Tíminn - 19.05.1989, Blaðsíða 13
HELGIN
Laugardagur 20. maí 1989
13
SAKAMÁL SAKAMÁL SAKAMÁL SAKAMÁL SAKAMÁL SAKAMÁL SAKAMÁL
dökkum jakka en frakkalausan og
ekki með neitt höfuðfat. Hann var
dökkhærður.
Með lýsinguna í fórum sínum hélt
lögreglan leitinni áfram. Fólk kom
til dyra í húsum sínum og átti von á
litlum gestum að syngja jólasöngva
en hitti í staðinn sterklega verði
laganna sem tjáðu því að morðingi
gengi laus á svæðinu og spurðu hvort
einhver hefði séð hann.
Auk lýsingarinnar mátti bæta við
að maðurinn hlyti að vera allmikið
blóðugur.
Athugað var hvort hann hefði
getað komist undan í bíl. Leigubíl-
stjórar voru spurðir en enginn kann-
aðist við að hafa tekið farþega á
þessum slóðum á tilteknum tíma.
Því var gert ráð fyrir að maðurinn
hefði flúið fótgangandi.
Rannsókn á gistiheimilinu leiddi í
Ijós að náunginn hafði farið inn um
glugga og hefði eins vel getað farið
út um hann aftur en það gaf enga
vísbendingu um í hvaða átt hann
hafði svo hlaupið.
Ýmsar miður þægilegar getgátur
komu upp. Vera kynni að Geraldine
Dunn væri ekki eina fórnarlamb
mannsins. Ekki mátti úitloka að
maðurinn hefði náð til annarrar
stúlku sem farið hafði fyrr úr húsinu
á leið í jólaleyfi sitt.
Pegar í stað var haft samband við
alla íbúa gistiheimilisins sem mögu-
legt var að ná til. Stúlkurnar voru
spurðar hvort þær hefðu séð mann
snuðrandi við húsið og beðnar að
skýra frá öllu, hversu smávægilegt
sem það kynni að virðast, varðandi
Geraldine Dunn og hvort hún gæti
hafa óttast eitthvað sérstakt.
Blóðugur í strætisvagni
Eðlilega var áhugi á að hafa uppi
á kunningjum Geraldine af karlkyni,
svo og fólki sem hún vann með og
ættingjum. Jafnframt hélt lögreglan
áfram að ganga hús úr húsi í leit að
einhverjum vísbendingum. Einnig
var farið á veitingastaði og knæpur
ef vera kynni að maðurinn hefði
haldið sig þar áður en hann lét til
skarar skríða. Lögð var áhersla á
tímann milli kl. 18 og 19.30.
Það virtist engan árangur ætla að
bera þar til lögreglumaður ræddi við
konu eina sem stigið hafði út úr
strætisvagni skammt frá gistiheimil-
inu. Hún kvaðst hafa séð mann sem
lýsingin gæti átt við. Þá var klukkan
tæplega 20. - Hann lét hallast upp að
húsvegg við Leebank Road, sagði
konan. - Fyrst hélt ég að hann væri
drukkinn en götuljósið skein á hann
og ég komst að þeirri niðurstöðu að
hann væri veikur. Hann gretti sig
eins og hann fyndi til.
Konan sagðist ekki sjálf hafa talað
við hann en tveir menn hefðu ávarp-
að hann svo hún heyrði. Annar
þeirra gekk til mannsins og sagði: -
Ósköp eru að sjá þig. Hvað varstu
að gera? Pá kvaðst konan hafa litið
nánar á manninn og séð að hann var
óhreinn í framan og fötin ötuð blóði.
- Svaraði hann? spurði lögreglu-
maðurinn.
- Já og hann talaði skýrt og
vandað mál, eins og menntaður
maður. Hann sagði: - Ég datt í
garðinum, en hafið ekki áhyggjur af
því. Ég lagast þegar ég næ strætis-
vagni. Það var allt og sumt.
Þetta nægði þó lögreglunni til að
finna nýja slóð einkum þegar vitnið
taldi að maðurinn hefði sfðan farið
að biðstöð vagns númer átta sem
gekk umhverfis miðborgina. Eftir
nokkrar fyrirspurnir hafðist uppi á
ökumanni vagnsins sem reyndist
muna mætavel eftir þessum farþega.
Vitni þegja
- Hann kom upp í um áttaleytið
og fór á efri hæðina, sagði vagnstjór-
inn. - Hann var blóðugur á höndun-
um og framan á jakkanum. Ég taldi
víst að hann hefði lent í slagsmálum
og hann virtist sljór.
- Talaðirðu eitthvað við hann?
vildi lögreglan vita.
