Tíminn - 24.06.1989, Blaðsíða 4

Tíminn - 24.06.1989, Blaðsíða 4
4 Tíminn, l?aMaarfl§fliJrR2i4,.,jýny9Q9: Hjúkrunar- fræðingar Eftirtaldar stöður hjúkrunarfræðinga í heilsu- gæslustöðvum eru lausar til umsóknar nú þegar: 1. Staða hjúkrunarforstjóra við Heilsugæslustöð- ina á Hólmavík. 2. Staða hjúkrunarforstjóra við Heilsugæslustöð- ina á Þórshöfn. 3. Staða hjúkrunarforstjóra við Heilsugæslustöð- ina í Neskaupstað. 4. Staða hjúkrunarforstjóra við Heilsugæslustöð- ina á Egilsstöðum. 5. Staða hjúkrunarforstjóra við Heilsugæslustöð- ina á Hvammstanga frá 1. júlí 1989 til tveggja ára. 6. Staða hjúkrunarfræðings við Heilsugæslustöð- ina á Djúpavogi. 7. Staða hjúkrunarfræðings við Heilsugæslustöð- ina á Bíldudal. 8. Staða hjúkrunarfræðings við Heilsugæslustöð- ina á Flateyri frá 1. ágúst 1989. 9. Staða hjúkrunarfræðings við Heilsugæslu- stöðvarnar á Fáskrúðsfirði og Stöðvarfirði. Umsóknir ásamt upplýsingum um nám og fyrri störf við hjúkrun sendist heilbrigðis- og trygginga- málaráðuneytinu, Laugavegi 116, 150 Reykjavík. Heilbrigðis- og tryggingamálaráðuneytið 22. júní 1989. fFÉLAGSMÁLASTOFNUN REYKJAVÍKURBORGAR Fósturheimili Félagsmálastofnun Reykjavíkur óskar eftir fóstur- heimili fyrir 10 ára dreng með geðræn vandamál. Væntanlegt fósturheimili þarf að vera barnlaust, en nauðsynlegt er að reynsla af uppeldisstörfum sé fyrir hendi. Drengurinn þarfnast mikils stuðnings og um verður að ræða nána samvinnu á milli meðferðaraðila hans og fósturforeldra. Nánari upplýsingar veitir Rekína Ásvaldsdóttir félagsráð- gjafi, Félagsmálastofnun Reykjavíkur, í síma 685911 milli kl. 10.00 og 12.00 alla virka daga. Störf fyrir KÍ Kennarasamband íslands auglýsir til umsóknar tvær stöður fulltrúa á skrifstofu KÍ. Um er að ræða störf að skólakynningar- og kjaramálum svo og félagsmálum og erindrekstri. Óbundið hvort ráðið verður í fullar stöður eða hlutastörf. Umsóknir skulu sendar til stjórnar KÍ, Grettisgötu 89, Reykjavík. Umsóknarfrestur ertil 10. júlí. Nánari upplýsingar eru veittar á skrifstofu KÍ, Grettisgötu 89, Reykjavík, símar 91-24070, 91- 12259,91-25170. Sóknarfélagar - Sóknarfélagar Sumarferð Sóknar verður farin til Vestmannaeyja, helgina 21 -23. júlí nk. Upplýsingarog pantanir í síma681150 til 6. júlí nk. Starfsmannafélag Sóknar. Stefna aö endurnýjun bílaflota lögreglunnar á þriggja ára fresti: Sex Volvobílar komnir á götuna Lögreglustjóraembættið í Reykjavík kemur til með að taka 14 nýja bfla í notkun á þessu ári. Af þeim eru tíu fólksbflar af Volvo 240 Highway patrol gerð og fjórir Ford Econoline. Að sögn Stefáns Hirst skrifstofu- stjóra lögreglustjóraembættisins hafa sex Volvobílar verið teknir í notkun á undanförnum vikum, en hinir verða teknir í notkun eftir því sem framvindan verður. „Þetta hangir allt á sömu spýtunni, rekstur- inn og eignakaup," sagði Stefán. Bílarnir koma í stað þeirra sem fyrir eru, en stefna embættisins er að endurnýjun á bílaflotanum fari fram á þrem árum. Volvo bílariiir eru sérbúnir sem lögreglubílar, á þann hátt að undirvagn er sérstaklega