Tíminn - 09.05.1989, Qupperneq 7
Þriðjudagur 9. maí 1989
Tíminn 7
Forseli Islands, \ ij»dis Finnhogadóttir evs hina n>ju flugvél Flugleida vatni og gefur henni nafnid Aldís. Spurningin er sú hvort hinar vélarnar fjórar
sem hietast munu í flota félagsins fái dísarnófn einnig. Kannski við eigum eftir að fljúga í Brvndísi og Vigdísi eins og Aldísi? Timamynd; Ámi Bjarna.
Aldís í
fyrsta
áætlun-
arflugið
Hin nýja Boeing 737 400 flugvél
Flugleiða; Aldís fór í jómfrúarferð
sína í fyrradag til Frankfurt. Vélin
var nær fullskipuð farþegum bæði
út og heim og tókst ferðin hið
besta.
Flugstjóri í þessu fyrsta farþega-
flugi Aldísar var Henning Bjarna-
son og flugmaður var sonur
Hennings, Úlfar, en auk þeirra var
með í för þjálfunarflugstjóri frá
Boeingverksmiðjunum; Vern Jere-
mica.
Á flugvellinum í Frankfurt tóku
á móti vélinni og áhöfn hennar,
Páll Ásgeir Tryggvason send-
iherra, Steinn Logi Björnsson
framkvæmdastjóri vestursviðs
Flugleiða og Davíð Vilhelmsson
svæðisstjóri í V-Þýskalandi og Iítil
stúlka færði áhöfninni blóm. - sá
Söngvakeppni evrópskra sjónvarpsstöðva:
Valgeir telur núllið
góða landkynningu
Margir urðu undrandi þegar frekar óvænt úrslit Söngva-
keppni evrópskra sjónvarpsstöðva lágu fyrir. íslendingar
hrepptu sem kunnugt er neðsta sætið, með ekkert stig. En
þegar upp er staðið er það ef til vill besta landkynningin sem
möguleiki var á, svo vitnað sé í orð Valgeirs Guðjónssonar.
Getspakur náungi uppskar sextánfalda veðupphæð hjá bresk-
um veðbanka en annar sem trúði stíft á sigur ísraela tapaði
þúsundum punda.
Keppnislið íslendinga kom til
landsins aðfaranótt mánudags og
það var ekki múgur og margmenni
sem tók á móti þeim.
Einn þeirra sem furðaði sig á
úrslitunum var Tomas Gottschalk
kynnir Þjóðverja í keppninni og
jafnframt einn vinsælasti útvarps-
maður þar í landi. Hann hafði því
samband við Valgeir Guðjónsson og
spjallaði við hann í þætti sem útvarp-
að var frá Múnhen í gær. „Að því er
mér var sagt er þetta einn þekktasti
útvarps- og sjónvarpsmaður Þjóð-
verja. Úrslitin komu honum nokkuð
Ráðherra
fararstjóri
landsliðs
Svavar Gestsson menntamála-
ráðherra hefur þegið boð Hand-
knattleikssambandsins um að
vera heiðursfararstjóri landsliðs-
ins í ferð þess til Áustur-Þýska-
lands sem farin verður í lok
þessarar viku.
Ráðherrann mun eiga viðræð-
ur við ráðamenn íþróttamála í
Austur-Þýskalandi um nánari
samvinnu landanna á því sviði.
Að sögn Reynis G. Karlssonar
íþróttafulltrúa ríkisins mun ráð-
herrann taka þátt í og styðja
viðræður um aukið samstarf
þjóðanna tveggja á handbolta-
sviðinu, til dæmis hvað varðar
þjálfaramál. Reynir sagði einnig
að íslenska íþróttahreyfingin
hefði áhuga á að gera samkomu-
lag við Austur-Þjóðverja um
íþróttasamskipti á breiðari
grundvelli.
í nóvember s.l. tók Svavar
Gestsson þátt í íþróttaráðstefnu
UNESCO og sagði Reynir að
fyrirhuguð ferð væri í tengslum
við viðræður sem þá fóru fram
m.a. við austur-þýska íþrótta-
málaráðherrann.