- Bara til að taka við fargjaldinu,
svaraði vagnstjórinn. - Hann sagði
ekkert, rétti bara fram peningana og
ég rétti honum farmiðann.
Vagnstjórinn mundi ekki hvar
maðurinn fór af vagninum en var þó
viss um að hann hefði setið í allnokk-
urn spotta. Loks komst hann að
þeirri niðurstöðu að það hefði að
líkindum verið rnilli Édgbaston og
Ladywood-hverfanna.
- Einhver annar farþegi gæti hafa
séð hann fara úr vagninunt, bætti
vagnstjórinn við. - Ég heyrði tvo
menn tala um hann og mér skildist
að hann hefði sagt þeim að hann
hefði verið að slást. Skömmu sfðar
sá ég mann og dreng standa við
sætið. Þeir gátu ekki sest því sætið
var atað blóði.
Á þeim slóðum sem maðurinn
virtist hafa farið úr vagninum var
mikill erill á götum og þétt íbúða-
byggð allt um kring. Það yrði erfitt
að rekja slóð manns frá hvaða bið-
stöð sem væri en þó þess virði að
reyna það.
Vagnstjórinn áætlaði að um 60
farþegar hefðu verið í vagninum og
því lýsti lögreglan eftir fólki sem
gefið gæti upplýsingar. Það bar eng-
an árangur og fjórum dögunt síðar
sendi lögreglan frá sér svohljóðandi
tilkynningu:
„Við fáum enga aðstoð frá al-
menningi. Það er morðingi laus á
svæðinu og vel hugsanlegt að hann
fremji annað morð. Enginn vill gefa
neinar upplýsingar og því gerum við
ráð fyrir að fólk sé svona hrætt.
Við teljum góðar líkur á að morð-
inginn sé enn í borginni og ekki er
ólíklegt að hann láti aftur til skarar
skríða.“
Stöðugur vörður var settur við
sjúkrahús, hjúkrunarheimili og gisti-
hús, þar sem hætta þótti á að morð-
inginn gæti gæti komið í heimsókn.
Blóðugur jakki í kirkju
Eftir fimm daga svaraði farþegi úr
vagni átta tilmælum lögreglunnar en
hann hafði verið á neðri hæðinni og
ekki séð blóðuga manninn. Enn á ný
skoraði lögreglan á „þöglu 60-
menningana" að leysa frá skj óðunni.
Óttaaldan breiddist svo fljótt út
að á sjötta degi komu hvorki meira
né minna en tólf farþegar vagns átta
og skýrðu frá því sem þeir vissu urn
manninn í blóðuga jakkanum. Fáir
gátu þó sagt neitt merkilegt.
Starfsmenn borgarinnar höfðu
verið settir til leitar að blóðugum
fötum eða brunnum sem gætu gefið
vísbendingar. Fatahreinsanir voru
kannaðar en ekkert kom í ljós sem
reyndist vísbending í málinu.
Haldbetri vísbending kom hins
vegar frá Tutbury, um 40 km frá
Birmingham. Þar fannst blóðugur
jakki á bekk í miðaldakirkju þegar
fólk var að koma til messu á sunnu-
degi. Jakkinn var brúnn og einhver
hafði séð ungan mann koma út úr
kirkjunni kvöldið áður.
Lögreglumenn á staðnum fengu
aðstoð Birmingham-lögreglunnar
við að ræða við sóknarbörnin og loks
hafðist uppi á ungum manni í Tut-
bury sem jáðaði að eiga jakkann.
Hann kvaðst þó hafa gleymt honum
einhvers staðar. Saga hans var rugl-
ingsleg en honum var sleppt þegar
óyggjandi þótti að hann hafði verið
heima í Tutbury allan morðdaginn.
í Birmingham var tekið að gera
skrá yfir þá starfsmenn skrifstofa og
verksmiðja sem ekki komu til vinnu
eftir jólaleyfið. Það var mikið verk
en fljótt reyndist síðan að útiloka
flesta á listanum vegna aldurs og
fleiri staðreynda sem ekki komu
heim við morðingjann.
Lögreglan lét einskis ófreistað.
Lögreglumenn með myndir af Ger-
aldine fóru í strætisvagn númer átta
viku eftir morðið í von um að finna
einhvern sem reglulega fór með
vagninum. Hver einasti farþegi var
spurður hvort hann hefði séð farþega
sem leit út eins og morðinginn og
hefði verið hér blóðugur fyrir viku.
Þegar svarið var neitandi, fékk við-
komandi að sjá mynd af Geraldine
og var spurður hvort hann kannaðist
við hana.
