs var núna
svipuð og árin 1986 og 1987 en hins
vegar um 8% (nær 15 þús. lítrum)
minni en á s.l. ári. Á móti kom að
hreint alkóhól í seldum bjór var
rúmlega fjórfált meira en sem sam-
drættinum nam í sölu annars áfengis.
Forsvarsmenn ÁTVR segja ekki
unnt að draga ályktanir af áhrifum
bjórsölunnar á áfengisneyslu fyrr en
að nokkrum mánuðum liðnum. Eigi
að síður getur verið forvitnilegt að
líta nokkru nánar á framangreindar
tölur.
Áfengissala fyrsta ársfjórðungs í
fyrra var um 61.000 lítrar hreins
alkóhóls á mánuði að meðaltali. Sé
gert ráð fyrir að salan hafi verið
álíka fyrstu tvo mánuði þessa árs
(samtals 122.000 lítrar) verða eftir
46.360 alkóhóllítrar fyrir marsmán-
uð.
Þó svo að ráð væri fyrir því gert
að fjórðungur af öllum seldum bjór
í mars (um 800.000 dósir) hafi enn
verið ódrukkinn á lagerum veitinga-
húsa og heimila í lok mánaðarins
mundi það þýða að þjóðin hafi
innbyrt 45.810 lítra hreins alkóhóls
með bjórdrykkju. Neyslan í mánuð-
inum hefði þá numið 92:170 alkóhól-
lítrum, þ.e. verið ríflega 50% meiri
heldur en mánaðarneyslan var að
meðaltali á fyrsta_fjórðungi ársins
1988. s-;_
í umræðum utrí mikla sölu í mars
hafa vísir menn m.a. bent á að ekki
sé um marktækan samanburð að
ræða milli 1988 og 1988, vegna þess
að páskar voru í marsmánuði að
þessu sinní. Þetta ruglar þó tæplega
samanburðinn, því að síðasti dagur
marsmánaðar 1988 var skírdagur -
þannig að allt áfengi sem landsmenn
drukku þá um páska 1988 hafa þeir
þurft að kaupa hjá ATVR fyrir lok
marsmánaðar.
f annan stað hefur verið bent á
það að áfengi bjórinn muni hafa
dregið verulega úr sölu á gamla góða
pilsnernum, sem einnig inniheldur
nokkurt alkóhól (2,25%). f Ölgerð
Egils Skallagrímssonar fengust þær
upplýsingar, að mönnum til stórrar
undrunar hefði sala á Egils pilsner
lítið sem ekkert minnkað eftir 1.
mars. Hjá Sanitas merktu menn
nokkurn samdrátt í sölu fyrstu tvær
vikur marsmánaðar, en síðan sótti í
svipað horf á ný.
Pá má benda á að mánaðarleg sala
innlends og erlends „léttöls" hefur
aðeins verið um fjórðungur þess
lítrafjölda sem seldist af sterku öli í
marsmánuði. Jafnvel þótt léttölssala
hefði dregist saman um þriðjung til
helming mundi það lítið skekkja
áðurnefndar tölur.
Þótt nákvæmar tölur liggi ekki
fyrir hjá ÁTVR merkja menn þó að
sala á sterkum bjór í apríl var
verulega minni heídur en í mars.
Áætlað er að sala til áramóta geti
orðið 7-8 milljón lítrar, eða sem
svarar í kringum 700 þús. lítrum á
mánuði að marsmánuði frátöldum.
Sú sala mundi svara til um 36-37 þús.
lítra hreins alkóhóls á mánuði, eða
vel yfir helmings þess sem selt var
mánaðarlega „fyrir bjór“. Sala ann-
arra áfengistegunda verður því að
minnka stórlega ef heildaráfengis-
neysla á ekki að aukast verulega frá
því sem hún hefur verið á undan-
förnum árum. - HEI
Okumaður og farþegi voru fluttir á Iögreglustöðina.
Tfmamynd: Pjetur
Sökk eftir
eltingaleik
Síðdegis á laugardaginn stóð lög-
reglan í miklum eltingaleik við
ökumann sem var grunaður um
réttindaleysi og ölvun við akstur.
Leikurinn hófst í Reykjavík og
endaði utan vegar við línuveginn
austan Miðdals, þar sem jeppabif-
reiðin sökk vegna leysinga.