styrktur og vélin er aflmeiri en almennt gerist í bílum af þessari gerð. í dag hefur einn Econoline verið tekinn í notkun og annar er á leiðinni á götuna, en innrétta þarf þá áður en þeir eru teknir í notkun. Hinir tveir sem komnir eru til lands- ins verða teknir í notkun síðar á árinu. „Þetta er ansi góð endurnýjun, ef við höldum þessu. Við eigum 44 bíla og það má segja að það sé takmarkið að endurnýja þá á þriggja ára fresti,“ sagði Stefán. Hann sagði að endur- nýjunin tvö síðustu ár hefði verið með svipuðu móti, en áður hafi hún verið heldur hæg. Um kostnaðinn við þessa endur- nýjun sagði Stefán að um áramót hefði innkaupsverð hvers Econoline bíls verið um 1250 þúsund, en Volvo bílanna um milljón, en síðan hefði gengið fallið og því verðið hækkað eitthvað. Þá koma viðbótarútgjöld við innréttingu Econoline bílanna sem er um 400 þúsund. -ABÓ Fjölþættari fiskframleiðsla: Nasl úr fiskholdi í fyrsta sinn á íslandi er hafin framleiðsla á fiskríku nasli þar sem beitt er háþrýstisuðu. Framleiðslan hefur hlotið heitið „Sjávarnasl". Fyrirtækið Fiskmar h.f. á Ólafsfirði og matvælatæknideild Iðntækni- stofnunar íslands hafa unnið að þróun vörunnar s.l. þrjú ár í sam- vinnu við Rannsóknastofnun fiski- ðnaðarins og með styrk frá rann- sóknasjóði Rannsóknaráðs ríkisins. Sjávarnaslið líkist mjög kartöflu- flögum eða öðru nasli sem framleitt er úr kartöflum eða korni. Munurinn er hinsvegar sá að fiskhold er megin- uppistaða hráefnisins sem Sjávar- naslið er framleitt úr, eða 40%, sem gerir vöruna próteinríka og eykur hollustuna. Eingöngu eru notaðir valdir hlutar fisksins (þorsks) sem eru meðhöndlaðir á sérstakan hátt. Önnur hráefni eru valdar mjölteg- undir og náttúruleg bragðefni. Djúpsteiking hefur hingað til ver- ið algengasta framleiðsluaðgerðin á nasli en vegna þess að háþrýstisuðu er beitt við framleiðslu Sjávarnasls- ins er það mun fituminna. Fyrirhugað er að Sjávamasl verði einkum framleitt til útflutnings þó fyrst um sinn verði það eingöngu selt innanlands. Þrjár bragðtegundir em nú fram- leiddar af Sjávarnaslinu; með papr- íku, lauk og chili og jurtakryddi en brátt verður tveimur nýjum tegund- um bætt við, salami og tortilla. SSH Framleiðsla Sjávarnaslsins fer fyrst um sinn fram í húsnæði Iðntæknistofnun- ar. Tímamynd: Ámi Bjama 21 færeyskir gestaleikarar stíga á fjalir Þjóðleikhússins um helgina og gefa áhorfendum innsýn í hvað gerist í búningsklefa knattspyrnuliðs í af- gerandi úrslitaleik. Verkið heitir Framá og er eftir Sigvar Olsson og Fred Hjelm í leikstjórn Sigrúnar Valbergsdóttur. Messíana Tómas- dóttir teiknaði leikmynd og búninga. Hvernig er samstaðan í liðinu og hver er orsök stöðu þeirra nú? Hver ber ábyrgð á henni? Sjónarmið Iiðsmanna eru ólík um áhuga- og atvinnumennsku. Liðið barðist í fyrstu deild í mörg ár og átti menn í landsliðinu. Búningsherbergið er lokaður heimur leikmenn skipta um ham, afklæðast fyrri persónuleika og vígbúast til stríðs upp á líf og dauða. FÆREYSKIR GESTIR í ÞJÓÐLEIKHÚSINU

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.