Tíminn - 11.05.1989, Blaðsíða 7

Tíminn - 11.05.1989, Blaðsíða 7
Fimmtudagur 11. maí 1989 Tíminn 7 Rúta Lögregluskóla nkisins. Tímamynd Pjetur Lögregluskólinn festir kaup á rútu: SVL-til liðsflutninga lögreglumanna Lögregluskóli ríkisins hefur fest kaup á notaðri Bens-rútu frá Þýskalandi sem tekur 53 í sæti, til flutnings á nemendum skólans til og frá æfingasvæðum. Rútan kem- ur í stað um 22 ára gamallar rútu sem seld var og skólinn hefur notað hingað til. Pessir vagnar hafa stundum verið kallaðir SVL, strætisvagnar lögreglunnar. Bjarki Elíasson skólastjóri Lög- regluskóla ríkisins sagði í samtali við Tímann að rútan væri fyrst og fremst notuð til að flytja nemendur til og frá skólanum, á æfingasvæðið í Saltvík og suður á Keflavíkurflug- völl, þar sem akstursæfingar fara fram. Þá er rútan einnig notuð til að flytja nemana að gatnamótum þar sem umferðarstjómun er æfð og svo mætti áfram telja. Bjarki sagði að hún væri einnig lánuð embættinu, til liðsflutninga og ferðalaga, og hefði m.a. hún verið notuð til að flytja finnskan lögreglukór sem hér var í heimsókn nýlega, á milli staða. Hann sagði að leitað hefði verið eftir rútu til kaups hér innanlands, en þær verið of dýrar, en þessa hefðu þeir fengið fyrir mjög gott verð. Hann sagði að næg not væru fyrir rútuna, nema kannski rétt yfir há sumarið, en í sumar ætti hún að koma að góðum notum við liðs- flutninga vegna heimsóknar páfa. -ABÓ Mikil snjóalög enn á túnum og í högum Norðaustanlands. Búpeningur enn á gjöf og bændur að verða heylausir: Hætt að selja hey úr sveitum nyrðra Gróður er enn ekkert farinn að taka við sér á norðaustur- horni landsins þótt komið sé fram í maí. Einna best veður og mest hlýindi undanfarna daga hafa verið á Héraði og á Suðvesturlandi og í báðum þessum landshlutum hefur snjó að mestu leyti tekið upp á Iáglendi. Guðmundur Bjarnason t.v. og Sveinn Björnsson sátu fund utanríkisráðherra Evrópuráðsins fyrir hönd íslands. Fundur utanríkisráðherra Evrópuráðs: Framtíðarhlut- verk samþykkt Á Norðausturhorninu allt vestur til Eyjafjarðar eru bændur verulega áhyggjufullir því kuldar eru miklir og standi þeir út þennan mánuð óttast margir að verða heylausir. Eitthvað er um að menn hafi leitað eftir og fengið keypt hey, m.a. úr innanverðum Eyjafirði. Hins vegar er orðið talsvert erfitt að útvega sér hey þar sem víða er búið að festa hey í hreppum norðanlands. Þetta hefur verið gert til þess að auðveldara verði að bjarga málum innan sveitar- félaganna sjálfra haldi kuldarnir áfram. Kristín Kristjánsdóttir oddviti í Sauðaneshreppi sagði í gær að hey- forði væri sannarlega ekki of mikill í tíðarfarinu nú og nokkrir bæir væru að orðnir heylitlir. Kristín sagði að sæmilega hlýtt hefði verið í veðri um helgina en í gær hefði aftur kólnað umtalsvert og gróður væri bókstaf- lega ekkert kominn af stað. „Það eru snjóalög á flestum túnum hér, nema þeim sem liggja næst sjónum. Þar hefur snjó tekið upp. Túnin eru hins vegar mjög blaut enda stutt niður á jarðklaka. Tún sem liggja fjær sjó eru hins vegar undir snjóa- og svellalögum," sagði Kristín. Kristín sagði að fólk vonaði að tíðarfarið batnaði fljótlega því að ef verulega hlýnaði þá mætti vænta skjótra breytinga til hins betra. Svanberg Þórðarson forðagæslu- maður á Akureyri