Tíminn - 19.05.1989, Blaðsíða 5
'a'.í'- ( Vn 'J2 ''iiy.h't'i'i :n. i
Laugardagur 20. maí 1989
SKRÝTLUR
- Við ættum bara sjálf að eignast
nokkur börn - og heimsækja þau
svo...
- Ég neita því aðfara í smóking til
að horfa á Dynasty í sjónvarpinu.
- Láttu mig sjá þetta fjandans
vegakort...
- Hann heldur að ég sé besti vinur
hans, - en ég nota hann bara til að
vinna fyrir mér.
- Það var í lagi að fá lánuð
sparifötin mín til að giftast í, - en
það var nú það minnsta, að þú
segðir mérfrá því að þú ætlaðir að
giftast kærustunni minni!
HELGIN I öl
Til þess að kynnast landi og þjóð er nauðsynlegt að leita út fyrir borgirnar.
Á bílaleigubíl, með lestum eða rútum, siglandi eftir skurðum og síkjum
eða jafnvel gangandi.
Norður-England og þjóðgarðarnir Lake District, North York Moors,
Yorkshire Dales og Peak District búa yfir heillandi ósnortinni
náttúrufegurð ásamt fjölskrúðugu jurta- og dýraríki sem löngum hafa heillað
göngugarpa og náttúmunnendur.
Cornwall. Að aka milli litlu fiskiþorpanna á Cornwallskaganum er eins
og að skjótast aftur í aldir. Myndræn fegurð t.d. Clovelly, Lynton og
Lynmouth er ógleymanleg og Jamaica-kráin á Bodmin Moor er jafn
duiúðug og í samnefndrí sögu Daphne de Maurier.
Suður-England hefur sannarlega margt að bjóða þeim sem njóta vilja
sólar og skemmtunar. Einkar milt loftslag, ljós strandiengja, pálmatré og
annar suðrænn gróður hafa gert suðurströndina að einum vinsælasta
sumarbaðstað í norðanverðri Evrópu.
Wales. Óvíða er að finna jafnmarga sögufræga kastala og kastalarústir og
í Wales. I grasi grónum hlíðunum, innan um sauðfé á beit eða sitjandi við
\ lítið vatn með stöng, gætirðu haldið að þú værir eina manneskjan í
\ heiminum.
Skotland. Skosku hálöndin hafa ámm saman dregið að ferðamenn, með
hinu dularfulla Loch Ness, undurfagra Loch Lomond og hinu sérstæða
Great Glen, ekki síður en hinir heimsþekktu skosku golfvellir.
Leitaðu ekki langt yfir skammt. Fáðu nánari upplýsingar hjá
söluskrifstofum Flugleiða, Lækjargötu 2, Hótel Esju og Kringlunni,
eða hjá ferðaskrifstofum og umboðsmönnum um iand alit.
FLUGLEIÐIR