Sálfræðimeðferð
Fljótlega virtist auðsætt að hvorki
Geraldine né morðingi hennar höfðu
notað þennan strætisvagn að stað-
aldri. Það útilokaði þann möguleika
Terry 0‘Hara var brenglaður á
geðsmunum og hafði gengið til
salfræðinga. Hann réð ekki við
sig þegar hann snerti Geraldine.
að þau hefðu getað kynnst í vagnin-
um, þó ekki væri meira en sem tveir
fastir farþegar.
Þá var farið að ganga á snyrti- og
hárgreiðslustofur og fljótlega kom
fram að Geraldine hafði farið í
hárgreiðslu sama dag og hún var
myrt. Ekkertfrekara kom út úrþví.
Frekari athugun á ferli Geraldine
leiddi í Ijós að hún hafði verið slæm
á taugum og farið í meðferð hjá
sálfræðingi og gengið í hópmeðferð
á geðsjúkrahúsi. Lögreglan fékk
þegar í stað skrá yfir nöfn allra
karlsjúklinga scm verið höfðu þar á
sama tíma.
Starfsfólk bar að einkum hefði
einn piltur hefði sýnt mikinn áhuga
á Geraldine. Hann var óskaplega
skapbráður og hafði nokkrum sinn-
um verið handtekinn fyrir tilefnis-
lausar árásir á fólk, cn alltaf sendur
til sálfræðings vegna þess að hann
átti greinilega við geðrænan vanda
að stríða.
Maðurinn hét Terry O'Hara og er
lögreglumenn sáu Ijósmynd af
honum, töldu þeir ekki um að villast.
Hann var eins og maðurinn sem
stúlkan í þvottahúsinu hafði lýst svo
vcl. Ekki mátti þó flana að neinu
heldur var ákveðið að ræða við
manninn fyrst í rólegheitum.
Það var ekki auðvelt. því þó Terry
hefði skilið eftir heimilisfang sitt á
stofnuninni. bjó hann þar ekki leng-
ur þegar til átti að taka. Húseigand-
inn gat ekki upplýst hvert hann hafði'
flutt. Svo virtist sem eina leiðin yrði
að lýsa eftir Terry, en þá bar að
annan íbúa hússins sem óskaði þess
að fá að tala við lögregluna.
Maðurinn spurði hreint út hvort
verið væri að leita að Terry O'Hara.
Þegar það var staðfest, bað ntaður-
inn lögreglumennina að koma með
sér út. Þar benti hann þeiin á annað
hús lengra niður með götunni. Þang-
að hcfði Terry flutt fyrir tveimur
mánuðum.
Geðbilun engin afsökun
Manninum voru þakkaðar upplýs-
ingarnar og lögreglumenn fór inn í
hitt húsið, viðbúnir öllu. Margir
bjuggu í húsinu og gengið var á
dyrnar kerfisbundið. Þegar komið
var að dyrum seinustu íbúðarinnar
án þess að nokkur hefði sést sem
líktist Terry, opnuðust þær og Terry
sjálfur stóð ljóslifandi frammi fyrir
lögreglunni. Lýsingin var svo ná-
kvænt að ekki þurfti að spyrja hver
þetta væri.
Terry O'Hara var greinilcga afar
óstyrkur þegar hann sá lögregluna
og hendur hans skulfu svo hann
þurfti að styðja sig. Sama gilti um
fæturna þegar hann var leiddur út í
lögreglubílinn.
Á stöðinni gekk yfirheyrslan fljótt
fyrir sig þar sem Terry var svo
andlega hamlaður að hann var ekki
fær um nein undanbrögð. Hann
hafði lengi elt konur í þeint tilgangi
að nauðga þeim og tekist það nokkr-
um sinnum að eigin sögn. Hins vegar
hafði hann aldrei ætlað sér að drepa
neina þeirra, enda væri hann einlæg-
ur aðdáandi kvenfólks yfirleitt og
virti það mjög.
Það var ekki fyrr en hann snerti
Geraldine Dunn að hann missti
gjörsamlega stjórn á sér og tók að
þyrstaeftir blóði. Þegarhann byrjaði
að berja hana, gat hann ómögulega
hætt.
Terry O'Hara kom fyrir rétt seint
í maí 1988. Verjandi hans bað
kviödóm að taka tillit til þess að
skjólstæðingur hans væri veikur á
geði en jafnvel það hafði engin áhrif.
Terry var úrskuröaður sekur og
dæmdur í lífstíðarfangelsi.
útlitsgallaða kæli- og frystiskápa
með verulegum afslætti!
m llfi i
KRINGLUNNI SÍMI 685440