Tíminn - 24.06.1989, Blaðsíða 6

Tíminn - 24.06.1989, Blaðsíða 6
 6 Tíminn Tíminn MÁLSVARIFRJÁLSLYNDIS, SAMVINNU OG FÉLAGSHYGGJU Útgefandi: Framsóknarflokkurinn og _____Framsóknarfélögin í Reykjavík Framkvæmdastjóri Kristinn Finnbogason Ritstjórar: Indriöi G. Þorsteinsson ábm. IngvarGíslason Aðstoðarritstjóri: Oddur Ólafsson Fréttastjórar: BirgirGuðmundsson EggertSkúlason Auglýsingastjóri: SteingrímurGísfason Skrifstofur: Lyngháls 9, Reykjavík. Sfmi: 686300. Auglýsingasími: 680001. Kvöldsímar: Áskriftog dreifing 686300, ritstjórn, fréttastjórar 686306, íþróttir 686332, tæknideild 686387. Setning og umbrot: Tæknideild Tímans. Prentun: Blaðaprent h.f. Frá og með 1. mars hækkar: Mánaðaráskrift kr. 900.-, verð í lausasölu 80,- kr. og 100,- kr. um helgar. Áskrift 900.- Grunnverð auglýsinga kr. 595,- pr. dálksentimeter Póstfax: 68-76-91 Vestmannaeyjar Vestmannaeyingar halda hátíð um Jónsmessuna til þess að minnast 70 ára afmælis kaupstaðarrétt- inda og fyrstu bæjarstjórnar í Eyjum. Eyjarnar fengu kaupstaðarréttindi með lögum 22. nóvember 1918, en nýkjörin bæjarstjórn kom saman til fyrsta fundar 14. febrúar 1919. Þessara tímamóta minnast Eyjamenn með Jónsmessuhá- tíðinni í dag. Þótt hér sé verið að minnast sjötíu ára sögu kaupstaðarréttinda, þá er saga Vestmannaeyja ekki öll sögð með því. Þvert á móti eru Vestmanna- eyjar einhver hin söguríkasta byggð á íslandi. Það er jafnvel sumra ætlan, að mannvist í Eyjum eigi sér lengri sögu en búseta í landinu er almennt miðuð við. Það er ekki einasta að byggðasaga Vestmannaeyinga sé löng, heldur er saga Eyjanna afar sérstæð og rík að óvenjulegum viðburðum. Menning, atvinnuhættir og mannlíf yfirleitt hefur verulega sérstöðu meðal íslenskrar byggða- menningar. Lega eyjanna og landshættir leiddu það af sér, að Vestmannaeyingar hlutu að búa öðruvísi en flestir aðrir, móta atvinnuhætti sína í samræmi við eðli bjargræðismöguleikanna. Mann- líf í Vestmannaeyjum jók fjölbreytni íslenskrar menningar um aldirnar. Saga Vestmannaeyja er því athyglisverð og fróðleg. Hún er ekki aðeins saga sérstæðs samfé- lags, sem orðið hefur til á eyjúm í Norður- Atlantshafi með meira en þúsund ára samfelldri byggð, heldur er hún rík að sögulegum viðburðum, sem allir íslendingar hljóta að kunna meiri eða minni skil á. Þar má nefna hið sögufræga Tyrkjarán 1627, þegar meira en 200 manns í fámennu sveitarfélagi voru herleidd af sjóræningjum og tugir manna felldir á staðnum. Gosið á Heimaey 23. janúar 1973 er sérstætt í gossögu íslands, en þá tæmdust Eyjarnar af íbúum sínum um skeið, 5200 manns. Þrátt fyrir marga ógn sem Vestmannaeyingar hafa lifað í aldanna rás, þá hefur það aldrei bugað þá sem þar bjuggu og vildu búa. Þrátt fyrir áfallið 1973 er íbúafjöldi Vestmannaeyja um 4740 manns. Vestmannaeyjar eru eitt af fólkflestu byggðarlög- um á íslandi eins og verið hefur mestalla þessa öld. Atvinnulíf Vestmannaeyja er þróttmikið. Ekki fer milli mála, að Eyjarnar eru öflugt framleiðslu- byggðarlag og leggja mikið til útflutningsfram- leiðslu og gjaldeyrissköpunar. E.t.v. eru Vest- mannaeyjar ekki ríkar að náttúruauðlindum fram yfir fiskislóðirnar. En þær eru þá þeim mun gjöfulli og mikilvægari. Menning og mannlíf nútímans stendur með blóma í Vestmannaeyjum. Vestmannaeyingar hafa rækt vel sögu sína og menningararf. Listalíf hefur dafnað vel í Eyjum, leiklist, tónlist og myndlist auk bókmennta, sem Eyjamenn eiga fyrir sig. Vest- mannaeyingar hafa látið að sér kveða í íþróttum og staðið framarlega á því sviði hvað varðar afrek einstaklinga og kappliða. Við þessi tímamót í sögu Vestmannaeyja sendir Tíminn Eyjamönnum hugheila afmæliskveðju. Laugardagur 24. júní 1989 * A ÞJÓÐHÁTÍÐAR- DAGINN ár hvert efnir Hrafns- eyramefnd til hátíðarhalds á Hrafnseyri við Arnarfjörð, fæð- ingarstað Jóns Sigurðssonar forseta. Við það tækifæri er að sjálfsögðu rifjuð upp