Tíminn - 09.05.1989, Side 4
4 Tíminn
Þriðjudagur 9. maí 1989
r
VORIGARÐINUM
HEKK-
BENSIN- OG
RAFKNÚNAR
Útboð
Austurlandsvegur
Vegagerö ríkisins óskar eftir tilboðum í
lagningu tveggja kafla á Austurlandsvegi í
Suöur-Múlasýslu: Fossárvík- Framnes (12
km) og Merki - Valtýskambur (3 km).
Helstu magntölur: Fyllingar 33.000 m3,
skeringar 36.000 m3, þar af bergskeringar
5.000 m3, burðarlag 54.000 m3 og rofvörn
5.000 m3.
Verki skal að fullu lokið 1. júlí 1990.
Útboðsgögn verða afhent hjá Vegagerð
ríkisins á Reyðarfirði og í Reykjavík
(aðalgjaldkera) frá og með 9. þ.m.
Skila skal tilboðum á sömu stöðum fyrir kl.
14:00 þann 22. mai 1989.
Vegamálastjóri
FRÁ MENNTAMÁLARÁÐUNEYTINU.
Umsókn um nám í
Tannsmiðaskóla íslands
Vatnsmýrarvegi 16,101 Reykjavík, skal senda til skólans fyrir 1. júní
n.k.
Inntökuskilyrði:
Umsækjandi skal hafa lokið grunnskólaprófi og hafa jafngildi
stúdentsprófs í ensku og einhverju Norðurlandamáli.
Umsókn skal fylgja:
1. Staðfest afrit eða Ijósrit af prófskirteinum.
2. Læknisvottorð um almennt heilsufar ásamt vottorði um óbrenglað
litskyggni.
3. Meðmæli sem kynnu að skipta máli.
Menntamálaráðuneytið
FRÁ MENNTAMÁLARÁÐUNEYTINU:
Lausar stöður við
framhaldsskóla
Við Menntaskólann á ísafirði eru lausar til umsóknar eftirtaldar
kennarastöður:
íslenska og tjáning (2 stöður), franska (V2 staða), þýska, stærðfræði
og tölvufræði (1V2 staða), eðlisfræði ('/2 staða), skipstjórnarfræði (%
úr stöðu), vélstjórnargreinar, rafvirkjun, rafeindavirkjun og rafiðnir.
Þá eru laus til umsóknar störf húsbónda ('/2 staða) og húsmóður (V.2
staða) á heimavist.
Umsóknir ásamt upplýsingum um menntun og fyrri störf sendist
menntamálaráðuneytinu, Hverfisgötu 6, 150 Reykjavík, fyrir 1. júní
n.k.
Menntamálaráðuneytið
Verkstæðissala
Hornsófar og sófasett á heildsöluverði.
Bólsturverk,
Kleppsmýrarvegi 8. Sími 91-36120.
VISA sakar EURO um að brjóta lög með auglýsingum:
Ádeila og ósann-
gjarn samanburður
VISA Island - Greiðslumiðlunin h.f. hefur kært EURO-
CARD á íslandi og Auglýsingaþjónustu GBB fyrir meint og
meiriháttar brot á siðareglum Sambands íslenskra auglýsinga-
stofa og lögum um óréttmæta viðskiptahætti vegna sjónvarps-
og útvarpsauglýsinga auk dagblaðaauglýsinga sem birst hafa
að undanförnu. Þá er þess krafist að birting umræddra
auglýsinga verði tafarlaust stöðvuð og aðstandendur þeirra
látnir sæta viðurlögum venjum samkvæmt.
í greinargerð frá VISA tsland sem
fylgir kærunni segir að í umræddum
auglýsingum sé beinlínis gefið í skyn
að korthafar VISA séu ekki vel-
komnir viðskiptavinir, heldur megi
þeir búast við að vera beittir ofbeldi,
fleygt á dyr eða sturtað niður um
niðurföll. Þá sé sagnorð sem hljómar
eins og heiti VISA notað til að gefa
samhengið nánar og ótvírætt til
kynna. Ennfremur sé bakhlið VISA-
korts sýnd í sjónvarpsmyndinni. Þá
séu fullyrðingar um að EURO-
CARD sé útbreiddara og tekið á
fleiri stöðum í heiminum en VISA
alrangar og ósannaðar með öllu þar
sem engin óyggjandi talning liggi
fyrir frá hlutlausum aðila.
