Tíminn - 19.05.1989, Blaðsíða 11
Laugardagur 20. maí 1989
HELGIN
11
sinnar þegar hún var 18 ára og á
tvítugsafmælisdaginn giftist hún
manni sem hún hafði þekkt sfðan
hún var 15 ára. Þau skildu að borði
og sæng áður en hún náði þvf að
verða 21 árs. Næstu níu árin segir
hún hafa verið „þau verstu, bestu,
einmanalegustu, áhugaverðustu,
þau árin sem ég reyndi að kynnast
sjálfri mér best“ á ævinni. Og þó
að ferill hennar lægi um leikhúsið,
sjónvarpið, kvikmyndimar og
Broadway var það ekki fyrr en hún
kynntist manninum sem hún er nú
búin að vera gift í 8 ár, leikaranum
Laurence Luckinbill, að líf hennar
fór að komast í skorður.
Eitt af því sem varð til þess að
hún varð ástfangin af Luckinbill,
sem er 17 árum eldri en hún, og
vildi giftast honum, að því burt-
séðu að hann er augsýnilega vin-
gjamlegur og hlýr maður og virtist
þarfnast hennar og vera fær um að
annast hana um leið, var sú stað-
reynd að hann hafði ekki séð einn
einasta þátt af „I Love Lucy!“
Hann bar heldur aldrei fram þessar
augljósu spurningur eins og Hvem-
ig var að alast upp heima hjá þér?
o.s.frv. Nú þegar hún á sjálf þrjú
böm á hún enga ósk heitari en að
þau fái að alast upp með báðum
foreldrum sínum og er ákveðin í
því að hjónabandið gangi vel. Og
hún gerir sér svo sannarlega grein
fyrir öllum gildmnum.
Lucie þekkir vítin
í skemmtanaheiminum
Leikkonan og móðirin Lucie
Amaz gerir sér grein fyrir því að
ástæða er til að hafa áhyggjur af
því að vera gift aðila í skemmtana-
iðnaðinum. Sú staðreynd 'að sú
atvinnugrein hefur á sér glæsi- og
kynþokkaorð skelfir hana ofurlít-
ið. Hún gerir sér grein fyrir því að
hver sá sem kemst eitthvað áleiðis
til stjörnudóms eða valda verður
kynþokkafullur og að allir vilja
eiga hlutdeild í þeirri persónu, svo
að þeir geti orðið valdamiklir líka.
Hún lýsir manni sínum sem mjög
kynþokkafullum náunga, og sjálfri
sér finnist hún kynþokkafull líka.
Hún hefur það í huga þegar hún
nefnir að sér finnist það besta og
versta við hjónabandið eitt og hið
Lucie Arnaz virðir móður sína
Lucy Ball en segir að þær hafi
aldrei verið félagar og vinir.
sama, að lífið komist í jafnvægi.
Hún viðurkennir að hún sakni þess
gamans sem daður er.
„Pabbi var hrifinn af mörgum
konum og plataði mömmu meðan
þau voru gift,“ segir Lucie. „Ég
held að ég hafi lagt mig fram um
að velja aðra manntegund, en ég
held að ég gæti sjálf hafa tileinkað
mér einhverja af þessum ósiðum.
Peir gætu komið upp á yfirborðið
þegar minnst varir og ég verð að
vera varkár. Ég held að ég skilji
aldrei hvers vegna foreldrar mínir
skildu, og kannski hef ég einhverja
vitlausa hugmynd um af hverju
hjónaband getur bara ekki gengið.
Ég þarf alltaf að minna sjálfa mig
á að hlutirnir eru bara svona ein-
faldir. Það er hægt að daðra og fara
út kvöld eftir kvöld, alltaf með
nýjum og nýjum karlmanni, og
það er alltaf nýr og nýr maður ...
nema því aðeins maður giftist
honum, og þá er maður kominn í
nákvæmlega þá aðstöðu sem ég er
í akkúrat núna.“
Með það í huga að gera sér grein
fyrir þörfum sínum og hvað hún er
að læra finnst Lucie það til góðs að
Luckinbil! skuli líka vera í skemmt-
anaiðnaðinum. En það hefursínar
dökku hliðar þegar þau þurfa bæði
að vinna og hvorugt getur verið
heima hjá börnunum þeirra þrem,
sem eru átta, sex og fjögurra ára.
Lucie leggur sig alla fram um að
sameina hjónaband, móðurhlut-
verkið og framabrautina þannig að
enginn verði útundan. Én börnin
eru fremst í forgangsröðinni og
það eru þau sem hún leggur mesta
áherslu á. Nú þegar hún er farin að
vinna í næturklúbbi getur hún
gefið sér góðan tíma með börnun-
um sínum vegna þess að hún þarf
ekki að vera alltaf að heiman.
t>ó að Lucie sé ekki enn alveg
viss um hver hún í rauninni er
finnst henni hún ekki hafa farið
neins á mis í lífinu. Og þó að
eitthvað slæmt hafi orðið á vegi
hennar hefur hún reynt að líta á
það með jákvæðu hugarfari og
finna einhverja kosti við það.
Kannski hefur hún á þann hátt lært
það sem dýrmætast er, að sársauk-
inn hefur fært með sér þroska og
öll reynslan hefur verið þess virði.
Því að þegar allt kemur til alls
elskar hún líka Lucy.
Framhjóladrifinn bíli á undraverði.
Viö hjá B & L erum stoltir af aö kynna nýja og
endurbætta Lada Samara.
Lada Samara hefur nýja og kraftmikla 1500
cc vél og fæst nú bæöi 3 og 5 dyra.
Lada Samara er rúmgóöur, framhjóla-
drifinn fjölskyldubíll, meö góða fjöörun
og aksturseiginleika, sem gerir hann
sérstaklega hentugan fyrir íslenska
staðhætti.
Lada Samara svo sannarlega
kærkomin kjarabót fyrir
íslenskar fjölskyldur.
3ja d. 1300 399.617.-
3ja d. 1500 444.091.-
5 d. 1300 456.873.-
485.446.-
lA«>A
góóur kostur í bílukaupum
Bein lína « söludeild 312 36
Verd frá kr. 456.000,-
BIFREIDAR & LANDBÚNADARVÉLAR HE
Armula 13 - 108 fíeykjavih - & 681200