sagði að Akureyr- ingar ættu flestir næg hey handa skepnum sínum. Það væru einkum hestamenn sem um væri að ræða. Þeir ættu ekki stórar hlöður sem rúmuðu heils vetrar forða. Því geymdu menn gjarnan hey úti um sveitir þannig að í eftirlitsferðum kæmi oft í ljós að lítið hey væri á staðnum, en menn sæktu það síðan eftir hendinni. Vegna þessa væri ekki hægt að gera tæmandi úttekt hjá þessum aðilum og því væri fylgst með þeim nokkuð reglulega. Svanberg sagði að gróður væri aðeins að koma til þessa dagana en mikið vantaði á að hægt væri að beita skepnum í haga. í gær var talsvert kalt f Eyjafirðinum, hiti við frostmark og hríðarél gengu yfir. Svanberg sagði að lögbýli í sínu umdæmi væru vel birg af heyi og gætu þess vegna haft búpening sinn á gjöf út júní ef svo bæri undir. Eftir því sem hann best vissi var sömu sögu að segja um allan Eyjafjörðinn. Frammi í Eyjafirði er gróður lítil- lega farinn að taka við sér enda hefur snjó að mestu tekið upp. Út með firðinum eru hins vegar enn miklar fannir á túnum og vetrarlegt um að litast. -sá Á fundi utanríkisráðherra Evr- ópuráðsins var undirrituð yfirlýsing um framtíðarhlutverk Evrópuráðs- ins, einkum á sviði mannréttinda-, menningar- og félagsmála. Einnig var samþykkt að bjóða Ungverja- landi og Póllandi aðild að menning- arsáttmála ráðsins. Fyrir Islands hönd undirritaði heilbrigðis- og tryggingamálaráð- herra, Guðmundur Bjarnason, sam- þykktina. En hann sat fundinn í fjarveru utanríkisráðherrans, auk Sveins Björnssonar fastafulltrúa ís- lands hjá Evrópuráðinu. Fundurinn var haldinn í Strass- borg þann fimmta þessa mánaðar, á fjörutíu ára afmæli ráðsins. I ræðu sinni lýsti ráðherrann yfir stuðningi íslands við áðurgreinda yfirlýsingu og ályktun ráðherranna um framtíð- arhlutverk Evrópuráðsins og að ráð- ið einbeitti sér að þeim málum sem það hefði sérhæft sig í á áðurnefnd- um sviðum. Fyrr um morguninn hafði Finn- land gerst formlegur aðili að Evr- ópuráðinu. Sat utanríkisráðherra þeirra, Paasio, fundinn í fyrsta skipti. jkb /-----------;-------------\ Góéar veislur enda vel! Eftireinn -ei aki neinn UUMFERDAR RÁÐ Þrír umsækjendur um skólastjórastöðu Öldu- selsskóla að Sjöfn frágenginni: Hreppir Daníel stöðuna núna? Þrjár umsóknir hafa borist fræðsluskrifstofu Reykjavíkur um skólastjórastöðuna við Öldusels- skóla. Það olli miklum hvelli s.l. sumar þegar fyrrverandi mennta- málaráðherra; Birgir ísleifur Gunnarsson setti í stöðuna Sjöfn Sigurbjörnsdóttur, en ekki þann umsækjanda sem foreldrafélag skólans hafði mælt með; Reyni Daníel Gunnarssyni yfirkennara við skólann. Á ýmsu gekk síðan í skólastarf- inu í vetur og ýmsar uppákomur urðu og klögumál gengu milli kennara við skólann og skóla- stjóra. Þá varð talsverður hvellur á dögunum þegar núverandi menntamálaráðherra ákvað að auglýsa stöðuna að nýju nú í vor. Þrátt fyrir óróa þann sem hefur verið kring um skólastjórastöðuna við Ölduselsskóla og skólann í heild s.l. vetur, þá láta þrír kennar- ar það ekki aftra sér frá að sækja um starfið. Einn þriggja umsækjenda er Reynir Daníel Gunnarsson yfir- kennari skólans. Hinir eru Auður Stella Þórðardóttir kennari við Tjamarskóla og Valgerður Selma Guðnadóttir yfirkennari í Hóla- brekkuskóla. -sá

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.