saga sjálf- stæðisbaráttunnar og flutt minni Jóns Sigurðssonar. Að þessu sinni hélt Ingvar Gíslason, fyrrverandi ráðherra, nú ritstjóri Tímans, hátíðar- ræðuna. Verður stiklað á stóm í máli hans hér í Tímabréfi. í upphafi ræðu sinnar fór Ingvar Gíslason nokkrum orð- um um Hrafnseyrarstað sem einn af helgustu sögustöðum þjóðarinnar og gerði að umtals- efni þá miklu uppbyggingu sem þar hefur átt sér stað á vegum Hrafnseyrarnefndar og þá um- önnun sem ábúendur og starfs- menn auðsýna staðnum. Hrafnseyri liggur í alfaraleið í fögru og stórbrotnu umhverfi Arnarfjarðar. Fjöldi gesta sækir staðinn heim yfir sumartímann, og þar er margt sem minnir á að Hrafnseyri er fæðingar- og upp- vaxtarstaður Jóns Sigurðssonar, þótt ekki standi þar uppi aðrar byggingar frá hans tíð en veggj- arbrot í gömlu bæjartóttinni. Sú vöntun er bætt upp með ágætu minningasafni um forsetann og sérstakri kapellu, sem honum er helguð. Horft til fyrri aldar „Það verður kjarninn í erindi mínu hér í dag,“ sagði Ingvar Gíslason „að hverfa í huganum aftur í tímann. Út af fyrir sig ætti þess ekki að vera þörf að fara mörgum orðum um þjóðfélags- ástæður og landshagi á íslandi í upphafi 19. aldar um það bil sem Jón Sigurðsson fæddist og tók að vaxa úr grasi f Hrafnseyrar- túni. ' Lýsing á aldarfari og landshögum þessa tímabils er flestum vel kunn. Það er sögu- leg staðreynd að efnáhagsástand á Islandi var í mikilli lægð um og eftir aldamótin 1800 og átti sér langan aðdraganda, reyndar margra alda slóða efnahagslegr- ar hnignunar. Hér áttu náttúruorsakir og veðurfar ómældan þátt í bágu ástandi þjóðarinnar. 18. öldin var öld harðinda og náttúruham- fara, svo að út yíir tekur í sögu landsins. Þar að auki herj- aði á land og þjóð önnur óáran, mannskæðar sóttir og búfjár- sjúkdómar. Svo langvinnt sem þetta ástand var, þarf engan að furða þótt mátt hafi dregið úr þjóðinni, þótt framtak hennar og sjálfsbjargarviðleitni hafi lamast. Þetta ástand hélst að ýmsu leyti fram á uppvaxtarár Jóns Sigurðssonar. Hann hafði barnsminni af eymd og úrræða- leysi víða í landinu fyrir og um sína daga, þótt sjálfur yxi hann upp við góð efni og heimilis- menningu á Hrafnseyri. Sú stjórnskipun og stjómarfar sem íslendingar bjuggu við á þessum tíma voru landshögum lítt til framdráttar. Hér ríkti þá danskt konungseinveldi og emb- ættisstjóm í þess þágu. Það bar að vísu við að meðal einvaldra konunga og í embættis- og ráð- gjafastéttum þeirra kæmu fram hugmyndir um bætt stjórnarfar og efnahagsframfarir. Hægt er að benda á dæmi um þetta frá ofanverðri 18. öld. Fæstaf þessu varð íslendingum til þess gagns sem til var ætlast, og bar margt til þess. Að sumu leyti voru þessar framkvæmdir óraunsæjar og ekki framkvæmanlegar við þeirra tíma aðstæður. Sumar vom misheppnaðar og til skaða. Þegar ég horfi til baka og reyni m.a. að gera mér grein fyrir því hvers vegna iðnaðar- uppbygging, stórútgerð og nýjar búgreinar áttu erfitt uppdráttar á Islandi fyrir 200 ámm, þá finnst mér blasa við eitthvað svipað því sem ég hef sjálfur kynnst í svokölluðu þróunar- starfi meðal vanþróaðra þjóða í þriðja heiminum. Þar er til lítils að ætla að umskapa efnahags- samfélög með áætlunarbúskap, sem ekki gerir ráð fyrir millistig- um á þróunarbrautinni, hægfara breytingum. Betra er að byggja á því sem fyrir er og fara hægt í breytingar á undirstöðunni, jafnvel þótt sú undirstaða þyki ekki afkastamikil frá sjónarmiði fullkominnar framleiðslutækni. Nú ætla ég ekki endilega að bera saman vanþróaðar þjóðir dags- ins í dag við íslenska þjóð fyrir 150-200 árum að öðm leyti en því að ég er sannfærður um að breyting á samfélagi og efna- hagsgrundvelli verður að gerast hægt, en ekki með byltingum, hvorki stjómmálabyltingum né tæknibyltingum. Um þessa skoðun finnst mér ég eiga bandamann í Jóni Sig- urðssyni. Hann fæddist inn í framleiðsluskipulag, sem ekki gaf