Stjórn VISA telur að auglýsing-
arnar brjóti ótvírætt í bága við lög
um réttmæta viðskiptahætti, vegna
rangra og villandi upplýsinga, óvið-
urkvæmilegra aðdróttana. Einnig að
með þeim séu brotnar reglur um
flutning auglýsinga í Ríkisútvarpi og
sjónvarpi, vegna megnrar ádeilu og
ósanngjarns samanburðar við aðra
vöru og þjónustu. Þá brjóti þessi
auglýsingastefna ekki síður í bága
við fjölmargar greinar siðareglna
um auglýsingar.
Þá segir í tilkynningu frá VISA
ísland: „ Undanfarið ár hefur aðal-
samkeppnisaðiii VISA margoft hag-
rætt sannleikanum og haft ýmsa
ósmekklega tilburði í frammi í aug-
lýsingum sinum, til þess m.a. að
koma með ósæmilegum hætti óorði
á þjónustu VISA ísland og aðildar-
banka/sparisjóði þess.“ SSH
FLUGVÉLIN á myndinni hér að ofan, sem er af gerðinni Cessna Golden Eagle kom hingað til lands fyrir nokkru til
viðgerðar.
Síðastliðið haust keyptu franskir aðilar hana frá Bandaríkjunum og var verið að ferja hana yfir hafið, þegar hún
missti annan hreyfílinn, skammt frá Grænlandi. Ferjuflugmanninum tókst að lenda vélinni heilu og höldnu á flugvelli
á Austur-Grænlandi, þar sem flugvélin hefur staðið í snjóskafli í nær allan vetur, eins og einn flugvirki komst að orði
sem Tíminn hafði tal af á Reykjavíkurflugvelli.
Þegar snjóa fór að leysa keypti danskur aðili vélina, þar sem hún stóð, skipt var um hreyfil og vélinni flogið til
íslands af íslenskum flugmanni tii viðgerðar. En báðir hreyflar vélarinnar verða teknir upp auk annarra viðgerða á
búk hennar. Flugvirkinn sagði að betur hefði þetta verið látið ógert, enda vélin gömul og ekki þess virði.
Tlmamynd Árni Bjarna/- ABÓ
Alþjóðadagur hjúkrunarfræðinga:
„Heilsugæsla
í skólunum“
Þann tólfta þessa mánaðar, fæðingardag Florence Night
ingale, er alþjóðadagur hjúkrunarfræðinga.
Dagurinn er haldinn hátíðlegur
að frumkvæði Alþjóðasambands
hjúkrunarfræðinga sem er elsta al-
þjóða stéttarsamband kvenna í
heiminum. Hjúkrunarfélag íslands
gerðist aðili að sambandinu árið
1933. f tilefni dagsins mun félagið í
samvinnu við Félag háskólamennt-
aðra hjúkrunarfræðinga og Deild
heilsugæsluhjúkrunarfræðingagang-
ast fyrir ráðstefnu í fundarsal Hjúkr-
unarfélags fslands. Fyrirlesarar eru
sálfræðingur, hjúkrunarfræðingar,
prófessor og fleiri. Til umræðu verð-
ur gildi skólahjúkrunar, siðfræði,
slysavarnir í skólum og fleira.
Kjörorðið í ár er „Heilsugæsla í
skólum". Eru öll aðildarfélög sam-
bandsins hvött til að vekja athygli
hjúkrunarfræðinga og almennings á
mikilvægi þess að stuðla að heilsu-
gæslu í skólum. Jafnframt því sem
þeim tilmælum er beint til starfandi
hjúkrunarfræðinga að þeir taki full-
an þátt í þeim störfum er stuðla að
auknu heilbrigði skólabarna.
Fröken Nightingale var brautryðj-
andi í hjúkrun og varð heimsfræg
fyrir þau störf sín í Krímstyrjöldinni
1854. Upp frá því og til æviloka jók
hún frægð sína stöðugt með sígildum
ritum um hjúkrun. Auk þess að
gangast fyrir aukinni menntun
hjúkrunarfræðinga víðs vegar um
heiminn. jkb
Vímuvarnardagur
á Norðurlöndum:
VÍMU-
VARNIR
LIONS-
MANNA
í dag er sérstakur vímuvarnar-
dagur haldinn á vegum lions-
manna á öllum Norðurlöndun-
um.
Fyrsti laugardagurinn í maí
hefur undanfarin ár verið til-
einkaður baráttunni við vímu-
efnaneyslu unglinga. í Háskóla-
bíói verður haldin fjölskyldu-
skemmtun og munu þar koma
fram fjölmargir listamenn, mál-
efninu til stuðnings. Má þar nefna
Ómar Ragnarsson, Rut Regin-
alds, Bjartmar Guðlaugsson,
Þórhallur Sigurðsson, Hermann
Gunnarsson og fleiri. Allir eru
velkomnir og aðgangur er ókeyp-
is á meðan húsrúm leyfir. jkb