íslenska handboltalandsliðið
mun leika tvo leiki við Austur-
Þjóðverja. Fyrri leikurinn fer
fram í Magdeburg á laugardag og
síðari ieikurinn á sunnudag í
Berlín, sá leikur verður lokaatriði
á mikilli íþróttahátíð í borginni.
_________ SSH
mikið á óvart þannig að hann hringdi
og spjallaði við mig og spiiaði í
þættinum tónlist eftir mig. Því má
kannski segja að núllsætið geti verið
góð landkynning," sagði Valgeir í
samtali við Tímann.
Um keppnina sjálfa sagði Valgeir
að sér hefði fundist hann vera stadd-
ur í vitlausri deild. „Ég kem kannski
frekar úr rokki á meðan flest hinna
laganna voru úr dægurlagageiran-
um. Við vorum eiginlega minna
miðaldra en flestir aðrir.“
Andinn í hópnum var mjög góður
og íslendingamir gátu að sögn lítið
annað en hlegið þegar úrslitin voru
í höfn. En önnur uppáhaldslög ís-
lensku keppendana voru einnig í
neðstu sætunum. „Norðmenn buðu
okkur velkomin í klúbbinn, hafandi
verið í þessu sæti til fjölda ára. Við
spjölluðum við Tyrkina og tónlistar-
mennina frá Luxemborg að lokinni
keppninni. Þar eru á ferð alveg
frábærir listamenn þannig að við
vorum í góðum félagsskap. Liðið frá
Luxemborg samanstóð meðal ann-
ars af djasstónlistamönnum sem
fengnir höfðu verið til að semja lag
og gerðu það alfarið eftir sínu höfði.
Það er eins með okkur, ef ég hefði
sett mig í stellingar hefði ég vafalítið
getað búið til júróvision lag, en ég
hef bara engan áhuga á því. Mín
tónlist er ekki á þessum nótum.
Kannski hefur mörgum fundist
okkar flutningur lítið spennandi.
Margir flytjenda voru í mjög æpandi
búningum og sungu eins og þeir
héldu á hjartanu í hendinni. Við
þykjum ef til vill heldur kaldranaleg
og kannski að okkur vanti tilfinn-
ingu. En ég held að okkar tilfinning
liggi bara á öðrum nótum,“ sagði
Valgeir.
„Við vorum undrandi yfir úrslit-
unum, en við áttum heldur ekki von
á þvf að lagið sem varð í efsta sæti
myndi sigra,“ sagði Daníel Ágúst
Haraldsson við komuna til íslands
aðfaranótt mánudags.
Fjöldi fólks veðjaði um úrslit
keppninnar hjá veðbönkum f Bret-
landi. Sumir unnu óvænt en aðrir
töpuðu stórum fúlgum. „Gjaldker-
arnir okkar voru að vonum mjög
ánægðir með úrslitin. Líkurnar á
sigri júgóslava voru taldar einn á
móti sextán og nokkrir höfðu veðjað
á þá. Einn lagði hundrað pund undir
og fékk til baka 1600 pund. Mjög
margir voru vissir um sigur ísraela
og þar sem hér er eingöngu veðjað
um efsta sætið töpuðust oft háar
fjárupphæðir. Einn lagði til dæmis
þrjú þúsund pund undir og tapaði
þeirri fjárhæð allri,“ sagði starfs-
maður breska veðbankans William
Hill í samtali við Tímann. jkb
Klippið hér
Tíxniim
□ ER ÁSKRIFANDI
□ NÝR ÁSKRIFANDI
Dags.:
□
I I Samkort EH
Kortnr.:
□□□□□□□□□□□□□□□□
Gildir út:
Nafnnr.:
:
BEIÐNIUM
MILLIFÆRSLU
ÁSKRIFTARGJALDS
Ég undirrituö/aður óska þess að áskriftar-
gjald Tímans verði mánaðarlega skuld-
fært á greiðslukort mitt.
UNDIRSKRIFT.
ÁSKRIFANDI:..............................................
HEIMILI:................................................
PÓSTNR - STAÐUR:................... SÍMI:............... SENDIST AFGREIÐSLU BLAÐSINS
LYNGHÁLSI 9, 130 REYKJAVÍK