Tíminn - 11.05.1989, Qupperneq 15
Fimmtudagur 11. maí 1989
Tíminn 15
■..................
Hanna María
Friðjónsdóttir
Fædd 23. júli 1915
Dáin 2. mai 1989
Við erum mörg sem munum hana
Hönnu. Gömul kona með geislandi
bros, hlýju og ástúð í hverri hreyf-
ingu.
Við munum hana í kaupfélags-
markaðinum á Miðvangi bjóðandi
gestum og gangandi, sem þar áttu
leið um, kaffi og afslöppun mitt í
önn dagsins.
Það var ótrúlega notalegt að tylla
sér niður í gestahominu á Miðvang-
inum og njóta þar kaffisopa í ör-
skamma stund, - gleyma andartak
erli og amstri líðandi dags í notalegri
gestrisni og hjartahlýju gamallar
konu, sem þrátt fyrir aldur og oft
erfiða lífsbaráttu ljómaði af gleði og
góðvild til alls og allra.
Þannig var hún Hanna, - og
þannig mun hún lifa í minningu
okkar.
Hanna María Friðjónsdóttir
kvaddi þennan heim, sem við hrær-
umst í frá degi til dags, þriðjudaginn
2. maí síðastliðinn.
Hún lagði óhrædd upp í ferðina
yfir landamæri lífs og dauða, því að
hún var trúuð kona og var einlæg í
þeirri vissu að líf væri eftir þetta líf
og fullviss þess að endurfundir henn-
ar og okkar sem eftir lifum bíði
einhvers staðar í óráðinni framtíð.
Okkur vinum hennar og vanda-
mönnum er bæði gott og mannbæt-
andi að hugsa til þeirra endurfunda.
Slík var og er hún Hanna okkar.
Hanna María Friðjónsdóttir var
fædd hinn 23. júlí 1915 á Skálum á
Langanesi. Foreldrar hennar vom
hjónin Jóhanna Guðbrandsdóttir og
Friðjón Stefánsson sjómaður.
Veröldin fór ekki mildum höndum
um Hönnu Maríu, þegar hún var að
stíga fyrstu spor sín í þessum heimi.
Þegar hún var ársgömul missti hún á
sama sólarhringnum móður sína og
tvær systur. Það var þungt áfall
fátækri fjölskyldu.
Faðir hennar stóð þá einn uppi
með þær systumar tvær sem eftir
lifðu, Hönnu og eldri systur hennar
Fjólu.
Á þeim tíma vom úrræðin ekki
mörg fyrir fátæka menn sem stóðu í
þessum spomm. Friðjón kom hinni
ársgömlu dóttur sinni fyrir hjá
frænku þeirra, Svanhvíti Helgadótt-
ur í Kumlavík, en Fjólu eldri dóttur
sína hafði hann hjá sér og annaðist
hana næstu árin.
Hanna María var í umsjá frænku
sinnar næstu fjögur árin, en árið
1920 fer hún að Eiði á Langanesi til
Daníels Jónssonar, sem þá bjó þar
með Arnþrúði dóttur sinni. Og þar
ólst Hanna upp í skjóli þeirra Daní-
els og Amþrúðar og í þeim átti hún
hald og traust allar götur síðan.
Þama festi Hanna María rætur.
Hún var bundin órjúfandi tryggða-
böndum þeim Daníel og Amþrúði.
Hún kallaði Daníel „afa“ en Arn-
þrúði „fóstru“ og segir það eitt sína
sögu.
Amþrúður giftist síðar Halldóri
Benediktssyni, en sonur þeirra
Benedikt er kennari og kenndi m.a.
hér í Hafnarfirði. Síðustu æviár sín
dvaldi Arnþrúður á elliheimilinu á
Sólvangi og þar lést hún.
Þær vom ófáar heimsóknirnar
hennar Hönnu til þessarar „fóstru"
sinnar og Amþrúður fór ekki á mis
við eðlislæga umhyggju Hönnu
Maríu, frekar en aðrir samferða-
menn hennar á lífsleiðinni.
Ung að aldri fór Hanna María að
vinna fyrir sér, svo sem títt var á
þessum tíma, en á Eiði átti hún
heima til 16 ára aldurs. Þá fór hún til
Kristínar Jósefsdóttur, en hún rak
þá hótel á Þórshöfn. Hjá henni vann
Hanna í nokkur ár, þó ekki samfellt.
Þá var Hanna vinnukona í tvö ár
hjá Júlíusi Hafstein, sýslumanni á
Húsavík, og hafði oft á orði myndar-
skap og heimilishætti þar, sem hefðu
orðið sér góður og ómetanlegur
skóli.