mikið af sér og var auk þess rúið ýmsum úrræðum. Eigi að síður hafði íslenska þjóðin bjargast af við þetta búskapar- lag, sjálfsþurftarbúskapinn, gegnum aldimar. Jón Sigurðs- son boðaði engar byltingar á þessu skipulagi. Hann vildi þróa íslenskan búskap á sínum eigin forsendum, en byggja upp við hlið hans það sem kalla má borgaralegar atvinnugreinar, þ. á m. iðnað og útgerð sem lá vel við Vestfirðingum og þeir höfðu forystu um á undan öðmm. Minni Jóns Sigurðssonar Eigi að síður var Jón Sigurðs- son boðberi nýrrar aldar. I boð- skap hans kveður við nýjan tón. Eins og Jónas Hallgrímsson verður fyrsta nútímaskáld á ís- landi, þá er Jón Sigurðsson hinn fyrsti lýðræðissinnaði fomstu- maður þessa lands, fyrsti nú- tímamaður íslenskra stjórn- mála. Skylt er að geta þess að til vom menn á undan Jóni eðá lifðu samtímis honum, sem boð- uðu andlegar og verklegar fram- farir í landinu eða breytingar á ýmsum stjórnarháttum. Nöfn þessara manna em kunn, s.s. Baldvin Einarsson og Tómas Sæmundsson, sem báðir dóu rúmlega þrítugir, en voru aug- ljóslega stjórnmálamenn að upplagi. í hópi embættismanna vom framfarasinnaðir menn á sinn hátt. Það voru t.d. æðstu embættismenn þjóðarinnar sem stofnuðu fyrstu búnaðarsamtök á Islandi. En staða Jóns Sigurðssonar er einstök. Hann gerist raunvem- legur „stjómmálamaður“ með markvissa stefnuskrá á bak við sig. Hann verður fyrstur til þess að boða nauðsyn stjómmála- frelsis, bæði frelsi gagnvart út- lendu valdi og þingræðisstjóm í innanlandsmálum. Það var Jón Sigurðsson sem skapaði þá pólit- ísku sannfæringu, sem lengi hef- ur lifað, að þjóðin þyrfti að vera óháð erlendu valdi og búa við lýðræði og þingræði til þess að tryggja sér farsæla afkomu og hamingjusamt líf í landinu. Pólitík Jóns Sigurðssonar snerist um þetta. Lýðræðishugmyndir Jóns vom að öllu nútímalegar og þannig var málflutningur hans. Þótt stjórnmálastefnu og stjórnmálaviðhorfum Jóns Sig- urðssonar sé lýst með þessum orðum, þá fer því fjarri að íslenskt stjórnkerfi kæmist í það horf sem hann stefndi að, áður en hann félli frá. Barátta Jóns Sigurðssonar fyrir frelsi og lýð- ræði leiddi áþreifanlega í ljós að eitt er markmið og annað að ná því. íslensk lýðræðis- og þjóð- frelsisbarátta var háð í mörgum áföngum, oftast er við það mið- að að frelsisbaráttan hafi byrjað 1830, sem daufur endurómur frá frelsishreyfingum í Evrópu. Jón Sigurðsson var þá innan við tvítugt og vann fyrir sér sem skrifstofumaður hjá biskupnum í Laugamesi. Hans er ekki getið við neina pólitík á þessum ámm. Það er ekki fyrr en 10 ámm síðar að hann fer að láta að sér kveða í þjóðmálum, og þá gerir hann það svo að um munar. Hann hafði þá sest að í Kaupmanna- höfn, stundað þar formlegt há- skólanám, lagði m.a. fyrir sig íslenska sagnfræði og lestur fomra skjala íslenskra, en kynnti sér einnig almenna mann- kynssögu, hagfræði og stjórn- málastefnur samtimans. Hann var einstaklega fjöllesinn og vel undirbúinn af þeim sökum að gerast stjórnmálaforingi og boð- beri nýs tíma. Foringi og fjölhyggjumaður Jón Sigurðsson varð virkur stjómmálaforingi þegar hann gekkst fyrir stofnun Félags ís- lendinga og Nýrra félagsrita 1841. Hann er þá aðeins 29 ára gamall, tæplega þrítugur. Þegar Alþingi var endurreist og kom saman 1985 var Jón kjörinn fulltrúi Isafjarðarsýslu, sem þá var eitt sýslufélag, og var það alla ævi úr því, u.þ.b. 35 ár. Ekki er vafamál að Jón var traustur fulltrúi Vestfirðinga á Alþingi, en hann var miklu meira. Hann varð brátt viður- kenndur þjóðarforingi sem gerði landið allt að umdæmi sínu. Þótt síst fari milli mála um vestfirsk- an uppmna Jóns Sigurðssonar, þá verður persónu hans ekki skipt í parta eftir hreppapólitík. Hann leitaði sjálfur stuðnings hjá allri íslensku þjóðinni um stefnumál sín og hlaut fylgi við þau í öllum landsfjórðungum,

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.