Lögreglan elti jeppabifreiðina á
fjórum bifreiðum og vélhjóli og
liðu um tuttugu mínútur þar til
bílstjórinn náðist. Hafði hann þá
hleypt lofti úr dekkjum bifreiðar-
M
Réttindalaus og ölvaður ökumaður jeppabifreiðarinnar festi bifreiðina
utan vegar eftir Iangan eltingaleik. Tímamynd: Pjetur
innar og keyrt út á snjóinn. Þegar að bifreiðin náist upp fyrr en í
hann hafði keyrt um 400 metra gaf sumar þegar jörð hefur þornað.
jörðin undan og lítur ekki út fyrir SSH
Vinnslustöð Sláturfélagsins í Laugarnesi:
Christian Kornevall frá Alþjóðaráði Rauða krossins. Tímamynd: pjetur.
125 ára afmæli
Rauða krossins
Ríkisstjórn íslands hefur ákveð-
ið að veita Rauða krossi íslands 5
milljónir króna til hjálparstarfs
vegna afganskra flóttamanna.
I tilefni af 125 ára afmæli Rauða
kross-hreyfingarinnar var sam-
þykkt á aðalfundi hennar að fara
þess á leit við ríkisstjórnir landa
sem hafa starfandi Rauða kross-
félög að þær sýndu landsfélaginu
„tákn mannúðar" og fyrrnefnd gjöf
ríkisstjórnarinnar er slíkt tákn.
„Mannúðin sem felst í gjöfinni
sýnir viðurkenningu á starfi lands-
félagsins og Rauða kross-hreyfing-
arinnar," eins og segir í tilkynningu
frá Rauða krossi íslands.
Frá árinu 1979 hafa alls fimmtíu
íslenskir sendifulltrúar starfað á
vegum Rauða krossins vfðs vegar
um heiminn. SSH
REYNTAÐLEIGJA
Eins og Tfminn greindi frá fyrir
nokkru hefur stjórn Sláturfélags
Suðurlands íhugað að selja hina
nýju vinnslustöð félagsins í Laugar-
nesi og hefur verið leitað að tryggum
kaupanda að húsnæðinu. Nýlega var
Hagkaupi boðið húsnæðið til leigu
en eftir athugun forráðamanna Hag-
kaups var ákveðið að hafna boðinu.
Jón Ásbergsson forstjóri Hag-
kaups sagði í samtali við Tímann að
fasteignasali á vegum Sláturfélagsins
hefði boðið húsið til leigu. Upphaf-
lega hafi komið til greina að leigja
það undir rekstur IKEA en þegar
upp var staðið þótti það ekki henta.
Jón neitaði því alfarið að til greina
hafi komið að flytja kjötvinnslu
fyrirtækisins sem nú er við Borgar-
holtsbraut í Kópavogi í Laugarnes-
ið. Aðspurður sagði Jón að vissulega
væri núverandi húsnæði kjötvinnsl-
unnar að mörgu leyti óhentugt en
húsnæði Sláturfélagsins væri allt of
stórt fyrir kjötvinnsluna sem nú er í
um 800 fermetra húsnæði. Vinnslu-
stöðin í Laugarnesi er um 11000
fermetrar.
Sem fyrr segir liggur ekki fyrir
endanleg ákvörðun hjá stjórn Slátur-
félagsins um hvort vinnslustöðin
verður seld. Bygging hennar hefur
tekið nokkur ár og er kostnaðurinn
orðinn um 400 milljónir á verðlagi
þessa árs.
Ef kjötvinnslan í Laugarnesi verð-
ur seld þá er ætlun forráðamanna
Sláturfélagsins að nýta betur kjöt-
vinnslur félagsins á Hvolsvelli og
Selfossi. Prátt fyrir það þyrfti fyrir-
tækið að koma upp dreifingarstöð í
Reykjavík.
Vegna ráðgerðra skipulagsbreyt-
inga við Skúlagötuna liggur fyrir að
félagið verður að flytja starfsemi
sína sem þar er nú, jafnvel innan
tveggja ára. Samkvæmt heimildum
Tímans mun Sláturfélagið hafa hug
á að fá framlengdan leigusamninginn
sem fyrirtækið gerði við Reykjavík-
urborg vegna starfseminnar við
Skúlagötu. SSH