Frá Húsavík lá leið Hönnu til
Akureyrar, en þaðan fór hún eftir
árs dvöl til Þórshafnar í vinnu á
hótelinu þar.
Síðar ræðst hún vinnukona til
Sigfúsar Aðalsteinssonar í Hvammi
í Þistilfirði, sem þar bjó ásamt konu
sinni. Þar bjuggu þá einnig öðm búi
systkini Sigfúsar, Björn, Bergþór og
Hólmfríður.
Brátt hófust góð kynni með þeim
Hönnu Maríu og Birni Aðalsteins-
syni og til hans ræðst hún, fyrst sem
ráðskona.
Hinn 23. október 1943 giftist svo
Hanna María Bimi. Þá hófst óvenju
gott og traust hjónaband þeirra, sem
entist þeim vel alla ævi og aldrei bar
skugga á. Svo hafa börn þeirra sagt,
að allt til hinsta dags Bjöms hafi
samskipti þeirra Hönnu frekar minnt
á fólk í tilhugalífi, en fólk sem hefur
áratuga sambúð að baki. Slík var
dagleg ástúð þeirra og umhyggja
hvort fyrir öðm.
Hanna María og Björn bjuggu búi
sínu í Hvammi í Þistilfirði allt til
vorsins 1961. Og þar em börn þeirra
fædd, Hólmfríður Bergþóra, Aðal-
heiður Jóhanna og Guðmundur, sem
öll lifa móður sína. Auk þeirra
eignuðust þau Hanna og Björn
dreng og stúlku sem önduðust
skömmu eftir fæðingu, óskírð.
Vorið 1961 hættu þau Hanna og
Björn búskap í Hvammi, eins og
áður er sagt, og fluttu til Þórshafnar.
Þar stóð heimili þeirra næstu níu
árin.
Og enn sem fyrr var lífsbaráttan
hörð. Bjöm stundaði byggingar- og
fiskvinnu, þegar þá vinnu var að
hafa, en annars hvað sem til féll
hverju sinni.
En Hanna lét ekki sinn hlut eftir
liggja. Bráðlega fór hún að taka
fólk, sem þar dvaldi í lengri eða
skemmri tíma, í fæði og gistingu.
Bæði var gestrisnin og góðvildin
henni í blóð borin og svo var einnig
þörfin knýjandi að koma sér og
sínum áfram í lífinu. Fólki þótti gott
að njóta návistar Hönnu, það
gleymdi henni ekki og vildi sem
lengst eiga hlut í henni. Um þetta
talar ským máli, hversu margir þeir
gestir vom, sem sendu Hönnu jóla-
gjafir eftir kynni sín af henni og
sýndu henni á margvíslegan annan
hátt vináttu og ræktarsemi.
Haustið 1970 flytjast þau Bjöm og
Hanna til Hafnarfjarðar og stóð
heimili þeirra þá á Lindarhvammi 6.
Og í Hafnarfirði áttu þau síðan
heima allt til æviloka.
Síðustu æviár sín dvaldi Hanna á
Hrafnistu í Hafnarfirði og undi þar
glöð við sitt, sátt við samferðamenn
sína og tilveruna, eins og reyndar
einkenndi hana allt æviskeiðið. Hún
minntist oft með sérstakri þökk og
hlýju starfsfólksins þar og þá ekki
síst þeirra hjónanna Sigríðar Jóns-
dóttur og Kolbeins Helgasonar, sem
reyndust henni afburða góð.
Ég kynntist fyrst Hönnu, þegar
hún vann sem ræstingarkona í Víði-
staðaskóla og síðar í versluninni á
Miðvangi 41, en þar starfaði hún allt
frá því að verslunin þar var opnuð
og svo lengi sem henni entist aldur
og heilsa til.
Ég er þakklátur fyrir öll þau kynni
og tel mig auðugri mann eftir þau en
áður. Þannig manneskja var Hanna
María Friðjónsdóttir.
Hið veraldlega skipti hana ekki
máli, en lífið í kring um hana og
mannlegi þátturinn í tilverunni því
meira. Hún trúði á hið góða í
veröldinni. Allir samferðamenn
hennar vom hver öðmm ágætari að
hennar mati. Slík viðhorf em of
fágæt í heiminum í dag og kannski
væri hann annar og betri, ef fleiri
gerðu þetta lífsviðhorf Hönnu Maríu
að sínu.
Hanna María Friðjónsdóttir var
trúuð kona. Hún efaðist ekki um
tilvem eftir dauðann og hugsaði gott
til endurfunda við ástvini sína, þegar
vegferð hennar í þessu jarðlífi tæki
enda.
Það segir sig sjálft, að kona eins
og Hanna María lét sér annt um
böm sín, tengdaböm og bamabörn.
Öll gátu þau alltaf sótt til hennar
sólskin og yl.
Þau kveðja nú móður, tengda-
móður og ömmu með innilegri þökk
og geyma í sjóði minninganna
perlur, sem hvorki mölur né ryð fá
grandað. Þeir fjársjóðir verða aldrei
fullmetnir.
Um leið og ég þakka Hönnu
Maríu samfylgdina á genginni götu,
sendi ég börnum hennar, tengda-
börnum og barnabömum innilegar
samúðarkveðjur. Guð blessi þau öll.
En minningu Hönnu Maríu Frið-
jónsdóttur fylgir hjartans þökk frá
okkur samferðamönnum hennar,
fyrir glaðværa brosið, góðvildina og
samskiptin öll, - já fyrir sólskinið
sem birtist í hvert eitt sinn er við
minnumst hennar.
Útför Hönnu Maríu Friðjónsdótt-
ur hefur farið fram í kyrrþey sam-
kvæmt ósk hinnar látnu.
Hörður Zóphaníasson
Fríkirkjusöfnuðurinn í Reykjavík
Auglýsing um prestskosningu
Kjörstjórn vegna prestskosninga í Fríkirkjusöfnuð-
inum í Reykjavík, kosin á aðaifundi 15. apríl s.l.,
hefur ákveðið, skv. 22. gr. laga safnaðarins, að
prestskosningar fari fram dagana 3. og 4. júní
1989. Kosið verður í safnaðarheimilinu að Lauf-
ásvegi 13 (Betaníu).
Umsækjandi er einn, séra Cecil Haraldsson.
Kjörskrá liggur frammi í safnaðarheimilinu frá og
með 11. maí n.k. hvern þriðjudag og fimmtudag kl.
17-18. Upplýsingar eru gefnar í síma 27270 á
sama tíma. Kærur skulu hafa borist kjörstjórn eigi
síðar en kl. 18, fimmtudaginn 1. júní n.k.
Kosningarétt hafa, skv. 17. gr. safnaðarlaganna,
...þeir safnaðarmenn, sem náð hafa 16 ára aldri
og greitt lögboðin gjöld safnaðarins, enda séu þeir
ekki skráðir meðlimir í öðrum söfnuðum."
Athygli skal vakin á því, að kjörskrá miðast við
trúfélagsaðild skv. þjóðskrá 1. desember næstan
á undan kjördegi.
Reykjavík, 8. maí 1989.
F.h. kjörstjórnar
Ragnar Tómasson, form.
FRÁ MENNTAMÁLARÁÐUNEYTINU:
Lausar stöður við
framhaldsskóla
Við Menntaskólann við Sund eru lausartil umsóknar kennarastöður
í félagsgreinum og efnafræði.
Þá vantar stundakennara í eftirtaldar greinar:
dönsku, latínu, sögu, jarðfræði, efnafræði, eðlisfræði, stjörnufræði,
tölvufræði, stærðfræði, heimspeki, listasögu, hagfræði, fjölmiðla-
fræði, lögfræði og spænsku.
Við Fjölbrautaskólann í Garðabæ eru lausar kennarastöður í
eftirtöldum greinum:
stærðfræði, ensku, samfélagsgreinum, viðskiptagreinum, raungrein-
um, íslensku, íþróttum og tölvufræði.
Auk þess vantar stundakennara í ýmsar greinar.
Umsóknir ásamt upplýsingum um menntun og fyrri störf sendist
menntamálaráðuneytinu, Hverfisgötu 6, 150 Reykjavík, fyrir 9. júní
n.k.
Umsóknir um stundakennslu sendist skóiameistara.
Menntamálaráðuneytið
Síðustu forvöð
að panta Macintosh tölvur
skv. 2. afgreiðslu
ríkissamningins, er
18. maí
Innkaupastofnun ríkisins,
Borgartúni 7, sími 26844
Aðalfundur
Steinullar-
verksmiðjunnar hf.
verður haldinn í Safnahúsinu á Sauðárkróki 16.
maí nk. kl. 17.30.
Dagskrá: Venjuleg aðalfundarstörf.
Tillögur til breytinga á samþykktum félagsins liggja
frammi á skrifstofu verksmiðjunnar á Sauðárkróki.
Stjórn Steinullarverksmiðjunnar.